Morgunblaðið - 11.10.2007, Síða 39

Morgunblaðið - 11.10.2007, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 39  Skyndibitakeðjur með hreinlætis- vandamál  Borgin hyggst selja hlut sinn í REI  Innbrotum fækkar ár frá ári  Morð íVesturbænum  Ein af hverjum sex konum missir fóstur  DV særir Dorrit - kemur þér við Mei ihlutinn í Reykja- vík ósammála um REI 17 ára sjoppueigandi seldi snuff undir borðið Persónuvernd er til skammar, segir Sól Ofæta létti þyngslum af lík ma og sál ÁTVR bregst við föls- uðum greiðslukortum Bubbi mætti óvænt í íslenskutíma Hvað ætlar þú að lesa í dag? VÍÐA um heim hefur verið stundaður áætlunarbúskapur – á landi. Stóru ríkin fjögur á Norð- urlöndum komu fyrir um fjörutíu árum á fót stofnun áætlunarbú- skaparmála, Nor- dplan, með aðsetur í Stokkhólmi. Þá hafði ríkt áætlunarbúskap- artrú, sem fólst í því, að ríki setti sér mark- mið um ákveðna stærð og gerð mála- flokks. Þannig fóru íslendingar að 1944 með áætlun um kaup svo og svo margra togara og fiskibáta með atbeina ríkisins. Þá þurfti það ekki að vera svo vitlaust til að rétta af truflun heimsstyrjald- arinnar á atvinnuvegina, enda þóttust menn hafa yfirsýn yfir þjóðarbúið til að gera það. Að Nordplan voru ráðnir menn í stöðu prófessora, enda hafði stofn- unin stöðu háskóla. Síðar fór stofnunin undir menningar- málaskrifstofu Norðurlandaráðs, og þá varð Ísland aðili að henni. Fljótt fór svo, að starf stofnunar- innar fólst í því að kenna það, að áætlunarbúskapur, eins og menn höfðu ætlað sér, færi illa, enda svo margir lausir endar um viðgang samfélagsins, að ekki yrði við ráð- ið. Í staðinn varð þar viðfangs- efnið að kenna að meta forsendur skipulags og móta þær þannig, að viðgangur samfélagsins yrði til heilla, þó að framtíðargerðin væri ekki ákveðin. Segja má, að það sjónarmið hafi orðið ríkjandi. Menn þykjast nefni- lega ekki hafa yfirsýn né tök, til að áætl- unarbúskapur verði með viti. Sá skiln- ingur er einnig hér á landi, að þjóðarbúið sé svo margslungið, að ekki sé vit í að setja slíkar áætlanir. Á sjó Um höfin gegnir öðru máli en löndin. Þar ríkir áætl- unarbúskapartrú. Þess vegna er það nú svo hér á landi, að ríkið stefnir að því, að svo og svo mörg kíló af þorski verði hér við land, og er sett tala ár fyrir ár. Vitaskuld eru engin efni til slíkrar áætlunar. Óvissa er um það, sem varðar mestu, nær- ingarástandið. Menn vita ekki, hversu margir þorskar geta átt viðunandi líf hér við land á þessari stundu og enn síður eftir eitt ár, tvö ár, þrjú ár eða 10 ár. (Reynd- ar er þorskurinn nú vannærður, það er að segja, þorskarnir eru of margir miðað við fæðuskilyrði, verða því léttir og því ekki gott hráefni.) Þrátt fyrir þetta setja menn markmið um þorskkíló ár fyrir ár. Það er áætlunarbúskapur laus við vit. Vitið er hins vegar það að fara eins að og á landi, að tryggja eðli- legan viðgang. Þá verður að gæta þess að láta þorskana vera ekki svo marga, að þá skorti fæðu. Líf- fræðingar geta fylgst með því og bent á ráð til þess. Þessu hafa mikils metnir menn haldið skil- merkilega fram á ýmsum vett- vangi, Jón Jónsson, forstjóri Haf- rannsóknastofnunar, Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúru- fræðistofnunar, Kristján Þór- arinsson, starfsmaður Lands- sambands íslenskra útvegsmanna, Tumi Tómasson, forstöðumaður Sjávarútvegsskóla Sameinuðu þjóðanna, og Jón Kristjánsson, sem starfar sjálfstætt og nýtur þess. Áætlunarbúskapur laus við vit Björn S. Stefánsson fjallar um áætlunarbúskap » Við stjórn atvinnu-vega á landi hafa menn ekki lengur trú á áætlunarbúskap, en sú trú ríkir í fiskveiði- stjórn. Björn S. Stefánsson Höfundur var um árabil fulltrúi Ís- lands í stjórn Nordplan og prófessor þar um tíma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.