Morgunblaðið - 22.09.2007, Síða 36
36 LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ HallfríðurHelga Dag-
bjartsdóttir fæddist
í Arnarfirði 8. sept-
ember 1930. Hún
lést á gjörgæslu-
deild Landspítalans
í Fossvogi að kvöldi
10. september síð-
astliðins. Foreldrar
hennar voru Ragn-
heiður Jóhanna
Ólafsdóttir frá
Bíldudal og Dag-
bjartur Jóhannes
Sigurbjörn Guð-
brandsson úr Reykjavík. Fóstur-
foreldrar hennar voru Júlíana
Stígsdóttir og Jón Kári Kárason
en stjúpfaðir hennar var Björg-
vin Kristinn Guðjónsson frá
Brekkum í Hvolhreppi. Hálf-
systkini Helgu sammæðra eru
Hörður, f. 25.6. 1940, Guðbjörg, f.
7.2. 1945, Ingibjörg Edda, f. 20.3.
1947, og Katrín Jónína, f. 4.8.
1954.
Helga giftist í Reykjavík 14.9.
1946 Bandaríkjamanninum Fre-
derick Charles
Skinner. Þau eign-
uðust þrjú börn:
Júlíu, f. 13.4. 1948,
Stefán, f. 7.6. 1951,
og Pétur, f. 4.8.
1957. Helga og Fre-
derick skildu. Hinn
11. maí 1968 giftist
Helga Guðjóni
Ólafssyni í Syðstu-
Mörk undir Eyja-
fjöllum. Sonur
þeirra er Björgvin,
f. 3.2. 1969.
Helga ólst upp
hjá ömmu sinni í Reykjavík en
fluttist 16 ára gömul með fyrri
manni sínum til New York árið
1946 og bjó í Bandaríkjunum til
ársins 1966 þegar hún kom aftur
til Íslands ásamt yngsta barni
sínu, Pétri. Í maí 1967 komu þau
að Syðstu-Mörk undir Eyjafjöll-
um og bjó Helga þar allt til
dauðadags.
Útför Helgu fer fram frá
Stóra-Dalskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Helga var móðir mín og ég kall-
aði hana alltaf „Ma“ til styttingar.
Hún fæddist 1930 og átti erfitt líf
fyrir höndum. Amma hennar ól
hana upp að mestu leyti á tíma þeg-
ar erfitt var að láta enda ná saman.
Ég held að hún hafi komið til
Bandaríkjanna árið 1946 sitjandi á
appelsínugulum kassa um borð í
flutningavél. Það er fáheyrður
ferðamáti í dag. Hún hafði kynnst
föður mínum sem var í sjóher
Bandaríkjanna og höfðu þau gifst.
Ma kom til Bandaríkjanna án
þess að kunna tungumálið, siði og
venjur eða nokkuð annað í þessum
framandi heimi. Fjölskylda hennar
og allt sem hún þekkti var skilið
eftir á Íslandi. Á þeim tíma í sög-
unni réðu önnur, þriðja og fjórða
kynslóð Ameríkana lögum og lofum
og tóku þeir illa á móti innflytj-
endum. Samt sem áður lærði hún að
tala ensku fullkomlega og án
hreims! Hún fæddi þrjú börn; Júlíu,
mig og Pétur, og ég man eftir heim-
ili sem var mjög skipulagt, hreint
og hlaðið íslenskum venjum og sið-
um, svo sem þorski, þorskalýsi (oj),
ást á hafinu og sterkum fjölskyldu-
gildum.
Á síðari hluta fimmta áratugarins
smitaðist Ma af berklum. Ég var að
sjálfsögðu ekki fæddur en ég veit
að hún hefur þjáðst mjög. Lækn-
arnir fjarlægðu eitt lunga og tóku
fimm rifbein til að komast að því.
Þegar hún síðan varð barnshafandi
af mér var hún komin með blett á
hitt lungað. Að því er virðist hefur
meðgangan ýtt því lunga upp og
létt á því, þannig að það greri um
heilt á ný. Ef þetta hefði ekki komið
til hefði hún að líkindum dáið árið
1951.
