Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv.
Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
MIKILL meirihluti félagsmanna í
Flóafélögunum svonefndu leggja
áherslu á að samið verði um aukinn
kaupmátt launa í stað prósentu-
hækkunar í komandi kjarasamning-
um, skv. nýrri Gallup-könnun, sem
unnin var fyrir félögin. Yfirgnæfandi
meirihluti eða rúm 75% vilja leggja
sérstaka áherslu á verulega hækkun
lægstu launa, þó að það hefði í för
með sér minni almenna hækkun
launa.
Að Flóabandalaginu standa Efl-
ing-stéttarfélag, Hlíf í Hafnarfirði,
Verkalýðs- og sjómannafélag Kefla-
víkur og Verkalýðs- og sjómanna-
félagið Boðinn. Sigurður Bessason,
formaður Eflingar, segir niðurstöð-
ur kjarakönnunarinnar mjög skýrar
og þær séu mikil-
vægt veganesti
inn í kjaraviðræð-
urnar.
Verkalýðsfélag
Húsavíkur sam-
þykkti kröfugerð
á félagsfundi sl.
mánudag. Mun
félagið m.a. krefj-
ast þess að lág-
markslaun hækki úr 125 þúsundum í
180 þúsund ef samið verður til
tveggja ára og að mótframlag at-
vinnurekanda í lífeyrissjóð starfs-
manna verði hækkað á næstu fjórum
árum úr 8% í 11,5%.
Á fulla ferð eftir ársþing ASÍ
Hjólin eru farin að snúast í kjara-
viðræðum á almenna vinnumarkað-
inum. Viðræður eru hafnar á milli
launaþegasamtaka og vinnuveitenda
um viðræðuáætlanir. Sameiginleg
samninganefnd Flóafélaganna kom
saman í gærkvöldi vegna undirbún-
ings kjaraviðræðna en þau ætla að
standa saman að næstu samnings-
gerð. Ekki er þó reiknað með að eig-
inlegar samningaviðræður verði
komnar á fulla ferð fyrr en að loknu
ársþingi ASÍ, sem haldið verður á
fimmtudag og föstudag í næstu viku.
Vaxandi launamunur kynjanna
Í kjarakönnun Flóafélaganna var
spurt hvort ætti að leggja áherslu á
prósentuhækkun eða aukinn kaup-
mátt launa og þá svöruðu 65,6% að
leggja ætti áherslu á aukinn kaup-
mátt. Þrír af hverjum fjórum vilja að
áhersla verði lögð á hækkun lægstu
launa.
„Það hefur verið gríðarlega mikið
launaskrið í samfélaginu og menn
þurfa að huga að öryggisnetinu,“
segir Sigurður Bessason.
Konur leggja mun meiri áherslu
en karlar á launahækkun og karlar
leggja meiri áherslu á styttingu
vinnutímans samkvæmt niðurstöð-
um könnunarinnar. Þá leiðir könn-
unin í ljós verulegan launamun
kynjanna. Konur eru að jafnaði með
rúmlega 17% lægri grunnlaun en
karlar. Að teknu tilliti til aldurs,
starfsaldurs og starfsstéttar er
launamunurinn 12,6%.
Fram kemur að launabil milli
karla og kvenna hefur aukist frá
árinu 2006. Þannig hækkuðu meðal
heildarlaun kvenna úr 201 þúsund
kr. í 226 þúsund kr. eða um 12,44% á
meðan meðal heildarlaun karla
hækkuðu úr 273 þúsund kr. í 339
þúsund kr., eða um 24,18%.
Flóafélög vilja auka kaup-
mátt og hækka lægstu laun
Verkalýðsfélag Húsavíkur krefst hækkunar lægstu launa í 180 þúsund á mánuði
Sigurður Bessason
Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn var í gær og í tilefni hans
var ráðstefna í Ráðhúsi Reykjavíkur undir yfirskriftinni
Innflytjendur og geðheilbrigði. Um kvöldið var minning-
arathöfn um fórnarlömb sjálfsvíga í Hallgrímskirkju þar
sem Sigrún Hjálmtýsdóttir söng. Að athöfn lokinni var
gengið að Tjörninni þar sem kertum var fleytt. | 8
Fórnarlamba sjálfsvíga minnst
Morgunblaðið/Golli
PILTUR um tvítugt, sem lögreglan
hafði afskipti af í Hafnarfirði í síð-
ustu viku, reyndist vera með snák
innanklæða. Eftir yfirheyrslur yfir
piltinum og tveim félögum hans var
snákurinn, sem var um einn metri að
lengd, geymdur yfir nótt, þó ekki í
fangaklefa, og daginn eftir var farið
með hann að Keldum þar sem gerðar
voru viðeigandi ráðstafanir.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá lögreglunni á höfuðborgarsvæð-
inu. Ekki er fyllilega ljóst af hvaða
tegund snákurinn var, né heldur
hvað hann var gamall. Meint fíkni-
efni fundust í fórum félaga piltsins
sem var með snákinn á sér. Piltunum
var sleppt eftir yfirheyrslur.
