Morgunblaðið - 09.11.2007, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2007 35
þakklæti fyrir allt sem hann hefur
veitt okkur.
Karl Jóhann og Oddur Ás.
Elsku afi.
Nú ertu kominn til ömmu eftir níu
ára fjarveru. Ég veit að þér líður vel
núna og þú ert kominn til Guðs. Það er
erfitt fyrir okkur sem eftir sitjum að
sætta okkur við að þú sért ekki lengur
hjá okkur, en allt hefur sinn tíma.
Við höfum átt margar góðar stundir
saman í gegnum árin. Það var alltaf
gaman þegar stelpurnar komu frá
Eyjum til ykkar ömmu því ég Reykja-
víkurstelpan fékk alltaf að vera með.
Amma sendi okkur tvö til að kaupa
kjúkling fyrir okkur stelpurnar og þú
varst alltaf til í að fara og kaupa kjúk-
ling fyrir okkur þó svo að þú hafir ekki
borðað fuglakjöt.
Ásendi var unaðsreiturinn okkar
allra í fjölskyldunni og þær voru ófáar
ferðirnar sem við fórum þangað sam-
an. Þegar við Kalli bróðir vorum yngri
fengum við oft að fara með ykkur
ömmu og vera með ykkur eina helgi
eða lengur, þar var alltaf nóg að gera
og mikið brallað. Eftir að ég fékk bíl-
prófið fékk ég að vera bílstjóri fyrir
ykkur ömmu þegar við fórum saman
austur. Eftir að amma dó fórum við
tvö nokkrum sinnum upp í bústað og
áttum saman notalegar stundir. Ég á
bara góðar minningar frá tímanum í
Ásenda, þangað var alltaf gott að
koma og gott að vera.
Við höfum spilað mikið saman í
gegnum tíðina. Í fyrstu fékk ég alltaf
að vinna þig en eftir því sem árin liðu
færðist meira kapp í leikinn hjá okkur
enda vorum við bæði mjög tapsár. Við
áttuðum okkur á því að það væri lík-
lega best fyrir okkur að sleppa spil-
unum því við æstum okkur svo yfir
þessu.
Við fórum í marga bíltúra saman.
Þú vissir alltaf hvaða leið þú vildir
fara og það var eins gott að velja réttu
leiðina. Í fyrstu gerði ég mér ekki
grein fyrir því hvers vegna þú vildir
fara einhverja ákveðna leið en ég var
ekki lengi að læra að það margborg-
aði sig að fara þína leið. Því var viss-
ara að spyrja þig þegar haldið var af
stað hvað leið skyldi fara.
Mér fannst alltaf gaman að koma í
heimsókn til þín því þú naust þess að
fá gesti. Ef þú varst þreyttur þá
fórstu bara inn og lagðir þig en vildir
ekki að ég færi. Síðasta vetur kom
það fyrir að við sofnuðum bæði þegar
ég kom í heimsókn, ég í stólnum við
tölvuna og þú uppi í rúmi eða öfugt.
Elsku afi, ég er afar þakklát fyrir
allan þann tíma sem við höfum átt
saman. Síðustu vikur áttum við afar
dýrmætar stundir þegar ég skutlaði
þér upp á göngudeild. Þú varst alltaf
jafnánægður að sjá að Kristbjörg
Ásta, dóttir mín, væri með mér enda
varstu barngóður með eindæmum.
Þér fannst svo notalegt að leyfa henni
að hvíla í fangi þér uppi í rúmi eða
leika við hana í kerrunni. Þó að hún sé
aðeins 5 mánaða var hún alltaf ánægð
með að koma til langafa. Í síðustu
heimsókn sinni til þín vildi hún fá að
koma til þín og knúsa þig, ég kom með
hana til þín og þú kysstir hana bless.
Elsku besti afi, ég sakna þín.
Salóme Huld.
Elsku afi.
Eins erfitt og það er að kveðja þig,
þá erum við sannfærðar um að þér líði
betur núna, laus við alla verkina og
kominn aftur í faðm ömmu Diddu.
