Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
FRÉTTASKÝRING
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
TYRKNESK stjórnvöld ætla engu til að
spara í þeim ásetningi sínum að tryggja sér
sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna starfs-
árin 2009-2010. Fjölmiðlar í Tyrklandi segja að
50 milljónir dollara hafi verið eyrnamerktar
framboðinu, þ.e. meira en þrír milljarðar ís-
lenskra króna, en til samanburðar má nefna að
kosningabarátta Íslendinga hefur skv. upplýs-
ingum úr utanríkisráðuneytinu þegar kostað
um 250 milljónir króna og er gert ráð fyrir að
endanlegur kostnaður verði um 320 milljónir.
Í nýlegri frétt í dagblaðinu Sabah kemur
fram að tyrknesk stjórnvöld hafi lagt sig eftir
því að tryggja sér stuðning fátækra smáþjóða,
sem hafa átt erfitt með að greiða aðildargjöld
sín að SÞ. Utanríkisráðuneytið tyrkneska hafi í
einhverjum tilfellum greitt aðildargjöld slíkra
ríkja – en þau ríki sem eru í skuld við SÞ á kjör-
degi hafa ekki atkvæðisrétt í keppninni um sæti
í öryggisráðinu.
Fram kemur í frétt blaðsins að tuttugu millj-
ónir dollara hafi verið lagðar til hliðar fyrir út-
gjöld af þessum toga, sem og til að aðstoða fá-
tæk smáríki með ýmsum öðrum hætti. Voru
stjórnarerindrekar sendir út af örkinni til að
kynna sér þarfir umræddra ríkja og í kjölfarið
samið um þróunaraðstoð sem Þróunarsam-
vinnustofnun Tyrklands (TIKA) síðan sér um.
Námu útgjöld vegna þróunarsamvinnu, sem til
var komin með þessum hætti, 15 milljónum
dollara á árinu 2006 skv. Sabah.
Sambærilegar fréttir birtust í blaðinu
Turkish Daily News, sem gefið er út á ensku, í
sumar. Þar kom m.a. fram að Tyrkir lögðu alls
750 milljónir dollara til þróunaraðstoðar á árinu
2006. Tvíhliða aðstoð við tiltekin ríki hefur einn-
ig aukist á sl. þremur árum, í um 300 milljónir
dollara. Þá hafa Tyrkir aukið mjög framlög sín
til Matvælastofnunar SÞ (WFP). Blaðamaður
Turkish Daily News tengir þetta við örygg-
isráðsframboðið en bætir því þó við að tyrk-
neskir ráðamenn telji sig hafa komist að raun
um að aðstoð sem þessi fæði af sér aukin tví-
hliða viðskipti við umræddar þjóðir. Viðskipti
við Afríkuríki sunnan Sahara hafi t.d. fjög-
urhundruðfaldast á síðustu þremur árum.
Kemur ekki til greina hjá Íslandi
Tilraunir til að fá fulltrúa tyrkneskra stjórn-
valda til að staðfesta þessar tölur hafa ekki bor-
ið árangur en forráðamenn framboðs Íslend-
inga segja hins vegar að þær komi þeim ekki á
óvart. „Við höfum auðvitað haft af því fregnir að
Tyrkir ætli að láta einskis ófreistað að komast
inn í öryggisráðið og að það kosti mikið. En það
er vart að maður trúi því að þessar fregnir séu
réttar, þ.e. að verja eigi svo miklu fjármagni til
þess að reyna að tryggja sæti í öryggisráðinu
og svo hitt að stórum hluta þess fjár eigi að
verja til þess að greiða skuldir ríkja til þess að
tryggja að þau geti nýtt kosningaréttinn,“ segir
Kristín A. Árnadóttir, sem stýrir framboði Ís-
lendinga.
Austurrískur embættismaður sem rætt var
við tók í sama streng, sagði að það kæmi sér
ekki á óvart þó að Tyrkir væru reiðubúnir til að
eyða umræddri upphæð í framboð sitt. Spurður
um kostnað Austurríkis af framboðinu sagði
embættismaðurinn að hann væri ekki reikn-
aður sérstaklega, heldur kæmi einfaldlega af
fjárlögum sem rekstrarkostnaður utanrík-
isþjónustunnar. Hann sagðist ekki hafa heyrt
þann orðróm að Tyrkir væru að greiða upp
skuldir fátækra smáríkja en rifjaði upp að orð-
rómur hefði verið á kreiki um það árið 2000 –
þegar Ítalía, Noregur og Írland kepptu um tvö
sæti í öryggisráðinu – að Ítalir víluðu slíkt ekki
fyrir sér. Það hafði þó ekki tilætluð áhrif því að
Noregur og Írland fóru inn í ráðið það ár.
