Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, RUTH JÓNSDÓTTIR, dvalarheimilinu Höfða, áður Sólvöllum, Innri Akraneshreppi, sem lést fimmtudaginn 4. október, verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 12. október kl. 14.00. Elín Kolbeinsdóttir, Guðbjörn Ásgeirsson, Þorgeir Kolbeinsson, Hrönn Hjörleifsdóttir, Guðfinna Valdimarsdóttir, Sigurður Hauksson, Ingólfur Valdimarsson, Guðný Sjöfn Sigurðardóttir, barnabörn og langömmubörn. Afi var besti maður sem ég hef kynnst og hann hefur alltaf verið stór hluti af lífi mínu. Það var afi sem kenndi mér að lesa og hann sýndi námsár- angri mínum mikinn áhuga í gegnum tíðina. Ef hann var þreyttur vegna veikindanna þá vaknaði hann alltaf til lífsins þegar ég sagði honum frá skólanum. Nær alltaf þegar ég kvaddi afa eft- ir að hafa verið hjá honum þá spurði hann mig hvenær ég ætlaði að koma til hans á morgun, því við þyrftum að fara vestureftir að synda eða að versla. Elsku afi minn, ég mun sakna þín mikið. Ég veit að nú ert þú á góðum stað og að þú tekur þar á móti mér þegar minn tími kemur – og við vit- um báðir að sá tími verður um tvö- leytið. Hannes Pétur. Hannes Ragnar Þórarinsson ✝ Hannes RagnarÞórarinsson fæddist í Reykjavík 19. desember 1916. Hann lést á Land- spítalanum við Hringbraut 13. september síðastlið- inn og var jarðsung- inn í kyrrþey. Nú er enginn afi á Sóló lengur, en svo var Hannes Þórarinsson læknir ávallt kallaður af barnabörnum sín- um. Sóló er hús við Sól- eyjargötuna sem hef- ur verið í fjölskyldunni í fjóra ættliði og hefur verið fasti punkturinn í tilverunni. Sóló var annað heimili sonar míns Hannesar Pét- urs, en tengsl þeirra nafnanna voru náin og einstök. Afi á Sóló var yndislegur, blíður og hlýr. Það sem sérstaklega einkenndi hann var hógværð hans og hégómal- eysi með öllu. Hann vildi öllum gott gera enda læknir af guðs náð. Afi á Sóló var mikill sjúklingur síð- ustu árin og þráði að búa heima inn- an um fjölskyldu sína. Það gerði Adda dóttir hans honum kleift. Hún annaðist hann af fórnfýsi, kærleika og sérstakri alúð. Afi á Sóló var Hannesi Pétri syni mínum alltaf svo kærleiksríkur, vel- viljaður og umhyggjusamur og alltaf til staðar fyrir hann. Ég kveð hann afa á Sóló með virð- ingu og dýpsta þakklæti. Anna Katrín Ottesen. Ég trúi því varla enn að þú sért farinn, sársaukinn er svo mikill. Ég bjóst aldrei við öðru en við ættum eftir að eiga fleiri góðar stundir saman. Við fjölskyldan fórum mikið í ferðalög þegar við vorum yngri og þaðan eigum við ógleymanlegar stundir. Við fórum mikið að veiða í Blöndu og gistum við því oft í veiði- húsum og á bænum Hnausum fyrir norðan. Finnbogi var reyndar aldr- ei mikill veiðimaður. Hann vor- kenndi ormunum svo mikið að hann gat ekki þrætt þá upp á öngul og því síður að hann gæti drepið fisk- inn. Við spiluðum mikið enda mikil spilafjölskylda og oftast höfðum við gaman af því að teikna. Finnbogi var alveg einstaklega klár á því sviði og öfundaði ég hann mikið af þessum hæfileikum. Hann hlustaði mikið á tónlist, við vorum með sama Finnbogi Már Ólafsson ✝ Finnbogi MárÓlafsson fædd- ist í Reykjavík 19. desember 1974. Hann lést í Nottingham á Eng- landi 19. septem- ber síðastliðinn og var minnst í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ 1. októ- ber. tónlistarsmekk og gátum því setið og rætt tónlist fram og til baka. Þú varst mér afar kær þótt ekki lægju leiðir okkar alltaf saman. Ég geymi með mér allar okkar góðu stundir. Elsku Finnbogi minn, það er stórt skarð í okkar systk- inahópi sem aldrei verður fyllt. Eigi stjörnum ofar á ég þig að finna, meðal bræðra minna mín þú leitar, Guð. Nær en blærinn, blómið, barn á mínum armi, ást í eigin barmi, ertu hjá mér, Guð. Hvar sem þrautir þjaka, þig ég heyri biðja: Viltu veikan styðja, vera