Þegar við hugsum til baka er
stríðni það fyrsta sem kemur upp í
hugann. Þegar við vorum yngri var
það hin mesta skemmtun að láta afa
Kalla telja á sér tærnar. Bara svona
til að kanna hvort þær væru ekki
örugglega 10. Þessu fylgdi yfirleitt
mikið kitl og mikill hlátur af beggja
hálfu. Barnabarnabörnin sluppu
heldur ekki við þessa stríðni og þykir
okkur mjög sárt að Hilmir Þór og
önnur nýfædd barnabarnabörn fái
ekki að kynnast honum afa okkar.
Minningarnar úr sumarbústað
ykkar ömmu eru okkur mjög kærar.
Við munum ekki eftir einni ferð þar
sem ekki var farið niður í fjöru eða
gengið yfir Reynisfjall. Síðan þurfti
að merkja við hversu mikið maður
hefði stækkað síðan síðast á vegg inni
í herbergi ykkar ömmu. Á leiðinni
austur nefndir þú alla bæi sem við
keyrðum framhjá og hverjir bjuggu
þar. Skipti þá engu þótt við værum
búin að gleyma þessu öllu á bakaleið-
inni, heldur var þetta allt saman rifjað
upp fyrir okkur.
Ýmislegt annað kemur upp í hug-
ann þegar hugsað er til baka. Þú varst
mikill áhugamaður um lestur góðra
bóka og þegar sjónin fór að gefa sig
tóku hljóðbækurnar við. Ættfræði
var einnig mikið áhugamál hjá þér.
Öllum þeim sem ekki tilheyrðu nán-
ustu fjölskyldu var samstundis flett
upp í sérlega flottu ættfræðiforriti
sem var mikið notað.
Elsku afi, takk fyrir allar ógleym-
anlegu stundirnar í gegnum árin. Við
fjölskyldan munum halda áfram að
hittast og rifja upp sögur af þér og
ömmu og halda þannig áfram að
rækta fjölskylduböndin eins og þér
þótti svo vænt um.
Bless, elsku afi Kalli, þín verður
sárt saknað.
María og Eyrún.
Fleiri minningargreinar um Karl
Jóhann Gunnarsson bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
✝
Elskuleg eiginkona mín
HERDÍS HAUKSDÓTTIR
leikskólakennari,
Laugartúni 6b,
Svalbarðseyri,
sem lést aðfaranótt þriðjudagsins 6. nóvember á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, verður jarð-
sungin frá Svalbarðskirkju föstudaginn 16. nóvem-
ber kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jakob Björnsson
✝
Ástkær sambýliskona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
HELGA GUÐJÓNSDÓTTIR,
Dalbraut 21,
áður Stangarholti 26,
sem lést sunnudaginn 4. nóvember s.l., verður
jarðsungin frá Fossvogskapellu þriðjudaginn
13. nóvember kl. 13:00.
Sveinn Teitsson,
Ágústa Bárðardóttir, Þorsteinn Þorsteinsson,
Guðbjörg Bárðardóttir, Garðar Einarsson,
Elínborg Bárðardóttir, Ómar Sigfússon,
Sigurbjörn Bárðarson, Fríða Steinarsdóttir,
Bárður Bárðarson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN FRIÐRIKSSON
frá Stóra Ósi,
Miðfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð, Garðabæ,
aðfaranótt miðvikudagsins 7. nóvember.
Jarðarförin auglýst síðar.
Þorgerður Jónsdóttir,
Friðrik Jónsson, Oddrún Sverrisdóttir,
Sævar Jónsson, María Gunnarsdóttir,
Sólrún Jónsdóttir, Ólafur Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, dóttir mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
KLARA SIGURGEIRSDÓTTIR,
Kríuási 47,
Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum Fossvogi miðvikudaginn
7. nóvember.
Útförin verður auglýst síðar.
Sigurður L. Jónsson,
Guðrún Karlsdóttir,
Sigurgeir Sigurðsson, Nana Mardiana,
Fanney Sigurðardóttir, Ágúst Þórðarson,
Guðrún Halla Sigurðardóttir, Zófanías Eggertsson
og barnabörn.
✝
SIGURÐUR GRÉTARSSON
framkvæmdastjóri,
Skipalæk,
Fellahreppi,
lést sunnudaginn 4. nóvember.
