Morgunblaðið - 26.09.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 2007 23
efta fram-
„Í samn-
ið þak á
ía. Í þeim
þjónust-
fingu yfir
undum er
u margar
kvæmdar
aaðgerðir.
að semja
u og fæð-
séu tekin.
a verka og
hins op-
fara að
m er sam-
lda verka
úkrahúsin
tt að vild,
kmarkan-
rigðisyfir-
um hætti
kla þjón-
íðan end-
r árlega
eilbrigðis-
„Það er oft sagt að þetta geti auk-
ið framleiðslu en ef henni fylgir
aukin framleiðni, að fólk nái að gera
hlutina á hagkvæmari hátt, þá er
það gott mál,“ segir María.
Landspítalinn er kominn lengra í
að kostnaðargreina starfsemi sína
en flest önnur sjúkrahús á Norð-
urlöndunum voru er þau tóku að fá
greitt samkvæmt blandaðri fjár-
mögnun.
Mikil vinna hefur verið lögð í
kostnaðargreiningu á verkefnum
Landspítalans og er því verki í raun
aldrei lokið, skrifar Anna Lilja í
grein sinni. Stöðugt endurmat og
nákvæmari greiningar séu nauð-
synlegar. Innleiðing á DRG-flokk-
unarkerfinu hefur einnig verið um-
fangsmikið verkefni „en saman má
nýta þessi verkfæri til að breyta
fjármögnun spítalans á sama hátt
og gert hefur verið í flestum okkar
nágrannalöndum“, skrifar hún.
tt eftir
a tekið upp blandaða fjár-
linn tilbúinn að breyta
Morgunblaðið/ÞÖK
andspítalanum er nú hægt að nálgast.
121132145
624782559
:;82:83
36;2686
73;2765
7582188
4162831
946219:
9842584
6392937
Í HNOTSKURN
»Diagnosis Related Groups(DRG) er alþjóðlegt fram-
leiðslumælingakerfi sem bygg-
ist á flokkun sjúklinga eftir
sjúkdómsgreiningum, aðgerð-
um/meðferðum, kyni, aldri o.fl.
í greiðsluflokka sem eru klín-
ískt og kostnaðarlega einsleitir.
Kerfið er í notkun víða um
heim.
»Frá árinu 2001 hefur veriðunnið að því að kostn-
aðargreina alla starfsemi LSH
sem er liður í því að undirbúa
fjármögnun hennar samkvæmt
DRG-kerfinu að hluta.
þessa er 402.871 kr., en 107 sjúklingar hafa fengið
meðferð við sambærilegu broti á síðustu mán-
uðum.
Magnús telur þetta gott dæmi um kostnaðinn
við algeng tilfelli sem oft koma upp á spítalanum.
Sundurliðunin sé möguleg vegna kostnaðargrein-
ingar sem spítalinn hefur unnið á sínum störfum.
Hefði útlendingur átt hér í hlut hefði hann
fengið reikning sundurliðaðan með þessum hætti
og spítalinn síðan fengið greitt frá hans trygg-
ingafélagi eða sjúkrasamlagi.
„Ég efast um að gera ætti það að skyldu að all-
ir sjúklingar fengju svona yfirlit en hins vegar
ætti það að standa öllum til boða sem eftir því
leita.“
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
Herforingjastjórnin íBúrma tilkynnti í gær-kvöldi að útgöngu- ogsamkomubann hefði
verið sett í stærstu borgum lands-
ins. Bannið gæti leitt til blóðugs
uppgjörs milli herforingjastjórnar-
innar og andstæðinga hennar sem
héldu áfram fjöldamótmælum í
stærstu borgunum í gær þótt ráða-
mennirnir hefðu varað við því að
hervaldi kynni að verða beitt.
Útgöngubannið á að gilda frá
klukkan níu á kvöldin til fimm á
morgnana í Rangoon, stærstu borg
Búrma, og næststærstu borginni,
Mandalay. Bannið var tilkynnt síðla
kvölds en margir íbúanna virtust
ekki hafa frétt af því.
