Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 37
Í DAG verður fólki oft tíðrætt
um valkvíða og tengir það streitu
og miklu framboði af alls kyns af-
þreyingu, skemmtun,
efnislegum verðmæt-
um og svo mætti
lengi telja. Valkvíði
er velmegunarvanda-
mál og er að því leyti
mjög gott vandamál.
Betra er að hafa úr of
mörgu að velja en of
fáu – ekki satt? En
hvað á að gera til að
takast á við þetta
„frábæra“ vandamál?
Á að fækka valmögu-
leikum til að gera líf-
ið auðveldara hjá
þeim sem eiga við valkvíða að etja
eða á að hjálpa þeim (sem vilja
hjálp) að efla sig og styrkja þann-
ig að þeir eigi auðveldara með að
taka ákvarðanir, auðveldara með
að velja og hafna?
Fyrr á þessu ári átti ég áhuga-
vert samtal við skólastjóra úti á
landi. Hún var að kvarta yfir því
hvað unga fólkið í dag hefur mikið
að gera og hversu margt væri í
boði. Hún vildi meina að krakk-
arnir væru orðnir hálfgeðveikir á
öllu þessu áreiti. Ég spurði hana
þá nokkurra einfaldara spurninga:
„Er líklegt að framboð á alls
kyns afþreyingu muni aukast á
næstu árum?“
„Já,“ svaraði hún.
„Er líklegt að áreitið verði
meira, hraðinn meiri og að aukinni
velmegun fylgi aukin efnisleg
gæði?“
„Já,“ svaraði hún aftur.
„Er líklegt að við munum ekki
geta breytt samfélag-
inu, þannig að um
muni, til að draga úr
þessum hröðu breyt-
ingum?“ spurði ég
áfram.
„Nei, það er ekki
líklegt að við getum
breytt því mikið, í það
minnsta ekki nógu
hratt.“ svaraði hún.
Þá spurði ég:
„Hvað er þá hægt að
gera?“
Í framhaldi urðum
við sammála um að
aukin áhersla á uppbyggingu á
sjálfstrausti, sjálfsvirðingu og
sjálfsaga í uppeldis- og skóla-
málum sé eina raunhæfa lausnin
við valkvíða. Manneskja sem ekki
hefur sjálfsvirðingu, sjálfstraust,
styrk og aga, mun væntanlega
frekar segja „já“ við þeim freist-
ingum sem verða á vegi hennar.
Manneskja sem býr við skort á
þessum innri styrk verður fljótari
að segja já við áfengi, eiturlyfjum,
mat, lánsfé og svo mætti lengi
telja. Ef ekki verður farið að
leggja meiri áherslu á uppbygg-
ingu þessara grunnþátta í karakt-
ermótun á heimilum landsins og í
skólakerfinu er líklegt að velmeg-
unin éti börnin sín (bókstaflega)
og hér verði stór hluti næstu kyn-
slóða orðinn of feitur, fastur í ein-
hverri fíkn og jafnvel orðinn gjald-
þrota fyrir tvítugt.
Ég hef lengi haldið því fram að
besta forvörnin sé uppbygging á
sjálfstrausti og sjálfsaga. Persónu-
lega er ég þakklátur fyrir það
mikla val sem við stöndum frammi
fyrir í dag. Það hefur hjálpað mér
að þroskast og þróast meira en
nokkuð annað á síðustu árum.
Enginn verður fullorðinn fyrr en
hann lærir að segja „nei“ við sjálf-
an sig.
Velmegun og valkvíði
Guðjón Bergmann skrifar um
velmegunarvandamál »Ég hef lengi haldiðþví fram að besta
forvörnin sé uppbygg-
ing á sjálfstrausti og
sjálfsaga.
Guðjón Bergmann
Höfundur er rithöfundur, fyrirlesari
og jógakennari – höfundur bók-
arinnar Þú ert það sem þú hugsar.
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
www.gimli.is – ww.mbl.is/gimli
Raðhús, parhús eða einbýli óskast
í Kópavogi, Garðabæ eða Hafnarfirði
Við á fasteignasölunni Gimli höfum verið beðin um að
leita eftir raðhúsi, parhúsi eða einbýli í Kópavogi,
Garðabæ og Hafnarfirði. Um er að ræða ákveðna
kaupendur með góðar greiðslur. Rúmur afhendingar-
tími ef óskað er. Hús á tveimur hæðum kemur til
greina. Verð 45 - 60 milljónir.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Gimli
sími 570-4800
Traust þjónusta í 30 ár
Sveinbjörn
Halldórsson
lögg. fasteignasali
s: 892 2916
Veitingahús - Kringlan
Spennandi viðskiptatækifæri í hringiðu
Kringlunnar. Fullbúið og glæsilegt veit-
ingahús á besta stað í Kringlunni með
löngum leigusamningi, ásamt öllu lausafé.
Staðurinn er sérlega vel tækjum búinn.
Reksturinn hefur skilað góðri afkomu.
Nánari upplýsingar gefur
Guðmundur Valtýsson hjá Fasteignakaup
515 0500 eða gsm 865 3022
Erna Valsdóttir lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
Sími 515 0500 www.fasteignakaup.is
Strandvegur 3
Sjálandi Garðabæ - Glæsileg útsýnisíbúð á sjávarlóð
Opið hús í dag frá kl. 17-18.30
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is
Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali.
Glæsileg 123 fm útsýnisíbúð á 3. hæð, efstu, (gengið upp eina
hæð) í nýju og glæsilegu fjölbýli auk 23 fm bílskúrs. Íbúðin er
vel innréttuð með vönduðum innréttingum frá Brúnás. Bjartar og
rúmgóðar stofur, 2 góð herbergi og eldhús með vönduðum
tækjum. Parket á gólfum, en baðherbergi er flísalagt í gólf og
veggi. Stórar flísalagðar svalir til suðurs og austurs.
Lofthæð er allt að 4 metrar. Óhindrað sjávarútsýni.
Laus fljótlega. Verð 49,9 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, fimmtudag, frá kl. 17-18.30
Íbúð merkt 0303 - Verið velkomin.
M
b
l 9
12
53
3