Morgunblaðið - 09.11.2007, Síða 28

Morgunblaðið - 09.11.2007, Síða 28
28 FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. HÚSNÆÐISLÁNA- MARKAÐURINN Þegar bankarnir, undir forystuKaupþings banka, beittu sérfyrir breytingu á húsnæðis- lánakerfi landsmanna, síðla sumars árið 2004, var það bylting en ekki breyting og flestir töldu að nú væru nýir tímar framundan í húsnæðismál- um landsmanna. Í fyrsta skipti gætu Íslendingar fjármagnað fasteigna- kaup sínum með svipuðum hætti og gert hefði verið í öðrum löndum í ára- tugi. En skjótt skipast veður í lofti. Nú eru þessar róttæku umbætur á hús- næðislánamarkaðnum að verða að húsnæðislánakreppu. Í samtali við Morgunblaðið í gær sagði Friðrik St. Halldórsson, framkvæmdastjóri við- skiptabankasviðs Kaupþings banka m.a.: „Ég átti ekki von á að sjá svona vexti á Íslandi nokkurn tíma aftur. Ég hélt að þessi tími væri liðinn.“ Í ítarlegri fréttaskýringu Egils Ólafssonar blaðamanns Morgunblaðs- ins hér í blaðinu í gær kom fram, að vextir á ríkistryggðum skammtíma- bréfum væru nú 8% en hefðu verið 3,4% fyrir þremur árum. Þetta ástand hefði leitt til þess að íbúðalánavextir hefðu hækkað mikið. Þar kemur ennfremur fram að með- alverð á 130 fermetra íbúð í Reykjavík hefði verið um 17 milljónir fyrir þrem- ur árum. Bankarnir hefðu þá boðið 90% lán með 4,15% vöxtum. Fólk hefði kannski komizt af með 15 milljóna króna lán og borgað rúmar 64 þúsund krónur á mánuði. Nú þurfi 30 milljóna króna lán til að kaupa sömu íbúð og með 6,4% vöxtum séu mánaðargreiðslur tæplega 174 þúsund krónur. Á þessu tímabili hafa laun hækkað um 28,7%. Það sér hver maður að þetta getur ekki gengið. Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmda- stjóri ASÍ, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær: „Það er augljóst mál, að það er verið að framkvæma kreppu á húsnæðis- markaði.“ Margir munu taka undir þau orð Gylfa og nokkuð ljóst að húsnæðismál verði í fyrsta sinn í langan tíma um- ræðuefni í komandi kjarasamningum. Flest bendir til að erfiðari tímar séu framundan á Íslandi en við höfum búið við um skeið. Sú þróun á húsnæðis- markaðnum, sem hér hefur verið lýst, getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir hinn almenna launþega, sem horfist í augu við stöðugt hækkandi afborganir af húsnæðislánum á mánuði hverjum. Það er því miður óhjákvæmilegt að ríkisstjórn og Alþingi taki þessa fram- vindu mála til alvarlegrar skoðunar. Og þó er erfitt að sjá hvað þing og stjórn geta gert til þess að breyta þessari þróun nema þá að taka á með Seðlabankanum og grípa til róttækra aðgerða til þess að kveða verðbólguna í kútinn. Ríkisstjórnin hefur tæki til þess, sem bankinn hefur ekki. SAMSTILLT ÁTAK UM RYKLAUSA REYKJAVÍK Í VETUR Ábyrgðartilfinning fólks gagnvartumhverfinu er að breytast, enda er ekki seinna vænna að fólk geri sér grein fyrir því hvaða áhrif gjörðir þess hafa. Tengslunum þarna á milli þýðir ekki að bægja frá sér því þótt sumir telji umhverfisáhrif lítið koma sér við þar sem þeirra muni ekki gæta fyrr en löngu eftir þeirra tíma er stað- reyndin sú að margt það sem við að- höfumst hér og nú hefur samstundis vond áhrif á umhverfi okkar og lífs- gæði. Eitt dæmi um slíkt er svifryk í andrúmsloftinu af völdum nagla- dekkja. Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hefur Umhverfissvið Reykjavík- urborgar sett af stað átak gegn svif- ryksmengun í borginni í vetur. Slag- orð þess er „Ryklaus Reykjavík – keyrum á ónegldum dekkjum“, en nagladekk eru vitaskuld vel þekktur þáttur í svifryksmengun. Eins og fram hefur komið, m.a. í umfjöllun Morgunblaðsins síðastliðinn vetur, veldur svifryk heilsufarsvanda sem er mörgum mjög íþyngjandi og notkun nagladekkja vegur þar mjög þungt. Bíleigendum standa ýmsir aðrir kostir til boða til þess að tryggja ör- yggi sitt í hálku; hægt er að velja um margvíslegar tegundir af vetrar- dekkjum sem eiga að duga flestum borgarbúum í ferðum þeirra um borg- ina að vetri til. Ekki má heldur gleyma því að þá fáu daga sem veru- leg hálka eða ófærð er til staðar er auðvitað