Morgunblaðið - 26.09.2007, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2007 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
KAUPÞING banki hefur fengið
bankaleyfi í Dubai, í Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum, og í Katar.
Verður Kaupþing þá fyrstur nor-
rænna banka til að opna útibú í
Dubai. Tilkynnt var um þetta í gær.
Umar Ali mun stýra starfsemi
Kaupþings í Dubai og Katar og segir
hann að með opnun útibúsins komist
Kaupþing í þá aðstöðu að geta að-
stoðað núverandi viðskiptavini sína,
sem annaðhvort séu nú þegar með
starfsemi í eða viðskiptum við Dubai.
Sömuleiðis geti bankinn sinnt hlut-
verki milliliðs fyrir aðila í Mið-
Austurlöndum sem vilja eiga við-
skipti í Norður-Evrópu. „Hér eru
gríðarleg sóknarfæri fyrir banka
eins og Kaupþing,“ segir Umar Ali.
„Nú þegar eru töluverð viðskiptaleg
tengsl milli Persaflóaríkjanna og
Skandinavíu og með hröðum vexti
hagkerfa eins og í Dubai þá er ekki
útlit fyrir annað en að þau tengsl geti
styrkst enn frekar og hagnast aðilum
beggja vegna borðsins.“
Umar Ali segir í samtali við Morg-
unblaðið að útibúið í Dubai muni
þjónusta Mið-Austurlönd og Norður-
Afríku og verði starfsmenn á fyrsta
árinu á bilinu 10-15 talsins.
„Við munum að sjálfsögðu ráða til
okkar heimamenn, en sjálfur vildi ég
helst hafa nokkra íslenska starfs-
menn líka. Eitt af því sem gerir
Kaupþing sérstakt er sá frum-
kvöðlaandi sem einkennir fyrirtækið.
Ég vildi gjarnan koma upp slíkum
anda innan útibúsins í Dubai og það
myndi gera mér starfið auðveldara
með íslenskum starfsmönnum.“
Hvað varðar væntanlega starfsemi
Kaupþings við Persaflóa segir Umar
Ali að auk þess að þjónusta núver-
andi viðskiptavini muni bankinn afla
sér nýrra viðskiptavina á svæðinu.
„Þá er ég ekki aðeins að tala um fyr-
irtæki sem þegar eru orðin sterk og
öflug, heldur einnig að koma auga á
þau fyrirtæki og einstaklinga sem
geta orðið að öflugum og sterkum
fyrirtækjum í framtíðinni.“
Segir Umar Ali að Dubai sé afar
spennandi staður, einkum fyrir fjár-
málafyrirtæki eins og Kaupþing.
„Gríðarlegar breytingar hafa orðið á
hagkerfinu og samfélaginu öllu und-
anfarin tuttugu ár. Fólki hefur fjölg-
að hratt, hér er mikið fjármagn og al-
mennt er menntunarstig hátt. Svæðið
hefur því allt til brunns að bera til að
geta orðið að sterkri fjármála-
miðstöð, enda er það eitt af mark-
miðum þjóðhöfðingjans, Mohammed
bin Rashid Al Maktoum.“
Samanborið við sum önnur fursta-
dæmanna þá er Dubai tiltölulega fá-
tækt af olíu og gasi og því hefur
furstinn lagt á að áherslu að ná fram
meiri fjölbreytileika í hagkerfinu. Er
nú svo komið að aðeins um 3% af
vergri þjóðarframleiðslu kemur frá
olíu og gasi en ferðaþjónusta og fjár-
málastarfsemi eru mun um-
svifameiri.
Gríðarleg tækifæri fyrir
banka í Mið-Austurlöndum
Kaupþing banki með bankaleyfi í Dubai, fyrstur norrænna banka
Útibússtjórinn Umar Ali stýrir Kaupþingi í Dubai og Katar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALA OMX á Íslandi
lækkaði um 0,5% í gær í 7.846 stig
en verslað var með hlutabréf fyrir
28,3 milljarða króna. Mest hækkun
varð á gengi bréfa Føroya Banka eða
1,15% og bréfa Össurar eða 0,8%.
Gengi bréfa Century Aluminum
lækkaði um 4,3%, gengi bréfa FL
Group um 2,2% og Straums-Burðar-
áss um 1,5%.
Gengi íslensku krónunnar stóð því
sem næst í stað í gær.
Lækkun varð á
hlutabréfamarkaði
● Á hluthafafundi
FL Group var sam-
þykkt að veita
stjórn félagsins
heimild til þess
að auka hlutafé
félagsins úr 7,94
milljörðum króna í
allt að kr. 9,26
milljarða til að fjármagna kaup á hlut-
um í Tryggingamiðstöðinni. Ef
heimildin yrði nýtt jafngilti það tæp-
lega 16% aukningu hlutafjár.
