Morgunblaðið - 22.09.2007, Síða 29

Morgunblaðið - 22.09.2007, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 29 m og sjá gjast mál- al annars andgerði, andteknu, m enn er þá flutt til rdag og helgina. andteknir úrskurð- mtudags- nni til 18. ður haldið komið við gna fíkni- egar ekki rnir, sem um, Nor- egi og Danmörku, myndu sitja í varðhaldi. Friðrik Smári tjáði fjöl- miðlamönnum það einnig í gær að ekki væri búið að taka ákvörðun um hvort krafist yrði framsals á þeim. Sú ákvörðun verður tekin síðar. Ekki fæst uppgefið hvort fleiri séu grunaðir um aðild að málinu en lög- regla útilokar ekki að svo sé. Tókst innflutningur árið 2005? Um miðjan dag í gær fengust upplýsingar um, að tveir hinna handteknu væru bræður. Var ann- ar þeirra handtekinn í höfuðborg- inni en hinn í Stafangri í Noregi þar sem hann er búsettur. Í kjölfarið bárust fregnir af því frá Fáskrúðs- firði að sömu menn hefðu verið á ferðinni þar fyrir tveimur árum. Í Morgunblaðinu í gær var sagt frá skútu sem var lagt við höfnina í byrjun september árið 2005. Tveir bræður komu á land og sögðu, að skútan væri vélarvana. Ægir Krist- insson hafnarvörður staðfesti við Morgunblaðið í gær að mennirnir hefðu í kjölfarið fengið að hringja, og skömmu síðar voru þeir sóttir og höfðu með sér allan sinn farangur. Hvorki lögregla né tollgæslan skoð- uðu málið. Starfsmaður bæjarins gróf upp nafn annars mannsins nokkrum mánuðum síðar vegna vangoldinna hafnargjalda og einnig til að spyrja hvað ætti að gera við skútuna. Greiddi annar mannanna þá hafnargjöldin og sótti skútuna síðar án þess þó að láta af því vita. Skútan bar nafnið Lucky Day en engin skráningarnúmer voru á henni. Ægir segist ekki vera með á hreinu hversu há hafnargjöldin voru. Atferli mannanna tveggja á fimmtudagsmorgun var nákvæm- lega eins og bræðranna fyrir tveim- ur árum og vakna óneitanlega upp spurningar um hvort þeim hefur tekist að komast inn í landið með fíkniefni í það skiptið. Friðrik Smári vildi ekkert tjá sig um atvik- ið fyrir tveimur árum þegar hann var inntur eftir því. 140 þúsund skammtar Afar óvenjulegt er að menn reyni innflutning á MDMA-dufti, sem er virka efnið í e-töflum – hvað þá 14 kílóum. Algengt magn af MDMA í e-töflum er á bilinu 50-100 mg og ef gert er ráð fyrir efri mörkunum má því fá tíu töflur úr einu grammi af hreinu MDMA. Með tiltölulega auðveldum reikningskúnstum má finna það út að ef efnið er hreint er hægt að fá úr 14 kg í það minnsta 140 þúsund skammta af e-töflum. Magnús Jóhannsson, forstöðu- maður Rannsóknastofu í lyfja- og eiturefnafræði, segir þó að taka verði mið af því að ekki sé búið að efnagreina efnin. Rannsóknarstof- an hefur fengið sýni til rannsóknar og kemur í ljós á næstu vikum hversu sterkt það er. Hann segir gríðarlega miklu máli skipta hversu hrein efnin eru. „Þeir geta verið að blanda [amfetamín] allt að tífalt og það er því gríðarlegt magn sem verið er að tala um. Manni finnst það ekki ólíklegt að efnið sé hreint, þó að við séum ekki búin að mæla það. Þeir reyna að flytja inn hreint efni, enda eykst það mikið bæði að rúmmáli og þyngd ef þeir blanda það.“ Magnús segir jafnframt sjald- gæft að MDMA-duft sé sent inn til rannsóknarstofunnar. Nær ávallt sé það í formi e-taflna. Í september árið 2001 var Aust- urríkismaðurinn Kurt Fellner tek- inn með 67.485 e-töflur við komuna til landsins. Það er langmesta magn e-taflna sem lagt hefur verið hald á í einu hér á landi. Hægt er að gera því skóna að það vafasama met hafi sannarlega verið slegið. ð á ð 2005 !  '     :&%!7 A+;-,%58+(#J%+ - 8;"" !""  %8<  A1-#-  () *+, ( '- #K - 8;"" !"#&87  + 8 "<$ "(%58+8 ; & %A1-#- & %+@"! "+;$!  ( '  #K - "( (. :&%!7 A+;#&(#J%+ A A#J"8"-  () @ ;& & %+! "%8A/01;4K +;+$$ ( &B8  ( ' #K 3% 8%%B# # 8   7! +;#"@" ' "('5 +  8 +;-   ( ( (7 8"'+ +;#5;;%+;% %5#+ L. 1;&M B#+!5#+!%+ %;+  &  #;45&! 8 - ;8 %;(   &+J;%B%35!5 +  &8+;(8 !"'5&"3@- -5 + %8 ;3%8 ;74% &'K"A3(7 % 8 -8K! %#%N #;;%& %+@"! "KK3!;3#!(" ! 8  B3 ;#B&&! 4+ &A! ("+ # - H";# B+8 "' A &7+&;B +; & & #B 4+ +;-H" &!  %#+ & %+@ %%A% % #" A&;B & "# 8-   8%% &"( 8  &$+%"(N"- 2  # 343"& .    #  -  %%+$$(;+ 3' " ; "!% -4 % &"( 8- !  %8 7  +! 4+ &A; ;&8!# 8  +-  # ;+8;7A8%  #+##+%+  8%"%8  % #   &% +"48 "B8( /#+##+%+ - 8"'+  A78 +!(;8!5 +;5!+ ;"%+&# 8 ; "& "7N"3+# +4A8;% &4A8%+%3A;% %8  &+8;#  &A%% - && %+  # %!(;+ & B;# &A'B&" B-  " A!(;+ % +; #;%B%3'K"@G% &+7N## &74%A%%+ B#%-  ; ) #% - &O#$     Í HNOTSKURN »Tíu menn hafa veriðhandteknir í tengslum við fíkniefnamálið sem upp kom á Fáskrúðsfirði á fimmtudag. »Níu þeirra eru Íslend-ingar en einn Dani. Ekki hefur verið greint frá því hvort um er að ræða höf- uðpaurana í málinu. » Í skútu mannanna fund-ust ríflega 60 kg af fíkni- efnum, og jafnvel upp undir 70 kg. Einnig voru þar 1.800 e-töflur. »Á meðal þess sem reyntvar að smygla voru 14 kg af MDMA-dufti. að ræða afar sterk efni hífð upp á hafnarbakkann í gærmorgun. Það hefur afar mikiðforvarnagildi að lög-reglan skuli hafa lagthald á hið mikla magn fíkniefna sem fannst í skútunni í Fáskrúðsfjarðarhöfn í fyrra- dag en til lengri tíma eru áhrifin engin, að mati Þórarins Tyrf- ingssonar, yfirlæknis SÁÁ. „Verðið hækkar aðeins en fíklarnir fóðra þá fíknina með öðrum hætti þangað til aftur kemur efni á markaðinn,“ segir hann. Þeir hafi ýmis ráð til þess, m.a. leita í önnur fíkniefni eða áfengi. Þar með er Þórarinn alls ekki að gera lítið úr árangri lögregl- unnar því hann segir að menn geti rétt ímyndað sér áhrifin ef allt þetta efni kæmist út á markaðinn. „Ef þetta efni hefði ekki verið tekið og þetta magn hefði verið til sölu og laust á markaðnum, þá hefði verið mik- ill þrýstingur á að koma þessu efni til þeirra sem ekki eru þeg- ar neytendur,“ segir hann. Ef ekkert aðhald væri af hálfu lög- reglu og tollgæslu og ekkert væri tekið væri framboðið og þar með neyslan enn meiri en hún er í dag. Neyslan aldrei meiri Þórarinn segir að frá árinu 1996 hafi neysla örvandi fíkniefna stöðugt aukist hér á landi. Aldr- ei hafi neyslan verið jafn algeng eða fleiri greinst sem fíklar. Örvandi vímuefnafíklar sem leita til SÁÁ eru um 700 og um 250-300 manns verða háðir efn- unum á hverju ári. Fíkn í amfetamín er lífs- hættuleg eins og vel sést í könn- un sem gerð var á afdrifum am- fetamínfíkla sem komu inn á Vog árið 1996. Alls voru fíkl- arnir um 390. Tíu árum síðar höfðu 30 látist og 35% voru með lifrarbólgu C. Enginn lifði leng- ur en til 55 ára aldurs og 20 af þessum 30 voru yngri en 35 ára. Um borð í skútunni fundust um 50 kíló af amfetamíni en einnig um 14 kíló af e-töfludufti. Þórarinn kannast vel við að hér sé þessa efnis neytt í duftformi en ekki eingöngu í töfluformi. Algengast sé að menn taki það um munn en einnig um nef og æð. Hugsanlega þyki mönnum sem efnið sé sterkara í töfl- unum. Þá megi hugsa sér að smyglararnir hafi hugsað sér að slá duftið í töflur hér á landi. E- töfluneysla hefur e.t.v. ekki far- ið ýkja hátt í fjölmiðlum en í Morgunblaðinu í nóvember 2006 sagði Valgerður Rúnars- dóttir, læknir hjá SÁÁ á Vogi, að hún væri meiri en í „faraldr- inum“ á árunum 1995-1996. Ársneysla um 640 kíló SÁÁ hefur reiknað það út að miðað við fjölda fíkla megi áætla að 