Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þ að eru orðin 33 ár síðan að Sturla Böðvarsson og kona hans Hall- gerður Gunnarsdóttir fluttu til Stykkishólms. Hann var þá að taka við starfi sveitarstjóra ungur að árum. Starfinu gegndi hann næstu 17 árin á miklum uppgangstíma í Stykkishólmi. Árið 1991 var hann svo kjörinn þingmaður Vest- urlandskjördæmis og er sá tími að verða jafn langur starfstíma hans sem bæjarstjóri. Hann og fjölskylda hans hafa búið í Stykk- ishólmi þennan tíma, en vegna þingstarfa hef- ur fjölskyldan átt sér annað heimili í Reykja- vík, en eyða eins miklum tíma í Hólminum og þau geta. Sturla og Hallgerður eiga 5 börn og fjöl- skyldan er alltaf að stækka með tilkomu tengdabarna og barnabarna. Þegar ný ríkisstjórn var skipuð eftir alþing- iskosningarnar í vor var Sturla Böðvarsson kjörinn forseti Alþingis. Það kom því í hans hlut að stýra Alþingi Íslendinga mánudaginn 1. október. Helgina á undan dvaldi hann með fjölskyldu sinni heima í Stykkishólmi. Fréttaritari Morg- unblaðsins heilsaði upp á húsbóndann. Sturla gaf sér tíma til að spjalla um starf sitt sem for- seti Alþingis og eins árin í samgöngu- ráðuneytinu. Skylda forseta að skapa sátt – Þú ert farinn að kynnast nýja starfinu? „Já, það má segja að ég komi vel undirbúinn í þetta starf eftir fjögur kjörtímabili á þingi. Ég var varaforseti Alþingis í 8 ár og þekki því vel til á þessum vettvangi. Starfið leggst mjög vel í mig. Staða forseta Alþingis er virðingar- og áhrifastaða, vilji forseti beita sér. Það er skylda forseta að tryggja sem best vinnubrögð Alþingis, vera forseti jafnt stjórnarandstöðu sem stjórnarliða og skapa sátt. Þingmenn hafa auðvitað allir það markmið að setja lög í þágu þjóðar og tryggja framfarir í landinu og hag þeirra sem höllum fæti standa.“ – Hefur þú hugsað þér breytingar á störfum Alþingis? „Já, það er nú þegar breytinga að vænta á stöfum Alþingis. Ég hef í sumar unnið að skipulagsbreytingum á stöfum þingsins. Markmiðið með þeim er að gera þau markviss- ari og lagasetningu traustari, jafnframt því að auðvelda störf þingmanna á vettvangi þing- nefnda og á vettvangi kjördæmanna. Ég vinn að þessu í góðu samstarfi við forsætisnefnd þingsins og formenn þingflokkanna. Ég vænti þess að niðurstaða fáist í haust svo að strax á þessu kjörtímabili sjáist breytingar. Þú sást að þingsetning var ekki á allan hátt hefðbundin. Mökum þingmanna var boðið til þingsetningar og íslensk tónlist var leikin. Ég vildi vísa til þess að tónlistin snertir streng í hjörtum okk- ar og sameinar okkur og setur hátíðlegan blæ á allar samkomur.“ – Samkvæmt skoðanakönnunum sem gerðar hafa verið hefur almenningur ekki mikla tiltrú á störfum alþingismanna. Þar kemur fram að aðeins þriðjungur fólks treystir Alþingi? „Já, ég kannast við það og tek þessar ábend- ingar alvarlega. Það er mikilvægt verkefni að bæta ímynd Alþingis. Við verðum að færa vinnubrögðin í þinginu að því sem gerist best meðal þjóðþinga. En það er algjörlega á valdi þingmanna hvernig ímynd Alþingis er í huga þjóðarinnar. Þeir þurfa að vanda sín vinnu- brögð og málflutning, en til þess þarf að skapa þeim sem best vinnuskilyrði. Það er fylgst með störfum okkar, sem veitir okkur aðhald og við verðum að standa undir þeim kröfum sem gerðar eru til okkar þingmanna.“ – Margir af þínum fyrirrennurum hafa end- að sinn pólitíska feril sem forsetar alþingis. Verður það eins með þig? „Í stöðu forseta eru að jafnaði menn með mikla þingreynslu. Starf forseta Alþingis er ekki og á ekki að vera starf fyrir þá sem ætla að setjast í helgan stein. Ég var kjörinn til þingsetu og hef engin önnur áform en að sinna því kalli minna fjölmörgu stuðningsmanna í kjördæminu.