Morgunblaðið - 11.10.2007, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 277. TBL. 95. ÁRG. FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
BANKAÁHLAUPIÐ
„SKILAÐU PENINGUNUM,“ HRÓPAÐI BARNIÐ Í
KVIKMYNDINNI MARY POPPINS >> VIÐSKIPTI
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
„ÞAÐ er alls ekki ólíklegt að íslensk börn,
eða önnur börn sem dvelja hér í lengri eða
skemmri tíma, sé að finna í gagnagrunni
Interpol sem samanstendur af um 700 þús-
und myndum af um 20 þúsund börnum sem
sýna þau á kynferðislegan eða klámfenginn
hátt,“ segir Petrína Ásgeirsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Barnaheilla. „Við vitum ekki
hvort svo sé, en okkur finnst mikilvægt að
útiloka ekki slíkt.“ Aðeins eru til upplýs-
ingar um að færri en 600 börn á myndunum
hafi fundist og fengið stuðning.
Barnaheill stendur fyrir ráðstefnu í Nor-
ræna húsinu í dag og þar verður m.a. fjallað
um sölu á börnum til vinnu og kynlífsþrælk-
unar. Petrína spyr hvort nokkuð sé útilokað
að einhver þeirra barna hafi komið hingað
til lands, því það sé „fyllilega raunhæft að
börn geti staðið hér utan við kerfið um tals-
vert langan tíma“.
Ofbeldinu viðhaldið með dreifingu
Öll myndbirting af börnum, þar sem þau
eru sýnd á kynferðislegan hátt, er kynferð-
islegt ofbeldi. Ofbeldið á sér ekki einungis
stað þegar myndefnið verður til, heldur er
því viðhaldið með dreifingu og birtingu.
Framleiðsla, varsla, dreifing og skoðun á
barnaklámi er ólöglegt athæfi.
Örar tæknilegar framfarir hafa orðið til
þess að brotamenn geta hæglega nýtt sér
tæknina til framleiðslu og dreifingar mynd-
efnis sem sýnir börn á kynferðislegan eða
klámfenginn hátt. Meirihluti íslenskra
barna notar netið daglega til fróðleiks og
skemmtunar. Það er ekkert sem bendir til
annars en að íslensk börn séu jafn ber-
skjölduð fyrir áreitni og ofbeldi á netinu og
jafnaldrar þeirra annars staðar í heiminum.
Þegar netið á í hlut eiga rökin um fámennið
og nálægðina í íslensku samfélagi ekki leng-
ur við.
Samkvæmt nýlegum rannsóknum verða
13-17% íslenskra barna undir 18 ára aldri
fyrir kynferðislegu ofbeldi. Í hverjum mán-
uði berast um 56 ábendingar að meðaltali til
Barnaheilla um barnaklám á netinu.
Sautján þeirra snúa að ofbeldi gegn börn-
um.
Barnaheill hafa farið fram á það við Rík-
islögreglustjóra og netþjónustuaðila að að-
gangur að efni á netinu þar sem börn eru
beitt kynferðislegu ofbeldi, verði heftur
með tæknilegum lausnum. Málið er á um-
ræðustigi.
Börnin eru
berskjölduð
Er íslenskt barn að finna
í gagnabanka Interpol?
Morgunblaðið/ÞÖK
Óheft Dreifing barnakláms á netinu hefur
líklega aldrei verið auðveldari en nú.
ODDVITAR borgarstjórnarflokk-
anna tókust harkalega á um málefni
Orkuveitu Reykjavíkur og Reykja-
vík Energy Invest á aukafundi
borgarstjórnar Reykjavíkur í gær.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgar-
stjóri sagði að full eining væri í
borgarstjórnarflokki sjálfstæðis-
manna um að ljúka 6-7 vikna sam-
runaferli REI og Geysis Green
Energy en fá síðan ráðgjöf um sölu
á hlut Orkuveitunnar í REI. Björn
Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi
framsóknarmanna, sagðist ekki
vilja selja strax. „Ég tel það óráð,“
sagði hann.
Jafnræðisregla virt?
