Morgunblaðið - 22.09.2007, Side 26
tíska
26 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Golli
Hönnuðurinn Jóna Björg Jónsdóttir vinnur eingöngu úr náttúrafurðum.
bæra ferðamennsku. Ég ákvað að
slá til og taka þátt í þessu verkefni
þar sem „konseptið“ eða hugmynda-
fræðin sem er grunnurinn í allri
minni hönnun er einmitt íslensk
náttúra og sést það greinilega bæði
á litunum og áferð efnanna sem ég
nota. Ég sendi inn verk í mosalitum
og varð svo heppin að hljóta önnur
verðlaun en það varð mér mikil
hvatning og því hélt ég ótrauð
áfram!
Í nóvember árið 2005 var ég
ásamt fleiri hönnuðum með sýningu
í Köln í Þýskalandi og hluti hennar
var síðan settur upp á skemmtilegri
sýningu í Þjóðmenningarhúsinu
sumarið 2006 sem vakti töluverða
eftirtekt.
Í mars síðastliðnum var svo hald-
in fata- og vörusýning í Berlín og
skúlptúr. Ég hef hálendið og nátt-
úru Íslands að leiðarljósi við hönn-
unina og í henni má t.d. sjá speglast
hrjúfa áferð hraunsins og silkimjúkt
yfirborð mosans. Jöklarnir og sand-
urinn koma líka við sögu. Hver flík
er því einstök og síbreytileikinn í
framleiðsluferlinu ræður ríkjum líkt
og í náttúrunni sjálfri. Stundum
bregð ég á leik og skreyti efnið með
pallíettum og perlum.
Fötin eru afar klæðileg og þar
sem hver flík er sérhönnuð og ein-
stök ættu konur af öllum stærðum
og gerðum að geta fundið margt við
sitt hæfi. Auk kjóla, pilsa og toppa
er ég einnig með á boðstólum margs
konar húfur, lausar ermar, sjöl og
grifflur,“ segir Jóna Björg.
Lifandi landslagsmálverk
„Í apríl árið 2006 tók ég þátt í
hugmyndasamkeppni sem nefndist
Þjóðgarðsafurð í ríki Vatnajökuls.
Það voru Íslendingar, Svíar, Finnar
og Skotar sem stóðu að baki sam-
keppninni sem tengdist inn á sjálf-
Jóna Björg vinnur eingönguúr náttúruafurðum eins ogsilki og ull:,,Ég fór á tveggja daga
námskeið að læra þæfingu á ull fyrir
u.þ.b. þremur árum og varð svo
heilluð af þessari aðferð að ég tók að
þróa með mér aðferðir við litun á
silki og fór síðan í kjölfarið að þæfa
saman ull og silki.
Þæfing er ein elsta aðferðin við
textílframleiðslu og orsökina líklega
að finna í þeirri staðreynd hversu
einföld tæknin er í sniðum. Til fram-
leiðslunnar þarf einungis vatn, hita,
núning og íslenska jurtasápu og því
koma blessunarlega engir mengandi
þættir við sögu í ferlinu.
Silkið sem ég nota er svonefnt
,,fair trade“ (sanngirnisviðskipti)
silki en það þýðir að fólkið sem kem-
ur að framleiðslu efnisins fær greitt
fyrir vinnuna sína og börn koma þar
hvergi nærri.
Ég geri einungis módelflíkur sem
eru búnar til um leið og efnið, rétt
eins og þegar unnið er með leir eða
voru þá aðstandendur tískusýning-
arinnar í Rostock viðstaddir. Það
var svo fyrir tilstilli viðskiptafull-
trúa íslenska sendiráðsins í Berlín
sem mér var boðið að taka þátt í
þeirri sýningu sem fór fram í Ro-
stock 14. september síðastliðinn.
Þar sýndi ég tíu kvenklæðnaði úr ull
og silki við góðar undirtektir.
Þekkt þýsk sjónvarpskona sagði
við tilefnið að íslensk náttúra sæist
greinilega í hönnun minni og hafði
orð á því að fötin á fyrirsætunum
minntu á landslagsmálverk þar sem
maður ber augum mosann, rautt
hraunið, sönduga skriðjökla og
svarta sanda.
Það var hreinlega ævintýri líkast
að sjá eigin hönnun á sviðinu þar
sem tískusýningin fór fram í kirkju
heilags Nikulásar sem var byggð ár-
ið 1350. Öll umgjörðin var óvenjuleg
og slíkt hið sama má segja um tón-
listina sem var frábær. Auk okkar
frá jbj design var þarna líka fulltrúi
frá íslenska sendiráðinu í Berlín og
ræðismaður Íslendinga í Rostock.“
– Er eitthvað spennandi á döf-
inni?
„Já, vissulega. Það er þó fyrst og
fremst þátttaka í sýningunni Hand-
verkshefðir í hönnun sem verður
opnuð í Gerðubergi í dag. Því næst
tek ég þátt í Ráðhúsmarkaðnum
sem er á vegum Handverks og
hönnunar og stendur yfir frá 5.-8.
október í Ráðhúsi Reykjavíkur. Síð-
an taka að sjálfsögðu við árshátíð-
ardressin, brúðarkjólarnir og margt
fleira spennandi.
Ég er líka með vörur í verslun í
London og Árósum og það er aldrei
að vita nema þeim eigi efir að fjölga
sem hafa vörur mínar á boðstólum í
framtíðinni.“
Tískusýningin Jóna Björg segir það hafa verið ævintýri líkast á sjá hönnun sína á sviðinu í Rostock.
Hálendið
speglast í
hönnuninni
Jóna Björg Jónsdóttir hönnuður hefur vakið verð-
skuldaða athygli undanfarið fyrir frumlegan og þjóð-
legan fatnað sem hún framleiðir undir merkinu jbj de-
sign. Hún er nýkomin frá Rostock í Þýskalandi þar
sem henni var boðið að taka þátt í stórri tískusýningu
á vegum KwAgentur og hún tekur brosandi á móti
Hrund Hauksdóttir í fallega galleríinu sínu í Skóla-
gerði í Kópavogi.
Grænn og vænn Síðkjóll sem sómir
sér vel við sérstök tilefni.
Fatahönnun Jónu Bjargar fæst í
galleríinu hennar og verslun í
Skólagerði 5 í Kópavogi þar sem
opið er virka dag frá 12-18, í Lista-
safni Íslands og hjá Kraum í Að-
alstræti 10. Að auki er hægt er að
skoða ævintýraheim jbj design á
heimasíðunni www.jbj.is
Með linda um sig miðja Hver flík er sérhönnuð.
Þegar kuldaboli bítur Hlý húfa
hentar vel yfir myrkustu mánuðina.
Náttúruleg Ull og silki eru efni sem
Jóna Björg notar mikið.