“ Umskipti í samgöngum á átta árum – Þú varst samgönguráðherra í 8 ár. Hvern- ig var sá tími? „Ég var mjög sáttur þegar mér var falið ráðuneyti samgöngumála. Ég naut þess mjög að sinna því starfi og geta haft áhrif á svo mörgum sviðum í því ráðuneyti. Fram- kvæmdir á sviði samgöngumála eru bæði að- kallandi og taldar sjálfsagðar. Okkur hefur allt til þessa skort fjármuni til þess að hrinda í framkvæmd mörgum mikilvægum verkefnum. Á þessu átta ára tímabili hafa orðið mikil um- skipti í samgöngumálum og ör þróun sem nær auðvitað lengra aftur til þess tíma er Halldór Blöndal og Steingrímur J. Sigfússon voru sam- gönguráðherrar og mörkuðu sín spor.“ – Hver eru helstu málin sem þú beittir þér fyrir í ráðuneytinu? „Ég lagði áherslu á að gera áætlanir til langs tíma á öllum sviðum samgöngumála. Ég nefni fyrst öryggismálin í umferðinni á landi og á sjó og í lofti. Á þessum þremur sviðum lagði ég sérstaka rækt við að breyta löggjöf- inni og tryggja með því að framkvæmdir sam- kvæmt samgönguáætlun tækju sérstaklega til- lit til öryggismála. Þarna hefur náðst mikilvægur árangur þó betur megi gera. Einhver ánægjulegasta viðurkenning sem ég hlaut á ferlinum sem samgönguráðherra var í sumar þegar áhugahópur um tvöföldun Reykjanesbrautar heiðraði mig sérstaklega fyrir aðgerðir í umferðaröryggismálum. Með nýrri fjarskiptalöggjöf og gerð fjar- skiptaáætlunar var lagður grunnur að því sem við höfum nefnt „Altengt Ísland“. Með þeirri stefnumörkun og með fjármunum frá sölu Símans var lagður grunnur að uppbyggingu GSM-símakerfisins á þjóðvegum landsins, uppbyggingu háhraðatengdra fjarskipta í dreifbýli og sjónvarpssendinga til sjófarenda um gervihnött. Lagning nýs sæstrengs, Far- ice, var einnig mikilvægt verkefni, sem tryggir sambönd okkar við umheiminn. Þá vil ég nefna ferðamálaáætlunina og sér- stakar landkynningar- og markaðsaðgerðir í þágu ferðaþjónustunnar. Árangur af þessu starfi hefur skilað sér ríkulega. Síðast en ekki síst fékk ég samþykkta nýja löggjöf um sam- gönguáætlun sem byggist á því að tengja sam- an framkvæmdir í vega-, hafna og flugvalla- málum. Í þeirri áætlun er lögð áhersla á að samþætta allt samgöngukerfið. Að því er unn- ið nú. Af einstökum verkefnum á þessu sviði er af mörgu að taka. Það má segja að samgöngu- bætur hafi mikil áhrif í hverju einasta kjör- dæmi. Þar má nefna tvöföldun Reykjanes- brautar, mislæg gatnamót í höfuðborginni, brú á Þjórsá, jarðgöngin í Almannaskarði, Fá- skrúðsfjarðargöng, Héðinsfjarðargöng, veg um Þverárfjall, Djúp og Arnkötludal, end- urbyggingu Reykjavíkurflugvallar og Þing- eyrarflugvallar, stofnun Flugstoða ohf., ferju- höfn á Seyðisfirði og ákvörðun um Bakkafjöruhöfn. Trúlega hefur hins vegar óvíða orðið eins af- gerandi breyting vegna bættra samgangna og á Snæfellsnesi með Vatnaleiðinni og tengingu þéttbýlisstaðanna á norðanverðu nesinu. Það mun koma enn betur í ljós er fram líða stundir. Bættar samgöngur voru forsenda fyrir stofn- un Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Þá vil ég líka nefna tvöföldun Reykjanes- brautar, jarðgöngin í Almannaskarði, Fá- skrúðsfjarðargöng, Héðinsfjarðargöng, end- urbyggingu Reykjavíkurflugvallar, stofnun Flugstoða ohf. og ákvörðun um Bakkafjöru- höfn. Ég læt hér staðar numið í upptalningu minni, en af nógu er að taka. Ég bendi á bækl- inginn „Samgöngur í þágu þjóðar“ sem kom út í vor. Þar er samantekt á því sem unnið hefur verið að síðustu árin í samgönguráðuneytinu, undir minni stjórn,“ segir Sturla og bætir við: „Eftir mitt góða samstarfsfólk liggur mikið starf í ráðuneytinu, sem gagnast mun eft- irmanni mínum og ég vona að hann nýti sér þá umfangsmiklu stefnumörkum er ég stóð fyr- ir.