Morgunblaðið - 05.11.2007, Síða 39

Morgunblaðið - 05.11.2007, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2007 39 Morgunverðarfundur Bændasamtaka Íslands verður í Sunnusal Hótel Sögu þriðjudaginn 6. nóvember nk. frá kl. 8:15 til 10:00. Ræðumaður verður Martin Haworth, yfi rmaður stefnumótunar ensku bændasamtakanna National Farmers’ Union (NFU). Hann fjallar um þróun landbúnaðar og búvöruverðs í heiminum. Hver er líkleg þróun til framtíðar? Mun eftirspurnin halda verði uppi? Hvaða áhrif eru líkleg af hlýnun andrúmsloftsins og aðgerðum til að sporna gegn henni? Haworth mun ræða um afl eiðingar þurrka í Ástralíu, aukna eftirspurn í Asíu, framleiðslu á lífeldsneyti úr korni og vaxandi umhverfi svitund neytenda. Spurt verður hvaða áhrif þessir þættir hafa á framleiðslu landbúnaðarafurða í Norðvestur-Evrópu og hvar íslenskir bændur standa í umróti framtíðarinnar. Martin Haworth var í nokkur ár áhrifamikill embættismaður ESB í Brussel áður en hann réðst til NFU árið 1980. Haworth hefur gengt mörgum ábyrgðarmiklum störfum hjá NFU og annast nú stefnumótun samtakanna. Hann hefur mikla þekkingu á landbúnaðarframleiðslu og sölu afurða á evrópskum neytendamarkaði. Fyrirlestur: Hvað kostar maturinn minn á morgun? Martin Haworth, yfi rmaður stefnumótunar NFU Pallborðsumræður, spurningar og svör. Þátttakendur ásamt Haworth: Salvör Jónsdóttir, skipulagsfræðingur, ráðgjafarfyrirtækinu Alta. Sigurður Jónsson, framkvæmdastjóri SVÞ-Samtaka verslunar og þjónustu. Daði Már Kristófersson, hagfræðingur hjá Bændasamtökunum Fundarstjóri verður Ágúst Sigurðsson, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Fundurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á þessum málefnum. Aðgangur er ókeypis og veitingar verða í boði bænda. Martin Haworth Salvör Jónsdóttir Sigurður Jónsson Daði Már Kristófersson Bændasamtök Íslands Hvað kostar maturinn minn á morgun? Morgunverðarfundur Bændasamtakanna 6. nóvember 2007 KO M a lm an na te ng sl / s va rt hv ítt ÞETTA er falleg sýning. Veggir Rýmisins eru í upphafi í mildum rauðgulum lit sólar og grænt er gólf- ið eins og grasið í Maryland í suð- urríkjum Bandaríkjanna. Ferkantað er formið sem Filippía Elísdóttir rammar okkur og leikarana í og rím- ar við form í amerískri hönnun sjötta og sjöunda áratugar aldarinnar sem leið. Örfáir leikmunir, m.a. tvær leð- urklæddar pullur á hjólum, í hlut- verki sófa eða bílsæta. Annars eru það ótrúlega hugvitssamlega gerðir búningar og lifandi myndir sem varp- að er á bakvegg sem flytja okkur inn í tímann. Myndirnar gera líka at- hugasemdir við verkið og dýpka það. Þannig byrjar sýningin – meðan áhorfendur koma í salinn – á broti úr sjónvarpsmynd: Mikilli leit að brúðu sem telpa hefur týnt. En verk banda- rísku skáldkonunnar og femínistans Paulu Vogel fjallar um þá mynd sem samfélagið vill troða upp á stúlku úr verkamannafjölskyldu í Maryland; um það hvernig hún er misnotuð af fjölskyldumeðlimi og hvernig stúlk- unni tekst að snúa misnotkuninni í sterka sjálfsmynd. Það fjallar einnig um „að búa ekki til djöfla úr fólkinu sem særir okkur“, draga af hræði- legri reynslu lærdóm, verða ekki fórnarlamb. Og um ýmislegt fleira. Í verkinu teflir höfundurinn, gegn harmleik stúlkunnar Lillu og frænda Pecks, gamanleik þriggja manna „grísks kórs“ sem tekur að sér öll önnur nauðsynleg hlutverk í upp- rifjun Lillu á hvernig frændi hennar „kenndi henni að keyra“. Og flottur er rammi verksins og aðferð upprifj- unarinnar og minnir svolítið á Brecht: Helstu reglur ökukennslu verða að titlum yfir atriðum sem fara fram og aftur í tíma. María Reyndal, leikstjórinn, bætir svo einum