Morgunblaðið - 05.11.2007, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 05.11.2007, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2007 29 Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofa opin kl. 9- 16.30, boccia kl. 10, félagsvist kl. 14. Við- talstími hjúkrunarfræðings kl. 9-11. Árskógar 4 | Bað kl. 9-16, handav. kl. 9-12, smíði/útskurður kl. 9-16.30, félagsvist kl. 13.30 og myndlist kl. 16. Bólstaðarhlíð 43 | Alm. handavinna, morgunkaffi/dagblöð, fótaaðgerð, hádeg- isverður, bútasaumur, kaffi. Haustfagnaður verður í félagsmiðstöðinni 12. nóv. Fagnað verður 20 ára starfsafmæli sem hefst með veislukaffi kl. 14.30, skemmtiatriði og happdrætti. Verð kr. 1.000. Skráning á skrifst. s. 535-2760. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13, kaffitár kl. 13.30, línudanskennsla kl. 18, samkvæmisdans byrjendur kl. 19 og fram- hald kl. 20. Félagsheimilið Gjábakki | Handavinna kl. 9, leiðbeinandi við til hádegis. Botsía kl. 9.30, gler- og postulínsmálun kl. 9.30 og 13, hádegisverður kl. 11.40, lomber kl. 13, kanasta kl. 13.15, kaffi. Kóræfing kl. 17, skapandi skrif kl. 20. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postulíns- hópur kl. 9, ganga kl. 10, hádegisverður kl. 11.40, félagsvist kl. 20.30. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl. 9, 9.45 og 10.30, málun kl. 10 og 13, gler- skurðarhópur kl. 13. Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl. 9- 16.30, m.a. tréútskurður og handavinna, sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug kl. 9.50. Frá hádegi er spilasalur opinn. Kóræfing kl. 14.20. Strætisvagnar S4, 12 og 17 stansa við Gerðuberg. Uppl. á staðnum, s. 575-7720 og wwwgerduberg.is Hraunbær 105 | Handavinna og út- skurður kl. 9, bænastund kl. 10, hádegis- matur kl. 12, myndlist kl. 13, kaffi kl. 15. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9, ganga kl. 10, handmennt og gler kl. 10 og 13, Gaflarakórinn kl. 10.30, flélagsvist kl. 13.30. Hvassaleiti 56-58 | Opin handa- vinnustofa kl. 9-16 hjá Sigrúnu, skreyting á kerti, handstúkuprjón o.fl. Jóga kl. 9-11, Sóley Erla. Frjáls spilamennska kl. 13-16, hádegisverður kl. 11.30. Hæðargarður 31 | Listasmiðan opinn alla daga. Ókeypis leiðbeiningar á tölvu, bók- menntahópur, Vínarhljómleikar, jólapakka- skreytingar, framsagnarnámskeið, skap- andi skrif o.fl. Ævintýri í Iðnó 6. nóv. kl. 14. Rúta. Uppl. 568-3132. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er sund- leikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30. Kvenfélag Garðabæjar | Félagsfundur 6. nóvember kl. 20 á Garðaholti. Leynigestir koma í heimsókn. Kaffinefnd: Hverfi 12, 15 og 17 sem mæta kl. 19. Stjórnin.www.k- vengb.is Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morgun- kaffi og spjall kl. 9.30, sögustund kl. 10.30, handverks- og bókastofa kl. 13, kaffiveitingar kl. 14.30, söng og sam- verustund kl. 15. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla kl. 9-16, handavinna kl. 9.15-15.30, boccia kl. 9, leikfimi kl. 11, hádegisverður kl. 11.45, kór- æfing kl. 13 og kaffi kl. 14.30. Þórðarsveigur 3 | Félagsráðgjafi kl. 10, leikfimi kl. 13.15, boccia kl. 14.45. Sölu- kynning á Volare-vörum verður í salnum 6. nóv. kl. 14. Kirkjustarf Áskirkja | Djákni Áskirkju verður með bænastund / morgunsöng á Dalbraut 27, kl. 9.30. Grafarvogskirkja | TTT fyrir 10-12 ára kl. 17-18 í Grafarvogskirkju og Húsaskóla. Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.-10. bekk kl. 20 í Grafarvogskirkju. Hallgrímskirkja | Bænastund kl. 12.15. Hjálpræðisherinn á Akureyri | Heim- ilasambandsfundur kl. 15. Nánari upplýs- ingar í s. 896-6891. Kristniboðssalurinn | Fundur í Kristni- boðsfélagi karla kl. 20, á Háaleitisbraut 58, 3. hæð. Ræðumaður dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson. Laugarneskirkja | Harðjaxlahópurinn (7. bekkur) mætir kl. 12.15 í óvissuferð. Kven- félag Laugarneskirkju heldur fund kl. 20. dagbók Í dag er mánudagur 5. nóvember, 309. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Drottinn er hlutskipti mitt og minn afmældi bikar; þú heldur uppi hlut mínum. (Sálm. 16, 5.) Tónlist Húsgagnaverslunin Bjarg við Kalmans- velli | Saxófónleikarinn Sigurður Flosason ásamt Þóri Baldurssyni hljómborðsleikara verða með skammmenningartónleika kl. 20.30. Á Vökudögum verður einnig mál- verkasýning, verkin eru eftir Baska – Bjarna Skúla Ketilsson. Fyrirlestrar og fundir Geðhjálp | Túngötu 7. Sjálfshjálparhópur þeirra sem þjást af kvíða er starfræktur í húsi Geðhjálpar alla mánudaga kl. 19.30-21. Hópurinn er öllum opinn sem eiga við ofan- greindan vanda að stríða. Lífssýn | Félagsfundur verður 6. nóvember kl. 20.30, í Bolholti 4, 4. hæð. Jóhanna Þormar fjallar um lækningajurtir. Kaffiveit- ingar, aðgangseyrir 500 kr. Skrúðgarðurinn | Á ferð um Ekvador, Ama- zon, Andes og Galapagos, Guðbjörn Oddur Bjarnason skrúðgarðyrkjumeistari kynnir í máli og myndum ævintýralega ferð sem hann fór í september árið 2006 um Ekva- dor, Amazon-frumskóginn, Andesfjöll og Galapagoseyjar. KANADÍSKA skautadansparið Scott Moir og Tessa Virtue þeyttist um ísinn í gær í Skate Canada-skautadanskeppninni sem haldin var í Quebec. Parið fór með sigur af hólmi, sjálfsagt skiptu æfingarnar þar mestu en ekki má þó gera lítið úr elsku- legu augnaráði á borð við það sem Moir sýnir á myndinni. Leikræn tilþrif eru nauðsynleg í skautadansi ekki síður en fótafimi Ástúðlegt augnaráð Reuters MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudags- blað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja. FRÉTTIR Bridsdeild FEB í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ásgarði, Stangarhyl, fimmtud. 1.11. Spilað var á 12 borðum. Meðalskor 216 stig. Árangur N-S Bragi Björnsson - Albert Þorsteinss. 272 Björn E. Péturss. - Oliver Kristóferss. 253 Friðrik Jónsson - Tómas Sigurjónss. 247 Árangur A-V Þorsteinn Sveinss.- Kristmann Jónss. 290 Þröstur Sveinss. - Bjarni Ásmunds 279 Eyjólfur Ólafsson - Óli Gíslason 274 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is NÝSKÖPUNARKEPPNI grunnskólanemenda (NKG) er keppni í nýsköpun fyrir alla ald- urshópa í grunnskólum lands- ins. Markmið keppninnar er að virkja sköpunarkraft barna og unglinga í landinu. Í fréttatilkynningu segir að keppnin í ár leggi sérstaka áherslu á uppfinningar á sviði orkumála, endurvinnslu og um- hverfisverndunar, að auka sýni- leika umhverfisvæns eldsneytis fyrir bifreiðar og möguleika þess sem staðgengils umhverf- ismengandi eldneytisgjafa eins og bensíns og olíu. Brimborg er einn af bak- hjörlum keppninnar og fyrir skömmu afhenti fyrirtækið Ólafi Sveini Jóhannessyni, fram- kvæmdastjóra Vitans – verk- efnastofu, Ford C-MAX líf- etanól, sem Vitinn mun hafa til afnota í eitt ár vegna keppn- innar 2008. Vitinn annast rekst- ur, framkvæmd og þróun Ný- sköpunarkeppni grunnskóla- nemenda í samstarfi við menntamálaráðuneytið Að sögn Ólafs Sveins Jóhann- essonar, framkvæmdastjóra Vitans, er stuðningur Brimborg- ar við keppnina mikilvægur. „Það fer einnig vel á því að velja bíl sem gengur fyrir lífetanóli, sem er ný lausn hér á landi, sem vonandi festir rætur í náinni framtíð. Sú vinna, sem Brim- borg hefur innt af hendi til að kynna hugmyndina hérlendis, er frumkvöðlastarf, sem fellur vel að þeirri hugsun, sem Nýsköp- unarkeppni grunnskólanem- enda, er ætlað að virkja meðal barna og unglinga,“ segir Ólaf- ur. Mikill áhugi grunnskólanema Í ár tóku rúmlega þrjú þús- und börn og unglingar þátt frá 52 grunnskólum. Um miðjan september síðastliðinn var hald- in vinnusmiðja, þar sem 62 nem- endur á aldrinum 8 ára til 15 ára frá alls 20 grunnskólum komu saman. Nemendurnir komust í gegnum strangt matsferli þar sem uppfinningar þeirra voru metnar með tilliti til hagnýti, nýnæmi og markaðshæfi. Ánægðir Ólafur Sveinn Jóhannesson, framkvæmdastjóri Vitans