Þrátt fyrir að hafa misst eitt
lunga þrælaðist Helga áfram. Ég
get ekki munað eftir því að hún hafi
nokkurn tímann kvartað yfir þeirri
gríðarlegu vanlíðan sem hún hlýtur
að hafa upplifað.
Þegar sjötti áratugurinn rann
upp var hjónaband foreldra minna
komið í það mikið óefni að ekki varð
aftur snúið. Þar kom að Helga sneri
aftur til Íslands og tók Pétur með
sér. Nauðbeygð sá hún fram á ann-
að óvissuástand, en réði sig á end-
anum sem ráðskonu á bænum
Syðstu-Mörk. Þar giftist hún Guð-
jóni og átti með honum annan son,
bróður minn Björgvin. Ég hélt
kyrru fyrir í Bandaríkjunum og veit
lítið um hennar líf næstu fjörutíu
árin, fyrir utan allmargar heim-
sóknir.
Árið 1995 kom Ma að heimsækja
mig til Kaliforníu. Þrátt fyrir hrak-
andi heilsu og hitann í Kaliforníu
kom hún því það skipti hana miklu
að sjá soninn sem hún hafði skilið
eftir. Á meðan hún dvaldi hjá mér
spurði ég hana hvort hún hefði
hugsað um að snúa aftur til Banda-
ríkjanna. Hún sagði: „Ísland er mitt
land og þar á ég heima.“
Af öllu því sem móðir mín gaf
mér, met ég eftirfarandi mest:
Þessi frábæru íslensku gen. Fyr-
ir utan nokkur kvef og nokkur mót-
orhjólaslys hef ég aldrei verið veik-
ur einn einasta dag.
Fjölskyldubönd. Tengsl mín, sér-
staklega við mína íslensku fjöl-
skyldu, eru mér mikilvæg. Fjar-
lægðin gerir þetta erfitt en þið eruð
ávallt í huga mér.
Borðsiðir. Engin bar nokkru
sinni hatt eða húfu við matarborð
Helgu.
Gildi boðorðanna tíu. Sem grunn-
ur fyrir hverja mannveru að hverfa
til finnst engin betri leið á tímum
erfiðra ákvarðana.
Og ef til vill mest áríðandi eru
vinnusiðir, sem hafa þjónað mér vel
allt mitt líf og eru ástæða hamingju
minnar í dag.
Vertu sæl Ma, þú ert að leggja
upp í enn eina óvissuferð. Megi
þessi vera sú besta.
Stefán Skinner,
Arizona, USA.
Fyrir aldarfjórðungi mægðist ég
við Helgu. Við giftumst báðar inn í
Syðstu-Merkur ættina, hún Guðjóni
bónda löngu fyrr, og bjó á höfuðból-
inu, en ég systursyni hans, strákn-
um sem þau höfðu haft í sveit. Síðan
hefur okkar fundarstaður verið í
Syðstu-Mörk.
Hún fór ekki oft af bæ, heilsu-
brestur hamlaði för. Fundarstaður-
inn var stöku sinnum við rúmstokk-
inn þegar illa byrjaði en oftast við
eldhúsborðið eða í stofu hjá þeim
hjónum, þar sem skrafað var um
menn og málefni, ættir raktar, póli-
tíkinni sýnd virðing og við borg-
arbörnin frædd um búskaparhætti
að fornu og nýju.
Gestrisnin var mikil og birtist
ekki bara í gnægð og gæðum matar
heldur í einlægum áhuga á gest-
unum, hugðarefnum þeirra og
störfum. Til Helgu og Guðjóns hef-
ur alltaf verið gott að koma.