Á fundinum í gær kom fram að
umboðsmaður Alþingis hefur sent
tólf spurningar sem einkum varða
sameiningu REI og Geysis Green
Energy til eigenda Orkuveitunnar,
þ.e. borgarstjórn Reykjavíkur og
sveitarstjórnum Akraness og Borg-
arbyggðar. Hann spyr m.a. hvort
gætt hafi verið að jafnræðisreglu
þegar Bjarni Ármannsson keypti
hluti í REI fyrir 500 milljónir og
hvort hlutirnir sem hann keypti
hefðu áður verið í eigu Orkuveit-
unnar. Þá óskar hann eftir því að
sveitarstjórnirnar skýri afstöðu
sína til þess hvort borgarstjóri eða
sveitarstjórar geti, án sérstakrar
heimildar frá sveitarstjórn, sam-
þykkt að selja einkaaðila hluti í fé-
lögum sem eru í eigu Orkuveitunn-
ar eða aðrar eignir hennar, þ.m.t.
með sameiningu við hlutafélög í
eigu annarra.
Langur aðdragandi
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar í borgarstjórn,
sagði að hingað til hefði ríkt sátt um
að OR ætti hluta í verkefnum í orku-
in í þekkingu starfsmanna Orku-
veitunnar.
Svandís Svavarsdóttir, oddviti
Vinstri hreyfingarinnar – græns
framboðs, sagði eftir ræðu Vil-
hjálms að hann hefði engum spurn-
ingum svarað. Hún spurði m.a. um
stöðu Hitaveitu Suðurnesja, um
hvernig farið hefði verið með opin-
bert fé og lýðræðislegt vald, án þess
að hafa til þess umboð.
Hjá Margréti Sverrisdóttur kom
m.a. fram að F-listinn vildi ekki
selja REI.
útrás en áhættufjármagnið kæmi
frá einkaaðilum. Af taugaveiklun,
fumi og fáti sjálfstæðismanna sem
reyndu að hanga á „nýuppfundinni
menntaskólafrjálshyggju“ mætti
halda að þetta væri íslensk aðferða-
fræði. Það væri hins vegar staðið
svona að málum úti um allan heim.
Hann varaði við því að farið yrði
að ráðum taugaveiklaðra sjálfstæð-
ismanna og selt í hvelli.
Bæði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
og Björn Ingi Hrafnsson ræddu um
forsögu þess að REI var stofnað og
sögðu báðir að hingað til hefði ríkt
þverpólitísk sátt um starfsemi REI
og að gríðarleg verðmæti væru fólg-
Hart tekist á um sölu
Orkuveitunnar í REI
Umboðsmaður Alþingis spyr hvassra spurninga Sjálfstæðismenn vilja
kanna sölu en að selja strax væri óráð að mati fulltrúa Framsóknarflokksins
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fjölmenni Margir lögðu leið sína í Ráðhús Reykjavíkur til að hlusta á umræður um málefni Orkuveitunnar.
Í HNOTSKURN
» Umboðsmaður Alþingssendi 12 spurningar til
eigenda Orkuveitu Reykja-
víkur sem m.a. lúta að því
hvort sameining Reykjavík
Energy Invest og Geysis
Green Energy hafi verið lög-
mæt.
» Héraðsdómur Reykja-víkur hefur fallist á flýti-
meðferð vegna kæru Svan-
dísar Svavarsdóttur á
fundarboð á eigendafund
OR. Umboðsmaður spyr | 4 Hart deilt á | Miðopna
„LÁGMARKSLAUN hækki úr
125 þúsundum í 180 þúsund á
[tveggja ára] samningstímanum,“
segir í nýsamþykktri kröfugerð
Verkalýðsfélags Húsavíkur fyrir
endurnýjun kjarasamninga.
Þess er krafist að almennir
kauptaxtar verði færðir að
greiddu kaupi og að samið verði
um að mótframlag atvinnurek-
anda í lífeyrissjóð starfsmanna
verði hækkað á næstu fjórum ár-
um úr 8% í 11,5%. Krafist er
hærri skattleysismarka og hærri
framlaga til starfsmenntunar.| 2
Lágmarkslaun fari
úr 125 í 180 þúsund
Kröfur Félagið krefst að kyn-
bundnum launamun verði útrýmt.
Ljósmynd/Kristinn Benediktsson
Má bjóða
þér sæti? >> 56
Leikhúsin í landinu