Morgunblaðið - 19.01.2008, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 21
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
hann hefði ákveðið að ráða sig í starfið á sín-
um tíma.
Starfsemi HSU skiptist í meginatriðum í
þrennt: Heilsugæslu, sjúkrahús og hjúkrun-
ardeildir aldraðra. Heilsugæslustöðvar eru
átta, frá Þorlákshöfn og Hveragerði í vestri
og til Kirkjubæjarklausturs í austri. Sjúkra-
hús er á Selfossi þar sem m.a. er veitt þjón-
usta í fæðingar- og kvensjúkdómalækningum,
skurðlækningum, lyflækningum, myndgrein-
ingu, rannsóknum og sjúkraþjálfun. Í ný-
byggingunni verða síðan tvær hjúkrunar-
deildir fyrir aldraða, samtals 40 rúm. Þá
annast stofnunin alla sjúkraflutninga á Suður-
landi, ásamt því að reka Réttargeðdeildina að
Sogni þar sem vistaðir eru ósakhæfir ein-
staklingar.
2 milljarðar í veltu
Á fjárlögum ársins 2008 er fjárveiting til
HSu um 1.750 milljónir kr. og til Réttargeð-
deildarinnar um 195 milljónir. Heildarvelta
þessar starfsemi er því tæpir tveir milljarðar
á þessu ári. „Starfsemin er enn í svipuðu horfi
og fyrir sameiningu. Betur hefur þó gengið að
ráða í lausar læknastöður, geðlæknisþjónusta
hefur verið aukin á Sogni og Litla-Hrauni,
iðjuþjálfun barna er nýbyrjuð og heimahjúkr-
un utan dagvinnutíma hefur verið aukin á
þjónustusvæði heilsugæslustöðvanna í Hvera-
gerði, Þorlákshöfn og á Selfossi. Með tilkomu
nýbyggingarinnar styrkist þjónustan enn
frekar með fleiri hjúkrunarplássum fyrir aldr-
aða og bættri aðstöðu fyrir bráðaþjónustu og
Selfoss | Ný viðbygging við Heilbrigðisstofn-
un Suðurlands (HSU) verður tekin í notkun
næstkomandi fimmtudag. Nýbyggingin er
þrjár hæðir auk kjallara. Áætlaður kostnaður
við bygginguna er 1,5 milljarðar króna.
Á 2. og 3. hæð verða tvær 20 rúma hjúkr-
unardeildir fyrir aldraða, á 1. hæð verður
heilsugæslustöð og í kjallara aðstaða fyrir
endurhæfingu, kapellu, fundi og kennslu,
tæknirými, geymslur ofl. Hver hæð er um
1300 ferm., samtals rúmlega 5.200 ferm. Arki-
tekt er Helgi Hjálmarsson en Framkvæmda-
sýsla ríkisins hefur haft umsjón með fram-
kvæmdum.
Sjúklingar á hjúkrunardeildinni Ljósheim-
um á Selfossi munu um næstu mánaðamót
flytjast yfir í nýju bygginguna.
Heillandi sameining
Magnús Skúlason tók við stöðu fram-
kvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunar Suður-
lands 1. september 2004 við sameiningu heil-
brigðisstofnana á Suðurlandi. Áður hafði hann
starfað í fjögur ár á fjármáladeild heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytisins. „Mér fannst
þessi sameining heillandi verkefni og áhuga-
vert að fá að stýra uppbyggingu þessarar
nýju stofnunar. Taldi mig hafa góðan und-
irbúning til þess vegna fyrri starfa. Það var
líka ágætt að breyta um umhverfi, en einnig
vegna fyrri tengsla við Suðurland, ég var í
sveit í Rangárvallasýslu á árum áður og á
ættir að rekja þangað í báðar ættir,“ sagði
Magnús þegar hann var spurður af hverju
endurhæfingu. Þá stendur til að styrkja þjón-
ustu í geðheilbrigðismálum,“ kom fram hjá
Magnúsi þegar hann var spurður hvort starf-
semin hefði vaxið mikið eftir sameininguna.
Hjúkrunarrýmum fjölgar
Með tilkomu nýju byggingarinnar á Sel-
fossi fjölgar hjúkrunarrýmum fyrir aldraða úr
26 í 40 á Selfossi, heilsugæslan fær nýtt og
rúmbetra húsnæði á 1. hæð, endurhæfing-
araðstaða verður stórbætt, auk þess sem
stofnunin fær nýjan og stórglæsilegan aðal-
inngang og anddyri. Í eldri byggingunni verð-
ur betri aðstaða fyrir rannsóknadeild, lækna-
móttökur, skrifstofur ofl.
„Nú er verið að taka í notkun 1. áfanga
framkvæmdanna sem er 20 rúma hjúkrunar-
deild á 2. hæð, nýr aðalinngangur og anddyri
með afgreiðslu og símavakt. Á næstunni verð-
ur ný kapella tilbúin og í apríl nk. verður hin
hjúkrunardeildin á 3. hæð tekin í notkun,
ásamt aðstöðu fyrir endurhæfingu í kjallara.