Ég geri mér í hugarlund, að ekki
hafi alltaf verið auðvelt hlutverk
húsmóður á ættaróðalinu, sem ekki
færri en sjö mágkonur og mágar
hennar og afkomendur þeirra
gerðu líklegast tilkall til eða höfðu
ákveðna skoðun á hvernig ætti að
stýra. En ekki var annað að sjá en
Helgu færi þetta vel úr hendi. Hún
var enda ekki reynslulaus þegar
hún kom undir Eyjafjöllin, forfröm-
uð frá Ameríku, með stíl og matars-
mekk sem eftir var tekið en fór
engu að síður bara vel við íslenskt
sveitalíf.
Í lífi Helgu urðu kaflaskipti á sjö-
unda áratugnum þegar hún kom
heim til Íslands og giftist Guðjóni.
Það var mikið gæfuspor, sem hún
lýsti sjálf þannig, en hafði í för með
sér aðskilnað við elstu börn hennar
og hefur ekki verið sársaukalaust.
Því betur mat hún það fjölskyldulíf
sem hún síðar naut og fullkomn-
aðist kannski með tilkomu barna-
barnanna, sem átt hafa annað heim-
ili sitt í Syðstu-Mörk.
Mér kom Helga fyrir sjónir sem
óvenjulega fordómalaus kona, víð-
sýn og mild í viðhorfi sínu til fólks.
Þakklæti einkenndi hug hennar og í
þeim anda sýndi hún samferðafólki
sínu mikla hlýju og umhyggju. Þess
minnist áðurnefndur sveitastrákur
enn í dag og alla tíð.
Nú er húsfreyjan í Syðstu-Mörk
fallin í valinn, í kjölfar beinbrots,
óvænt og þó ekki. Lungun voru
Akkilesarhæll hennar, upphaflega
veikt af berklum, og þar kom dauð-
inn höggi á hana að lokum. Ekki er
þessu alveg lokið þó, ekki á meðan
við minnumst hennar. Ég gleðst yf-
ir því að stelpurnar okkar Hauks
kynntust Helgu og meta hana mik-
ils. Minningu hennar verður því
haldið á loft langt fram eftir öldinni
í okkar fjölskyldu.
Guðjóni, sonum þeirra og barna-
börnum færum við Haukur og dæt-
ur okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Þóra Steingrímsdóttir.
Nú þegar Helga mágkona mín
hefur kvatt þennan heim, eftir lang-
varandi veikindi, langar mig að
minnast hennar nokkrum orðum.
Helgu kynntist ég árið 1966, er
hún kom alkominn frá Bandaríkj-
unum, þar sem hún bjó í um 20 ár.
Þar eignaðist hún 3 börn og kom
hún með Pétur, yngsta barnið með
sér.
Oft varð ég þeirrar ánægju að-
njótandi að fá hana í heimsókn til
okkar Harðar í lengri eða skemmri
tíma. Helga sagði oft að hún væri
búin að lifa þrjú líf, barnæskuna,
árin í Ameríku og árin í íslenskri
sveit.
Það var hennar gæfa að fara sem
ráðskona að Syðstu-Mörk undir
Eyjafjöllum. Þar var hennar fram-
tíð ráðin, þar sem hún mætti góðum
og traustum lífsförunaut. Oft kom
ég að Syðstu-Mörk og dáðist að
fögru útsýni frá staðnum.
Ekki minnist ég þess að hafa
komið svo að Syðstu-Mörk, að ekki
hafi verið blómstrandi Pálínur í
mörgum pottum í eldhúsglugganum
hennar Helgu. Það lýsir best henn-
ar grænu fingrum að þegar Björg-
vin sonur hennar var skírður 1969
fékk hún Alparós frá móður sinni
og blómstrar plantan enn í dag.
Helga var einstaklega snyrtileg
með sig og heimili sitt, oft fórum við
saman í búðir og sá ég þá hvað hún
hafði góðan smekk fyrir fötum og
öðru.
Ung veiktist Helga af berklum
sem varð til þess að líkamlega gekk
hún aldrei heil til skógar upp frá
því.
Þrátt fyrir það bar heimilið í
Syðstu-Mörk vott um seiglu og
dugnað hennar.
Aldrei bar skugga á vináttu okk-
ar þessi ár sem við áttum saman og
þakka ég fyrir það.
