Morgunblaðið - 22.09.2007, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 22.09.2007, Qupperneq 32
32 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SPARISJÓÐIR eru að grunni til félagslegar stofnanir og meg- inhluti eiginfjár þeirra er í sjálfs- eign, í reynd í eign almennings þess nærsamfélags sem viðkomandi sparisjóður þjónar. Hlutverk sparisjóðs er að veita almenna fjármálaþjónustu á grundvelli hugsjóna um eflingu og upp- byggingu atvinnulífs og menningarstarfs á heimasvæði sínu. Sem slíkir gegna þeir afar þýðingarmiklu hlut- verki, ekki hvað síst á landsbyggðinni. Stofnfjárhafar, sem lögum samkvæmt þurfa að standa að hverjum sparisjóði, eru engan veginn eigendur sjóðanna heldur trúnaðarmenn samfélagsins á starfssvæði sjóðanna. Hlutverk stofnfjárhafanna er að tryggja að sjóðurinn starfi á þessum hug- sjónagrunni en ekki að hámarka eigin persónulegar arðgreiðslur. Í ofantöldu felst ímynd og gildi heit- isins „sparisjóður“. Hins vegar ber hlutafélagsbanki engar slíkar samfélagsskyldur, heldur er meg- inmarkmið hans að hámarka ábata og arð eigenda hlutafjárins. Hér er því einfaldlega grundvall- armunur á. Að hirða eigur samfélagsins Á síðustu misserum hafa spari- sjóðirnir átt í vök að verjast gegn aðilum sem reyna að brjótast inn í þá og komast yfir eigið fé þeirra og viðskiptavild, yfirtaka þá og leggja þar með hald á eigur sam- félagsins. Sú spurning hlýtur að verða áleitin hverjum þeim sem virðir hugsjónir sparisjóðanna eða ber rétt samfélagsins fyrir brjósti, hvernig það megi ger- ast að almennings- hluti eins og í Spari- sjóði Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) hafi lækkað hlutfalls- lega á örfáum árum úr tæpum 90% í 15% án þess að neinn hafi þar haldið vörnum fyrir. Horfi ég m.a. til Fjármálaeftirlitsins í þeim efnum. Þeir sem sækja hvað harðast á um hlutafélagavæð- ingu sparisjóða ættu að hugleiða hvaða lagalegan eða a.m.k. siðferðislegan rétt þeir hafi til að einkavæða samfélagsstofn- anir eins og sparisjóðirnir eru. Ef sparisjóði er breytt í hlutafélag þá er hann ekki lengur sparisjóður heldur einkavæddur banki á markaði. Á allt að gleypa? Ég álít að sparisjóður sem hverfur frá markmiðum sínum og samfélagslegri umgjörð, svo sem með því að vera breytt í hluta- félag, eigi ekki lengur rétt á að kallast sparisjóður. Menn verða að vera sjálfum sér samkvæmir. Er það t.d. ekki svo að þeir sem fara í kynskiptaaðgerðir gangist fúslega við nýju kynferði sínu? Í sam- þykktum sparisjóðanna eru skýr ákvæði um hvernig þeir skuli lagðir niður ef ekki er vilji til að starfrækja þá áfram í sínu fé- lagslega formi. Einkavæðing og yfirtaka almenningseigna fer nú því miður eins og eldur um akur. Virðist þar fátt heilagt, hvort sem eru orkuveitur, náttúruauðlindir eða sparisjóðir landsmanna sem nú standa sem varnarlaus fórn- arlömb græðginnar. Græðgina verður að stöðva! Sparisjóðirnir eiga áfram að gegna lykilhlutverki í fjár- málaþjónustu hér á landi og því er mikilvægt að standa vörð um gildi þeirra og starfsgrundvöll. Vel má vera að skerpa þurfi á þeim þátt- um með lögum og tryggja jafn- framt sérstöðu þeirra og sam- keppnishæfni án þess að eðli þeirra breytist og hugsjónir glat- ist. Eitt fyrsta skrefið þar