Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.10.2007, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 23 EVA Þyri Hilmarsdóttir heitir ungur píanóleikari sem hefur verið við nám í Danaveldi undanfarin ár. Hún kvaddi sér hljóðs í Fella- og Hólakirkju sl. laugardag. Á efnisskránni var fyrst sónata op. 31 nr. 3 í Es-dúr eftir Beetho- ven. Strax á upphafstónunum var auðheyrt að Eva Þyri hafði prýði- legt vald á hljóðfærinu. Hljóm- urinn úr því var mjúkur, en einnig tær, sem bar vott um góða tækni og vandaðan áslátt. Túlkunin var líka sannfærandi, hún einkenndist af krafti, jafnvel ofsa, en jafnframt sterkri formtilfinningu, auk þess sem megineinkenni verksins, óvæntar uppákomur og kímni, skiluðu sér fyllilega til áheyrenda. Annað var í svipuðum dúr, nokt- úrna í c-moll op. 48 nr. 1 eftir Chopin var sérlega fallega leikin og einnig ballaða nr. 4 eftir sama tónskáld, þótt einstaka sinnum hefði mátt vera meiri skýrleiki í leiknum. Helst mátti finna að útfærslunni á hinum sífelldu hraðabreytingum í „Stúlkunni og næturgalanum“ eftir Granados. Tónskáldið fór vissulega fram á þær, en hér virk- uðu þær dálítið meðvitaðar og því skilaði sér ekki hinn mikli tilfinn- ingahiti sem þó liggur að baki verkinu. Sennilega á reglan „minna er meira“ ágætlega við túlkun þessarar tónlistar. Sónata nr. 2 í d-moll op. 14 eftir Prokofiev var hins vegar frábær, flutningur Evu Þyri var óheftur og glæsilegur, hamslaus þegar við átti en einnig óræður og dul- arfullur. Óhætt er að fullyrða að hér er komin á sjónarsviðið framúrskar- andi tónlistarkona sem vert er að veita eftirtekt. Óheft og glæsileg TÓNLIST Fella- og Hólakirkja Verk eftir Beethoven, Chopin, Granados og Prokofiev í flutningi Evu Þyri Hilm- arsdóttur. Laugardagur 6. október. Debút-píanótónleikar  Jónas Sen Góð Eva Þyri Hilmarsdóttir „VON103“ nefnist ný hádegistón- leikaröð í samnefndu húsi SÁA, steinsnari NNA af Ríkisútvarps- húsinu í Efstaleiti, sem hófst sl. föstudag og verður áfram næstu sex frjádaga í byrjun hvers mán- aðar fram í marz undir listrænni stjórn Nínu Margrétar Gríms- dóttur. Á boðstólum verða klassísk kammerverk fyrir tvo til þrjá flytj- endur, og meðal líklegra hápunkta í vændum mætti nefna Keiluvall- artríó Mozarts í febrúar með gesta- þáttöku Dmitris Ashkenazys á klar- ínett í samleik við þær Nínu og víólu Þórunnar Óskar Mar- ínósdóttur. Að hætti hádegistónleika var dagskráin fremur stutt eða um tæpa klst., og kynnti píanistinn við- fangsefnin af munni fram. Verkin tvö fyrir fiðlu og píanó voru frá önd- og ofanverðum ferli Johann- esar Brahms (1833-97) eða æsku- stykki hans „Sonatensatz“-Scherzó WoO 2 frá 1853 og þríþætta Són- atan í A-dúr Op. 100 frá 1886. Scherzóið góðkunna í tápmiklum 6/8 „caccia“-anda þaut frísklega um loft sem hressandi vorstormur, en hin fullþroska Sónata bauð einnig upp á mörg íhugul augnablik í vel samstilltum tvíleik. Þetta var fyrsta ómreynsla und- irritaðs af téðum vettvangi, og átt- aði maður sig því ekki vel á kostum hans og göllum. Í fljótu bragði virt- ist þó sem afmarkað sviðsinnskotið hefði tilneigingu til að ofmagna dýpra svið Bösendorferflygilsins með tilheyrandi jafnvægisvanda gagnvart fiðlunni, og hljómaði stundum í harðara lagi þrátt fyrir minnsta lokop. E.t.v. mætti hemja samspil gólfs og veggja með litlu teppi, eða a.m.k. mjúkum bríkum undir látúnshjólunum. Mannbótarmúsík í húsi vonar TÓNLIST Von – Kammertónleikar Föstudaginn 5.10. kl. 12:15. Verk eftir Brahms. Guðný Guðmundsdóttir fiðla, Nína Margrét Grímsdóttir píanó.  