Morgunblaðið - 11.10.2007, Síða 28
mælt með ...
28 FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Til hamingju!29.
Morgunblaðið/Jóhanna Ingvarsdóttir
Siglingar Önundur Jóhannsson rekur íslenska skútuleigu í Göcek við mið-
jarðarhafsströnd Tyrklands og vill nú bjóða Íslendingum upp á að taka
þátt í siglingakeppni með alls konar uppákomum í fögru umhverfi. Skúturnar Íslandssól, Sóllilja og Tobba trunta sigla undir íslenskum fána.
Æ fleiri nota netið
Á undanförnum árum hefur færst
í aukana að neytendur fari á netið til
þess að rannsaka ferðamöguleika og
bóka ferðir. Í Bandaríkjunum nota
nú 79% þeirra, sem ferðast, netið, og
55% þeirra bóka skemmtiferðir sín-
ar á netinu. Rannsóknir sýna hins
vegar að netferðalöngum finnst ekki
öllum jafn þægilegt að leita og bóka
á netinu.
Sýning á verkum Courbets
Um helgina hófst í Grand Palais í
París sýning á verkum málarans
Gustave Courbet, sem var uppi 1819
til 1877 og stendur hún til 28. janúar.
Á sýningunni er meðal annars mál-
verk sem heitir Nakin kona á sófa og
hvarf í heimsstyrjöldinni síðari en er
nú komið í leitirnar. Mikil frétt þykir
að málverkið hafi fundist á ný ,en
saga þess er forvitnileg. Svo virðist
sem hermenn úr rauða hernum hafi
komist yfir málverkið, en látið það
slóvakískum lækni í té fyrir með-
höndlun. Í ljós kom hvaða verk var á
ferðinni þegar erfingjar læknisins
hugðust láta meta það.
Stærsta bókamessa heims
Bókamessan í Frankfurt hófst í
gær. Um er að ræða mestu bókasýn-
ingu í heimi og þykja þýskir höf-
undar hafa tileinkað sér frásagn-
arlistina að nýju og fjölskyldusögur
eru í fyrirrúmi. Á mánudag voru
þýsku bókaverðlaunin kynnt og þau
hlaut 37 ára gamall rithöfundur,
Julia Franck, fyrir bókina Die Mit-
tagsfrau. Venjan er að taka fyrir
sérstakt land á sýningunni og sækj-
ast Íslendingar eftir að verða fyrir
valinu 2011. Nú er hins vegar ekkert
gestaland heldur „heiðursgestur“.
Næstu dagana verður í Frankfurt
lögð áhersla á menningu og tungu
Katalóníu. 380 aðilar frá Spáni verða
með sýningarbása. Samtals verða
7300 básar frá 110 löndum og verða
390 þúsund titlar kynntir. Í dag og á
morgun geta fjölmiðlar og útgef-
endur kynnt sér það, sem er á seyði í
bókaútgáfu í heiminum um þessar
mundir, en um helgina verður hinn
almenni lesandi í öndvegi.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Þetta er skemmtilegastaferðalag sem ég hef farið ílengi. Ég hef aldrei þurftað hugsa eins lítið og gat
einbeitt mér allan tímann að því að
njóta lífsins, því það var búið að
skipuleggja allt fyrir okkur af
ítalska leiðsögumanninum okkar
honum Marco, sem var algjörlega
frábær í alla staði,“ segir Bryndís
Berg sem fór í hjólaferð núna í októ-
ber ásamt eignmanni sínum Ingólfi
Sveinssyni og tuttugu öðrum Íslend-
ingum til ítölsku eyjunnar Sardiníu.
Syntum í sjónum í hádeginu
„Við ferðuðumst eftir austur-
strönd eyjunnar, frá San Teodoro til
Santa Maria Navarese. Við hjól-
uðum rúma tvö hundruð kílómetra
um fjöll og firnindi, ýmist á fáförn-
um grófum fjallaslóðum eða malbik-
uðum þjóðvegi.“ „Marco hjólaði
fremstur og leiddi hópinn en hann er
menntaður jarðfræðingur og við
fræddumst því heilmikið um þessa
fallegu eyju. Fyrir aftan okkur voru
tveir bílar sem fylgdu okkur allan
tímann og þar var okkar farangur
þannig að við þurftum ekki að bera
neitt. Þetta var mjög skemmtilegur
hópur og þó svo að ég hafi aðeins
þekkt hluta af fólkinu þá náðum við
öll vel saman. Við stoppuðum alltaf í
tvo tíma í hádeginu við ströndina,
borðuðum, syntum í sjónum, snorkl-
uðum, lágum og sleiktum sólskinið
og endurhlóðum okkur fyrir seinni
hluta dagsins. Á kvöldin borðuðum
við svo öll saman og við gistum á
yndislegum hótelum. Mér fannst
mikill kostur við ferðina að við þurft-
um ekki alltaf að vera að skoða ein-
hverjar menjar eða ferðamannastaði
og það voru engar búðir til að versla
í.“
Ferðalagið um Sardiníu stóð yfir í
sjö daga en Bryndís segir að mis-
jafnt hafi verið hvað þau hjóluðu
langt á hverjum degi.
Ætlaði ekki að
láta keyra mig
„Við hjóluðum allt frá fjórum upp
í átta tíma á dag og einn daginn
hvíldum við okkur á hjólunum og
gengum allan daginn niður mjög
djúpt gil og enduðum á strönd þang-
að sem aðeins er hægt að komast á
tveimur jafnfljótum eða af sjó.“
Bryndís segir að vissulega hafi
verið svolítið púl að hjóla svona mik-
ið en þó fannst henni þetta ekki eins
erfitt og hún hélt að það myndi
verða.
„Ég var búin að ákveða áður en ég
fór að ég ætlaði ekki að sitja í bílnum
sem fylgdi okkur og láta keyra mig.
Og mér tókst að standa við það. Síð-
asti dagurinn var ansi þungur en þá
hjóluðum við sextíu kílómetra. Við
hækkuðum okkur um þúsund metra
Íslenskir garpar hjólandi á Sardiníu
Hjólagarpar Bryndís og Ingólfur ásamt þremur aðaltöffurum ferðarinnar
þeim Einari, Jóni og Ágústi uppi á fjallsins brún á Sardiníu.
daglegt líf