Í tilkynningu herforingjastjórn-
arinnar segir að einnig sé „bannað
að skipuleggja samkomur fleiri en
fimm manna“. Bannið á að gilda í
tvo mánuði.
Hermenn sendir í miðborgina
Fréttaritari breska ríkisútvarps-
ins, BBC, Jonathan Head, sagði í
gærkvöldi að svo virtist sem herfor-
ingjastjórnin væri að búa sig undir
að beita hervaldi. Hundruð her-
manna og vopnaðra lögreglumanna
voru send í miðborg Rangoon fyrr í
gær og hermenn sáust safnast sam-
an í miðborg Mandalay.
Ríkisútvarpið í Búrma hafði
ítrekað varað íbúanna við því að
taka þátt í mótmælunum og lesnar
voru yfirlýsingar þar sem munkun-
um var sagt að skipta sér ekki af
stjórnmálum.
Þrátt fyrir viðvaranir herfor-
ingjastjórnarinnar söfnuðust 30.000
munkar og 70.000 stuðningsmenn
þeirra saman í gær við Shwedagon-
pagóðuna í Rangoon, helgasta
musteri búddatrúarmanna í
Búrma. Að sögn fréttastofunnar
AFP er þetta annar dagurinn í röð
sem 100.000 manns taka þátt í mót-
mælunum.
Stefnir í blóðsúthellingar?
Herforingjastjórnin hefur hingað
til verið treg til að taka hart á mót-
mælum búddamunkanna sem njóta
mikillar virðingar í Búrma. Út-
göngu- og samkomubannið bendir
til þess að þeir ætli að sýna klærnar
í von um að mótmælunum verði
hætt. Verði samkomubannið virt að
vettugi verður herforingjastjórnin
annaðhvort að beita hervaldi eða
láta undan.
Verði hervaldi beitt gegn munk-
unum er líklegt að herforingja-
stjórnin uppskeri mikla reiði heima
fyrir og erlendis. Herforingja-
stjórnin myndi á hinn bóginn einnig
taka áhættu með því að gefa eftir,
því það yrði að öllum líkindum túlk-
að sem veikleikamerki og gæti orð-
ið til þess að enn fleiri áræddu að
taka þátt í mótmælum munkanna.
Þegar herforingjastjórnin stóð
frammi fyrir svipuðum mótmælum
árið 1988 ákvað hún að beita her-
valdi til að brjóta mótmæli lýðræð-
issinna á bak aftur. Talið er að um
3.000 manns hafi legið í valnum.
Í tilkynningu herforingjastjórn-
arinnar í gær var ekki sagt hvernig
tekið yrði á þeim sem brytu út-
göngu- og samkomubannið. Sam-
kvæmt lögum Búrma varða ólög-
legar samkomur allt að tveggja ára
fangelsi.
Ráðamenn á Vesturlöndum og
trúarleiðtogar á borð við Dalai
herforingjastjórnin leysti Aung San
Suu Kyi, leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar, úr haldi.
Refsiaðgerðir duga ekki
án stuðnings Kínverja
Sérfræðingar í málefnum Búrma
sögðu ólíklegt að refsiaðgerðirnar
bæru tilætlaðan árangur nema með
stuðningi stærstu viðskiptaþjóða
Búrmamanna – Kínverja og Ind-
verja. Nær öll vopn sem herfor-
ingjastjórnin kaupir koma frá Kína
og þarlend stjórnvöld hafa grafið
undan refsiaðgerðum Vesturveld-
anna.
Talsmaður kínverska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í gær að stjórn-
in í Peking myndi halda sig við þá
stefnu að skipta sér ekki af innan-
ríkismálum Búrma sem herfor-
ingjastjórnin hefur nefnt Myanmar.
