Morgunblaðið - 11.10.2007, Page 24

Morgunblaðið - 11.10.2007, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is MENNTASKÓLINN á Akureyri hlaut á dög- unum Evrópumerkið, heiðursviðurkenningu fyrir nýbreytni í tungumálakennslu. Merkið er veitt á vegum framkvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins og menntamálaráðuneytisins og var veitt í sjötta sinn hérlendis. Viðurkenn- inguna fær skólinn fyrir ferðamálakjörsvið, þar sem ýmsum námsgreinum er blandað saman. Þetta þykir hafa tekist einstaklega vel, og eftir heimsókn blaðamanns í tíma er ljóst að nemendur eru mjög ánægðir. Björguðu málabrautinni Verkefninu var hrundið af stað fyrir nokkr- um árum þegar brýn þörf var á að finna leiðir til að bjarga málabrautinni; svo mjög hafði þeim nemendum fækkað sem völdu hana, að sögn Árnýjar Helgu Reynisdóttur, braut- arstjóra málabrautar MA. „Markmiðið var að byggja upp hagnýtt nám sem sameinaði erlend tungumál, íslensku, upplýsingatækni og menningarlæsi og úr varð þessi nýja kjörsviðsgrein sem við kusum að kalla ferðamálakjörsvið,“ segir Árný. „Hefðbundnar náms- og kennsluaðferðir voru lagðar til hliðar en nemandinn sjálfur og námsferlið sett í forgrunn. Það þurfti að brjóta niður marga múra og spyrja sig ýmissa spurn- inga og ekki síst þurftu menn að vera tilbúnir að hugsa upp á nýtt ef ekki gekk sem skyldi.“ Afar vel hefur gengið og verkefnið hefur tvisvar fengið styrk úr þróunarsjóði fram- haldsskóla sem er á vegum menntamálaráðu- neytisins. Margrét Kristín Jónsdóttir er umsjón- armaður ferðamálakjörsviðs. „Þetta eru þrír áfangar í máladeild; á vorönn í 3. bekk er unn- ið verkefni um Akureyri og nágrenni og á haustönn í 4. bekk um Norðurland allt,“ segir Margrét. Á síðustu önninni snúa nemendur sér svo að öðrum löndum og fara reyndar í óvissuferð úr landi sem nemendur greiða fyrir að hluta. „Krakkarnir þurfa ekki að kaupa neinar bækur í þessu námi heldur nota netið til þess að finna upplýsingar og leggja í stað- inn fyrir 5.000 krónur á hverri önn, og hver nemandi borgar því sjálfur 15.000 krónur í ferðina út.“ Nemendur sinna ferðamálakjörsviðinu einn dag í viku, á miðvikudegi. Tungumálin eru mörg, hefðbundnar kennslustofur verða að vinnusvæðum, kennarar eru að jafnaði fimm, þó sjaldan margir í einu. Frímínútur taka nemendur sjálfir þegar vel stendur á í vinnunni. Dagsplanið er fyrirfram ljóst, kenn- arar eru að mestu verkstjórar og koma inn eft- ir þörfum hópanna, oft vinna nemendur einir. „Þetta er mjög skemmtilegt. Ég hlakka allt- af til miðvikudagsins,“ sagði einn nemendanna sem blaðamaður ræddi við. Annar sagði mjög sniðugt að geta lært öll tungumálin sem kennd væru og í leiðinni menningu viðkomandi landa betur en annars. „Áhersla er á að nemendur vinni sjálfstætt og skapandi – þeir ráða einnig nokkuð miklu um verkefnavalið og hvernig þeir nálgast við- fangsefnið. Þetta er fyrst og fremst verk- efnavinna sem er unnin út frá forsendum og áhuga nemenda en einnig tengist hún atvinnu- lífinu og samfélaginu í heild sinni og verður fyrir vikið alvöru verkefni í augum nemenda. Nýlegar kannanir á meðal nemenda skólans sýna að þetta fyrirkomulag höfðar til nemenda í dag, þeir vilji vera virkir, skapandi