Gréta Jóna Sigurjónsdóttir,
Sigurjón Torfi Sigurðarson,
Þórunn Gréta Sigurðardóttir,
Kristín Arna Sigurðardóttir,
Þórunn A.M. Sigurðardóttir, Grétar Þór Brynjólfsson
og aðrir aðstandendur.
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma
og systir,
HJÖRDÍS ANTONSDÓTTIR,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja
5. nóvember.
Útför fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 10. nóvember kl. 14:00.
Minningarathöfn og jarðsetning fer fram frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 13. nóvember nk. kl.
11:00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóhannes Ólafsson og Svanhildur Guðlaugsdóttir
✝
Elskuleg móðir okkar,
STEINGERÐUR JÚLÍANA JÓSAVINSDÓTTIR,
Brakanda,
Hörgárbyggð,
sem lést á Dvalarheimilinu Hlíð að morgni 31. októ-
ber, verður jarðsungin frá Möðruvöllum í Hörgárdal
laugardaginn 10. nóvember kl. 14:00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á að láta
Dvalarheimilið Hlíð eða aðrar líknarstofnanir njóta
þess.
Börn hennar og aðrir aðstandendur.
✝
Elskulegur faðir okkar, sambýlismaður, bróðir og
fóstri,
RAFN EINARSSON
(Rabbi),
lést af slysförum við vinnu sína í Leksand í Svíþjóð
mánudaginn 5. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Arnar Snær Rafnsson,
Sindri Daði Rafnsson,
Elín Ólöf Eiríksdóttir,
systkini hins látna og fósturbörn.
✝
Hjartkær bróðir okkar,
KJARTAN HERBJÖRNSSON,
Snæhvammi,
Breiðdal,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað miðvikudaginn
7. nóvember.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Systur hins látna.
alla tíð. Minningarnar frá Skálmardal
eru ljúfar. Borgarbarninu var hollt að
kynnast lífi og starfi í sveitinni, það
var veganesti til lífstíðar. Fyrir það
skal þakkað að leiðarlokum.
Jónas Haraldsson.
Elsku langafi minn, ég sakna þess
mjög að fá símhringingar frá þér og
geta hringt í þig. Þú hringdir alltaf í
mig þegar ég var búinn í skólanum og
mamma var ennþá að vinna. Þú spurð-
ir mig alltaf hvort ég væri ekki hress
og kátur, hvernig hefði verið í skól-
anum og hvað ég væri að gera. Þú
spurðir líka alltaf hvort það væri ekki
örugglega gott veður á Selfossi, annað
gæti nú bara ekki verið. Við töluðum
alltaf lengi saman og það var mjög
skemmtilegt að spjalla við þig og mér
leið mjög vel á eftir, því það var svo
gaman að tala við þig. Það var alltaf
gott að koma í heimsókn til þín, þú átt-
ir alltaf svo góðar kökur og bjóst til
besta grjónagraut í heimi og þú áttir
svo skemmtilegt dót. Þér leist nú samt
ekki vel á þá hugmynd mína að þú
fengir þér Playstation-tölvu. Þú varst
alltaf að gera eitthvað, gera við og
dunda þér í bílskúrnum.
Það var rosalega gaman að fara
með þér á Kirkjuból, þér leið alltaf svo
vel þar, fara niður í fjöru og týna með
þér skeljar. Við fórum líka saman upp
í fjárhús og þú sagðir mér hvernig allt
hefði verið þar, hvað þú hefðir gert á
Kirkjubóli þegar þú varst lítill og
hvernig húsin og dótið voru þá. Það
verður skrýtið að fara þangað án þin,
en ég veit að þú verður samt örugg-
lega með í för. Ég sakna þín mjög
mikið, en ég veit að þú ert núna hjá
langömmu, veit að þér líður vel og þú
getur farið á Kirkjuból þegar þú vilt
og hugsað um allar góðu minningarn-
ar sem við öll eigum með þér. Ég veit
að þú ert að fylgjast með okkur öllum
og munt passa okkur öll.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Þinn
Brynjar Daði.
Fleiri minningargreinar um Bær-
ing Valgeir Jóhannsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blaðinu á
næstu dögum.