þætti enn við verkið en það er stúlkan Lay Low sem gengur inn í það og syngur eigin lög. Hún, sem syngur svo und- ursamlega og er með þetta heillandi kvika andlit, dregur hins vegar áhorfendur eins og seiðkona inn í melankólska stemningu sína, riðlar um leið takti verksins og gerir áhorf- endum erfitt fyrir að helga sig hraðri brotakenndri framvindunni. Svo það er eiginlega ekki fyrr en eftir hlé þegar Lay Low er að mestu horfin af sviðinu, að Kristín Þóra Haraldsdóttir sem Lilla og Þröstur Leó Gunnarsson sem Peck frændi, fá óskipta athygli okkar. Þetta er stærsta hlutverk sem Kristín Þóra hefur glímt við. Hún miðlar í frásögninni einhvers konar þrjóskri vitsmunalegri nálægð sem hæfir vel þessari persónu og mörg andartök bernskunnar verða ákaflega sterk í meðförum hennar, helst að maður sakni þess að sú Lolita, sem skáldið tileinkar verkið, brjótist meira fram og rödd Kristínar Þóru á enn ekki mörg blæbrigði. Þröstur Leó Gunnarsson leikur vandasamt hlut- verk Pecks frænda sem snúið hefur heim úr seinni heimsstyrjöldinni brot- inn maður, eða hefur ef til vill sjálfur, eins og gefið er eitt örskot í skyn, ver- ið misnotaður í æsku og ekki getað unnið úr þeirri reynslu. Trúverðug og eiginlega margbrotin er sú mynd sem Þröstur dregur upp af beygðum, við- kvæmum manni sem, eins og Lillan, er á röngum stað í tilverunni. Girnd- ina, það ægilega sem teymir hann áfram og að vísu örlar fyrir, hefði víða mátt styrkja. Draga hefði átt hins vegar stundum úr farsanum í leik kórsins. Því þótt þau séu öll skemmti- leg þau Guðjón Davíð Karlsson, Hall- grímur Ólafsson og Þrúður Vilhjálms- dóttir og bregði sér mjúklega úr einu hlutverki í annað, sífellt kallandi fram hlátur, þá glatast félagslegi jarðveg- urinn – húmor ákveðinnar stéttar, þróun kvenhlutverksins – í gassa- ganginum í fjölskyldusenunum líkt og menn hafi ályktað að Lilla sé fremur stökkbreyting í lífskeðjunni en afurð ákveðinna aðstæðna. Það gerist því miður of sjaldan að maður fái að sjá Þrúði á sviði og það gladdi því sér- staklega að sjá glæsilegt eintal henn- ar sem eiginkona Pecks, í algerri af- neitun og hörkulegri árás á áhorfendur. Það er vandað til allra verka í þess- ari sýningu sem hlýtur að hafa verið óhemju erfið í vinnslu fyrir aðstand- endur. Sá veikleiki sem ég tel þar helstan verður vafalítið í höndum L.A. – þar sem allt blómstrar og grær – að mesta styrk hennar. Lay Low mun sópa að áhorfendum og sennilega verður hún líka í huga þeirra, þegar heim er snúið, táknmynd um fegurð og styrk konunnar með stórum staf. Ekki er það beinlínis í mótsögn við boðskap höfundar. Að lokum er skylt að benda á þá gleðilegu staðreynd að með því að taka Ökutíma til sýningar hefur ís- lenskt leikhús stigið feti framar en aðrir í umfjöllun sinni um eitt við- kvæmasta samfélagsvandamál okkar. Einungis þess vegna mætti láta rigna yfir sýninguna stjörnum. Ljósmynd/Grímur Bjarnason Viðkvæmt „Með því að taka Ökutíma til sýningar hefur íslenskt leikhús stigið feti framar en aðrir í umfjöllun sinni um eitt viðkvæmasta samfélags- vandamál okkar,“ segir í dómi um leikritið Ökutíma. Að vera ekki fórnarlamb María Kristjánsdóttir LEIKLIST Leikfélag Akureyrar Ökutímar Höfundur Paula Vogel. Þýðandi: Sig- tryggur Magnason. Leikstjóri: María Reyndal. Leikmynd og búningar: Filippía Elísdóttir. Lýsing: Björn Bergsteinn Guð- mundsson. Tónlist og tónlistarstjórn: Lay Low. Leikarar: Kristín Þóra Haraldsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Guðjón Davíð Karlsson, Hallgrímur Ólafsson og Þrúður Vilhjálmsdóttir. Rýmið, 2. nóvember 2007, kl. 20.00

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.