Morgunblaðið - 09.11.2007, Qupperneq 39
✝ Steinarr Krist-jánsson, f.v.
skipstjóri og hafn-
sögumaður, fæddist
á Flateyri við Ön-
undarfjörð hinn 28.
janúar 1913. Hann
lést á Hrafnistu DAS
hinn 4. nóvember
síðastliðinn, hátt á
95. aldursári. For-
eldrar hans voru
Kristján Ásgeirsson,
verslunarstjóri Ás-
geirsverslunar og
síðar Sameinuðu
verslananna á Flateyri, f. 21.2.
1877, d. 21.9. 1965, ættaður frá
Skjaldfönn í Nauteyrarhreppi við
Ísafjarðardjúp, og kona hans Þor-
björg Guðmundsdóttir, ættuð frá
Höll í Haukadal í Dýrafirði, f. 1.9.
1873, d. 7.7. 1942. Kristján og Þor-
björg giftust árið 1900 og bjuggu á
Ísafirði til 1907 og á Flateyri frá
1907 til 1928 og eftir það í Reykja-
Rögnvaldur sjómaður, f. 1917, d.
1980, kvæntur Svövu Guðmunds-
dóttur, látin.
Hinn 9. júní 1945 kvæntist Stein-
arr Þórunni K. Hafstein hús-
mæðraskólakennara, f. 20. mars
1922, d. 19. júlí 1995, dóttur Júl-
íusar Havsteen, sýslumanns Þing-
eyinga á Húsavík, f. 13. júlí 1885, d.
1960 og Þórunnar Jónsdóttur Hav-
steen húsmóður, f. 1888, d. 1939.
Dóttir þeirra er Þórunn Júlía flug-
freyja og leiðsögumaður, f. 24.12.
1945, var gift Hauki Jónassyni
lækni, f. 30.5. 1929. Þau slitu sam-
vistum. Sonur þeirra er Jónas
Sveinn, f. 27.10. 1973, sambýlis-
kona hans er Sandy Nausch, þýskr-
ar ættar. Sonur Þórunnar og Óm-
ars Tómassonar flugstjóra, f. 1934,
d. 1970, er Steinarr Kristján lög-
reglumaður í Reykjavík, f. 3. maí
1968, kvæntur Úlfhildi Ösp Ingólfs-
dóttur, f. 8.12. 1967, dóttir þeirra
er Helena Júlía, f. 20. febrúar 2002.
Útför Steinars verður gerð frá
Bústaðakirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 11.
Jarðsett verður í Fossvogs-
kirkjugarði.
vík. Steinarr var
næstyngstur 10
barna þeirra hjóna,
en þau voru: 1) Sól-
veig, f. 1900, d. 1915,
úr berklum; 2) Ástríð-
ur, f. 1902, d. sama
ár; 3) Helga hús-
móðir, f. 1903, d.
1982, gift Guðmundi
Sigurðssyni skrif-
stofustjóra, látinn; 4)
Magnús Guðjón skrif-
stofustjóri Slipp-
félagsins, f. 1904, d.
1993, kvæntur Svövu
Sveinsdóttur, látin; 5) Ásgeir loft-
skeytamaður, f. 1906, d. 1935, úr
berklum; 6) Elínborg húsmóðir, f.
1908, d. 1978, gift Edwin Árnasyni
iðnrekanda, látinn; 7) Guðmundur
skipamiðlari, f. 1909, d. 1998,
kvæntur Gróu Ólafsdóttur, látin; 8)
Jón Hákon stýrimaður, f. 1911,
fórst með e/s Heklu í júní 1941; 9)
Steinarr, sem hér er minnst; og 10)
Nú er afi farinn í sína hinstu ferð.
Hann var hetjan mín. Mínar fyrstu
minningar um afa voru þegar ég fékk
að heimsækja hann um borð í skipið
hans þegar hann kom í höfn. Fyrir lít-
inn strák var það alvöruævintýri sem
var gert enn stærra með sögunum af
sjónum, úr stríðinu og siglingum til
fjarlægra landa og heimshluta eins og
Afríku og í gegnum Panamaskurðinn.
