Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 21
GEORGE W.
Bush Banda-
ríkjaforseti og
eiginkona hans
ætla að taka þátt
í athöfn í næstu
viku þegar Dalai
Lama, trúar-
leiðtogi Tíbeta,
verður heiðraður
af Bandaríkja-
þingi. Bush ákvað að vera við at-
höfnina þótt líklegt sé að það vekji
reiði kínverskra ráðamanna.
Þetta verður í fyrsta skipti sem
sitjandi forseti Bandaríkjanna hitt-
ir Dalai Lama við opinbera athöfn.
Forseti fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings, Nancy Pelosi, mun af-
henda Dalai Lama æðstu orðu, sem
þingið veitir, á miðvikudag.
Bush heiðrar
Dalai Lama
Dalai Lama
TEKJUR víða um heim hafa aukist
mikið á síðustu tveimur áratugum
enda hefur efnahagslífið í heim-
inum vaxið mjög á þessum tíma.
Það sama á hins vegar við um mis-
réttið, launabilið á milli manna.
Vaxandi launabil
KONA nokkur og starfsmaður
Óslóarborgar hefur verið rekin.
Ástæðan er sú, að á fimm mánuðum
talaði hún til útlanda fyrir um
300.000 ísl. kr. og í 115 tíma alls,
næstum því í þrjár vinnuvikur.
Mælirinn fullur
NICOLAS Sarkozy, forseti Frakk-
lands, sótti í gær heim Vladímír
Pútín Rússlandsforseta. Fékk hann
ekki breytt afstöðu hans til Írans-
deilunnar en ætlaði að leggja mikla
áherslu á mannréttindamál.
Reuters
Í Moskvu Fögnuður með forsetum.
Gist hjá Pútín
ISMAIL Haniya,
sem gegndi
stöðu forsætis-
ráðherra Palest-
ínumanna fyrr á
þessu ári, gaf í
gær yfirlýsingu
um að Ham-
as-samtökin
væru tilbúin að
ræða við Fatah-
samtökin sem keppt hafa um völd-
in í Palestínu.
Hamas tók öll völd á Gaza-svæð-
inu í júní eftir vopnuð átök við liðs-
menn Fatah. Í yfirlýsingu Haniya
sagði að stjórn Hamas á Gaza
væru tímabundin. Jafnframt kem-
ur fram í yfirlýsingunni að við-
ræður leiðtoga Hamas og Fatah
færu fram í arabískri borg.
Forseti Palestínumanna og leið-
togi Fatah, Mahmoud Abbas, hefur
útilokað viðræður við Hamas nema
samtökin láti stjórn Gaza-svæðisins
af hendi.
Tilbúinn að
ræða við Fatah
Ismail Haniya
SAMTÖK, sem lýsa sjálfum sér sem
„grasrótardemókrötum“, hafa
skorað á Al Gore að endurtaka leik-
inn frá árinu 2000 og bjóða sig fram
til forseta. Kemur það fram í heil-
síðuauglýsingu í New York Times.
Gore í framboð?
ÓNÓG loft- og vatnsgæði og þær
breytingar, sem hækkandi hitastig
veldur um allan heim, hafa gert það
að verkum, að ævilíkur Evrópu-
manna hafa styst um eitt ár.
Kemur þetta fram í 400 blaðsíðna
skýrslu Evrópsku umhverfisvernd-
arstofnunarinnar en hún var kynnt á
ráðherrafundi í Belgrad í Serbíu.
Í skýrslunni segir, að hundruð
þúsunda Evrópumanna falli í valinn
fyrir menguninni á ári hverju og
miklu fleiri en látist í bílslysum. Í
Vestur- og Mið-Evrópu geta karlar
nú búist við að lifa í 70 ár og konur í
74 eða árinu skemur en áður var.
Fram kemur, að um 100 milljónir
Norðurálfumanna hafi ekki aðgang
að hreinu vatni auk þess sem meng-
unin, útblástur gróðurhúsaloftteg-
unda, aukist ára frá ári. Þar að auki
hafi fiskstofnar verið miskunnar-
laust rányrktir og loftslagsbreyting-
ar séu nú farnar að hafa veruleg
áhrif á mörg vistkerfi.
Evrópusambandið hefur sett sér
það takmark að draga úr mengandi
útblæstri um 50% fyrir 2050.
Reuters
Eitruð veröld Mengunin þekkir engin landamæri og afleiðingar hennar
fyrir lífríkið allt verða meiri og alvarlegri með hverju árinu sem líður.
Mengunin styttir
ævilíkurnar
MEST
BÝÐUR TIL SÝNINGAR
Á ÖLLU ÞVÍ HEITASTA
Í LAGNAEFNI Á
MARKAÐNUM Í DAG.
Kynningin fer fram í verslun MEST að
Norðlingabraut 12, Norðlingaholti,
fimmtudaginn 11. okt. kl. 10-18 og
föstudaginn 12. okt. kl. 10-18.
Á staðnum verða fulltrúar allra
helstu framleiðenda lagnaefnis
og kynna vöru sína.
Líttu við og kynntu þér allt það
nýjasta í lagnaefni á einum stað!
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
29
86
6