og bera meiri ábyrgð,“ segir Árný Helga. Töluvert er um hópa- og paravinnu en einn- ig eru einstaklingsverkefni sem gott er að grípa í ef hópavinna stöðvast eða tæknin bregst. Kynna verkefnin í grunnskólum Margrét Jónsdóttir segir farið í vettvangs- heimsóknir með kennara eða án, innan bæjar sem utan og í ferðinni til útlanda – sem er há- punktur námsins – eru nemendur sjálfir leið- sögumenn og verkstjórar. Gestafyrirlesarar t.d. úr ferðamála- og markaðsgeiranum eru fengnir, aðrir fagkennarar svo sem líffræði-, sögu- og jarðfræðikennarar koma líka inn eftir þörfum. Nemendur gerast sjálfir kennarar og flytja kynningar á verkefnum sínum í grunnskólum á Akureyri og nágrenni og skapar það ákveðin tengsl á milli skólastiga. Samstarf við erlenda skóla er nýtt þegar það gefst, sem gefur nám- inu aukna vídd og möguleika. Hafa kennarar og nemendur m.a. farið til Þýskalands, Spán- ar, Portúgals, Slóvakíu, og unnið að sameig- inlegum Evrópuverkefnum. Nemendur læra að meta sitt eigið vinnu- framlag, svo og vinnufélaga sinna. Vinnu- skýrslum skila nemendur í lok hvers vinnu- dags og fara síðan yfir stöðu mála og velta fyrir sér framhaldinu. Kennarar skrifa einnig sína samantekt um dagsverkið og í lok vik- unnar meta þeir stöðuna. „Hlakka alltaf til miðvikudagsins“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Evrópumerkið Fjórir nemendur og einn kennaranna á ferðamálakjörsviðinu; Linda Björk Rúnarsdóttir, Geir Hólmarsson, Salka Gústafsdóttir, Sigrún Vala Halldórsdóttir og Tina Paic. Í HNOTSKURN »Samþætting námsgreina hefur auk-ið traust og samkennd í starfi því til- raunastarfsemin og áhættan sem henni fylgir eflir þátttökugleði og ábyrgð- arkennd og hefur oft á tíðum dregið fram það besta í nemendum og kenn- urum, segir Árný Helga Reynisdóttir, brautarstjóri málabrautar. »Námsmatið er í anda leiðsagn-armats, að sögn Árnýjar Helgu, þar sem kennarinn kemur að verkefnunum á öllum stigum og síðan er virkni nem- enda, samstarfshæfni og vinnuferlið í heild sinni metið. Engin lokapróf eru þreytt. MA fékk heiðursviður- kenningu frá ESB AKUREYRI DEILISKIPULAGSTILLAGA vegna miðbæjar Garðabæjar, svæða I og II (Garðatorg, Hrísmó- ar og Kirkjulundur), verður kynnt á fundi í Flataskóla í Garðabæ laugardaginn 13. október kl. 11. Deiliskipulagstillagan nær til um 3,4 hektara svæðis sem af- markast af Vífilsstaðavegi í suðri, Bæjarbraut í vestri, Hrísmóum í norðri og Kirkjulundi í austri. Tillagan gerir ráð fyrir nýju bæjartorgi vestan við Garðatorg 7 en undir því verður bílastæðahús. Við torgið koma nýbyggingar fyr- ir íbúðir og verslun ásamt nýju húsi fyrir Hönnunarsafn Íslands. Þá er gert ráð fyrir einu nýju fjöl- býlishúsi við Hrísmóa og tveimur nýjum fjölbýlishúsum við Kirkju- lund. Leyfilegt byggingarmagn ný- bygginga verður alls 30.000 m2, auk rúmlega 15.000 m2 í kjallara, samkvæmt tillögunni. Núverandi byggingar, sem ekki stendur til að fjarlægja, eru tæplega 13.000 m2 og heildarbyggingarmagn því alls rúmlega 43.000 m2. Alls er gert ráð fyrir um 730 bílastæðum, Meginaðkoma að Garðatorgi verður frá Vífilsstaðavegi og Bæj- arbraut. Tillagan liggur frammi á bæj- arskrifstofum Garðabæjar til og með 7. nóvember næstkomandi, en þá