Morgunblaðið - 26.09.2007, Page 12

Morgunblaðið - 26.09.2007, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ÚR VERINU Vökvadælur Vökvamótorar Stjórnbúnaður Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is ÞAÐ er frekar rólegt yfir þorsk- veiðum við Breiðafjörðinn. Bátarn- ir þaðan hafa því sótt vestur á firði og fiskað mjög vel þar. Steinunn SH er gott dæmi um þetta. Hún hefur landað 86 tonnum af fiski hjá Fiskmarkaði Íslands í Ólafsvík og er verðmætið 23 milljónir króna. Meðalverð á þorskinum, 53 tonn- um, er hvorki meira né minna en 313 krónur á kíló. Hitt er góður koli, sem hefur selzt á ríflega 180 krónur kílóið. Allt sem flýtur á sjó Gunnar Traustason, starfsmaður fiskmarkaðarins í Ólafsvík segir, að annars sé rólegt á markaðnum því tíðarfar hafi verið mjög leið- inlegt. Þá séu menn farnir að skammta sér þorsk nú þegar vegna niðurskurðarins. „Nú er reyndar gott veður og allt sem flýtur er á sjó fram að næstu brælu. Það er ekki það að maður geti ekki selt fisk. Það er bara bú- ið að vera hundleiðinlegt veður og lítið framboð undanfarna daga,“ segir Gunnar. Hann segir að nokkrir dragnóta- báta séu farnir vestur á firði, það sé enginn þorskur við Breiðafjörð- inn. Þetta sé oft svona á haustin. Fiskurinn sem þeir fái fyrir vestan sé mjög góður og bátarnir að gera góða túra. „Þegar framboðið er svona lítið má segja að það sé „bullverð“ í gangi. Það fæst mjög hátt verð fyrir allan fisk. Þetta er góður þorskur, um 3,5 kíló að meðaltali slægður. Verðið fer hæst yfir 300 krónur. Saxhamar er búinn að landa slatta hérna líka, 14 tonnum af keilu, 40 tonnum af löngu og 2 tonnum af lúðu. Hann er á línu úti á Hrygg. Magnús SH hefur verið að gera það gott á skötusel, kom- inn með 33 tonn í mánuðinum og fleiri smærri bátar fá ágætlega af selnum,“ segir Gunnar. Hann segir að menn séu farnir að spara þorskkvótann strax en það komi ekki eins að sök og áður meðan verðið sé svona gott á þeim gula. „Ég held að menn fleygi ekk- ert fiski meðan verðið er svona hátt og eftirspurnin mikil. Ég held að þessir fáu þorskar sem veiðast af bátunum hérna detti nánast allir inn á gólfið hjá okkur. Óslægður línufiskur, þorskur, er að meðaltali á 280 krónur kílóið í heildina. Ég held að menn hendi ekki fiski á svoleiðis verði,“ segir Gunnar. Þess má geta að helmingur und- irmálsfisks, sé hann 10% eða minna af heildarafla, er undanþeg- inn kvóta. Jafnframt geta menn landað 5% af afla, til dæmis smærri fiski, sem svokölluðum Hafróafla utan kvóta. Sá fiskur skal seldur á markaði og renna 80% verðmæta til Hafrann- sóknastofnunar en 20% til áhafnar. Aflabrögð Góð skötuselsveiði hefur verið við Breiðafjörðinn að undanförnu og gott verð fæst fyrir hann. Meðalverð fyrir þorskinn 313 krónur Í HNOTSKURN »Óslægður línufiskur, þorsk-ur, er að meðaltali á 280 krónur kílóið í heildina. Ég held að menn hendi ekki fiski á svo- leiðis verði. »Saxhamar er búinn að landaslatta hérna líka, 14 tonnum af keilu, 40 tonnum af löngu og 2 tonnum af lúðu »Það er ekki það að maðurgeti ekki selt fisk. Það er bara búið að vera hundleiðinlegt veður og lítið framboð und- anfarna daga Steinunn SF hefur fiskað fyrir 23 milljónir