Morgunblaðið - 19.01.2008, Page 22

Morgunblaðið - 19.01.2008, Page 22
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is Rokk og ról, erfiðisvinna, framandislóðir og þau klæðahöft sem konurhafa sætt sig við voru meðal þesssem fatahönnuðir á borð við Miuccia Prada og Alexander McQueen nýttu sem innblástur fyrir haust- og vetrartísku karla 2008, sem sýnd var í Mílanó í vikunni. Hjá Miuccia Prada lofuðu hreinar og ein- faldar línur ásamt eintóna litapallettu góðu fyrir tísku komandi vetrar þó hagnýt vetr- arklæði á borð við frakka, trefla og hatta væru víðs fjarri. Aðspurð svaraði hönnuður- inn því hlæjandi að þessi lína væri hennar hefnd gegn þeim félagslegu og klæðalegu höftum sem karlar legðu á konur! Hún vísar þar væntanlega til þess að hugtök á borð við hagnýtingu og notagildi virðast sjaldnast of- arlega á blaði þegar fatahönnuðir úr röðum karla leggja línurnar í kvenfatatískunni. Notagildi var Thomasi Maier, hjá lúxus- tískuhússinu Bottega Veneta, hins vegar of- arlega í huga að þessu sinni, en Maier leitaði innblásturs hjá hinum vinnandi manni. „Við vorum að velta notagildinu fyrir okkur og tengslunum milli þess hvaða starfi maðurinn gegnir og hverju hann klæðist svo,“ hefur New York Times eftir Maier. Það má þó gefa sér að sterkefnaðir viðskiptavinir tískuhúss- ins búi við veruleika sem er gjörólíkur lífi verkamannsins sem Maier leitaði í smiðju til og að verðið sé öllu hærra en verkamaðurinn ræður við. Efnismiklar buxur hönnuðarins, þröngir jakkar, þykk gallaefni og svonefndir hversdagsfrakkar skiluðu hins vegar tísku- sýningu sem að mati New York Times var með þeim betri sem fyrir augu bar í Mílanó að þessu sinni. Alexander McQueen fékk líka hrós hjá blaðinu fyrir vel heppnaða línu sem ein- kenndist af ljóðrænu og flökkustíl. Hönn- uðurinn ferðaðist um Rajasthan og Kerala á Indlandi í mánuð í leit að rétta andanum og er útkoman sterk snið með fínlegum ind- verskum áhrifum t.d. með notkun víravirkis og útsaums í hönnuninni. Páfuglsmunstur og snákaskinn Rokkið var síðan alls ráðandi hjá Gucci enda kvaðst hönnuðurinn Frida Giannini vera í rússneska rokk-gírnum. Og hjá Gucci var glamúr-rokkið svo sannarlega áberenda, enda var á sýningarpöllunum að finna trefla með páfuglsmynstri, óriffluð flauelsefni, sígaunaleg vafningsbelti, gróf stígvél og svo fyrirsætur með þykkan, dökkan augnblýant. Glitkóngurinn Roberto Cavalli var hins vegar öllu stilltari en venjulega – hér voru það jakkaföt með sterkum öxlum og þröngu mitti ásamt víðum buxum sem settu svip sinn á línuna, þó jakkar úr snákaskinni og notkun á dýramynstri gætu fullvissað fasta fylgis- menn hönnuðarins um að Cavalli er og verð- ur Cavalli. Fátt kom heldur á óvart hjá Giorgio Arm- ani – hönnunin öguð og klæðileg og þar af leiðandi vel við hæfi íhaldssamra viðskipta- jöfra, sem óneitanlega gæti þó verið einkar gaman að sjá bregða sér í pínupils af sýning- arpalli Miuccia Prada. Lúxus Versace hentar vel þeim sem vilja láta bera á sér. Fágun Roberto Cavalli var venju fremur stilltur. Ísöld Loðhúfa fyrir komandi vet- ur frá Alexander McQueen. Flökkulíf Alexander McQueen leitaði innblásturs á Indlandi. Vinnugleði Verkamannastíll að hætti Bottega Veneta. Þægindi Notagildi var málið hjá Bottega Veneta. Glam-rokk Rússa-rokk var áber- andi hjá Gucci að þessu sinni. Smáatriðin Flauelsefni og háls- klútar prýða Gucci-manninn. Í sviðsljósinu Aðsniðnar línur og eintóna lita- palletta hjá Miuccia Prada. Reuters Skoskir straumar Köflótt mynstur settu svip sinn á D&G-línu Dolce og Gabbana, sem hér sést að ofan, og eins á sýningarpalla Dsquared2. Klassískt Einfaldleikinn er aldrei fjarri hjá Armani. Rokk, rómantík og notagildi Hefnd Prada Er pínupils fyrir karlmenn það sem koma skal? |laugardagur|19. 1. 2008| mbl.is daglegtlíf

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.