Óheimilt er með öllu að flytja með
sér lifandi dýr til Íslands. Landbún-
aðarráðherra er þó heimilt, að
fengnum meðmælum yfirdýralækn-
is, að veita undanþágu frá þessu
banni.
Var með
snák á sér
Fíkniefni fundust í
fórum félaga hans
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ÍSLENSK fyrir-
tæki þurfa að
hugsa sinn gang
varðandi val á
tungumáli innan
sinna vébanda,
sagði Þorgerður
Katrín Gunnars-
dóttir, mennta-
málaráðherra, í
svari við fyrir-
spurn Ólafar
Nordal, þingmanns Sjálfstæðis-
flokks, á Alþingi í gær.
Mikill samhljómur var um það
meðal þingmanna að standa vörð um
íslenska tungu og Þorgerður sagðist
myndu beita sér fyrir því að tryggja
stöðu hennar í stjórnarskrá. „Það er
full þörf á því að stjórnvöld, jafnt
sem landsmenn, geri sér grein fyrir
því að það er ekkert víst að íslenskan
lifi af í heimi þar sem enskan sækir
sífellt meira á og mörg tungumál eru
í útrýmingarhættu,“ sagði Þorgerð-
ur og áréttaði að ábyrgðin væri ekki
bara stjórnvalda heldur allra.
Þorgerður lagði ríka áherslu á ís-
lenskukennslu fyrir innflytjendur..
„Enda á það að vera sjálfsagður rétt-
ur okkar þegar við förum í blessuðu
bakaríin [...] að fólk sem er að af-
greiða okkur geti tjáð sig á íslensku
og ég veit að metnaður fyrirtækj-
anna stendur til þess að svo verði,“
sagði Þorgerður og hvatti einnig til
þess að erlendar kvikmyndir yrðu al-
mennt kynntar á íslensku.
Bjarni Harðarson, þingmaður
Framsóknarflokksins, tók undir það
en óskaði jafnframt eftir því að svip-
uðum tilmælum yrði beint til fyrir-
tækjaeigenda enda hefði sá ósiður
aukist að fyrirtæki og verslanir
bæru erlend nöfn.
Fyrirtæki hugsi sinn
gang varðandi tunguna
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
Í HNOTSKURN
» Hvergi er minnst á ís-lenskt mál í stjórnarskrá.
» Mörður Árnason, fyrrumalþingismaður, barðist fyr-
ir réttarstöðu tungumálsins.
» 2004 var samþykkt þings-ályktunartillaga þess efnis
að forsætisráðherra skyldi at-
huga réttarstöðu íslensku sem
þjóðtungu Íslendinga.
FANGAR á einni deild Litla-Hrauns
hófu í síðustu viku að elda matinn
sinn sjálfir. Þetta er tilraun sem
Fangelsismálastofnun stendur fyrir
í samstarfi við fangana og er til þess
gert að efla samstarfsanda þeirra og
lífsleikni. Kokkarnir munu fá úthlut-
að fjármunum á hverjum degi til inn-
kaupa og kaupa hráefni í verslun
fangelsisins. Með þessu er vonast til
að þeir fái einnig þjálfun í ráðdeild-
arsemi við meðferð peninga. Næst-
komandi mánudag munu fangar á
Kvíabryggju einnig taka við allri
matseld en til þessa hafa tvær mat-
ráðskonur séð um það. Starfsmaður í
fangelsinu mun hins vegar áfram sjá
um innkaup og hafa yfirumsjón með
matreiðslu fanganna.
Mikill áhugi meðal fanga
Verkefnið er gert að danskri fyrir-
mynd. Hafdís Guðmundsdóttir,
skrifstofustjóri Fangelsismálastofn-
unar, kveður fanga almennt jákvæða
gagnvart verkefninu og að hennar
sögn eru sumir þeirra mjög spenntir
fyrir því, enda hafa sumir hverjir
þeirra í raun aldrei komið nálægt
slíku fyrr og eiga því margt ólært.
Til stendur að fá fagfólk til að vera
með sýnikennslu í hollri matreiðslu
og hagkvæmni í innkaupum.
Fangarnir
elda mat-
inn sjálfir
Horfið frá „hótel-
rekstri“ í fangelsum
KARLMANNI er haldið sofandi á
gjörgæsludeild Landspítalans í
Fossvogi eftir vinnuslys á fram-
kvæmdasvæðinu við Norðurbakka í
Hafnarfirði í gærmorgun. Að sögn
vakthafandi læknis á deildinni eru
meiðsli mannsins lífshættuleg.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglu eru tildrög slyssins ókunn en
starfsmaður sem vann með hinum
slasaða sneri í hann baki þegar slysið
varð. Mennirnir voru við störf á
fimmtu hæð hússins, og er talið að
hann hafi fallið niður um 2,5 metra.
Maðurinn var meðvitundarlaus
þegar komið var á vettvang og til að
gæta fyllsta öryggis við að flytja
hann niður var gripið til þess ráðs að
nota byggingakrana.
Slasaðist lífs-
hættulega
♦♦♦
E FT I R DAG A
www.jpv.is