Kristín A. Árnadóttir sagði að ekki kæmi til
greina af hálfu Íslands að borga aðildargjöld
ríkja að SÞ til að tryggja að þau hefðu atkvæð-
isrétt á kjördag. Lögð yrði áhersla á að barátta
okkar fyrir sæti í öryggisráðinu væri háð á mál-
efnalegum forsendum.
Kostnaður Tyrkja áætlaður 3 milljarðar
Tyrknesk stjórnvöld sögð greiða upp skuldir fátækra aðildarríkja SÞ til að tryggja sér atkvæði þeirra
vegna öryggisráðskosninga Tyrkir hafa aukið mjög framlög sín til þróunarmála á undanförnum árum
Í HNOTSKURN
»Ísland, Tyrkland og Austurríkikeppa um tvö laus sæti í örygg-
isráðinu tímabilið 2009-2010 í WEOG-
grúppunni svokölluðu, hópi Vestur-
Evrópuþjóða og annarra. Kosið verður í
október 2008.
»Fimmtán ríki eiga aðild að örygg-isráðinu á hverjum tíma, þar af fimm
fastaríki: Kína, Bandaríkin, Bretland,
Frakkland og Rússland.
Reuters
Ákveðnir Tyrkir vilja inn í öryggisráð SÞ.
Mín hugmynd!
Miklar umræður spunnust á Alþingi í
gær um þingsályktunartillögu
þriggja þingmanna Framsókn-
arflokksins þess efnis að skattaí-
vilnanir verði heimilaðar fyrir fyr-
irtæki sem leggja
út í kostnað
vegna rannsóknar
og þróunar. Þó
má segja að um-
ræðan hafi að-
eins farið út í
aðra sálma…
Katrín Júl-
íusdóttir, Sam-
fylkingu, fagnaði
framtakinu enda
væri um gamla til-
lögu frá Samfylk-
ingunni að ræða
sem hafi verið
lögð fram og verð-
launuð á Sprota-
þingi í febrúar sl.
Valgerður Sverr-
isdóttir, Fram-
sókn, sagði hins
vegar að tillögur
til að bæta um-
hverfi sprotafyrirtækja hafi verið
lagðar fram í sinni tíð í iðnaðarráðu-
neytinu en ekki hlotið stuðning frá
Sjálfstæðisflokknum. „Hins vegar
var Samfylkingin mjög útsmogin.
Hún notaði þessar tillögur sem sínar
tillögur á Sprotaþingi og fékk verð-
laun fyrir tillögurnar mínar!“
Kapítalistar úti í bæ
Valgerður og Össur Skarphéðinsson
iðnaðarráðherra áttust einnig við eft-
ir að Valgerður sagði að Össur hefði
misnotað vald sitt sem formaður
heilbrigðis- og tryggingamálanefndar
í tíð síðustu ríkisstjórnar. Össur ósk-
aði eftir að bera af sér sakir og sagði
að hann hefði aðeins farið eftir sann-
færingu sinni, eins og honum bæri
samkvæmt stjórnarskrá, þegar hann
hafnaði kröfu Framsóknarflokksins
um að fara að ráðum DeCode um
hvernig lög skyldu sett um gagna-
grunna. „Það eru ekki fyrirtæki og
kapítalistar úti í bæ sem ráða mínum
gjörðum eins og þeir hafa því miður
alltof lengi og alltof oft gert varðandi
Framsóknarflokkinn,“ sagði Össur.
Dagskrá þingsins
Þingfundur hefst kl. 10.30 í dag. Tólf
mál eru á dagskrá, þar á meðal fjár-
aukalög, vatnalög og frumvarp um
lánasýslu ríkisins.
Valgerður
Sverrisdóttir
Össur
Skarphéðinsson
STJÓRNARSKRÁIN er brotin á
lesblindum börnum, sagði Atli
Gíslason, þingmaður Vinstri
grænna, á Alþingi í gær og vísaði til
jafnréttisákvæðis stjórnarskrár-
innar. Atli spurði menntamála-
ráðherra m.a. hvort hún hygðist
beita sér fyrir því að lesblindir
nemendur í grunn- og framhalds-
skóla ættu kost á lesblinduleiðrétt-
ingu sér að kostnaðarlausu og taldi
sjálfur að svo ætti tvímælalaust að
vera.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra sagði fram-
kvæmdahóp vera starfandi sem
ynni að því að hrinda í framkvæmd
tillögum sem nefnd um málið skil-
aði af sér sl. vor. „Nú þegar sýnt
hefur verið fram á að takmörkuð
lestrarfærni getur haft marg-
víslegar neikvæðar afleiðingar má
alveg ljóst vera að það þarf að
bregðast við með markvissum
þætti,“ sagði Þorgerður og nefndi
m.a. að verið sé að skoða mögu-
legar breytingar á samræmdum
prófum í 4. og 7. bekk. Þá lagði
Þorgerður ríka áherslu á að áfram
verði unnið að því að mæta þörfum
lesblindra barna.