gæti verið að lögvernda heitið spari- sjóður og að hlutafélag mætti ekki bera það heiti. Ég skora á alla þá mörgu sem eru trúir sparisjóða- hugsjóninni að rísa upp til varnar og þétta raðir sínar. Það verður að stöðva græðgina sem nú vill brjóta sér leið inn í sparisjóði landsmanna. Að brjótast inn í sparisjóði landsmanna Jón Bjarnason skrifar um hlutafélagavæðingu sparisjóða landsins »Ég skora á alla þámörgu sem eru trúir sparisjóðahugsjóninni að rísa upp til varnar og þétta raðir sínar. Jón Bjarnason Höfundur er þingmaður Vinstri grænna. Við lestur greinar Helga Áss Grétarssonar, „Sannleikur, réttlæti og fiskur“, í Morgunblaðinu kom eftirfarandi vísa upp í hugann: Sannleikurinn flýgur frjáls í flestum löndum. Ef við segjum hann til hálfs höllum fæti stöndum. Það er staðreynd að frá árinu 1950 til ársins 1973 voru útlend- ingar að veiða rúmlega 1/3 af 400 þúsund tonna þorskafla Íslendinga á ári á Íslandsmiðum og allt í lagi virtist vera með þorskstofninn. Út- lendingarnir voru á veiðum mest frá Langanesi, suður með Aust- fjörðum, út af Suðurlandi og Vest- fjörðum. Tvær aðalástæður voru fyrir þessu, sú fyrri að hafnleysi var fyrir Norðurlandinu frá Ísa- firði að Eyjafirði og þaðan í Seyð- isfjörð. Sú seinni, ekki síður mik- ilvæg, var að smáfiskurinn sem var við norðurlandið var miklu verðminni á erlendum mörkuðum. Svo geymdist hann verr í ísnum. Árið 1964 var farið að taka með- alþyngd af öllum þorskafla þegar bátar og togarar lönduðu vegna Landssambandsverðs sem var sett á fiskinn og var það mismunandi eftir stærð þorsksins. Meðalþyngd 1986 og 1987 reyndist vera 1,9 kg á togurunum en á bátaflotanum 5 kg. Bátarnir voru að veiða 52% af þorskinum, togararnir 48%. Þá geta allir sem eitthvað hafa komið nærri fiskveiðum séð hvað var að ske á miðunum. Gríðarlegt magn hefur farið fyr- ir borð á togurunum sem kemur ekki fram og ef fiskifræðingar okkar hefðu borið gæfu til að loka fyrir togveiðar fyrir norðurlandinu þá værum við líklega að veiða okk- ar 400 þúsund tonn af þorski eins og við vorum að veiða með útlend- ingunum frá 1950-1973. Í nóvember 2001 birtust nokkr- ar línur eftir mig í Morgunblaðinu. Nú finnst mér að endurtaka þurfi og fara þær hér á eftir: Togararallið er önn- ur dýrasta vitleysan sem hefur verið fram- kvæmd hér á Fróni síðari árin og gengur næst kvótakerfinu í só- un. Framkvæmd ralls- ins er sú að toga á sama svæði sömu mán- uði, daga og ár hvert. Sömu skip eru notuð, togveiðarfærin þau sömu, allt voða ná- kvæmt og aflinn bor- inn saman. Aflinn er sem sagt samanburð- arfræðin, hvað fæst á svæðunum ár eftir ár. Ég sagði strax að þessi mæling væri ekki marktæk og myndi skila röngum nið- urstöðum því að að- ferðafræðissamanburð- urinn var rangur. Skilyrðin á miðunum eru langt frá því að vera þau sömu ár frá ári á sama degi eins og sést á eftirfarandi rökum. Allir Íslendingar kannast við aflahroturnar í kringum páska. Í ár voru páskarnir 15. apríl en verða 28. mars á næsta ári. Þetta er 18 daga munur. Það hefði verið marktækara ef ralldagarnir hefðu verið miðaðir við stöðu tungls í páskamánuðinum sem hefur gríð- arleg áhrif á allt lífríki í sjó og á landi eins og flestir þekkja. Tungl- ið veldur sjávarföllunum flóði og fjöru