640 kíló af amfetamíni þurfi til að fullnægja mark- aðnum. Það má þó ekki líta svo á að allt þetta efni sé flutt til lands- ins. Í fyrsta lagi er yfirleitt reynt að flytja inn sterkt efni sem má margdrýgja og í öðru lagi er ekki óvarlegt að gera ráð fyrir að eitthvert, jafnvel veru- legt, magn sé framleitt hér á landi. Nægir þar að nefna inn- flutning á amfetamínbasa sem lögregla og tollgæsla hafa ítrek- að stöðvað. Þórarinn segir að yfirleittt sjái fíklar um götusölu fíkniefna en síðan séu e.k. heildsalar sem virðast yfirleitt eiga efni á lag- er. Þannig sé alltaf eitthvað til af efnum í landinu. Meira en allt árið í fyrra Í fyrra var alls lagt hald á 46,5 kíló af amfetamíni og 12,9 kíló af kókaíni en í báðum tilfellum var um metmagn að ræða. Á sama tíma lagði norska toll- gæslan hald á um 97 kíló af am- fetamíni og 8,3 kíló af kókaíni. Telur engin langtíma- áhrif af fíkniefnamálinu Þórarinn Tyrfingsson LÖGREGLAN á höfuðborg- arsvæðinu sýndi í gær á blaða- mannafundi hið gríðarlega magn fíkniefna sem fannst í skútunni í Fáskrúðsfjarð- arhöfn en aldrei hefur viðlíka magn af örvandi fíkniefnum fundist í einu. Ef einungis er litið á am- fetamínið má benda á að það er öllu meira en lagt var hald á allt árið í fyrra. Þó var árið 2006 algjört metár og hald- lagt amfetamín á því ári var meira en tekið var hér á landi öll árin 2000-2005. E-töflurnar sem fundust í skútunni eru jafnframt álíka margar og fundust í fyrra. Hið mikla magn e-töfludufts á sér hins vegar engin fordæmi en ef efnið er sterkt, sem líklegt þykir, má ætla að það myndi duga til að framleiða 140.000 e-töflur. Þetta er langmesta magn sem fundist hefur af þessu efni hér á landi. Sá einstaki fundur sem kemst næst þess- um var þegar Austurrík- ismaður var handtekinn á Keflavíkurflugvelli með 67.485 e-töflur árið 2001. Ekki var talið að hann ætlaði töfl- urnar til sölu hér á landi. Í héraði var hann dæmdur í 12 ára fangelsi en dómurinn var síðan mildaður í Hæstarétti í níu ára fangelsi. Morgunblaðið/Júlíus Eitur Aldrei hefur viðlíka magn örvandi fíkniefna fundist í einu lagi hér á landi. Dæmalaust magn GEORG Lárusson, forstjóri Land- helgisgæslunnar, segir fíkniefna- málið sem upp kom á fimmtudag- inn sýna að skynsamlegt sé að auka eftirlit með ströndum lands- ins. „Landið er ekki galopið eða óvarið. Við erum með góða og öfluga Landhelgisgæslu sem er ágætlega tækjum búin og nú er unnið að endurbótum á þeim bún- aði,“ segir Georg. Hann bendir á að öflugt fjareftirlit sé haft með skipum sem sigli á hafsvæðinu í kringum Ísland. „Það er hins veg- ar forsenda slíks eftirlits að menn hafi kveikt á eftirlitsbúnaði um borð í skipum sínum. Mönnum ber skylda til að hafa kveikt á búnaðinum og við reiknum með að við sjáum langmest af allri um- ferð hér.“ Georg bendir á að skynsamlegt væri að koma upp strandratsjám meðfram ströndinni sem fylgst gætu með skipaferðum 40 til 60 sjómílur frá landi. Slíkur búnaður sé einfaldur og hann megi tengja við ljósleiðarakerfið sem liggi um landið án mjög mikils tilkostn- aðar. Þess konar eftirlit fari fram með strandlengjum langflestra nágrannalanda Íslands en þar séu skipaferðir reyndar almennt meiri en hér við land. „Síðan mætti vel notast meira við gervi- hnattamyndir við eftirlitið. Þær kosta mikið en mörg fyrirtæki bjóða upp á myndir af svæðinu hér í kring þótt ekki sé hægt að stóla á þær alla daga ársins.“ Morgunblaðið/Júlíus Eitur Aldrei hefur viðlíka magn örvandi fíkniefna fundist í einu lagi hér á landi Ratsjáreft- irlit með ströndinni?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.