Stjórnarskráin brotin
á lesblindum börnum
Morgunblaðið/Kristinn
Fylgst með Þingmenn kröfðu ráðherra svara við hinum ýmsu fyr-
irspurnum á Alþingi í gær, m.a. varðandi málefni lesblindra barna.
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
EKKI er gert ráð fyrir efnislegum
breytingum á núgildandi reglum
um nálgunarbann, að því er fram
kom í svari Björns Bjarnasonar,
dómsmálaráðherra, við fyrirspurn
Kolbrúnar Halldórsdóttur, þing-
manns Vinstri grænna, á Alþingi í
gær.
Kolbrún vísaði til frumvarps VG
frá síðasta þingi þar sem lagt er til
að farin verði svonefnd austurrísk
leið þannig að lögregla hafi heimild
til að fjarlægja ofbeldismann af
heimili sínu með sérstökum dóms-
úrskurði.
Alþingi getur breytt
Björn sagði að réttarfarsnefnd
hefði unnið frumvarp til laga um
nálgunarbann sem verður lagt fram
á Alþingi en að ekki væri gert ráð
fyrir „efnislegum breytingum á
gildandi rétti“ í því. „Ef vilji er til
þess í allsherjarnefnd að breyta
frumvarpinu frá því sem það kemur
fyrir að tillögu réttarfarsnefndar er
það að sjálfsögðu réttur nefndarinn-
ar að taka málið til þeirrar skoð-
unar,“ sagði Björn.
Kolbrún var hins vegar ekki sátt
við svarið og spurði hvers vegna
ráðherra hafnaði þessari hugmynd
sem hefði reynst vel í nágranna-
löndunum. „Ofbeldismenn ganga
lausir og lögreglan hefur engin úr-
ræði að öðru leyti en því að hún get-
ur komið fórnarlömbum ofbeldis-
mannsins í athvarf,“ sagði Kolbrún.
Björn sagðist hins vegar þeirrar
skoðunar að lögregla hefði heimildir
til að grípa inn í mál af þessum toga
og ítrekaði að Alþingi gæti tekið af-
stöðu til frumvarpsins, sem verður
lagt fram, og breytt ef vilji væri fyr-
ir því.
Engar breytingar
varðandi nálgunarbann
GUÐJÓN A. Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins, mælti fyrir
þingsályktunartillögu á Alþingi í gær
þess efnis að þorskafli fyrir veiðiárið
2007-2008 yrði aukinn um 40 þúsund
tonn. Flutningsmenn frumvarpsins
telja að margt bendi til þess að upp-
vaxandi árgangur ungþorsks sé í
meira mæli en gert er ráð fyrir í gögn-
um Hafrannsóknastofnunar. „Við
leggjum til í Frjálslynda flokknum að
menn spari sér loðnuveiðarnar,“ sagði
Guðjón m.a. og bætti við að það myndi
gefa besta raun við að stækka þorsk-
stofninn.
Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráð-
herra, sagði Frjálslynda flokkinn við-
urkenna að það kynni að vera háska-
leg staða á miðunum enda legði hann
til skerðingu, bara ekki eins mikla. „Ef
þeir væru fullkomlega sannfærðir um
sinn málflutning hefðu þeir lagt til að
það yrði engin skerðing,“ sagði Össur.
Loðnu
eða
þorsk?
Frjálslyndir vilja
aukinn þorskafla
ÞINGMENN BLOGGA
Jón Magnússon 10. október
Ekki af himnum ofan
Ljóst er að ákvarðanir
um stofnun REI og
starfsemi duttu ekki
af himnum ofan. Þar
er um nokkuð langt
ferli að ræða þar sem
stjórnmálamennirnir sem að málinu
stóðu mótuðu stefnuna og embætt-
ismennirnir framkvæmdu það sem
stjórnmálamennirnir lögðu fyrir þá.
Meira: jonmagnusson.blog.is
Björn Bjarnason 9. október
Logar í ófriði
Ljós í þágu friðar boð-
aði Yoko Ono með sól-
gleraugu á nefi í
myrkri í Viðey, þegar
kveikt var á friðarsúlu
til minningar um John
Lennon. Orkugjafi friðarsúlunnar
er OR, þar sem allt logar í ófriði.
Meira: www.bjorn.is
ÞETTA HELST ...