Morgunblaðið - 11.10.2007, Side 59
JOHN Travolta gekk alltaf með hug-
myndina um að verða flugmaður í
maganum og eyddi að eigin sögn
„hverjum einasta aur sem hann átti í
flugtíma“. Leikarinn er menntaður
flugmaður og vill núna ólmur fljúga
með söngkonurnar í Spice Girls á
milli tónleikastaða þeirra. Eins og
frægt er orðið hafa kryddstelpurnar
ákveðið að koma saman aftur og
hefst tónleikaferðalag þeirra í des-
ember.
Farkosturinn er ekki af verri end-
anum, Boeing 757, sem að sögn heim-
ildarmanna verður „fljúgandi höll“.
Hún hefur hlotið nafnið Spice Force
One. Í höllinni fljúgandi verður allt
til alls, meðal annars fullkomið förð-
unarherbergi, sem og vöggustofa,
enda eru Victoria, Emma, Mel B. og
Geri allar orðnar mæður og börnin
munu fara með þeim.
„Þetta virðist vera stórkostleg
flugvél. Ég hef flogið síðan árið 1974
þannig að ég gæti kannski hjálpað
eitthvað til,“ var haft eftir John Tra-
volta.
Spice Girls munu koma fram vítt
og breitt um heiminn, meðal annars í
Sydney, Madrid, New York, Los
Angeles og Vancouver í Kanada. Í
seinustu viku ákvað bandið að bæta
við aukatónleikum í London eftir að
uppselt varð á tónleika þeirra á ein-
ungis 38 sekúndum.
Travolta
vill krydd
í tilveruna
Reuters
Kryddaður John Travolta vill
fljúga með Spice Girls.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 2007 59
Sími 530 1919
www.haskolabio.is
Kauptu bíómiða í Háskólabíó á Kauptu bíómiða í Háskólabíó á
Stærsta kvikmyndahús landsins
Heima - Sigurrós kl. 6 - 8 - 10
3:10 to Yuma kl. 5:30 - 8 - 10:30
Veðramót kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 14 ára
Astrópía kl. 6 - 8 - 10:10
Sagan sem
mátti ekki
segja.
eeee
- B.B., PANAMA.IS
eeee
- E.E., DV
eeee
- S.G., Rás 2
eeee
- S.V., MORGUNBLAÐIÐ
eeee
- JIS, FILM.IS
eee
- FBL
“TOP 10 CONCEPT
FILMS EVER”
- OBSERVER
Hljómsveitin Sigur Rós hélt í ógleymanlega
tónleikaferð um Ísland sumarið 2006.
Samspil Sigur Rósar, náttúru Íslands og
íslensku þjóðarinnar má finna í þessu
ógleymanlegu meistarastykki Sigur Rósar,
mynd sem enginn má missa af!
eeeee
“HEIMA ER BEST”
- MBL
eeeee
“ALGJÖRLEGA EINSTÖK”
- FBL
eeeee
“VÁ”
- BLAÐIÐ
eeeee
“MEÐ GÆSAHÚÐ AF
HRIFNINGU”
- DV
eeeee
“SIGUR ROS HAVE
REINVENTED THE
ROCK FILM”
- Q
eeee
“SO BEAUTIFUL
ITS HYPNOTIC”
- EMPIRE
HVERSU LANGT MYNDIRU
GANGA FYRIR BESTA VIN ÞINN?
GEGGJUÐ
GRÍNMYND
Sýnd kl. 5:30 og 10:30 B.i. 10 ára
-bara lúxus
Sími 553 2075
Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:20 B.i. 12 ára
Miðasala á www.laugarasbio.is
ROBERT DE NIRO OG MICHELLE PFEIFFER
Í FRÁBÆRRI MYND SEM VAR TEKINN UPP Á
ÍSLANDI OG ALLIR ÆTTU AÐ HAFA GAMAN AF!
Sýnd kl. 5:30, 8 og 10:30 B.i. 16 ára
STARDUST ER MÖGNUÐ
ÆVINTÝRAMYND STÚTFULL
AF GÖLDRUM, HÚMOR OG HASAR.
Vinsælasta kvikmyndin
á Íslandi í dag
eee
„...HIN BESTA SKEMMTUN.“
A.S.
Bergur Ebbi Benediktsson, annar söngvara Sprengjuhallarinnar:
Mér finnst þetta fallegt og sérstakt listaverk. Það er líka
smekklegt að hafa þetta hér í Reykjavík þar sem við höfum
næga orku.
