Morgunblaðið - 22.09.2007, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 31
VIÐSKIPTANEFND Alþingis
heimsótti á dögunum öll helstu fjár-
málafyrirtæki landsins. Nefndin
leggur mikla áherslu á
að eiga gott samstarf
við aðila markaðarins
og var markmið heim-
sóknanna m.a. að gefa
fyrirtækjunum færi á
að koma sínum sjón-
armiðum á framfæri
við viðskiptanefnd.
Framtíðarsýn þess-
ara aðila viðskiptalífs-
ins um að hér rísi al-
þjóðleg
fjármálamiðstöð sem
byggist á mannauði og
samkeppnishæfu
starfsumhverfi er að mínu mati mjög
spennandi. Við eigum markvisst að
auðvelda erlendum sérfræðingum að
koma hingað til lands og vinna hér
tímabundið. Við þurfum að huga að
fjölskylduvænu umhverfi fyrir hina
erlendu sérfræðinga sem myndi
gera Ísland að raunverulegum val-
kosti fyrir erlent hæfileikafólk.
Í því samband er mikilvægt að
löggjafarvaldið búi þannig um hnút-
ana að íslensk fjármálafyrirtæki búi
við sömu reglur og erlendir sam-
keppnisaðilar. Við eigum að hafa ein-
falt regluverk og forðast sér-
íslenskar reglur. Og að því hefur
verið stefnt.
Tvítyngd stjórnsýsla
Við ættum að einnig að huga að
tvítyngdri stjórnsýslu, íslenskri og
enskri, sem myndi gera Ísland að
enn álitlegri kosti fyrir erlenda fjár-
festa og auðvelda samskipti. Það
segir sig sjálft að tryggja þarf hag-
stætt skattaumhverfi og áreið-
anlegri fjarskipti við umheiminn
með nýjum sæstreng.
Gríðarlegir hagsmunir eru fólgnir í
því að stuðla enn frekar að góðu um-
hverfi fjármálastarfsemi enda er
framlag fjármálageir-
ans til landsframleiðsl-
unnar hærra en sam-
anlagt framlag
sjávarútvegs, álfram-
leiðslu og landbúnaðar.
Í fyrsta skipti í Íslands-
sögunni vinna fleiri í
fjármálageiranum en í
sjávarútvegi. Heildar-
eignir fjármálakerfisins
hafa tífaldast síðan árið
2000.
Ég tel að Ísland hafi
eignast nýja und-
irstöðuatvinnugrein
sem er fjármálageirinn. Fjár-
málageirinn er vinnustaður þúsunda
Íslendinga og hann stóð undir einum
þriðja hluta þess hagvaxtar sem hef-
ur verið undanfarin ár.
Evran eða krónan?
Þegar öllu er á botninn hvolft
liggja meginhagsmunir viðskiptalífs
og almennings í skynsamri hag-
stjórn og stöðugleika. Í því sambandi
hefur mikið verið rætt um stöðu ís-
lensku krónunnar en í raun eru nú
tvær myntir á Íslandi, verðtryggða
krónan og hin óverðtryggða. Heim-
sókn viðskiptanefndar til fjármála-
fyrirtækja var því ekki síst fróðleg
að því leytinu til að þar gafst gott
tækifæri til að ræða krónuna og
hugsanlega upptöku evrunnar við
hagsmunaaðila í viðskiptalífinu.
Óhætt er að segja að mikill áhugi
sé hjá fjármálafyrirtækjunum á evr-
unni. Raddirnar verða að líkindum
enn háværari og nú heyrast jafnvel
þær raddir að íslenska krónan dragi
íslenskt hagkerfi niður. Það hlýtur
jafnframt að vekja upp spurningar
um stöðu almennings í landinu ef
hann er skilinn eftir með mynt sem
viðskiptalífið hefur kosið að yfirgefa.
Ein mynt fyrir viðskiptalífið –
önnur fyrir almenning?
Ágúst Ólafur Ágústsson skrifar
um íslenska fjármálakerfið » Við ættum einnig aðhuga að tvítyngdri
stjórnsýslu, íslenskri og
enskri.
Ágúst Ólafur Ágústsson
Höfundur er formaður viðskipta-
nefndar Alþingis.
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 563 5600
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050
Sölusýning í dag frá kl. 14-16
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Reykjavíkurvegur 52A og 52B - Hafnarfirði
Fullbúnar íbúðir fyrir 50 ára og eldri.
Vel innréttaðar 3ja og 4ra herb. íbúðir í nýju glæsilegu, 5 hæða lyf-
tuhúsi í Hafnarfirði. Eignin skiptist í tvö glæsileg stigahús með lyftu.
Húsið er hannað af Sigurði Þorvarðarsyni byggingarfræðing og er
marmarasallað að utan með ál/trégluggum. Frágangur allur er mjög
vandaður.
• Sérinngangur af svölum.
• Skilast fullbúnar með vönduðu Kahrs parketi.
• Vandaðar innréttingar og innihurðir frá Fagus Þorlákshöfn.
• Gert er ráð fyrir að loka flestum svölum.
• Útgangur á hellulagða verönd með skjólveggum íbúða á
jarðhæð.
• Mynddyrasími.
• Uppþvottavél og ísskápur fylgja í eldhúsi.
• Sérstæði með flestum íbúðum í lokaðri bílageymslu.
• Hellulagðar gangstéttir með snjóbræðslukerfi við húsið.
• Íbúðirnar eru til afhendingar strax.
• Byggingaraðili: Kristjánssynir Byggingarfélag ehf.
Fullbúin sýningaríbúð. ÍBÚÐ MERKT 303 Í HÚSI 52B innrét-
tuð frá versluninni EGG. Lýsing íbúðar hönnuð af LÚMEX.
Sölumenn verða á staðunum.
Nánari upplýsingar ásamt myndum á www. fastmark.is. Mb
l 9
12
52
5