Ég heimsótti Helgu á Landspít-
alan fjórum dögum áður en hún lést
og ræddum við lengi saman og ekki
átti ég von á að við kveddumst þá í
síðasta sinn.
Elsku Helga mín, nú er þínu lífi
lokið á þessari jörð og Guð búinn að
fá yndislegan engil til sín.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Guðjóni, Björgvin, Pétri og öðr-
um ástvinum votta ég innilega sam-
úð.
Guðbjörg.
Hún Helga í Syðstu-Mörk er dá-
in. Minningarnar streyma fram,
mínar fyrstu bernskuminningar
tengjast þeim hjónum og S-Mörk
þar sem amma mín og afi bjuggu og
móðir mín ólst upp. Helga hefur
verið í S-Mörk síðan ég man fyrst
eftir mér, hún gætti mín á öðru ald-
ursári, þegar móðir mín var að
vinna sem ráðskona í Djúpadal. Þau
hjónin hafa ávallt reynst mér vel og
verið afskaplega góð við mig, ég tel
að þegar ég var hjá þeim svona lítil
hafi myndast sérstök tengsl.
Við Helga vorum góðar vinkonur
þótt töluverður aldursmunur skildi
á milli. Hún var fædd í meyjar-
merkinu, og var meyja fram í fing-
urgóma. Ekki er hægt að minnast
Helgu án þess að nefna hversu
mjög smekkleg hún var, enda bar
heimilið ávallt vott um það, hreint
og snyrtilegt. Sjálf var hún alltaf fín
um hárið og vel til höfð.
Þau hjónin voru mjög gestrisin
og ekkert til sparað þegar gesti bar
að garði, sem var reyndar oft. Mig
langar að þakka Helgu fyrir hve
góð hún reyndist börnunum mínum
4, þau hafa öll verið svo innilega
velkomin á heimilið í Syðstu-Mörk.
Yngsta dóttir mín Jóhanna Sóldís
vildi bara vera í Syðstu-Mörk þegar
við vorum í sumarbústaðnum, enda
var henni vel tekið, gefið að borða
og svo fékk hún að leika sér við Re-
bekku og Róbert sem voru alltaf á
sumrin og í fríum hjá ömmu sinni
og afa í Syðstu-Mörk. Já, Rebekka
og Róbert voru og eru miklir gleði-
gjafar í lífi Helgu og Guðjóns.
Líf Helgu var að mörgu leyti frá-
brugðið lífi samborgara hennar.
Hún var heimskona, sem hafði búið
í Bandaríkjunum í um 20 ár, hún
var að mörgu leyti framandi og
kunni margt fyrir sér, var t.d. lista-
kokkur. Margt fannst mér áhuga-
vert að læra af henni, sérstaklega
bakaði hún góðar kökur og útbjó
góðan mat, lagði ætið ríka áherslu á
að allt væri fallega fram borið.
Fjalladrottning var það lýsingar-
orð sem ein góð frænka mín hafði
um hana, og tel ég að hægt sé að
segja að það hafi hún borið með
rentu. Helga hefði aldrei farið af
bæ öðruvísi en vel til höfð, óaðfinn-
anleg frá toppi til táar. Helga talaði
ensku eins og innfædd, og kom það
oft á óvart þegar erlenda gesti bar
að garði, að húsmóðirin í sveitinni
var altalandi á enska tungu og
gerðist það oftar en einu sinni að
fólk spyrði hana hvað hún væri eig-
inlega að gera þarna uppi í fjöllum.
Hún gat oft hlegið dátt að því hvað
henni fannst þetta heimskuleg og
alt að því niðurlægjandi spurning,
svarið var svo einfalt hún hafði orð-
ið ástfangin af ungum, myndarleg-
um og afar geðugum bóndasyni,
sem átti eftir að verða lífsförunaut-
ur hennar.
Elsku Guðjón, Björgvin, Re-
bekka, Róbert og Pétur, mínar inni-
legustu samúðarkveðjur sendi ég
ykkur og bið almáttugan Guð að
vernda ykkur og styrkja.