Ríkarður Ö. Pálsson Von103 Nína Margrét Grímsdóttir er listrænn stjórnandi tónleikanna. Morgunblaðið/Ásdís PÉTUR Thomsen er listamaður sem notar ljósmyndamiðilinn í verkum sínum og hefur þegar sýnt myndir sínar víða um heim, en myndir hans frá Kárahnjúkum, Aðflutt landslag, vöktu töluverða athygli, einnig hér á landi. Í Gallerí Turpentine sýnir Pétur ljósmyndir teknar í nágrenni Reykja- víkur, kannski á sömu slóðum og Kjarval sótti sér oft myndefni, en ná- kvæm staðsetning er aukaatriði í myndum Péturs. Viðfangsefni hans er samspil manns og náttúru en listamaðurinn leikur sér á meðvitaðan hátt með fag- urfræðilegar og viðteknar hug- myndir um landslag, til dæmis með því að láta eftirmiðdags- eða kvöldsól varpa rauðgullinni birtu á myndefnið. Íslensk hefð í landslagsmyndum er ekki svo gömul og íslensk landslags- verk hafa gjarnan yfir sér norrænan, rómantískan blæ. Það er erfitt að losna við slíkar hugsanir enn í dag og tæknibrölt mannsins í óspilltri nátt- úru fær jafnan á sig blæ einhvers óhreins og spillts gagnvart hinu hreina og upphafna. En Pétri tekst að birta fleiri túlkunarmöguleika í myndum sínum, til dæmis er myndin af óskilgreindum byggingarfram- kvæmdum þar sem byggingin er í forgrunni en glittir í háa fjallshlíð í bakgrunni, afar áhugaverð vegna þeirrar spennu sem ríkir í litum og uppbyggingu. Slík spenna, sem birtist í skáhöllum, brotakenndum formum og byggingareiningum sem kannski eru að hruni komnar, en kannski er verið að reisa, hver veit, endurspeglar vel þá togstreitu sem ríkir í sambandi hins tækni- vædda manns og náttúrunnar. Þetta er áleitin og eftirminnileg mynd. Pétur hefur mikið að segja í verk- um sínum og tekur ekki afstöðu sem takmarkar list hans við umhverf- isvernd, þó að slík sjónarmið verði óhjákvæmilega hluti af henni. Und- irliggjandi umræða er hluti verkanna en þau standa líka fullkomlega sjálf sem fagurfræðilega áhugaverð lista- verk. Fjölbreytileiki myndanna og óvenjuleg sjónarhorn skapa hér við- burðaríka sýningu og skipa Pétri framarlega í röð upprennandi mynd- listarmanna. Togstreita í myndum MYNDLIST Gallery Turpentine Ljósmyndir, Pétur Thomsen Til 13. október. Opið þri.-fös. 12-18, lau. 12-17. Aðgangur ókeypis. Umhverfing Ragna Sigurðardóttir Umhverfing „Pétur hefur mikið að segja í verkum sínum,“ segir í dómi. ÞAÐ ER ansi langt síðan ég hef heyrt Sunnu Gunnlaugsdóttur spila ekta tríódjass en það gerði hún svo sannarlega á Múlanum sl. mið- vikudagskvöld. Fyrsta lagið var splunkunýtt, „No Wag“, eitthvað var í ólagi með mögnunina á píanóinu svo Sunna endurtók lagið í lok tónleika. Þá sannaðist sem fyrr að oft er strembið að sitja heila tónleika og heyra öll verkin í fyrsta sinn eins og oft er á djasstónleikum. Þetta verk var vel skrifað og sór sig í ættina við bestu verk Sunnu af Mindful. Scott McLamore þræddi skemmtilega brautina milli bopp og fönks í kröft- ugum trommuleik sínum. Það voru tvö ekta