rennur út frestur til að gera athugasemdir við hana. Tillagan er einnig aðgengileg á vef Garða- bæjar. Kynningar- fundur vegna deiliskipulags TENGLAR .............................................. www.gardabaer.is Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is ÁFORMAÐAR framkvæmdir fast- eigna- og þróunarfélagsins Klasa hf. í miðbæ Garðabæjar og fram- kvæmdir sem þegar eru hafnar í Sveinatungu við Hafnarfjarðarveg eru stærsta verk- efnið sem fyr- irtækið hefur ráðist í til þessa, að sögn Þorgils Óttars Mathie- sen, stjórnarfor- manns Klasa hf. Áformað er að byggja þar meira en 10.000 m2 verslunar- og þjónustuhúsnæði og um 160 íbúðir, samtals að flat- armáli yfir 20.000 m2. Auk þess verð- ur byggt þar 2.500 m2 safn, bílakjall- arar og bílastæði. Alls eru þessar framkvæmdir upp á 8-9 milljarða. Klasi hf. og Garðabær gerðu sam- komulag um þróun og uppbyggingu miðbæjar Garðabæjar í lok árs 2006. Þegar hefur verið samþykkt deili- skipulag fyrir Sveinatungureit þar sem gert er ráð fyrir verslun og þjónustu. Nú er verið að kynna deili- skipulagstillögu fyrir svæði I og II á miðbæjarsvæði Garðabæjar. Á svæði I við Kirkjulund er gert ráð fyrir íbúðabyggð en á svæði II, við Garðatorg, er gert er gert ráð fyrir verslunum, þjónustu, íbúðum og húsi Hönnunarsafns Íslands. Samkvæmt deiliskipulagstillög- unni er markmið hennar að skapa nýjan lífvænlegan miðbæ í Garðabæ. Hugmyndin gerir ráð fyrir allt að fimm hæða háum byggingum sem umlykja líflegt bæjartorg og er því ætlað að verða vettvangur marg- víslegra viðburða í bæjarlífinu. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir blandaðri byggð íbúðarhúsnæðis og verslunar- og þjónustuhúsnæðis. Með því er ætlunin að hámarka nýt- ingu svæðisins og draga úr bílaum- ferð. Eins nýtast bílastæði betur með blöndun byggðarinnar. Þorgils Óttar sagði það ætlun Klasa hf. að eiga verslunar- og þjón- usturýmin en selja íbúðirnar. Á Garðatorgi er um að ræða um 5.000 m2 verslunar- og þjónusturými og unnið er að byggingu 5.000 m2 versl- unar- og þjónustuhúsnæðis í Sveina- tungu. Þangað flytja m.a. verslun Hagkaupa, bensínstöð Skeljungs og útibú Sparisjóðsins BYR úr húsnæði í eigu Klasa hf. við Garðatorg. Þorgils Óttar sagði gert ráð fyrir að framkvæmdunum yrði lokið árið 2010, gengju allar áætlanir eftir. „Þetta er nú í auglýsingaferli. Síð- an munum við hefja framkvæmdir í miðbænum í júní á næsta ári en þá munu Hagkaupaverslunin, bens- ínstöð Skeljungs og BYR flytja í Sveinatunguna. Við munum rífa hús- næðið sem Hagkaup og bensínstöðin eru nú í. Síðan hefjast bygging- arframkvæmdir og við gerum ráð fyrir að þær taki um 18 mánuði. Við stefnum að því að hægt verði að opna verslanir við Garðatorg í nóv- ember 2009. Gera má ráð fyrir að íbúðirnar verði endanlega frágengn- ar árið 2010 og að öllu ferlinu ljúki þá,“ sagði Þorgils Óttar. Framkvæmdum við uppbyggingu nýs miðbæjar í Garðabæ á að ljúka árið 2010 samkvæmt áætlunum Kostnaður 8-9 milljarðar króna Þorgils Óttar Mathiesen Framtíðarsýn Höfundar skipulagsins í nýjum miðbæ Garðabæjar eru THG arkitektar og eru þeir arkitektar verk- efnisins ásamt Engle arkitektum frá Bretlandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.