Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sænska skáldið Hjalmar Gullberg orti ljóð út frá sög-
unni um þá skrautsýningu, sem Neró efndi til í hall-
argörðum sínum, þegar hann lýsti þá upp með því að
láta kveikja í lifandi fólki kristnu.
Skáldið túlkar hugsun þessara píslarvotta. Þeir
eru gagnteknir af öðrum eldi en þeim, sem hatrið og
blindan tendra, og vita að fórnandi, krossfestur kær-
leikur sigrar allt myrkur um síðir.
Því veldur stjarnan björt, sem eystra brann,
að böðlar smurðu oss með tjöru núna.
Keisarinn sjálfur kveikti í. En hann
vorn kjark fær ekki brennt né drepið trúna
Lát gleymast vein og grát, allt jarðarböl!
Sá geislar einn, sem fús er til að líða.
Að lýsa heimi kostar mikla kvöl,
sjá, kyndlar Nerós lýsa hátt og víða.
Vér logum ekki í lystigarði hér
rétt litla næturstund, til gamans kvaldir,
nei, bjarmi þessa báls svo sterkur er,
að birta hans mun lýsa fram um aldir.
Verðum að ösku, brenni hold og bein!
Blys vor í nótt slá leiftrum út um geiminn.
Vér erum neistar báls, er bjartast skein.
Það blóð, sem logar, fær eitt vakið heiminn.
Sigurbjörn Einarsson
Hvað viltu, veröld? (12)
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Ísafjörður | Kaupa þarf upp eða verja tvö íbúðar-
hús á Innri-Kirkjubólshlíð, í nágrenni flugvallar-
ins, og hefur það áhrif á búsetu einnar fjölskyldu.
Flugstöðvarbyggingin og fleiri mannvirki eru
einnig á hættusvæði C og kemur það væntanlega í
veg fyrir uppbyggingu atvinnuhúsnæðis í ná-
grenni flugvallarins.
Veðurstofa Íslands hefur unnið hættumat
vegna ofanflóða á svæðum í kringum þéttbýlið á
Ísafirði. Þar er um að ræða Tungudal, Dagverð-
ardal og Innri-Kirkjubólshlíð og endurmat á
Seljalandshverfi og Tunguskeiði eftir gerð varn-
armannvirkja í hlíðinni þar fyrir ofan. Matið verð-
ur kynnt íbúum á morgun.
Helstu niðurstöður eru þær að hættusvæðið í
Seljalandshverfi hefur minnkað frá fyrra hættu-
mati. Allt sumarbústaðahverfið í Tungudal er talið
á hættusvæði en þar var heimiluð enduruppbygg-
ing með takmörkunum eftir snjóflóðið 1994.
Skíðaskálinn í Tungudal er hættusvæði A en þjón-
ustuskálinn á Seljalandsdal er utan hættusvæða.
Hætta í innanverðum Tungudal og í Dagverðardal
er miklu minni en á svæðunum í Seljalandshlíð.
Byggingar á Ísafjarðarflugvelli eru á hættusvæði
C en minni hætta hjá Sorpbrennslunni Funa.
„Þetta er algerlega í samræmi við þær áætlanir
sem við höfum gert,“ segir Halldór Halldórsson,
bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, um áhrif hættumats-
ins á þróun byggðar á Ísafirði. Hann telur að hægt
verði að halda áfram uppbyggingu á öllu Fjarð-
arsvæðinu og jafnvel skapist möguleikar á byggð í
Tungudal, innan við sumarbústaðahverfið.
Tómas Jóhannesson, jarðeðlisfræðingur hjá
Veðurstofu Íslands, segir að ekki hafi verið settar
reglur um viðbrögð við því þegar atvinnuhúsnæði
lendir á mesta hættusvæði, eins og raunin er með
flugstöðina á Ísafirði, nema hvað taka verði tillit til
áhættunnar við rýmingar vegna yfirvofandi snjó-
flóðahættu. Hann vekur athygli á því að margt
fólk geti safnast þar saman en hafi vanalega stutta
viðdvöl. Þá sé flugvöllurinn oft lokaður þegar snjó-
flóðahætta sé hvað mest. Segir Tómas að þótt taka
verði tillit til þess að fólk starfi á flugvellinum sé
ekki hægt að líkja aðstæðum þar við íbúðarhverfi
þar sem fólk dvelji allan sólarhringinn.
Tvö íbúðarhús á hættusvæði
Veðurstofan hefur gert nýtt hættumat vegna snjóflóða á Ísafirði Flugstöðvar-
byggingin er á mesta hættusvæði en meginhluti Seljalandshverfisins fyrir utan
Í HNOTSKURN
»Við hættumat vegna snjóflóða er landiskipt upp í þrjá flokka, A, B og C.
»Á hættusvæði C skal öryggi tryggt meðvaranlegum varnarvirkjum eða upp-
kaupum íbúðarhúsnæðis. Á svæðum A og B
er heimilt að tryggja öryggi fólks með eft-
irliti og rýmingu.
»Heimilt er að reisa ný íbúðarhús og at-vinnuhúsnæði á hættusvæðum A og B,
með vissum takmörkunum.
með að geta unnið eitthvað með
hann í haust þar sem hann er nú
orðinn kynþroska.“ Hlýri er mat-
fiskur og að sögn Sindra er hann
ekki ósvipaður steinbít, „til-
tölulega þéttur í sér og ágætis
fiskur“.
Hlýri getur orðið nokkuð stór,
eða allt að 20 kg. Í sláturstærð,
líklega við þriggja ára aldurinn,
er fiskurinn um 10 kg.
HLÝRARNIR á Norðfirði eru
orðnir kynþroska. Umræddir fisk-
ar eru þátttakendur í tilraun Síld-
arvinnslunnar með hlýraeldi sem
hófst árið 2001. Á næstu vikum
verður því ljóst hver árangur til-
raunarinnar er.