bopplög á efnisskránni, bæði eftir bassaleikara tríósins, Þorgrím Jónsson. Í hinu fyrra, „Left Behind“, fannst mér skorta nokkuð upp á boppkraftinn hjá Sunnu, en hún lék síðara lag Togga yndislega. „No Way Out“ nefndist það og er af Herbie Nicolas-skólanum. Það var dálítið skemmtileg að norrænustu lögin á efnisskrá tríósins voru eftir tromm- arann bandaríska, sér í lagi hin há- rómantíska „Ballad“. Önnur lög er tríóið spilaði voru öll eftir Sunnu, sum gamlir kunningjar eins og „Even- song“ og „Bump“, en önnur frumflutt þetta kvöld eins og fyrrnefnt „No Wig og „Vitjun“ og minnti samleikur Sunnu og Togga stundum á Ole Kock og Niels-Henning. Ræturnar liggja víða og margt er frændum sameig- inlegt. Þetta tríó er orðið ansi samstillt, en sum lögin þarf að slípa betur og ósköp er harður hljómur í nýja Pet- rov-píanói Múlans. Það er orðið nokk- uð langt síðan Sunna gaf út disk og tími kominn á slíkan því ekki skortir efnið. Þess má svo geta að lokum að rás 1 hljóðritaði tónleikana, en nýjar tónleikaupptökur eru gjarnan á dag- skrá í djassþætti Lönu Kolbrúnar 5/4 á þriðjudagskvöldum. Svalt en ekki kalt TÓNLIST Múlinn á DOMO Miðvikudagskvöldið 3.10. 2007 Tríó Sunnu Gunnlaugsdóttur  Vernharður Linnet NÝIR eigendur munu nú taka við rekstri gallerís Sævars Karls eftir að Sævar Karl, sem hefur rekið galleríið samhliða verslun sinni í u.þ.b. 20 ár, seldi fyrirtækið. En þar hafa margir valinkunnir lista- menn stigið sín fyrstu skref inn í myndlistarheiminn. Ný stefna er í sýningarhaldi. Þ.e. að tvinna sam- an föt og myndlist. Í sjálfu sér forvitnileg tilraun að spila saman virkni húsnæðisins og myndlist en jafnframt vandasamt. Það var Kolbrá Bragadóttir sem reið á vaðið með sýningu sem fór því miður framhjá mér og nú er það Karl Jóhann Jónsson sem sýnir 25 olíumálverk undir yf- irheitinu „Sviðsett dagbók“. Karl er raunsæismálari og felst dag- bókin í því að listamaðurinn safn- ar ímyndum inn á GSM-símann sinn og vinnur svo úr þeim á strigann með viðeigandi „skálda- leyfi“. Sumt virkar þá eins og leifturskotsmyndir en annað er uppstillt. Glettinn hversdagsleik- inn er undirliggjandi í verkum Karls en hann er engu að síður vandvirkur og meðvitaður um hefðina og má m.a. sjá nútíma- legar tilvísanir í verk hollenska 17. aldar málarans Johannes Ver- meer í verkunum „Kona les skila- boð“ og „Stúlka með ipod“. Helsti ljóður sýningarinnar er að hún fer í óttalegt kraðak. Sýn- ingarbox á gólfi og föt á snögum taka sinn toll og þétt upphengið hjálpar ekki til. Og er eins og að „ára“ listaverkanna smiti yfir í hvert annað þannig að verkin fá ekki hæfilegt andrúm til njóta sín. Hefði listamaðurinn mátt grisja allnokkuð úr verkunum, enda eru þarna inni á milli myndir sem vel hefðu mátt missa sín á meðan myndir eins og „Kona les skila- boð“, „Fótbolti“, „Uppstilling“, „Elísa“, og „Stúlka með ipod“ hafa fagurfræðilega nærveru og þurfa sitt pláss hver. Glettinn hversdagsleikinn MYNDLIST Gallerí Sævars Karls Opið á verslunartíma. Sýningu lýkur 20. október. Aðgangur ókeypis. Karl Jóhann Jónsson Jón B.K. Ransu Stúlka með ipod Nútímaleg tilvísun í 17. aldar málverk Johannesar Vermeers, „Stúlka með perlueyrnalokk“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.