Þessar sögur voru betri og raunveru-
legri en þær sem maður las í bókum.
Þegar afi hætti á sjónum gerðist
hann stöðvarstjóri yfir olíustöð NATO
í Hvalfirði. Þangað réð hann mig í
vinnu sem verkamann í tvö sumur
þegar ég var 15 og 16 ára gamall. Það
held ég að hafi gert okkur báðum gott.
Þá kynntist ég afa vel og hann fékk að
hafa „nafna“ nálægt sér og kenna
honum ýmislegt.
Eftir að afi komst á eftirlaun tók
hann að sér að hugsa um ömmu, sem
hafði alla tíð þurft að berjast við erf-
iðan hjartasjúkdóm. Þau elskuðu
hvort annað alltaf mjög mikið og fann
ég hvað þau báru mikla virðingu hvort
fyrir öðru. Afi vildi allt fyrir ömmu
gera og bar hana á höndum sér. Hún
yfirgaf okkur miklu fyrr en afi og ég
veit að hann saknaði hennar ætíð.
Afi, ég veit að þú ert hvíldinni feg-
inn. Ég óska þér velfarnaðar á veg-
ferð þinni og er þess fullviss að amma
tekur vel á móti þér. Ég sakna þín.
Steinarr Kr.
Í aftureldingu 4. nóvember 2007
andaðist móðurbróðir minn og sjó-
hetjan Steinarr Kristjánsson. Við
andlát hans hafa öll 10 börn afa míns
og ömmu, þeirra Þorbjargar og Krist-
jáns Ásgeirssonar, frá Flateyri, kvatt
þetta jarðlíf.
Er ég kom að dánarbeði hans þenn-
an sunnudagsmorgun, hafði hjúkrun-
arfólkið komið litlum postulínsskildi
með árituðu versi fyrir á náttborðinu
við beð hans. Textinn staðfestir á sinn
ljúfa hátt giftusaman og auðnuríkan
55 ára starfsferil Steinars:
Mitt fley er lítið en lögurinn stór
og leynir þúsundum skerja
en aldrei mun granda brim né sjór
því skipi, er drottinn má verja.
(Höf. ók.)
Á þeim skipum, sem Steinarr var á
kom aldrei neitt fyrir, engin alvarleg
slys né skaðar, utan botnskaða á
Langá við brottför frá bryggju í Rifs-
höfn á Snæfellsnesi 1972.
Ég nefndi, að ég liti á frænda minn
sem sjóhetju og tel það ekki ofmælt,
því engan veit ég, sem á stríðsárunum
síðustu fór jafn oft yfir hættusvæði
Atlantsála með ísaðan fisk til Bret-
lands og Steinarr; 6 túra með Skaft-
fellingi frá Eyjum, 2 túra með Jarlin-
um frá Siglufirði og 61 túr með Júní
frá Hafnarfirði. Í bókinni Mennirnir í
Brúnni eftir Guðmund Jakobsson, bls.
98, er frændi spurður um óttann: „Ég
lét ekkert á mig fá þó Jón Hákon
bróðir (fórst með e/s Heklu í júni
1941) færi svona, það hvarflaði ekki að
mér að hætta siglingum vegna stríðs-
hættunnar, – sofið, jú ég gat alltaf sof-
ið, það hefði ekki þýtt að vera í þessu
án þess. Auðvitað vissi maður af tund-
urduflum hér og þar og sáum þau oft í
björtu en í myrkrinu var ekki annað
að gera en láta skeika að sköpuðu
......auðvitað þurfti stáltaugar í þetta
þegar til lengdar lét. Einu sinni var
gerð árás, það var flugvél. Ég var ekki
uppi, lá niðri og var að lesa Tunglið og
tíeyringurinn eftir Somerset Maug-
ham. Ég fór samt ekki uppí brú, held-
ur beint að byssunni og bjó mig undir
að dúndra á helvítið, ef hún kæmi aft-
ur, sem hún gerði ekki. Hafði kastað
fjórum sprengjum, sem hittu ekki og
við sluppum óskaddaðir“. Ennfremur:
„2. ágúst 1942 í öðrum túr mínum sem
skipstjóri, var ég svo heppinn að
bjarga 30 mönnum. Það bar svo til að
við sáum flugvél hringsóla lágt yfir sjó
og töldum við að hún væri að vekja at-
hygli á einhverju. Við héldum í áttina
og þegar kom á staðinn voru þar fyrir
30 skipbrotsmenn í lífbátum. Við tók-
um þá um borð og hlúðum að þeim, en
á þetta mátti aldrei minnast, það var
hernaðarleyndarmál“.