Hluthafar hafa ekki forgangsrétt
að hinum nýju hlutum og stjórn fé-
lagsins ákveður sölugengi hlutanna,
áskriftarfrest og greiðslukjör og frá
hvaða tíma þeir veita réttindi í félag-
inu. Á stjórnarfundi sem haldinn var
að loknum hluthafafundi var síðan
samþykkt að auka hlutafé FL Group
um 973 milljónir hluta til að ganga
frá kaupum FL Group í Trygginga-
miðstöðinni og þar með er fyrirvari
vegna kaupa á TM fallinn niður.
Hlutafjáraukning
FL Group samþykkt
● STRAUMUR-Burðarás Fjárfestinga-
banki er nú kominn með 6,7% hlut í
Icelandic Group. Straumur keypti
samtals 86 milljónir hluta í félaginu
að því er kemur fram í tilkynningu til
Kauphallarinnar en átti 3,7% hlut í
Icelandic Group fyrir þessi viðskipti
og hefur því bætt við sig um 3%. Mið-
að við lokagengi bréfa Icelandic
Group í gær hefur Straumur keypt
bréfin á liðlega 2,2 milljarða króna.
Markaðsverðmæti hlutar Straums-
Burðaráss í Icelandic Group nemur
um fimm milljörðum króna.
Straumur eykur við
sig í Icelandic Group
● BJARTSÝNI ís-
lenskra neytenda
fer þverrandi ef
marka má nýjustu
væntingarvísitölu
Gallup fyrir sept-
embermánuð.
Lækkar vísitalan
um 2,6 stig milli
mánaða og
mælist nú 123,7
stig. Í Morgun-
korni Glitnis segir að heldur færri
hafi hug á að kaupa húsnæði og bíla,
heldur en fyrr á þessu ári, en svo
virðist sem óróinn á fjármálamarkaði
undanfarið hafi ekki haft mikil áhrif á
væntingar neytenda. Þeir hafi öllu
meiri trú á núverandi ástandi en í
ágústmánuði en eru hins vegar nokk-
uð svartsýnni á horfur til lengri tíma
litið. Stórkaupavísitalan lækkar um
þrjú sig frá síðustu mælingu í júní sl.
en er þó hærri en fyrir ári.
Lækkun á væntingar-
vísitölu Gallups
Færri ætla að
kaupa bíla.
MARKAÐSVERÐMÆTI eignar-
hluta FL Group í AMR Corp., móð-
urfélagi American Airlines, hefur
lækkað um á fjórða milljarð króna
frá því á föstudaginn fyrir helgi.
Gengi bréfa AMR féll um 14,3% á
mánudaginn í 20,8 dali á hlut í kjöl-
far frétta frá félaginu um að tekjur
á hvern floginn kílómetra á þriðja
ársfjórðungi hefðu aukist minna en
reiknað hafði verið með en á sama
tíma hefur eldsneytiskostnaður
hækkað.
Í gær hækkaði gengið þó aftur í
21,55 dali en fyrir helgi var gengið í
rétt tæpum 24 dölum. FL Group á
um 8,6% hlut í AMR og óinnleyst
gengistap eingöngu vegna þessarar
lækkunar er því væntanlega nær
3,4 milljarðar króna. Óinnleyst tap
FL Group af fjárfestingunni í AMR
í heild er þó miklum mun meira:
ætla má að félagið hafi keypt þau
6% sem skýrt var frá að félagið
hefði eignast um síðustu jól á 28-32
dali hlutinn. Í febrúar var síðan
greint frá því að félagið hefði aukið
hlutinn um 2% í 8,6% og hefur það
því væntanlega greitt einhvers
staðar á bilinu 34-38 dali fyrir hlut-
inn. Það má því ætla að óinnleyst
gengistap FL Group vegna fjárfest-
ingarinnar í AMR geti verið ein-
hvers staðar á bilinu 12 til 14 millj-
arðar króna.
Óinnleyst tap væri raunar enn
meira ef tekið væri tillit til breyt-
inga á gengi Bandaríkjdals gagn-
vart krónunni en dalurinn hefur
veikst umtalsvert gagnvart krónu
frá þeim tíma þegar FL Group fjár-
festi í AMR.
Bréf AMR snarfalla
SKILANEFND Eignarhaldsfélags-
ins Samvinnutrygginga hefur ákveð-
ið að fresta skiptafundi sem halda átti
með kröfuhöfum á föstudaginn vegna
slita félagsins. Ástæðan er sú að
verkefnið hefur reynst umfangs-
meira og flóknara en reiknað hafði
verið með. Nýr skiptafundur verður
boðaður síðar en fram kemur í til-
kynningu að viðbúið sé að skiptin
dragist, hugsanlega fram á næsta ár.
Eigið fé minnkar
Tilkynnt var í júní í sumar að Eign-
arhaldsfélaginu Samvinnutrygging-
um yrði slitið og nýtt hlutafélag, Gift
fjárfestingafélag, tæki við öllum
skuldum og eignum. Hlutafé Giftar
yrði síðan skipt á milli fyrrverandi
tryggingataka Samvinnutrygginga
sem ættu skilyrtan eignarrétt í Eign-
arhaldsfélaginu. Þegar þetta var, þ.e.