góður kostur að skilja bílinn eftir heima og nýta sér almennings- samgöngur til að komast leiðar sinn- ar. Margir eru sem betur fer farnir að átta sig á því að þeir þurfa ekki á nagladekkjum að halda yfir vetrar- tímann en í því sambandi er einnig vert að hafa líka í huga að þegar akst- ursskilyrði eru slæm er það fyrst og fremst varkárni í umferðinni sem fækkar slysum. Þótt heilsuspillandi svifrykið vegi þyngst í baráttunni gegn nagladekkj- unum er jafnframt ástæða til að horfa í þann gríðarlega kostnað sem þeim fylgir. Í Morgunblaðinu í gær kom fram að gera má ráð fyrir að „nagla- dekk [slíti] akbrautum hundraðfalt meira en önnur dekk og að ætla megi að fólksbílar á negldum dekkjum frá meðalheimili spæni upp hálfu tonni af malbiki á ári og þyrli upp allt að 10 kg af heilsuspillandi svifryki“. Full ástæða er til að horfast í augu við vandann og hvetja borgarbúa til að taka þátt í átaki borgarinnar og njóta „ryklausrar Reykjavíkur“ á meðan vetur konungur ríkir. Væntan- lega vill enginn búa við það að svif- ryksmengun þar sem þeir búa fari 29 sinnum yfir heilsuverndarmörk á sól- arhring eins og gerðist síðatsliðinn vetur. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Um síðustu helgi var haldin alþjóðleg ráðstefnaum margbreytileika tungumála og menning-arheima á vegum Stofnunar Vigdísar Finn-bogadóttur. Ráðstefnan var liður í að efla tengsl við erlendar tungumála- og málvísindastofnanir, með nýja tungumálamiðstöð í huga. „Fræðimenn í fremstu röð á sviði tungumála- og menningarrannsókna miðluðu af reynslu sinni, auk þess sem þeir sýndu í nafni stofnana sinna mikinn samstarfsvilja,“ sagði Auður Hauksdóttir, forstöðumaður Stofn- unar Vigdísar Finnbogadóttur og dósent í dönsku við Háskóla Íslands. Ísland kjörinn vettvangur Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur er rannsóknastofnun í erlendum tungumálum innan Hugvísinda- deildar Háskóla Íslands. Starfsemi hennar beinist nú fyrst og fremst að þeim fjórtán tungumálum sem kennd eru við HÍ og eru helstu rannsóknarsviðin bókmenntir, málvísindi, menn- ingarfræði, tungumál og atvinnulíf, þýðingafræði auk tungumálakennslu. Auður Hauksdóttir telur stöðu Íslendinga sérstaka að mörgu leyti og Ísland því einstaklega góðan vettvang fyrir alþjóðlega tungumálamiðstöð af þessu tagi. „Við erum algerlega háð samskiptum við útlönd með svo margt, viljum ekki vera menningarlega einangruð og viljum geta farið út í heim og látið til okkar taka, t.d. á sviði vísinda, viðskipta og mannréttindamála. Það er okkur mikilvægt að ná árangri erlendis sem einstak- lingar, fyrirtæki eða þjóð og til þess eru tungumál lyk- ilatriði,“ segir Auður. Hún segir viðhorf Íslendinga til tungumála athygl- isverð, því Íslendingar hafi alltaf lagt áherslu á að læra erlend tungumál og jafnframt hafi þeir lagt rækt við móðurmálið. Þetta jákvæða viðhorf til fjöltyngis og rækt tungu veki jákvæða athygli víða erlendis. Því við miðlum af reynslu okkar og þekkingu á þes um til annarra þjóða. Oddur ekki bara í fjósinu Tungumálið segir Auður mjög miðlægt í menningu og nefnir hún því til stuðnings ke lendra tungumála, málrækt og bókmennta sem hafi borið hróður Íslands víða um lönd hún umræðuna í þjóðfélaginu um nýja þýði íunnar til marks um áhugann á móðurmálinu. „En ekki má gleymast að þýðingar á íslens ekki bara um móðurmálið. Mér finnst oft gle Oddur Gottskálksson var sigldur maður, dva egi, Danmörku og Þýskalandi og hefði tæp þýtt Nýja testamentið á íslensku nema af þv hafði vald á erlendum tungumálum og þekk menningarheima, myndin sem hefur verið okkur af Oddi í fjósinu segir því ekki nema una,“ segir Auður. Hún segir ljóst að stjórnvöld og stjórnmála áttað sig á mikilvægi tungumála og gott dæmi ávarp Geirs H. Haarde forsætisráðherra v ráðstefnunnar um helgina, sem hafi vakið já hygli margra erlendu fræðimannanna. Það k máli eins aðalfyrirlesarans að hann hefði ald stjórnmálamann tala af slíku innsæi og ski mikilvægi tungumála og fjöltyngis fyrir samfé Víðtækara hlutverk Það er vilji aðstandenda Stofnunar Vigdí