Morgunblaðið - 19.01.2008, Page 23

Morgunblaðið - 19.01.2008, Page 23
úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 23 Síldarskipin hafa nú flest hver yf- irgefið veiðisvæðið á Grundarfirði en þar voru þó í vikunni fimm skip, tvö vinnsluskip og þrjú skip sem sigla með aflann til vinnslu í aðra landsfjórðunga þegar þau hafa fyllt sig. Frystitogarinn stóri Vilhelm Þorsteinsson hefur nú í nokkur skipti losað sig við fryst síldarflök í Frystihótelið í Grund- arfirði sem tekið var í notkun í nóvember sl. þannig að síld kemur líka á land í Grundarfirði. Tvö risaflutningaskip hafa þegar þess- ar línur eru ritaðar lagst við Norðurgarðinn hér, til þess að flytja þessa gesti frystihótelsins til Póllands og Rússlands. Það má því með sanni segja að hótelið hafi komið til á réttum tíma. Hvort silfur hafsins sé komið til þess að vera eitthvað um sinn á þessum verustað í Breiðafirði er ómögu- legt að segja en líklegra er það þó segja sjálfskipaðir fræðingar.    Snjórinn þykir oft fallegur einkum á jólum og ef það er temmilegt af honum. Eftir allar rigningarnar og stórviðrin á haustmánuðunum er sá hvíti farinn að sýna sig og leggst nú yfir af töluverðum móð. Vélsleðamenn kætast en smábíla- eigendur bölva. Skíðaáhugmenn í Grundarfirði áttu ekki von á því að neitt myndi snjóa meir vegna hlýnandi veðurlags svo þeim fannst ekki taka því að reisa við miðjumastrið á skíðalyftunni sem fauk um koll í Þorláksmessuveðr- inu 2006. Ef hann heldur áfram að snjóa líkt og að undanförnu, þá týnist mastrið væntanlega í snjón- um eins og gerðist áður en skíða- lyftan var sett upp í fyrsta sinn 1984. Fyrir jólin 1983 ætluðu miklir eldhugar og skíða- áhugamenn að nota jólafríið sitt til að setja upp skíðalyftu í góða brekku við bæjarmörkin, en um jólin tók að snjóa svo ríflega að möstrin týndust í snjónum og fundust ekki fyrr enn langt var liðið á vetur. Lyftan komst þó upp og þótti hið mesta þarfaþing. Var hún mikið notuð næstu vetur en síðan fór smám saman að fækka þeim dögum sem nægur snjór var í brekkunum. Það þótti hins vegar einn besti kosturinn við þessa skíðalyftu hversu nærri byggð hún var og að geta endað góðan skíða- dag með því að renna sér heim til sín.    Söguleg skóflustunga að reiðhöll var tekin sl. föstudag af bæj- arstjóranum í Grundarfirði, Guð- mundi Inga Gunnlaugssyni. Á sín- um tíma úthlutaði landbúnaðarráðherra fjár- upphæðum til hestamannfélaga á landsbyggðinni til þess að stuðla að bættri aðstöðu til reiðmennsku og félagsstarfs. Hestamannfélagið Snæfellingur fékk í sinn hlut 15 milljónir og eftir allmiklar svipt- ingar meðal félagsmanna varð úr að byggð yrði ein stór reiðskemma í Grundarfirði fyrir alla Snæfell- inga. Grundarfjarðarbær leggur 16,7 milljónir á móti en auk þess kemur hlutafé frá Hesteigenda- félagi Grundarfjarðar og fleiri að- ilum. Stjórn Snæfellingshall- arinnar ehf. hefur ákveðið að húsið verði að lágmarki 25 x 50 metra stórt en síðan mun það ráð- ast af því fjármagni sem tekst að fá til verksins hversu vegleg end- anleg bygging verður. Jafnframt því að þjóna hestamönnum á fé- lagssvæði Snæfellings er hús þetta hugsað sem fjölnota mannvirki sem nýtast mun á sem fjölbreyti- legastan máta á sviði íþrótta og annarra viðburða. Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson Silfrið Snjórinn hamlar ekki veiðum síldarskipanna þótt nærri landi séu. GRUNDARFJÖRÐUR Gunnar Kristjánsson fréttaritari AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Íbúðir til leigu í miðbæ Kaupmannahafnar Verkalýðsfélög, fyrirtæki, stofnanir og/eða starfsmannafélög Til leigu eru allt að 6 íbúðir – nýuppteknar af íslenskum verktökum. Hver íbúð er 3ja herbergja, fullbúin húsgögnum og búnaði fyrir allt að 6-8 manns. Um er að ræða íbúðir til langtímaleigu eða til skemmri tíma. Hafið samband við Fylkir Ágústsson. Fylkir.is ferðaskrifstofa ehf sími 456 3745 netfang; fylkir@fylkir.is M bl 9 59 76 7 Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is Snör í snúningum Þvottavél frá Siemens, sem lætur blettina hverfa. Þetta er vél sem hefur algera sérstöðu. Fjórtán blettakerfi fyrir ólíka bletti, t.d. vínbletti, blóðbletti og grasgrænku. Tromlan er óvenjustór, tekur 65 l og hægt er að þvo í henni allt að 8 kg. Innra byrði tromlunnar er með droplaga mynstri sem fer sérlega vel með þvottinn. Vélin er mjög snör í snúningum: 15 mín. hraðkerfi og 60 mín. kraftþvottakerfi fyrir meðalóhreinan þvott. Snertihnappar. Stór og öflugur skjár. Vélin hefur mjög góða hljóðeinangrun og er í orkuflokki A+. Bjóðum einnig upp á margar aðrar vélar. Þetta er vélin handa þér! A T A R N A – K M I / F ÍT 8 kg þvottavélar með blettakerfum: 1600 snúninga: 139.800 kr. stgr. 1400 snúninga: 129.800 kr. stgr. 8 kg þvottavélar án blettakerfa: 1600 snúninga: 119.800 kr. stgr. 1400 snúninga: 104.800 kr. stgr. 7 kg þvottavélar: 1400 snúninga: 98.900 kr. stgr. 1200 snúninga: 87.700 kr. stgr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.