svo skilyrðin í sjónum verða sjaldan eins á sama tíma árs. Tunglið verður á sama tíma árs á 19 ára fresti svo skilyrði á mæl- ingatímanum sömu daga árs verða aldrei nákvæm. Nær hefði verið að miða við stöðu tungls í páskamán- uðum. Það hefur ekki verið skrifuð bók um framkvæmd fiskveiða og þá ekki um hegðun fiska sem hjálpar vönum skipstjórum að veiða fiskinn. Sjávarföllin spila stórt hlutverk við fiskveiðar, t.d. vita margir skipstjórar á togveiðum muninn á veiði í stækkandi straumi og minnk- andi straumi og muninn á því að toga í köntum sem straumur stendur upp í eða niður kanta, einnig ef mikil veiði er á línu því þá fæst oftast mjög lítið eða ekkert í troll. Þetta og margt annað í sambandi við fiskveiðar sem marg- ir okkar ágætu afla- manna vita þyrfti einhver þeirra að skrifa bók um sem yrði notuð í Háskól- anum fyrir verðandi fiskifræðinga og myndi það auka þeim skilning á fiskveiðum al- mennt. Togararallið er bull að mínu mati og skilar engri þekkingu um stofnstærð fiska. Í fiskifræði var brotið blað byrjað með rallí að þvæla. Árlega á þessum degi, stund og stað stofnstærð þorsks þeir mæla. Tunglið hefur töframátt og tök á náttúrunni. Rallíið nær engri átt og aulum létt í munni. Stofnstærð Halldór Halldórsson hefur miklar efasemdir um tog- ararallið » Togararalliðer bull að mínu mati og skilar engri þekkingu um stofnstærð fiska. Halldór Halldórsson Höfundur er fyrrverandi skipstjóri. Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI hinn 11. september óskaði bæj- arstjóri Kópavogs eft- ir því að hæfi fulltrúa Samfylkingarinnar í Skólanefnd yrði kann- að. Svo var málum háttað að skólastjóri Smáraskóla óskaði eftir staðfestingu skólanefndar á ákvörðun hennar vegna ráðningar í stöðu aðstoð- arskólastjóra við Smáraskóla. Venjan er sú í Kópavogi að skólastjórar ráða sjálfir í allar stöður innan skólans og svo var einnig í þessu til- felli. Að sjálfsögðu dró skólanefndin ekki ráðninguna í efa og staðfesti skv. hefð. Tveimur vikum fyrir fund skólanefndar höfðu fréttir af ráðn- ingunni birst í bæj- arblöðunum í Kópa- vogi og á heimasíðu bæjarins og aðstoð- arskólastjórinn kom- inn til starfa. Það var því ljóst að gengið hafði verið frá ráðningunni löngu áður en umræddur skóla- nefndarfundur var haldinn. Annar fulltrúa Samfylking- arinnar í skólanefnd og nýráðinn aðstoðarskólastjóri Smáraskóla eru systkinasynir, en af því hér var skólanefnd ekki að taka ákvörðun um ráðningu viðkomandi, heldur einungis leggja blessun sína yfir ákvörðun skólastjóra Smáraskóla taldi hann sig ekki þurfa að víkja af fundi. Þess má líka geta að fulltrúinn hafði fengið leiðbeiningar frá fræðslustjóra um hvernig hann ætti að standa að þátttöku sinni í þessu ráðningarferli og þar með vakið athygli á tengslum sínum. En Gunnar I. Birgisson gerði at- hugasemd við hæfi skólanefnd- armannsins með þeim „mál- efnalegu“ rökum að hann vildi gjalda líku líkt. Hann er að hefna sín. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar gerðu nefnilega at- hugasemd við hæfi Gunnar Birgissonar og Ómars Stefánssonar fyrir rúmu ári í Glað- heimamálinu svokall- aða. Þá voru teknar ákvarðanir í bæjarráði og bæjarstjórn er vörðuðu verulega fjár- hagslega hagsmuni hesthúsaeigenda í Glaðheimum þegar Kópavogsbær keypti af þeim húsin á marg- földu markaðsvirði. Þótt svo eiginkona Gunnars ætti þar veru- legra hagsmuna að gæta ásamt föður Óm- ars sáu hvorugir ástæðu til að lýsa sig vanhæfa í málinu fyrr en bæjarfulltrúar Sam- fylkingarinnar bentu þeim á vanhæfi þeirra. Stendur þó skýrum stöfum í sveitarstjórn- arlögum að sveit- arstjórnarmenn skulu vekja athygli á tengslum sínum ef einhver vafi leikur á hæfi þeirra. Rétt er að minna á að bæj- arlögmaður Kópavogs tók undir at- hugasemdir Samfylkingarinnar og taldi vanhæfi þeirra félaga augljóst. Það sætir í raun furðu að Gunnar skuli rifja þetta mál upp núna og enn draga í efa vanhæfi sitt. Eng- inn vafi leikur á persónulegum hagsmunum hans og þar með van- hæfi í því máli. Málið situr í Gunn- ari sem leitar nú hefnda en hefur ekki fundið verðugra tilefni en þetta. Hefnd bæjar- stjórans í Kópavogi Guðríður Arnardóttir fjallar um ráðningu í stöðu aðstoð- arskólastjóra við Smáraskóla Guðríður Arnardóttir » GunnarBirgisson gerði athuga- semd við hæfi skólanefnd- armanns Sam- fylkingarinnar með þeim mál- efnalegu rökum að hann vildi gjalda líku líkt. Höfundur er oddviti Samfylking- arinnar í Kópavogi. Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is MIKLAR umræður eru nú um vandann að manna leikskólana á höfuðborgarsvæðinu. Það vantar tilfinnanlega starfsfólk og mennt- aðir leikskólakennarar ráða sig til annarra betur launaðra starfa. Það viðurkenna flestir að launin eru alltof lág en það er líka erfitt að ná samstöðu hjá þjóðinni um að ein stétt eins og leikskólakennarar eigi að hækka mikið umfram aðra. Í því liggur vandinn. Forystumenn Sjálfstæðisflokks- ins hafa varpað fram þeirri hug- mynd að til þess að brjótast út úr þessu væri ráð að leikskólar yrðu í auknum mæli einkareknir. Einnig hefur sú hugmynd komið fram að ræða við atvinnurekendur um að þeir starfræktu leikskóla fyrir sín fyrirtæki. Furðulegt er að sjá og heyra hvernig vinstra liðið bregst við. Þeir tala um uppgjöf og feira í þeim dúr. Segja að eina ráðið sé að hækka launin. Þetta er sama liðið og stjórnaði Reykjavík í 12 ár. Hvers vegna leystu þeir ekki málin þá? Hvað er athugavert við að Bónus eða Kaupþing reki leikskóla fyrir sitt starfsfólk? Auðvitað yrði þess krafist að menntaðir leikskólakenn- arar væru starfandi. Væri agalegt ef þessi lausn yrði til að hækka laun starfsfólks og leysa úr þeim vanda sem nú er til staðar? Hvers vegna fagna stéttarfélögin ekki þessari lausn? Er BSRB-forystan og forusta KÍ á móti því að laun umbjóðenda þeirra hækki af því lausnin er ekki samkvæmt vinstri skoðunum þeirra? Er slæm reynsla af rekstri leik- skóla sem Margrét Pála rekur (Hjallastefnan)? Ég held að svarið sé nei, þvert á móti er mjög góð reynsla. Ágætis reynsla er af einka- rekstri margra annarra leikskóla. Það er alveg með ólíkindum hvern- ig vinstri menn bregðast við ef prófa á eitthvað nýtt. Þröngsýnin og afturhaldið virðist vera allsráð- andi í herbúðum Vinstri grænna. Það verða litlar framfarir og kjara- bætur í þjóðfélaginu ef vinstri menn fá að ráða sveitarfélögum og landinu. SIGURÐUR JÓNSSON, Heiði, Selfossi. Þröngsýni Frá Sigurði Jónssyni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.