„Sem vinveitt grannþjóð Myanmar
vonast Kínverjar eftir stöðugleika
og efnahagslegum framförum í
landinu,“ sagði talsmaðurinn.
Talið er þó að kínverska stjórnin
beiti sér í málinu á bak við tjöldin
þar sem henni sé í mun að koma í
veg fyrir blóðsúthellingar í Búrma
nú þegar hún reynir að bæta ímynd
sína á alþjóðavettvangi fyrir Ól-
ympíuleikana í Peking á næsta ári.
ingjar hafa haldið völdum með
nítján ára ógnarstjórn,“ sagði Bush.
Forsetinn kvaðst ætla að gera
frekari ráðstafanir til að stuðla að
lýðræðisumbótum í Búrma.
„Bandaríkjastjórn hyggst herða
efnahagslegu refsiaðgerðirnar
gegn leiðtogum herforingjastjórn-
arinnar og fjárhagslegum bakhjörl-
um þeirra. Við ætlum að herða bann
við vegabréfsáritunum til þeirra,
sem bera ábyrgð á svívirðilegustu
mannréttindabrotunum, og fjöl-
skyldna þeirra.“
Breska stjórnin krafðist þess að
Lama, trúarleiðtoga Tíbeta, og
Desmond Tutu, erkibiskup í Suður-
Afríku, skoruðu í gær á herfor-
ingjastjórnina að beita ekki her-
valdi.
Bush fordæmir
ógnarstjórn herforingjanna
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti ávarpaði allsherjarþing Sam-
einuðu þjóðanna í gær og skýrði frá
hertum refsiaðgerðum gegn herfor-
ingjastjórninni. Hann skoraði á
Sameinuðu þjóðirnar að beita sér af
alefli fyrir lýðræðislegum umbótum
í Búrma, styðja andstæðinga her-
foringjastjórnarinnar og „stuðla að
friðsamlegum breytingum“.
„Bandaríkjamönnum ofbýður
ástandið í Búrma, þar sem herfor-
Herforingjar setja
útgöngubann í Búrma
AP
Hönd í hönd Þúsundir manna héldust í hendur til að slá skjaldborg um munka sem héldu áfram mótmælum í
Rangoon í gær gegn herforingjastjórninni þrátt fyrir hótanir hennar um að beita hervaldi.
! " # #$#
% " #
&'(
!
" ! #$
%
%
&
'
)"$" (
'+,'-./0&'(
1
2 )$% *$ +
,-
34
2 '.
/0
1%
&
5
$
2 *$
+$
6
$
! 7" $% 2
2
3
$1 1
$
4$ +$
$ / 5 6
1
1
$
$ +$1 55
33
$
! 2
$ /$
+. 56 $
! ! % $
$ 11 $
38
$
! 2 '.
1%
& /0
31
$
!2 7 +$8
$ 6 $
$ 0 6
$1 $ 1 0 +$
+$1 58
5 + +$* % 9$
#$%&'(#')*
AP
Gegn kúgun Bush Bandaríkjaforseti ávarpar allsherjarþing Sameinuðu
þjóðanna. Hann skoraði á ríki heims að beita sér fyrir lýðræðisumbótum
í Búrma til að binda enda á kúgun herforingjastjórnarinnar þar.
Í HNOTSKURN
» Í ræðu sinni á allsherj-arþingi SÞ í gær gagn-
rýndi Bush samtökin fyrir að
hafa ekki tekið nógu hart á
kúgun í ríkjum á borð við
Hvíta-Rússland, Norður-
Kóreu, Sýrland, Íran, Kúbu,
Zimbabve og Súdan.
» Bush hvatti til breytinga ámannréttindaráði Samein-
uðu þjóðanna sem hann sakaði
um að gagnrýna Ísrael um of
en sniðganga mannréttinda-
brot í öðrum löndum.
Samkomur fleiri
en fimm manna
bannaðar
Bush herðir
refsiaðgerðirnar