verkefnastofu, fékk Ford C-MAX lífetanól afhentan af fulltrúa Brimborgar. Vitinn mun hafa bílinn til afnota í eitt ár vegna keppninnar 2008. Brimborg afhenti NGK lífetanólbíl BLINDRAFÉLAGIÐ gefur út þrjár gerðir af jólakortum í ár til styrktar félaginu. Jólakort með myndinni „Jólagleði“ eftir listakonuna Mæju eru seld 8 saman í pakka ásamt umslögum á 1.000 kr. Merkispjöldin eru 8 í pakka og eru seld á 300 kr. Kort með ljósmynd af Heklu eftir Sigurgeir Sigurjónsson eru seld 15 saman í pakka ásamt umslögum á 1.800 kr. Jólakort með myndinni „Að kvöldi dags“ eftir Helenu Björnsdóttur, lögblinda íslenska konu sem býr í Noregi, eru seld 8 saman í pakka ásamt 8 merkispjöldum á 1.300 kr. Sölumenn frá Blindrafélaginu munu ganga í hús í nóvember og desember og bjóða kortin til sölu. Óskað er eftir sölumönnum. Hægt er að nálgast kortin hjá Blindrafélaginu, Hamrahlíð 17, sími 525 0000, eða með því að senda tölvupóst á blind@blind.is. Jólakort Blindrafélagsins ÚT ERU komin jólakort Félags eldri borgara í Reykjavík. Myndin er eftir myndlistakonuna Jónínu Magnúsdóttur (Ninný) og heitir „Bænasöngur“. Í hverj- um pakka eru 5 jólakort. Jólakortin eru mikilvægasta fjáröfl- unarleið félagsins og eru send til fé- lagsmanna og annarra velunnara félagsins. Einnig er hægt að panta kort á skrifstofu félagsins í Stangarhyl 4, 110 Reykjavík, s. 588 2111, eða með tölvupósti á dagmar@feb.is. Jólakort Félags eldri borgara í Reykjavík Sagnfræðingafélag Íslands efnirtil fyrirlestrar í Þjóðminja-safninu á þriðjudag. Þar ætlarSverrir Jakobsson sagnfræð- ingur að flytja erindið Uppruni Evrópu. „Fyrirlesturinn segir frá þróun hug- taksins Evrópa og merkingu þess,“ út- skýrir Sverrir. „Evrópa kemur fyrst fram í grískum goðsögnum, en Evrópa hét dóttir Fönikíukonungs sem rænt var til Krítar. Grikkir voru síðan fyrstir til að skipta heiminum í þrjú svæði: Afríku, Asíu, og þann hluta sem þeir nefndu Evrópu.“ Sverrir segir þó skiptingu hins þekkta heims í álfur ekki hafa skipt miklu máli í menningarlegum- og póli- tískum skilningi á tímum Grikkja: „Sem dæmi þótti Heródótosi, föður sagnfræðinnar, merkingarlaust að skipta heiminum upp með þessum hætti,“ segir Sverrir. „Það gerist síðan á miðöldum að Evrópuhugtakið fær sterkari stöðu í valdafræðilegum skiln- ingi, en þó var t.d. mjög sjaldgæft að hugtakið væri notað til að lýsa fólki, og þannig sárasjaldan talað um Evrópu- menn.“ Fall Konstantínópel Þáttaskil verða á 15 öld, með falli Konstantínópel: „Kristin samfélög ein- angrast þá í Evrópu, og fara menn í auknum mæli að nota Evrópu sem samheiti yfir lönd kristinna manna.“ Í erindi sínu ætlar Sverrir einnig að fjalla um Evrópu-miðjaða heimssýn 19. aldar: „Á þeim tíma, og fyrri hluta 20. aldar, voru ríki Evrópu valdamest í heiminum. Söguskoðun okkar í dag virðist enn litast af þessu tímabili mannkynssögunnar og vægi þessa heimshluta í hefðbundnum söguritum kannski meira, og hlutverk Evrópu glæstara, en tilefni er til.“ Finna má nánari upplýsingar um fyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins á slóðinni www.sagnfraedingafelag.net. Fyrirlestur þriðjudagsins hefst kl. 12.05 og lýkur um kl. 12.55. Aðgangur er öllum heimill og ókeypis. Næsti fyrirlestur verður 20. nóvem- ber, en þá ætlar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra að flytja erindið Minn staður er hér þar sem Evrópa endar. Fræði | Fyrirlestraröð Sagnfræðingafélagsins heldur áfram á þriðjudag Uppruni Evrópu  Sverrir Jakobs- son fæddist í Reykjavík 1970. Hann lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum við Sund 1990, BA- prófi í sagnfræði frá Háskóla Ís- lands 1993, BA- prófi í grísku frá sama skóla 2005, MA-prófi í miðaldafræði frá Leeds- háskóla 1994 og doktorsnámi við HÍ 2005. Sverrir hefur fengist við kennslu, fræðaskrif, ritstjórn og þýð- ingar. Hann er nú stundakennari við Háskóla Íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.