Fyrri hluta ársins verður væntanlega boðin út
framkvæmd við að ljúka 1. hæð og kjallara.
Þá verður eftir að gera nauðsynlegar breyt-
ingar í eldri byggingunni,“ sagði Magnús.
Allir jákvæðir
„Þetta er auðvitað krefjandi, skemmtilegt
og gefandi starf þó alltaf sé of mikið að gera.
Það hefur verið ánægjulegt að finna jákvæð-
an hug starfsfólks, íbúa, þingmanna og sveit-
arstjórnarmanna fyrir því að styrkja heil-
brigðisþjónustuna á svæðinu. Nú er
árangurinn að koma í ljós með viðurkenningu
stjórnvalda á þessum sjónarmiðum. Viður-
kenningin felst m.a. í auknum fjárveitingum
til reksturs og uppbyggingar húsnæðis stofn-
unarinnar,“ sagði Magnús.
Hann lét þess getið að föstudaginn 25. jan-
úar kl. 15 – 17 yrði opið hús fyrir almenning
til að skoða hið nýja húsnæði. Í kjölfarið verð-
ur síðan farið á fullu í að undirbúa flutning
vistmanna á Ljósheimum á nýju deildina á 2.
hæð.
1,5 milljarða króna hús tekið í notkun
Langþráðar úrbætur Magnús Skúlason fram-
kvæmdastjóri fagnar bættri aðstöðu í við-
byggingu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.
Hjúkrunarrýmum fjölgar úr 26 í 40 með nýbyggingu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands
SUÐURNES
Reykjanesbær | Forsvarsmenn
veitingastaðarins Primo hafa gerst
aðilar að samkomulagi veit-
ingastaða og opinberra aðila í
Reykjanesbæ um nýjar leiðir í for-
vörnum gegn ofbeldi og fíkniefna-
notkun í bæjarfélaginu. Góður ár-
angur er af verkefninu, að því er
fram kemur á vef Reykjanesbæjar.
Í samkomulaginu felst meðal
annars að afgreiðslutími staðanna
er styttri en áður var og dyraverðir
sækja námskeið á vegum bæjarins.
Dyraverðir eru í beinu talstöðv-
arsambandi við lögregluna. Þá
sammælast aðilar um skemmtana-
bann á fólk sem veldur ítrekað
ónæði eða gerist brotlegt.
Reykjanesbær hefur komið upp
öryggismyndavélum í miðbænum
til eftirlits í nágrenni skemmtistaða
við Hafnargötu og vaktar lögreglan
þær. Ein slík myndavél bætist nú
við.
Árangur af sam-
starfi um eftirlit
við veitingastaði
Ljósmynd/Dagný Gísladóttir
Forvarnir Veitingastaðurinn Primo
gerist aðili að samningum.
Grindavík | „Við stefnum að því að
þetta verði fimm stjörnu tjaldsvæði.
Þau gerast ekki betri,“ segir Óskar
Sævarsson, markaðs- og ferðamála-
fulltrúi Grindavíkurbæjar. Bærinn
er að láta gera nýtt tjaldsvæði á
Hópstúni við Austurveg í stað eldra
tjaldsvæðis sem fer undir aðkomu
og bílastæði knattspyrnuhallar sem
er verið að byggja.
Nýja tjaldsvæðið tekur um tvö
hundruð manns, samkvæmt drög-
um að skipulagi sem Forma – lands-
lagsarkitektar hafa gert og eru til
umfjöllunar hjá Grindavíkurbæ.
Svæðið er um tíu sinnum stærra en
eldra tjaldsvæðið. Þar verður öll sú
aðstaða sem krafist er á bestu tjald-
svæðum í dag. Sérstök áhersla
verður lögð á að þjóna þeim stóra
og vaxandi hópi fólks sem ferðast
um landið á húsbílum.
Byggt verður þjónustuhús við
tjaldsvæðið. Auk hefðbundinnar
snyrtiaðstöðu eru uppi áætlanir um
að gera þar svefnloft og eldhús-
aðstöðu þannig að hægt verði að
taka á móti gestum í gistingu. Ekki
er síst verið að hugsa um íþrótta-
hópa enda er tjaldsvæðið stutt frá
íþróttamannvirkjum bæjarins. Þá
gerir skipulagið ráð fyrir að hægt
verði að reisa nokkur smáhýsi á
svæðinu.
Unnið er að jarðvegsskiptum og
öðrum undirbúningi um þessar
mundir. Stefnt er að því að opna
svæðið ekki síðar en 1. júní í vor.
Rætt hefur verið um að bjóða rekst-
urinn út.
Óskar segir stefnt að því að hafa
svæðið opið lengur en sambærileg
svæði, eða frá því snemma á vorin
og fram á vetur. Komið hafi í ljós
síðustu árin að húsbílafólk sé á
ferðinni á þessum tíma og því ætti
að vera grundvöllur fyrir lengri
opnunartíma.
Fimm stjörnu tjaldsvæði