Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 25
AUSTURLAND
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
ÚR Ullarvinnslu Frú Láru ehf., sem
starfrækt er í látlausu húsi skammt
frá Seyðisfjarðarhöfn, berst þæfð ull
til eins af betri fatahönnuðum lands-
ins, sem skapar úr henni eftirsóttan
hátískufatnað og selur m.a. á Lauga-
veginum og í Leifsstöð.
Það er Þórdís Bergsdóttir, 78 ára
gömul athafnakona ættuð af Héraði
og búsett á Seyðisfirði, sem á að
mestu og rekur nýsköpunarfyr-
irtækið Ullarvinnsluna og skimar á
grunni bestu ullar í heimi um lendur
hönnunar og harðan heim tískunnar.
Mikil ásókn í þæfða ull
Ullarvinnslan er starfrækt á
grunni kvennafyrirtækisins Frú
Láru ehf. á Seyðisfirði, sem var sér-
stakt atvinnuþróunarverkefni og
verslaði með handverk íslenskra
kvenna. Áður fyrr á árunum þvoði
Ullarvinnslan og tætti sína ull sjálf og
framleiddi prjónagarn. Nú sérvelur
Þórdís lambsull hjá austfirskum
bændum, sendir í þvott til Ístex á
Blönduósi og fær svo ullina til baka.
Þar er sumt af henni tætt og litað og
loks allt þæft í þar til gerðri vél, sem
er að vísu lítil og hefur ekki annað
miklu. Nú er að verða breyting þar á,
því uppfinningamaðurinn Hallgrímur
Jónsson, sem jafnframt er hluthafi í
fyrirtækinu, hefur smíðað nýja og
stærri vél til þæfingar sem mun vera
sú eina sinna tegundar og á eftir að
auka framleiðslugetu Ullarvinnsl-
unnar til muna. Enda veitir ekki af,
slík er eftirspurnin frá fatahönnuðum
heima og erlendis eftir þæfðri ís-
lenskri ull.
„Íslenska ullin hefur sérstaka eig-
inleika sem mér finnst ekki hafa verið
veitt næg athygli, m.a. af bændum
sjálfum,“ segir Þórdís. „Markmið Ull-
arvinnslunnar er að sérhæfa sig í
vinnslu og framleiðslu á ullarvörum úr
sérvalinni íslenskri ull í hæsta gæða-
flokki. Sérstaða íslensku ullarinnar er
að þelhárin hafa það umfram aðra ull
að vera óreglulega liðuð, hárin falla
ekki þétt hvert að öðru og verður þelið
því fyrirferðarmeira, heldur í sér
meira lofti og einangrar betur. Þel og
tog saman er hlýtt, einangrar vel, er
sterkt og gefur íslensku ullinni algera
sérstöðu.“
Þórdís segir allt í prjóni, ull og þæf-
ingu núna, sama hvar maður grípi nið-
ur. „Það er hægt að leika sér enda-
laust með þæfða ull og nánast hægt að
gera hvað sem er með hana, hafi fólk
tíma og hugvit. Margir hönnuðir eru
farnir að nota ull og vöruþróun hefur
verið ör.“
Þórdís hefur sl. sex ár verið í sam-
starfi við Ingibjörgu Hönnu Péturs-
dóttur fatahönnuð og segir það sam-
starf gifturíkt. Það hófst með hartnær
tveggja ára löngu markaðsverkefni á
vegum Útflutningsráðs og nú fer nán-
ast öll framleiðsla Ullarvinnslunnar til
Hönnu. „Hún er frábær listakona,
hönnuður og manneskja, bjó til
skamms tíma í Hollandi og er nú búin
að opna verslunina Hönnu á Lauga-
vegi 20, þar sem hún selur hönnun
sína,“ segir Þórdís.
Vél til að taka togið frá þelinu
Það sem út af stendur af þæfðu ull-
inni hefur Bryndís Bolladóttir, hönn-
uður og listakona í Reykjavík, nýtt,
m.a. í lampaskerma og veggskúlptúra
úr ull. Fleiri hönnuðir hafa komið við
sögu hjá Ullarvinnslunni gegnum tíð-
ina, og má t.d. nefna Láru Vilbergs-
dóttur sem hannaði flíkur úr prjóna-
garni.
Marga klæjar undan ull og Þórdís
segir jafnan reynt að velja lambsull-
ina í framleiðslu, enda sé hún mýkri.
„Toghárin í lambsullinni eru ekki
nema um 10-12 sm og mjög fín.
Í rauninni þarf að taka togið frá
þelinu á ull af fullorðnu fé til að ná öll-
um grófleika úr henni en það er ákaf-
lega seinlegt að gera það með hönd-
unum.“ Hallgrímur
uppfinningamaður er með frumgerð
af vél til þessa verks í smíðum og von-
ar Þórdís að það skili sér í bættum
framleiðsluaðferðum. Slíkar vélar
munu vera til úti í heimi en eru það
dýrar að ekkert íslenskt fyrirtæki
hefur treyst sér til að kaupa þær.
Ullarvinnslan framleiðir m.a. vin-
sælar dýramottur sem gæludýr
landsins eru sögð slást um, marg-
vísleg sjöl, dúka, klæði og gólfmottur.
Fyrirtækið hefur séð fjórum fötluðum
einstaklingum fyrir vinnu sl. áratug
og auk ullarvinnslunnar tekur það á
móti skilagjaldsskyldum umbúðum
og kemur þeim í endurvinnslu.