Egill Helgason fjölmiðlamaður:
Mér finnst hún nú bara falleg og skemmtileg,
en það litar kannski afstöðu mína að ég er gam-
all Bítla-aðdáandi. Og ég ber ekkert mikinn kala
til Yoko Ono fyrir að hafa leyst hljómsveitina
upp. Ég tuða yfir mörgu en ég tuða ekki yfir
þessari friðarsúlu og þessari framkvæmd. Mér
finnst þetta bara skemmtilegt og í góðu lagi. Ég
fór ekki út í Viðey, en ég keyrði framhjá og sá ljósgeislann og
fannst hann bara fallegur.
Valgerður Matthíasdóttir sjónvarpskona:
Dásamleg! Það er eina orðið yfir hana, hún er dásamleg! Ég
er mjög hrifin af þessu. Ég sá þetta í sjónvarpinu og hefði bara
viljað sjá ennþá lengri dagskrá, umfjöllun um þetta og hvaða
möguleika við Íslendingar höfum í okkar sérstöðu í heimsmál-
unum.
Hugleikur Dagsson rithöfundur:
Mér finnst hún bara mjög flott, ég hef ekki
þróað með mér stærri skoðanir en það. En ég er
búinn að sjá hana einu sinni úr fjarlægð og mér
fannst þetta flott.
Stefán Pálsson, sagnfræðingur og formað-
ur Samtaka herstöðvaandstæðinga:
Þetta er ágætlega snoturt og boðskapurinn er
ágætur ef hann verður til þess að vekja fólk til
umhugsunar. En við í okkar samtökum höfum
bent á að kannski þurfi fleira að koma til. Okkur finnst mjög
kaldhæðnislegt til þess að hugsa að nokkur hundruð metrum frá
þessum stað koma menn fyrir stærstu herskipunum sem hingað
koma á hverju sumri. Við höfum notað tækifærið og hvatt borg-
arstjórnina í Reykjavík til þess að lýsa því yfir
að herskipakomum í Sundahöfn verði hætt í tengslum við þetta.
Það er nú bara lágmarkskurteisi við listakonuna.
Katrín Jakobsdóttir íslenskufræðingur:
Ég hef nú ekkert á móti þessari súlu, það er nú bara þannig.
En ég fór ekki að horfa á athöfnina, enda lítið fyrir svoleiðis sam-
kundur. Ég er hins vegar mikill aðdáandi Johns Lennons og kann
vel að meta þann boðskap sem þessu fylgir. Ég vildi bara óska að
stjórnmálamenn, til dæmis þeir sem voru þarna í gær, myndu
fylgja þessum friðarboðskap í störfum sínum annars staðar.
„Hún er
dásamleg!“
Hvað finnst þér um friðarsúluna?
VÍGSLA friðarsúlu
Yoko Ono hefur
vakið verðskuldaða
athygli um heim
allan. Fjöldinn allur
af erlendum fjöl-
miðlamönnum kom
hingað til lands til
að vera viðstaddur
vígsluna og birtist
umfjöllun um hana
víða í gær og fyrra-
dag.
Á vefsíðu BBC er
ýtarleg frétt um
vígsluna auk mynd-
bandsfréttar þar
sem sýnt er frá Við-
ey.
The New York
Times er einnig
með góða frétt frá
Reuters um súluna
og stutt viðtal við
Yoko Ono sem er
tekið rétt fyrir
vígsluna á Íslandi.
„Ég get ekki lofað
að ég muni koma
hingað á hverju ári
þegar kveikt verð-
ur á súlunni en mér
finnst að ég sé orð-
in hluti af Íslandi
núna og mun reyna
að koma hingað
eins oft og ég get,“
sagði Ono í viðtal-
inu.
Meðal annarra miðla sem
segja frá súlunni eru Herald
Tribune, The Washington
Post, NME tónlistarsíðan og
Japan Today.
Ríkissjónvarpið og Stöð 2
sýndu báðar beint frá Viðey í
gær og höfðu 62 erlendar
stöðvar aðgang að útsendingu
Rúv en 34 að útsendingu
Stöðvar 2.
Fjölmiðlar Víða fjallað um friðarsúlu.
Erlendir fjölmiðlar fylgdust
með vígslu Friðarsúlunnar
Yoko Ono
hluti af Íslandi
Morgunblaðið/RAX