þegar aðalfundur félagsins var hald-
inn um miðjan júní, losaði eigið fé fé-
lagsins um 30 milljarða króna en ætla
má að það sé nokkru minna nú vegna
lækkunar á gengi hlutabréfa. Mestu
eignir félagsins eru hlutafé í Exista,
íslenskum fjármálastofnunum og
óbeinn eignarhlutur að tæpum þriðj-
ungshlut í Icelandair. Frá því um
miðjan júní hefur gengi hlutabréfa
Exista lækkað um 9,5% og gengi
bréfa Icelandair hefur lækkað um 6%
þannig að ljóst er að miðað við núver-
andi gengi kemur nokkru minna til
skiptanna.
Þegar Samvinnutryggingar hættu
beinni tryggingastarfsemi voru eig-
endur skilyrtra eignarréttinda – í til-
viki einstaklinga þeir sem höfðu verið
í viðskiptum við Samvinnutryggingar
á árunum 1987 til 1988 – tæplega 65
þúsund en þar af voru virk eignar-
réttindi talin taka til 51 þúsund aðila.
„Eins og listinn er hjá okkur núna
eru þetta tæplega 51 þúsund aðilar
sem eru rétthafar en það verður að
fara mjög vel yfir þennan lista og þá
aðallega þessa 14 þúsund sem eru
brottfelldir,“ segir Kristinn Hall-
grímsson, lögmaður og talsmaður
skilanefndarinnar. Hann segir brott-
fellingu geta verið til komna vegna
andláts einstaklinga, vegna þess að
viðskiptatryggð lögaðila hafi ekki
verið lýst, vegna gjaldþrots o.s.frv.
Skiptum á Samvinnu-
tryggingum frestað
Höfuðstöðvarnar Samvinnutrygg-
ingar voru til húsa í Ármúla 3.
BANDARÍSKA væntingavísitalan
féll í ágúst og september og hefur
ekki mælst lægri síðan í nóvember
2005. Í frétt Bloomberg kemur
fram að aukna svartsýni neytenda
vestra megi fyrst og fremst rekja til
lækkunar á fasteignaverði, verri
horfa á vinnumarkaði og erfiðara
aðgengis að lánsfé. Vísitalan fór úr
105,6 stigum í ágúst og rétt niður
fyrir 100 stig nú í september. Þá
voru einnig birtar tölur í gær sem
sýna að sala á notuðu húsnæði í
ágúst hefur ekki verið minni í ein
fimm ár.
Kreppa á fjármálamörkuðum
hefur einnig dregið úr væntingum
stjórnenda í þýsku atvinnulífi en
væntingarvísitalan lækkaði í fjórða
sinn í röð að því er segir í frétt Süd-
deutsche Zeitung. Þetta túlka sér-
fræðingar sem svo að halda muni
áfram að draga úr þeim gangi sem
verið hefur í þýsku efnhagslífi á
undanförnum misserum. Þó reynd-
ust þýskir útflytjendur enn bjart-
sýnir þótt þeir hafi vaxandi áhyggj-
ur af styrkingu evrunnar.
Dregur úr
væntingum
%
%
!
"#
#
%
&%
$ $
!
#
#%
#'(#
) *
$ &&
'!$
("#
("#'
+,-
.%
' $&
& &'
"#
"#
% %
& !'
$'"
"#%
#
!!"
"#
'%#"
$"#$%
#""
!#%
$#""
%#"
"&$#""
"#"
&#%"
#""
'#"
#%"
#'
'#
"#""
'$#""
#$
#%"
%#!
!#$"
#"
&#""
!#%"
"#""
#%"
'#%"
! /
0!
!1 !
,!2# #
"
31- 4 567 78
78 666
7 7 74 5
746 88 5
68 577
44 46 558
657 68
/
8 6 867
5
5 57 868
8
7 6 74 8
5 7 /
4 47 7
7 45
74 6 467 475 656 64
/
4 767 /
/
8 494
495
69
459 95
869 /
59 89 559 98
896
9 849 9
69 96
5694
96
/
56 /
/
895
49
9 69
4594
89 749 9
/
59 89 559 95
8948
89 9
59 95
559 9 79 /
49 9 89 +:; !
0!
!1 47
6
68
/
4
5
5
/
/
/
/
!
0!
0
5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 6 5 7 5 5 ! "!
. #
< #1=
&
0; < #1=
>! =
+?< #1=
<! ! 2
!=
!
!1
@$
AB ! < #1=
31C!2
!=
? 2
!$ =
#!B+=!#=
- /& +:
2 =
,D!=
E =
# $%
&
48=
.
B=
. !BF #FG+
!
&
!
+< #1=
+H #D&
AB !B< #1=
=
)I= :!=
, D!! ;!=
J! ;!=
'
(
D.!!#
&< !=
1!:=