Sjómennsku stundaði hann sleitu-
laust í 46 ár, frá 17 ára aldri 1930, er
hann munstraði sig á „Eljuna“ hjá
Guðmundi Júní, þar til hann hætti á
Laxá II árið 1976. Hann kom við á
fjölda síldveiði- og botnvörpuskipa,
lengst var hann á ‘Gulltoppi’ og ‘Júní’,
tæp 5 ár á hvoru. Hann tók fiski-
mannapróf vorið 1939 og farmanna-
próf vorið 1947 og þá hófst seinni kap-
ítuli sjómennsku Steinars, far-
mennskan. Hann var stýrimaður og
skipstjóri hjá útgerð Foldar, á skipum
Sambandsins um 7 ára skeið, 1957-‘59
hafnsögumaður í Reykjavík. Varð
skipstjóri skipa Hafskipa frá 1959 til
vors 1976. Steinarr starfaði á 31 skipi
á ferli sínum til sjós. Eftir komu sína í
land hófst 10 ára starf hans sem stöðv-
arstjóri olíustöðvar NATO í Hvalfirði.
Steinarr settist í helgan stein 1986.
Steinarr var hamingjusamlega
kvæntur yndislegri konu, henni Þór-
unni Hafstein frá Húsavík, sem hann
missti 1995. Ég votta einkadótturinni,
sonum hennar og fjölskyldum þeirra,
dýpstu samúð. Blessuð sé minning
frænda míns.
Gylfi.
Gamall og góður vinur hefur nú lagt
upp í sína síðustu sjóferð. Ég hef
þekkt Steinarr allt mitt líf og á um
hann ljúfar minningar sem tengjast
sérstaklega jólahátíðinni og áramót-
um þegar ég var barn og unglingur.
Steinarr var sjómaður í húð og hár og
því skiljanlega mikið í burtu frá fjöl-
skyldu og vinum. Það ríkti oft mikil
spenna í loftinu í kringum þessar há-
tíðir, hvort Steinarr yrði nú í landi eða
ekki, því litla fjölskyldan hans varði oft
og tíðum þessum hátíðarstundum með
mér og fjölskyldu minni á Brávallagöt-
unni. Ef svo vel vildi til að svo væri,
var „Hátíð í bæ“ og lék Steinarr við
hvern sinn fingur og við okkur heima-
sæturnar tvær. Mér fannst hann bæði
fyndinn og skemmtilegur og voru orð
hans oft hnyttin og hittu þá í mark –
smáhlátur fylgdi svo í kjölfarið. Ég
minnist líka ævintýraferðar á einu af
„Fellunum“ hans þegar hann tók mig
og Djúlý með sér í sjóferð um vest-
urströnd Íslands. Vinsældir hans um
borð fóru ekki fram hjá mér, þótt ung
væri að árum, frekar en stjórnunar-
hæfileikar hans sem skipstjóri og yf-
irvald.
Ég kveð þennan vin minn og
„frænda“ með orðum Arnar Arnar-
sonar sem mér finnast vel við hæfi
hér:
Íslands Hrafnistumenn
eru hafsæknir enn,
ganga hiklaust á orustuvöll,
út í stormviðrin höst,
móti straumþungri röst,
yfir stórsjó og holskefluföll,
flytja þjóðinni auð,
sækja barninu brauð,
færa björgin í grunn undir framtíðarhöll.