í drag- nótina í haust kvóta síns í norsk-íslenzku síldinni innan lögsögu Noregs, eða um 35.000 tonn. Nokkur skip hafa leyfi til veiðanna og hefur Samherji Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is „OKKUR finnst þetta minniháttar yfirsjón, en brot er brot, hvort sem það er lítið eða stórt. Í þessu tilfelli var ekki um neinn ásetning að ræða. Um leið og við uppgötvuðum þetta, þegar skipið var á landleið, höfðum við frumkvæði að því að láta alla viðkomandi aðila vita,“ segir Kristján Vilhelmsson, útgerð- arstjóri Samherja. Uppsjávarveiðiskip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson, var við síld- veiðar innan lögsögu Noregs í síð- ustu viku og láðist að uppfylla til- kynningaskyldu til norskra stjórnvalda, þegar skipið yfirgaf norsku landhelgina. Buðust til að borga fyrir norskan eftirlitsmann „Fyrst létum við íslenzk stjórn- völd vita, sem að beiðni okkar til- kynntu þeim norsku um yfirsjón- ina. Við óskuðum síðan eftir eftirliti frá Fiskistofu og Gæslunni við löndunina í Neskaupstað. Við buð- umst jafnframt til þess að bíða eftir eftirlitsmanni frá Noregi og borga kostnaðinn við komu hans til lands- ins. Við buðumst meira að segja til að snúa skipinu við og fara á svo- kallaðan kontrólpunkt,“ segir Kristján. Hann segist ekki eiga von á miklu veseni vegna þessa. Eftir að löndun úr skipinu lauk í Neskaupstað undir eftirliti Gæsl- unnar var skipinu siglt aftur til veiða innan norsku lögsögunnar. Því var þá gert að sigla inn til hafnar í Sortland. Skipstjórinn þarf að gera grein fyrir því hvers vegna hann sendi norsku strand- gæslunni ekki lokaskýrslu um afla áður en hann yfirgaf norsku land- helgina í síðustu viku. Hafa síldarkvóta við Noreg Togarinn er við síldveiðar en áð- ur en hann fær að yfirgefa Sort- land þarf skipstjórinn að gefa lög- regluskýrslu um málið og útgerðin þarf að öllum líkindum að greiða tryggingagjald fyrir hugsanlegum sektum vegna málsins. Íslenzk skip mega taka hluta leyfi fyrir tvö skip, Vilhelm og Margréti. Margrét er um þessar mundir að landa ferskri síld í Nor- egi. Verð á ferskri síld ytra er milli 30 og 40 krónur íslenzkar til mann- eldis og um 17 krónur í bræðslu. Láðist að uppfylla tilkynningaskyldu Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson Skip Vilhelm Þorsteinsson að veiðum. Skipið er nú í höfn í Noregi vegna brots á tilkynningaskyldu og beðið er málaloka vegna þessa atburðar. Samherji hafði frumkvæði að því að tilkynna viðkomandi yfirvöldum á Íslandi og í Noregi um yfirsjónina Í HNOTSKURN »Við óskuðum síðan eftireftirliti frá Fiskistofu og Gæslunni við löndunina í Nes- kaupstað. Við buðumst jafn- framt til þess að bíða eftir eft- irlitsmanni frá Noregi og borga kostnaðinn við komu hans til landsins. »Skipstjórinn þarf að geragrein fyrir því hvers vegna hann sendi norsku strand- gæslunni ekki lokaskýrslu um afla áður en hann yfirgaf norsku landhelgina í síðustu viku »Íslenzk skip mega takahluta kvóta síns í norsk- íslenzku síldinni innan lög- sögu Noregs, eða um 35.000 tonn. Nokkur skip hafa leyfi til veiðanna og hefur Samherji leyfi fyrir tvö skip.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.