“ Andstæðingar flugvallarins beittu sér af ótrúlegri hörku – Hver voru erfiðustu málin sem þú fékkst við? „Það er nú það. Ætli það sé ekki sala Símans og deilurnar um Reykjavíkurflugvöll. Það var eitt af allra erfiðustu pólitísku viðfangsefnum mínum að þurfa að standa í deilum við for- svarsmenn Reykjavíkurborgar um end- urbætur flugvallarins og byggingu samgöngu- miðstöðvar. Andstæðingar flugvallarins beittu sér af ótrúlegri hörku gegn mér persónulega. Þeir komu víða við og sú andstaða var ótrúlega óvægin og var augljóslega stýrt úr mjög sér- stökum herbúðum.“ – Þú varst bæjarstjóri í Stykkishólmi í 17 ár. Eru ekki bjartar minningar frá þeim tíma? „Jú, það var góður og gjöfull tími að vera bæjarstjóri og bæjarfulltrúi í Hólminum í 20 ár. Mér leið afskaplega vel sem bæjarstjóri á þessum uppbyggingarárum. Á þessu tímabili náði hópur pólitískra samherja að vinna vel saman og sameina bæjarbúa til góðra verka. Það kom aldrei brestur í samstarf meirihluta bæjarstjórnar öll þessi ár og það auðveldaði starf bæjarstjóra að hafa svona öflugt lið til að vinna með.“ – Hvað varð til þess að þú fórst í þing- mennsku? „Það hafði sinn aðdraganda. Það var ýtt á mig að fara í prófkjör 1983 að ég held til þess að yngja upp listann og nýta það pólitíska afl sem ég tengdist á Snæfellsnesi og kannski líka vegna starfa minna sem bæjarstjóri.“ – Eitt af einkennum þínum er að þú tekur störf þín alvarlega og vilt sjá árangur? „Já, það kann að vera rétt. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á þeim störfum, sem ég sinni á hverjum tíma, og vil sjá árangur eins og þú segir. Þeir, sem eru í stjórnmálum, verða að vera vinnusamir og gefa sér þann tíma, sem þarf, og þess vegna hafa áhugamálin oft orðið að gjalda þess.“ – Hvernig verðu þeim frístundum sem þér gefast? „Í Stykkishólmi að sjálfsögðu. Þangað för- um við fjölskyldan eins oft og við höfum tæki- færi til. Þar er oft lesið og legið í leti. Þangað er gott að koma til að hvíla sig og safna þreki fyrir krefjandi störf. Það tekur hinsvegar tíma að búa á tveimur stöðum. Hestamennska og útreiðar er það sem ég hef mest gaman af. Útivera sem tengist hesta- mennskunni er ómetanleg. Þá höfum við hjón- in í ríkari mæli stundað gönguferðir saman og ég nýt þess. Í því er mikil hvíld og lífsfylling.“ – Þá er komið að lokaorðunum í þessu spjalli. „Er ég lít til baka þá er ég þakklátur fyrir þau tækifæri sem ég hef fengið til að koma mörgum mínum áhugamálum áfram. Þar hef- ur skipt máli að fjölskylda mín hefur tekið þátt í störfum mínum og hefur staðið með mér sem klettur í öllu atinu sem fylgir starfi stjórn- málamanns. Þá hef ég átt því láni að fagna að eiga öfluga sveit stuðningsmanna sem hefur staðið á bak við mig alla tíð. Með hjálp þeirra hef ég alltaf náð markmiðum mínum í próf- kjörum og Sjálfstæðisflokkurinn í kjördæminu hefur náð mjög góðum árangri þann tíma sem ég hef leitt listann. Ég er þakklátur fyrir að hafa notið svona öflugs stuðnings.“ Sturla Böðvarsson situr nú í stóli forseta Alþingis og kveðst koma vel undirbúinn í starfið eftir fjögur kjörtímabil á þingi. Hann segist hafa notið þess að sinna starfi samgönguráðherra. Gunnlaugur Árnason ræddi við hann í Stykkishólmi. Ímynd Alþingis er á valdi þingmanna Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Gömul hús Sturla hefur mikinn áhuga á húsafriðun. Í Stykkishólmi mótaði hann stefnu um upp- byggingu og friðun gamalla húsa, sem vekur nú aðdáun ferðamanna sem til bæjarins koma. Í faðmi fjölskyldunnar Sturla Böðvarsson og Hallgerður Gunnarsdóttir eiga stóra og sam- henta fjölskyldu. Myndin af fjölskyldunni var tekin þegar Sturla hélt upp á 60 ára afmæli sitt. »Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á þeim störfum, sem ég sinni á hverjum tíma, og vil sjá árangur eins og þú segir. Þeir, sem eru í stjórnmálum, verða að vera vinnusamir og gefa sér þann tíma, sem þarf, og þess vegna hafa áhugamálin oft orðið að gjalda þess. garnason@simnet.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.