Við fjölskyldan sendum elsku Djúlý,
strákunum hennar og fjölskyldum
þeirra innilegar samúðarkveðjur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
(V. Briem)
Þórunn Hafstein (Djonsý).
Steinarr Kristjánsson
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2007 39
Mér er það sannur heiður að
hafa kynnst Steinari Krist-
jánssyni. Guð blessi minn-
ingu hans.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Úlfhildur Ösp Ingólfsdóttir.
Nú er langafi farinn í kist-
unni til himnaríkis. Guð
passar hann.
Helena Júlía Steinarsdóttir.
HINSTA KVEÐJA
✝
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem
sýndu okkur samúð, hlýhug og stuðning við andlát
og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR KRISTINSDÓTTUR,
Sæviðarsundi 42.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi, deildar 11 E á Landspítal-
anum og Karitasar fyrir alúð og góða umönnun.
Kristján G. Jóhannsson,
Kristín Kristjánsdóttir, Jón Sigurðsson,
Brynja Kristjánsdóttir,
Hildur Kristjánsdóttir, Jón F. Sigurðsson,
Þór Kristjánsson, Birna Jóna Jóhannsdóttir,
Elmar Kristjánsson, Margrét Sigfúsdóttir,
Kristján G. Kristjánsson, Pálína R. Sigurðardóttir,
Dagmar Kristjánsdóttir,
Ómar Ægir Kristjánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát okkar ástkæru eigin-
konu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÍÐAR KRISTBJARGAR STEFÁNSDÓTTUR,
Skarðshlíð 23E,
Akureyri.
Starfsfólki á lyflækningadeild Fjórðungssjúkrahúss
Akureyrar og heimahlynningu eru færðar innilegar
þakkir fyrir góða umönnun og alúð.
Guð blessi ykkur öll.
Eggert Ólafsson,
Sigurlaug Anna Eggertsdóttir, Bergvin Jóhannsson,
Steinunn Pálína Eggertsdóttir, Jóhann Jóhannsson,
Stefán Eggertsson,
Elín Valgerður Eggertsdóttir, Hilmar Stefánsson,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Elskulegur eiginmaður, besti vinur, faðir, tengda-
faðir og afi,
EÐVALD GUNNLAUGSSON,
lést þann 5. nóvember.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn
12. nóvember kl. 15.00.
Málfríður Eyjólfsdóttir,
Edda Eðvaldsdóttir, Þór Þorvaldsson,
Eðvald, Brynjar og Þórdís,
Halldór Eyjólfsson.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÁSTA FINNSDÓTTIR
frá Ísafirði,
til heimilis að Lönguhlíð 15,
Reykjavík,
lést aðfaranótt fimmtudagsins 1. nóvember á
Líknardeild Landakotsspítala.
Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn
12. nóvember kl. 15:00.
Læknum og hjúkrunarfólki á líknardeild og Landspítala Fossvogi eru
færðar innilega þakkir fyrir góða umönnun og alúð.
Bragi Ragnarsson, Jónína Gissurardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartanlega þökkum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýjan hug við andlát og útför
POUL ANKER HANSEN,
Boðahlein 30,
Garðabæ,
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Karlsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför elsku móður okkar,
tengdamóður, systur, ömmu og langömmu,
SIGURBJARTAR KRISTJÁNSDÓTTUR
(Sibbu),
Sólvöllum á Eyrarbakka,
áður Móakoti, Stokkseyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalarheimilis
aldraðra að Sólvöllum á Eyrarbakka fyrir umhyggju og kærleiksríkt
viðmót í garð hinnar látnu.
Kristján Sigurðsson, Ingunn Guðbjartsdóttir,
Borgar Þorsteinsson, Elín Ingólfsdóttir,
Þórunn Sólveig Kristjánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.