Halla Bjarnadóttir.
Helga mín, nú ertu farin frá okk-
ur. Mig langar til að kveðja þig með
nokkrum orðum.
Þegar ég réð mig sem vinnukona
til ykkar hjóna í Syðstu-Mörk fyrir
um 17 árum vissi ég náttúrulega
ekkert út í hvað ég var að fara. Ég
var að koma til ókunnugs lands þar
sem ég talaði ekki málið og þekkti
hvorki siði né menningu landsins.
En ég var mjög lánsöm. Þú, Helga,
tókst á móti mér og strax frá fyrsta
degi hófst sérstök vinátta sem ég er
mjög þakklát fyrir.
Þú ólst upp í Reykjavík, fórst ung
til ókunnugs lands, bjóst þar í tvo
áratugi í milljóna manna borg,
komst svo aftur til Íslands og gerð-
ist sveitakona undir Eyjafjöllum.
Þú hafðir upplifað margt óvenjulegt
og ekki var lífið alltaf dans á rósum,
en þú sást alltaf einhverja bjarta
hlið á málunum. Þú kunnir svo vel
að miðla af reynslu og þekkingu
þinni og lærði ég margt um lífið og
tilveruna. Þetta var mikill skóli fyr-
ir mig og ógleymanlegur tími og bý
ég enn að því sem þú kenndir mér.
Ég átti eftir að koma oft til ykkar
og alltaf tókuð þið vel á móti mér.
Ég er sérstaklega þakklát fyrir
stuðninginn sem þú veittir mér
þegar ég missti móður mína.
Helga, þú varst glæsileg kona og
mikill persónuleiki. Ég kveð þig
með söknuði og þakka þér innilega
fyrir samfylgdina í gegnum árin.
Guðjóni, börnum og öllum afkom-
endum votta ég mína dýpstu sam-
úð.
Anne B. Hansen,
Smjördölum.
Elsku Helga mín.
Margar góðar og fallegar minn-
ingar á ég um þig. Ég á þér svo
margt að þakka. Meðal annars hef-
ur þú gefið mér eina dýrmæta gjöf
sem ég mun aldrei láta frá mér og
mun ætíð minna mig á þig. Þegar
mamma mín hringdi og tilkynnti
mér um andlát þitt, fann ég fyrir
sorginni og söknuði sem leiddi til
þess að minningar frá því ég var lít-
il leituðu á huga minn. Minningar
sem ég á frá því stuttu eftir að ég
og foreldrar mínir komu í Stóra-
Dal. Ég man þegar þú passaðir mig
vegna þess að pabbi minn fór með
kind til dýralæknis og mamma var
ekki heima. Ég mátti velja að fara
með pabba mínum eða fara til þín
og mér fannst meira spennandi að
fara til ykkar í Syðstu-Mörk. Við
fórum í heimsókn á aðra bæi og að-
eins varstu að segja mér til í sam-
bandi við framkomu og hvað mætti
á heimili annarra. Mín seinni ár
hefur mér þótt gott að tala við þig
um marga hluti og fyrir það er ég
þakklát og mun ætíð minnast þín
sem fallegrar, góðar og umfram allt
skemmtilegrar konu sem var búin
að reyna margt.
Ég kveð þig að sinni og við
sjáumst handan ljóssins.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margs er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
Hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Valdimar Briem)
Guðjóni, börnum og barnabörn-
um sendi ég mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Þín,
Sigurrós Lilja
Helga Dagbjartsdóttir
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Einlægar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför
SIGÞRÚÐAR PÁLSDÓTTUR
ljósmóður,
frá Eyjum í Kaldrananeshreppi,
Hraunvangi 3,
Hafnarfirði.
Halldór Hjálmarsson,
Steinunn Halldórsdóttir, Einar Steingrímsson,
Hjálmar Halldórsson,
Rún Halldórsdóttir,
Páll Halldórsson, Stella Óladóttir,
Örn Halldórsson, Ingibjörg Bryndís Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.