bogadóttur að með alþjóðlegri tungumálam stofnunin víðtækara hlutverk en nú er raunin in verður rekin innan vébanda Háskóla Ísla ætlunin að hún verði formlega opnuð 15. apríl er stór dagur í lífi Vigdísar. Áform eru uppi ingu 3.000 fermetra húsnæðis fyrir starfsem staðsett verður á háskólalóðinni. Í alþjóðlegu tungumálamiðstöðinni verður k gagnabanka um tungumál og menningu á Færum útlöndin Háskólasvæðið Bygging tungumá urgötu eða Hótels Sögu og Suðurgö Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum hyggst koma á fót alþjóðlegri tungumálamiðstöð hér á landi. Miðstöðin myndi styrkja núverandi starf stofnunarinnar, auk þess að ljá henni nýja alþjóðlega vídd. Til- gangurinn er að stuðla að aukinni tungumála- kunnáttu og menningarlæsi hér á landi, auk þess að vekja athygli á heimsvísu á gildi slíkrar menntunar. Fjármögnun til verkefnisins stend- ur nú yfir, en Háskóli Íslands hefur þegar veitt vilyrði fyrir lóð undir starfsemina á háskóla- svæðinu og veitt styrk til byggingarinnar. Auður Hauksdóttir Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is JENS ALLWOOD er prófessor í almennum málvís- indum við Gautaborgarháskóla. Hann hefur mikið unn- ið að málefnum innflytjenda og vill leggja aukna áherslu á rannsóknir sem snúa að fjöltyngi innflytjenda á Norðurlöndum. Allwood er einn þeirra sem fylgt hafa hugmyndinni um alþjóðlega tungumálamiðstöð á Ís- landi eftir frá upphafi. Gott tækifæri fyrir Íslendinga Allwood segir mikla vakningu vera í heiminum hvað tungumál og mikilvægi þeirra fyrir samfélög varðar og það sé sjálfsagt fyrir Íslendinga að nýta sér tækifærin sem í því felast. Allwood hefur þegar staðið fyrir tveimur málþingum í Gautaborg til að vekja athygli á íslenska verkefninu. Hann segir þegar vera mörg svipuð verkefni í gangi í heiminum, m.a. í Þýskalandi, Bandaríkjunum og Eng- landi, en eins og er séu íslensku áformin þau einu sem uppi eru um slíkt á Norðurlöndum. „Í heiminum eru 6.800 tungumál svo það er ekkert at- hugavert við margar alþjóðlegar tungumálastöðvar og að hafa eina á Norðurlöndunum væri mikill stuðningur við þá vinnu sem hér fer fram,“ sagði Allwood. Hann segir það vissulega staðreynd að í viðskiptalífinu séu fjöltyngi litin hornauga og viðhorfin séu yfirleitt þau að mörg tungumál stofni til vand- ræða. Auknar fjárveitingar til rannsókna á tungumálum og fjöltyngi upp á síðkastið sýni þó að jákvæða viðhorfið sé ekki síður til staðar. Jákvæðar hliðar fjöltyngis Jens Allwood telur að það yrði vænlegt fyrir tungumálastöðina hér á landi ef hún leggði sérstaka áherslu á norrænt samhengi. Þá vissulega í tilliti til upprunalegu tungumálanna, mállýskna og smærri tungumála á þessu svæði, en ekki síst í ljósi þeirrar þróunar sem er orðin í innflytjendamálum og fjöltyngi sem því fylgir. Í því samhengi telur Allwood nauðsynlegt að hafa að leiðarljósi jákvæða þætti fjöltyngis og hvernig hægt sé að hjálpa fólki að viðhalda því. Algengt sé að innflytjendur missi tök á móðurmálinu eða miðli því ekki áfram til barna sinna. Með því glatist mikill auður og við því verði að sporna. Móðurmál innflytjenda eru einnig mikilvæg Jens Allwood PETER K. AUSTIN er forstöðumaður Hans Rausing-rannsóknaverk- efnisins á tungumálum í útrýmingarhættu (e. Endangered Languages Academic Programme) við Lundúnaháskóla og var meðal mælenda á ráðstefnu Stofnunar Vig- dísar Finnbogadóttur um síðustu helgi. Austin er áhugasamur um varðveis segir þá vinnu nokkuð se beri að miðla áfram. Hann er mjög bjartsýnn stofnun alþjóðlegrar tung á Íslandi og segir tímaset isins mjög góða. Mikil gró efnum tengdum tungumá áhugi meðal fræðimanna, fjármagnsaðila á hlutverk fjöltyngi í samfélögum. M mjög miklir á alþjóðlegu Austin telur þátt Vigdí bogadóttur í þróun alþjóð miðstöðvar hérlendis afar sem hún sé vel þekkt og h tungumála á mörgum svi UNESCO. Aðalverkefni stofnunar únum, er að þjálfa háskól heimildum um tungumál arhættu. Stofnun Austins fremstu röð við þróun ný kenninga um slíka heimil Mörg sam af árangr

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.