Þórdís Bergsdóttir hefur frá því
hún var ung kona verið í fremstu röð í
málefnum samfélagins. Hún sat í bæj-
arstjórn Seyðisfjarðar í mörg ár, sem
varamaður á þingi fyrir Framsókn-
arflokkinn, stýrði Orlofi húsmæðra á
Austurlandi og hefur setið í marg-
víslegum nefndum, ráðum og fyr-
irtækjastjórnum um ævina auk þess
að sinna mannúðarstarfi og atvinnu-
og félagsuppbyggingu í þágu kvenna.
Hún lætur ekki deigan síga og
starfar enn að nýsköpunar- og þróun-
arverkefnum í ullarvinnslu. Hennar
framleiðsla er einstök á landsvísu og
hún segir mál til komið að íslensk ull
vinni sér þann sess sem hún eigi skil-
ið.
Íslenska ullin þæfð í hátískufatnað
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Metnaður Þórdís Bergsdóttir hjá Ullarvinnslu Frú Láru ehf. á Seyðisfirði
vill sjá veg íslensku ullarinnar aukast og segir hana bestu ull sem völ sé á.
Í HNOTSKURN
»Mikil vöruþróun hefur ver-ið undanfarið í meðferð og
úrvinnslu íslensku ullarinnar.
»Ullarvinnsla Frú Láru ehf.á Seyðisfirði sér hönn-
uðum fyrir þæfðri ull í hæsta
gæðaflokki og er eftirspurnin
mjög vaxandi.
» Íslenska ullin á mun meiriathygli skilda, bæði frá
sauðfjárbændum sjálfum, sem
og hönnuðum og almenningi.
Ullarvinnsla Frú
Láru á Seyðisfirði
í nýsköpun
Ísafjörður | Settar verða af stað
fimm nýjar alþjóðlegar námsleiðir
á meistarastigi við Háskólasetur
Vestfjarða á næstu fimm árum. Sú
fyrsta er í haf- og strandsvæð-
astjórnun og fer hún í gang haustið
2008 í samvinnu við Háskólann á
Akureyri.
Starfsmenn Háskólaseturs Vest-
fjarða kynntu í vikunni framtíð-
arsýn sína um uppbyggingu há-
skólasamfélags á Vestfjörðum þar
sem þessi markmið koma fram.
Einnig verður farið af stað með
frumgreinanám í staðnámi í sam-
vinnu við Háskólann í Reykjavík og
mun fyrsti hópurinn hefja nám í
frumgreinum við Háskólasetur
Vestfjarða í janúar næstkomandi.
Í framtíðarsýninni kemur fram
að gert er ráð fyrir því að starfs-
menn Háskólaseturs verði orðnir
40 eftir fimm ár, þar af tuttugu í
föstum stöðum. Þá kemur fram að
gert er ráð fyrir að um það bil 550
nemendur fari í gegnum Há-
skólasetrið á árinu 2011 en það er
ígildi tæplega 300 nemenda í heils-
ársnámi. Fram kemur í frétta-
tilkynningu að bjartsýni og til-
hlökkun ríkir innan Háskólaseturs
vegna þessarar uppbyggingar.
Háskóli hafsins
Háskólasetrið hyggst einbeita sér
að málefnum hafsins og strand-
svæða almennt. Kennsla tengd haf-
rannsóknum, loftslagsmælingum,
hafstraumarannsóknum og um-
hverfisrannsóknum á sviði hafs og
strandsvæða verður meðal sviða
sem setrið sérhæfir sig í. Hug-
myndin er að námsleiðir við Há-
skólasetur Vestfjarða myndi þann-
ig eina heild, Háskóla hafsins.
Stefnt að
fimm nýjum
námsleiðum
LANDIÐ
Eftir Örn Þórarinsson
Fljót | Verið er að fjarlægja mann-
virki sem áður tilheyrðu Miklalaxi í
Fljótum. Þarna er um að ræða eign-
ir í eldisstöðinni á Hraunum sem
um árabil hafa verið í eigu Kaup-
þings banka.
Það er talsvert magn af rörum
sem notuð voru til að dæla sjó-
blönduðu vatni úr Miklavatni og í
eldiskerin sem búið er að taka upp.
Þessi rör eru um metri í ummál og
alls um 600 metrar að lengd. Þessa
dagana er verið að flytja þau suður
á land. Það er einstaklingur í Blá-
skógabyggð sem kaupir rörin og
hyggst nýta þau síðar við gerð
virkjunar.
Auk þess að grafa upp rörin hef-
ur verið brotið niður svokallað
dæluhús þar sem í var dælubúnaður
eldisstöðvarinnar. Þetta hús var
steypt. Einnig var brotin niður
vatnsþró við dæluhúsið. Húsið og
þróin voru grafin á staðnum og yf-
irborðið sléttað.
Slysahætta skapaðist
Að sögn bóndans á Hraunum,
Viðars Péturssonar, var orðin
slysahætta af þessum mannvirkjum
því milligólf í húsinu var orðið fúið
en undir var 5-6 metra fall niður á
steyptan botn hússins. Ekki hefur
verið alinn fiskur í stöðinni á
Hraunum síðan árið 1997, en þá var
síðustu fiskunum slátrað.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Endurnýting Margir bílfarmar af rörum voru fjarlægðir af athafnasvæði
sem áður tilheyrði Miklalaxi. Rörum staflað á vörubílspall.
600 metrar af
rörum fjarlægðir
Hafnarstræti 97, 600 Akureyri, sími 462 3505.
Ný sending
haustvörur
Christa
YFIRHAFNIR
KÁPUR
JAKKAR
BOLIR
PILS
BUXUR