Morgunblaðið - 09.11.2007, Page 44
44 FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
GRETTIR, ÞÚ
LIGGUR ALLT
OF MIKIÐ Í LETI!
ÞÚ ÞARFT AÐ
HREYFA ÞIG MEIRA! ÞÚ GETUR EKKI BARISTGEGN NÁTTÚRUÖFLUNUM,
ELSKAN MÍN
MATURINN ER
TIL, HERRA MINN!
KALDHÆÐNI SKEMMIR
ALLTAF MATARLYSTINA
HVAÐ
ÞYKIST ÞÚ
EIGINLEGA
VERA AÐ
GERA
HÉRNA?!?
ÉG GERI
ÞAÐ SEM
ÉG VIL!
ÞAÐ ER EKKERT MÁL
AÐ KASTA SPJÓTI...
HALTU BARA UM
MITT SPJÓTIÐ,
HALLAÐU ÞÉR AFTUR
OG KASTAÐU SÍÐAN
HEYRÐU...
ÉG GLEYMDI
VÍST EINU
ÞETTA
HLÝTUR AÐ
VERA MJÖG
FÍNT HÓTEL!
SUMIR FORELDRARNIR
HÉRNA ERU FREKAR SKRÍTNIR
ÞESSI HELDUR TIL
DÆMIS AÐ HANN SÉ AÐ
ÞJÁLFA KRAKKANA TIL AÐ
VERA Í HERNUM
ÞAÐ GENGUR SAMT
ÁGÆTLEGA HJÁ
HONUM
AF
STAÐ! ÁFRAM GAKK!
EINN, TVEIR!
EINN, TVEIR!
ÉG LENTI Á ÖRYGGISNETINU! EN ÉG VAR VISS UM AÐ ÉG
MUNDI LENDA Á VEGGNUM!
OG ÞAÐ HEFÐI GERST...
HEFÐI ÉG EKKI VERIÐ HÉR
dagbók|velvakandi
Frábærir tónleikar
Mig langar að segja frá frábærum
tónleikum sem ég var á 4. nóvember
sl., tónleikum Listafélags Langholts-
kirkju. Eyþór Ingi Jónsson organisti
Akureyrarkirkju og kórstjóri Hym-
nodia hélt orgeltónleika þar sem
hann lék barokktónlist eftir helstu
höfunda þess tímabils. Meðan hann
lék var varpað upp upplýsingum um
tónskáldin og tónlistina, samtímis var
varpað á risatjald beinni upptöku af
höndum og fótum organistans sem
gaf tónleikagestum færi á að sjá það
sem langflestir sjá aldrei á tón-
leikum. Þetta var einstök upplifun.
Eyþór spilaði frábærlega og þetta
form opnaði tónlistina fyrir manni á
einstakan hátt þannig að maður naut
hennar mun frekar. Listafélag,
áfram á sömu braut!
Elfa Brynja.
Laun fatlaðra
Ég las nýverið forsíðugrein í Frétta-
blaðinu þess efnis að mánaðarlaun
fatlaðra í Bjarkarási væru 4.200 kr.
Nú er Bjarkarás frekar hæfingarstöð
en fyrirtæki sem heldur úti inn-
stimpluðum starfsmönnum. Sonur
minn er öryrki og hefur verið á sam-
býli í nokkur ár. Hann komst loks að í
Ásgarði í Mosfellsbæ fyrir stuttu og
var það þvílíkur léttir fyrir fjölskyld-
una alla, svo og hann. Við lítum fyrst
og fremst á þetta sem tækifæri til
endurhæfingar, þ.e. að hafa eitthvert
hlutverk og komast innan um annað
fólk. Sonur minn hékk meira og
minna inni allan daginn við rúmið,
einangraðist og sneri sólarhringnum
við. Nú fer hann í Ásgarð 4 daga vik-
unnar og er að komast meira og
meira út úr sinni einangrun. Hann
fær létta föndur-„vinnu“ eða ein-
hvern tilgang sem skilar árangri
þessa daga. Ég lít því á þetta sem
þjálfun til betra lífs en ekki launa-
vinnu enda skerðast örorkubæturnar
við nokkrar krónur, ekki satt?
Harpa Karlsdóttir
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
LITIÐ hefur verið á hjólreiðar sem góða útivist og hreyfingu en það færist
stöðugt í vöxt að reiðhjólið sé notað sem samgöngutæki. Þá kjósa einnig
margir að nota almenningsvagna.
Morgunblaðið/Kristinn
Mismunandi val á samgöngutækjum
FRÉTTIR
JÓLAKORTASALAN er hafin hjá
Hjartaheill, landssamtökum hjarta-
sjúklinga.
Jólakortin eru með myndum eftir
listakonuna Gunnellu. Þetta er
þriðja árið í röð sem Gunnella gefur
samtökunum slíkan afnotarétt af
listaverkum sínum. Myndirnar eru
tvær og eru úr sömu seríu og fyrir
síðustu jól. Þær heita „Skautað í
kringum snjókall“ og „Skautaferð“.
Hægt er að hringja í síma 552-
5744 og panta kort eða senda tölvu-
póst á hjartaheill@hjartaheill.is
Pakkinn með 10 kortum kostar 1.000
kr. Nánari upplýsingar um sölustaði
eru á vefnum hjartaheill.is
Jólakort
Hjartaheilla
komið út