Klakstofninn er ekki stór, að-
eins um 200 fiskar, segir Sindri
Sigurðsson, framleiðslustjóri hjá
Síldarvinnslunni. „Við reiknum
Aðspurður um hvernig hlýraeldi
sé frábrugðið öðru fiskeldi, t.d.
laxeldi, nefnir Sindri að hlýrinn sé
botnfiskur. „Þannig að hann dreif-
ir sér ekki á rúmmál í körunum
heldur á fermetra. Hann er miklu
líkari lúðu að þessu leytinu.“
Enginn kaupandi er enn sem
komið er að afurðum hlýraeld-
isins, þegar þar að kemur, enda
verkefnið stutt á veg komið.
Ljósmynd/Helgi Garðarsson
Kynþroska tilraunadýr
Síldarvinnslan elur hlýra í tilraunaskyni
FORNBÓKABÚÐIN Bókin,
Klapparstíg 25, Reykjavík fagnar
50 ára afmæli á þessu ári og efnir
þess vegna til stórfellds bóka-
markaðar, þar sem allar bækur
eru seldar með 50% afslætti í eina
viku frá föstudegi 12. október.
„Til sölu verða ættfræðibækur
og þjóðlegur fróðleikur fyrir
grúskarana og fræðimennina, póli-
tísk fræðirit fyrir vinstri intelli-
gentiuna og hægri villingana,
bækur um guðspeki, trúarbrögð
og spíritisma fyrir leitanda sálir,
svaðilfara og ferðasögur fyrir æv-
intýramenn, léttar afþreying-
arbækur fyrir erfiðisfólk, hagvís-
indi fyrir verðbréfabörnin,
lögfræðirit fyrir lögmannaskar-
ann, ljóð og skáldverk fyrir fag-
urkerana, ævisögur stórmenna og
listamanna og gleymdra stjórn-
málamanna og íslenzks alþýðu-
fólks fyrir upprennandi stjórn-
málamenn og konur og erlendar
pocketbækur í þúsundatali fyrir
lestrarhestana,“ eins og segir í
fréttatilkynningu.
Allar bækurnar á markaðnum
eru seldar með 50% afslætti og
stendur veizlan yfir í eina viku og
opnar n.k. föstudag kl. 11.00.
50% afsláttur á 50 ára afmæli
Fyrirtækið, sem er áratugagamalt fjölskyldufyrirtæki,
samanstendur af stóru bakaríi, fallegri bakarísbúð og
söluturni, í eigin húsnæði.Við bakaríið eru einnig tvær
mjög góðar íbúðir.Tekjur eru stöðugar og framlegðar-
aukning verið umtalsverð sl. ár. Ýmiskonar eignaskipti
athugandi. Áhugasamir vinsamlega sendi nafn og
síma til casafirma@visir.is.
Rótgróið bakarí og söluturn í Hveragerði
PERSÓNUVERND hefur kveðið
upp úrskurð vegna vinnslu persónu-
upplýsinga í könnun Alcan á afstöðu
Hafnfirðinga til stækkunar álversins
í Straumsvík sl. vetur. Kemst Per-
sónuvernd að þeirri niðurstöðu að
Alcan hafi ekki gert ráðstafanir til að
tryggja að þeir sem spurðir voru
fengju upplýsingar um að svör þeirra
yrðu skráð, hver stæði fyrir öflun
upplýsinganna, í hvaða tilgangi, hvað
væri skráð og hvernig varðveislu
upplýsinganna yrði hagað. Því hafi
söfnun Alcan á upplýsingum um
skoðanir einstakra íbúa í Hafnarfirði
brotið í bága við ákvæði laga um per-
sónuvernd.
Sigurður Þór Ásgeirsson, fjár-
málastjóri Alcan á Íslandi, segir að
ekki sé gerð athugasemd við að könn-
unin hafi verið gerð heldur finni Per-
sónuvernd að því að starfsmenn hafi
ekki gætt þess að upplýsa viðmæl-
endur sína nægilega skilmerkilega
um að upplýsingarnar yrðu skráðar í
tölvukerfi. Því hafi verið kippt í liðinn
þegar þessi mistök uppgötvuðust.
„Við vorum í kosningaslag sl. vetur
en erum því ekki vön. Við réðum til
okkar ráðgjafa sem við fengum kosn-
ingakerfið hjá. Eftir því sem við best
vissum er þetta samskonar kerfi og
notað er í prófkjörum allra stjórn-
málaflokka. Við töldum okkur því
vera nokkuð örugg um að við værum
ekki að gera neitt óeðlilegt.“
Ekki í samræmi við lög
KARLMAÐUR á sextugsaldri
missti töluvert blóð en er ekki tal-
inn alvarlega slasaður eftir að
veist var að honum með skærum
aðfaranótt miðvikudags. Kona og
tveir karlmenn voru handtekin í
kjölfar árásarinnar en mönnunum
var sleppt eftir hádegið í gærdag.
Konan sem er á fimmtugsaldri er
grunuð um verknaðinn og verður
hugsanlega farið fram á gæslu-
varðhald yfir henni í dag.
Flúði úr íbúðinni
Árásin átti sér stað skömmu eft-
ir miðnættið. Fólkið sat við
drykkju í íbúð í Vesturbæ Reykja-
víkur en ekki liggur fyrir hvers
vegna konan stakk manninn í bak-
ið.
Fórnarlambið flúði út úr íbúð-
inni og til nágranna, þaðan sem
hann hringdi eftir aðstoð. Hann
var fluttur á slysadeild Landspít-
ala og er að sögn ekki talinn al-
varlega slasaður.
Stakk
karlmann
í bakið