hjá mér þar? Já, þinn vil ég vera, vígja þér mitt hjarta, láta ljós þitt bjarta leiða, blessa mig. (Sigurbjörn Einarsson) Elska þig og sakna þín sárt. Þín systir Ollý Björk. Ástkær vinkona okkar Jóhanna er fall- in frá allt of snemma. Jóhanna barð- ist við krabbamein og var mikil hetja í sinni baráttu. Hún lætur eftir sig eiginmann sinn Brahim og son Helga Idder. Við kynntumst þessari litlu fjöl- skyldu fyrir nokkrum árum þegar við vorum að vinna saman úti í Tyrk- landi við fararstjórn. Jóhanna var yf- irfararstjórinn okkar. Þá var Helgi Idder 5-6 ára. Hann var með sitt yf- Jóhanna Á. H. Jóhannsdóttir ✝ Jóhanna Árn-heiður Helga Jó- hannsdóttir fæddist í Reykjavík 15. maí 1957. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Sel- fossi að morgni 6. september síðastlið- ins og var útför hennar gerð frá Fossvogskirkju 13. september. ir-fararstjóraskilti og fór stundum með móð- ur sinni í ferðir. Eitt sinn sem oftar fór hann í ferð. Hann tal- aði hátt og mikið í sinni rútu og tilkynnti það með mikilli rögg- semd að hér væri hann yfirfararstjóri og stjórnaði öllu. Útkom- an var sú að án hans væri öll starfsemin á svæðinu í lamasessi. Þessi skelegga yfirlýs- ing vakti mikla kátínu í rútunni. Þetta er ein af mörgum sögum af Helga Idder sem yfirfar- arstjóra og sagði Jóhanna stundum „hann talar meira en ég og er mér nú sjaldan orða vant“. Jóhanna var sérsaklega orðheppin kona og gædd mikilli kímnigáfu. Hún var blátt áfram, einlæg og það gustaði af henni. Hún var mjög vin- sæll fararstjóri og frábær samstarfs- maður. Sem dæmi um kímnigáfu Jóhönnu sagði hún okkur frá fyrstu kynnum sínum af Brahim í Marokkó. Hún vann í Marokkó um tíma við fararstjórn og kynntist þar Brahim sem er marokkóskur og vann þar sem þarlendur fararstjóri. Þau lentu saman í rútu og það varð ást við fyrstu sýn. Brahim hafði sagt vinum sínum frá þessari fallegu íslensku stúlku og biðu þeir spenntir eftir að sjá þessa norrænu þokkadís þar sem þeir bjuggust við stúlku með sítt bylgjandi ljóst hár, ljósblá augu, há- leggjaða í háhæla skóm. Þegar þeir sáu svo Jóhönnu með sitt fallega dökka hár og brúnu augu varð þeim að orði að hann hefði nú getað fundið „svona konu“ á næsta götuhorni og sneru sér vonsviknir frá. Jóhanna og Brahim komu úr ólík- um áttum en voru samstiga og sam- lynd hjón. Brahim var Jóhönnu trúfastur og traustur lífsförunautur. Hann er góður maður og vék ekki frá Jó- hönnu á þessum erfiðu tímum. Megi guð vernda Brahim og Helga Idder og gefa þeim styrk. Jóhanna, hvíl þú í friði. Ástarkveðja. Við söknum þín. Sólrún og Ingrid, í Tyrklandi núna. Elsku amma. Ég trúði ekki mínum eigin eyrum þegar ég frétti að þú værir komin með illkynja krabbamein. Þú sem varst bara að fara suður í gift- ingu og heim aftur. Ég hringdi í þig eftir afmælið þitt til að óska þér til hamingju með daginn og sagði við þig eitthvað í þessa áttina: Þú kemst loksins suður í skemmtiferð, engar læknisferðir. En þá sagðir þú mér að þú værir líka að fara í þína hefð- bundnu skoðun. Stuttu síðar fékkstu þessar hræðilegu fréttir en ég var alltaf bjartsýn á að þú myndir ná þér. Þú varst send austur í byrjun ágúst og varst ánægð með að vera loksins komin heim. Þú byrjaðir að hressast og hvarflaði ekki að mér að þú yrðir tekin frá okkur mánuði seinna. Kata amma var stórglæsileg kona, alltaf vel til höfð, í smart fötum og hárið alltaf nýlagt enda átti hún góða vinkonu, hana Ástu, sem passaði vel upp á hárið á henni. Talaði amma oft um hvað Ásta væri henni góð. Amma Katrín Rósmundsdóttir ✝ Katrín KristínRósmundsdóttir fæddist á Eskifirði 18. júní 1932. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu í Nes- kaupstað fimmtu- daginn 13. septem- ber síðastliðinn. Katrín var jarð- sungin frá Norð- fjarðarkirkju 22. sept. sl. var 75 ára og héldu margir að hún væri um sextugt, svo glæsileg var hún. Hún hafði góða nær- veru og hélt góðu sam- bandi við fjölskylduna sína og vini enda sást það vel í veikindum hennar hversu margir fylgdust með henni og sendu henni góðar kveðjur. Allt sem þú hefur búið til handa okkur, þú varst sko listamað- ur amma mín. Má þar nefna Pallana, jólasveinana sem afi sagaði út og þú málaðir og ekki má gleyma Gosunum sem prýða mörg heimili. Minnisstæð- ar eru góðu stundirnar með ykkur afa í bústaðaferðunum og hvað þið voruð dugleg að taka barnabörnin með ykkur. Þessar stundir geymi ég í hjarta mínu. Alltaf var gaman að koma inn á Framnes og fara upp á loft með þér og skoða allt fallega föndrið þitt. Það var eins og að vera komin í föndur- verslun að sjá allt dótið þitt. Þú talaðir oft um það við mig hvað eitt skipti þegar þú varst að passa mig væri þér minnisstætt. Ég var ro- samikil mömmustelpa og eftir að mamma fór settist ég út í horn og sagði: Nú er ég bara alein. Þú sagðist hafa hlegið mikið að þessu. Þótt amma hafi fæðst á Eskifirði var engin meiri Norðfirðingur en hún. Henni þótti Norðfjörður falleg- asti staður á jörðu og veðrið hvergi betra. Meðan amma lá veik á spítalanum hafði hún orð á því að það væru tvær peysur í pöntun hjá henni og hún væri leið yfir því að geta ekki prjónað þær. Þetta lýsti ömmu vel, hún var alltaf að hugsa um aðra. Elsku amma, þú varst alls ekki sátt við að þurfa að fara frá okkur enda ekki nema 75 ára og áttir eftir að gera svo margt fyrir barnabörnin þín, eins og þú sagðir. Það er svo sorglegt að litli strákurinn minn fékk svo stuttan tíma með þér. Elsku amma, ég þakka þér sam- fylgdina og kveð þig með söknuð í hjarta. Elsku amma, þú þarft ekki að hafa áhyggjur af Dóra afa því við munum gæta hans vel þar til leiðir ykkar liggja saman á ný. Elsku afi. Guð gefi þér styrk á sorgarstundu því missir þinn er mik- ill, enda eruð þið búin að vera saman í 57 ár. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hvíl í friði amma mín. Ingibjörg Finnsdóttir. Það er með hlýjum hug að við minnumst Jóns bónda þar sem við vorum í sveit á sumrin í meir en áratug. Þau hjónin Jón og Snjólaug voru þá nýlega búin að taka við búi af afa Grími og ömmu Sigurdísi. Jón var staðráðinn í því að verða fyrirmyndarbóndi og lagði mikið upp úr því að allt væri gert á besta veg Jón Laxdal ✝ Jón Laxdalfæddist á Gauts- stöðum á Svalbarðs- strönd 22. maí 1919. Hann lést á heimili sínu, Víðilundi 20 á Akureyri, hinn 3. september síðastlið- inn. Jón var jarðsung- inn frá Laufáskirkju 15. sept. sl. þannig að afurðir bús- ins væru ávallt í hæsta gæðaflokki. Jón var skapgóður og horfði á björtu og spaugilegu hliðarnar. Við upplifð- um búskaparhætti allt frá því að slegið var með orfi og ljá, sláttu- vélar sem dregnar voru af hesti og upp- haf vélvæðingarinnar. Það var í raun stór- kostlegt ævintýri að fá að taka þátt í þessu stórbrotna tímabil í sögu landbúnaðarins. Jón var nýj- ungagjarn og var sífellt að kaupa spennandi búnað sem átti að létta og efla bústörfin. Við bræðrabörnin undum okkar hag vel og lærðum að vinna öll helstu verk eftir því sem aldur og reynsla leyfði. Þetta tímabil í æsku okkar er fullt af ljúfum minn- ingum um alls konar ævintýri sem við lentum í og gætum við hæglega skrifað bækur hliðstæðar Nonna og Manna bókunum. Við kveðjum með þakklæti Jón bónda að Nesi, sem reyndist okkur vel í alla staði og var okkur fyrir- mynd um stórhug og bjartsýni. Blessuð sé minning hans. Bræðrabörnin, Sigurdís Eggertsdóttir Laxdal og Grímur Halldórsson Laxdal. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Myndir | Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á mynda- móttöku: pix@mbl.is og láta um- sjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.