Morgunblaðið - 19.01.2008, Síða 52
52 LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ENCHANTED m/ensku tali kl. 5:50 - 8 LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN m/ísl. tali kl. 1 - 2 - 4 LEYFÐ
AMERICAN GANGSTER kl. 10:20 Síðustu sýningar B.i.16.ára
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
STÆRSTA OPNUN ALLRA TÍMA
Í DESEMBER Í USA.
eeee
„...FYRIR ALLA ÞÁ SEM
ÁNÆGJU HAFA AF GÓÐRI
SPENNU“
„...EIN BESTA AFÞREYING
ÁRSINS.“
-S.V. MBLSÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI
TILNEFND TIL TVEGGJA
GOLDEN GLOBE
VERÐLAUNA M.A
FYRIR BESTA LEIK,
AMY ADAMS.
eee
- S.V.
FRÉTTABLAÐIÐ
FRÁBÆR SKEMMTUN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA.
THE GAMEPLAN kl. 1 - 3:20 - 5:40 -8 - 10:20 LEYFÐ
NATIONAL TREASURE 2 kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 ára
NATIONAL TREASURE 2 kl. 3- 5:30 - 8 -10:30 LÚXUS VIP
DEATH AT A FUNERAL kl. 2 - 4 - 6 - 8 -10:10 B.i. 7 ára
I AM LEGEND kl. 6 - 8 -10:10 B.i.14 ára
TÖFRAPRINSESSAN m/ísl. tali kl. 1- 3:20 LEYFÐ
THE GAME PLAN kl. 1:20 - 3:40 - 6 - 8 - 10:20 LEYFÐ
DEATH AT A FUNERAL kl.6 - 8:20 - 10:20 B.i. 7 ára
NATIONAL TREASURE 2 kl. 8 -10:30 B.i.12 ára
I AM LEGEND kl. 6 B.i.14 ára
TÖFRAPRINSESSAN m/ísl. tali kl. 1:20 - 3:40 LEYFÐ
BÝFLUGUMYNDIN kl. 2D - 4D LEYFÐ DIGITAL
SPARBÍÓ 450kr á allar sýningar merktar með appelsínugulu Í SAMB
DWAYNE „THE ROCK“ JOHNSON
2 VIKUR Á TOPPNUM
Í BANDARÍKJUNUM
ÞRÆLFYNDIN GAMANMYND
FRÁ WALT DISNEY
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
ATH. SÝND MEÐ ÍSLENSKU
ÚR BÝFLUGNABÚINU Í BULLANDI VANDRÆÐI
MYND SEM ENGIN ÆTTI AÐ MISSA AF!
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
NÍU myndir hafa verið valdar í for-
val sem besta „erlenda“ (á öðru
máli en ensku) myndin á næstu ósk-
arsverðlaunahátíð. Tilnefning-
arnar koma töluvert á óvart og að
myndir á borð við rúmensku Can-
nes-verðlaunamyndina 4 mánuðir,
3 vikur og 2 dagar (4 luni, 3 sap-
tamani si 2 zile), hina frönsku
Persepolis og hina þýsk-tyrknesku
Himnabrún (Auf der Anderen
Seite) séu úr leik. Þá var mynd Ang
Lee ekki lögleg þar sem hún þótti
ekki „nógu taívönsk.“
Gamlir kunningjar
Nokkrir gamlir kunningjar geta
bætt styttu á arinhilluna. Hinn
ítalski Guiseppe Tornatore vann
fyrir Paradísarbíóið (Cinema Pa-
radisso) og á nú góða möguleika á
að hala inn fjórðu tilnefninguna
með Óþekktu konuna (La Sconos-
ciuta), en umrædd kona er úkraínsk
og er komin til ítölsku borgarinnar
Velarchi en burðast með skelfilega
fortíð á bakinu. Hinn hápólitíski
Denys Arcand hefur einnig hlotið
eina styttu eftir þrjár tilnefningar,
sem gerir 75% tilnefninga Kan-
adamanna í þessum flokki og það
hlutfall fer upp í 80% ef Dagar
myrkurs (L’Age des Tenebres)
kemst að. Pólski öldungurinn And-
rzej Wajda fékk nýlega heið-
ursóskar en freistar þess nú að fá
keppnisóskar einnig fyrir Katyn, en
Katyn er staður þar sem hermenn
Stalíns frömdu fjöldamorð á Pól-
verjum.
Loks ber að nefna rússneska leik-
stjórann Nikita Mikhalkov sem
vann fyrir Sólbruna (Utomlyonnye
solntsem) en mætir nú með 12, laus-
lega endurgerð á réttardramaklas-
síkinni 12 Angry Men – en þessi
gerist í Tsjetsjeníu og fjallar um
réttarhöld yfir tjetsenskum pilti
sem sakaður er um að hafa myrt
rússneskan fósturföður sinn. Meðal
kviðdæmenda eru t.d. maður sem
lifði af helförina, rasískur leigubíl-
stjóri, tónlistarmaður, umsjón-
armaður kirkjugarðs bæjarins og
sjónvarpsmaður.
Frá Reykjavík til Hollywood
Tvær myndanna hafa íslenskir
bíógestir þegar fengið tækifæri til
þess að sjá á kvikmyndahátíðum
síðastliðið haust. Austurríska
myndin Falsarinn (Die Fälscher)
eftir Stefan Ruzowitzky var sýnd á
Bíódögum Græna ljóssins og fjallar
um peningaþvott nasista í stríðslok.
Gildran (Klopka) serbneska var svo
sýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð
í Reykjavík, þriller um heim-
ilisföður í erfiðum aðstæðum sem
minnir töluvert á meistara Hitch-
cock þótt leikstjórinn heiti Srdan
Golubovic. Gagnrýnendur Morg-
unblaðsins voru bærilega sáttir við
báðar myndirnar en þriggja stjörnu
dómar þeirra benda þó til að þeim
þætti ofrausn að gefa þeim Óskar.
Gengis Khan og
brasilískur fótbolti
Töluverða athygli vakti þegar
Ísraelsmenn skiptu út hinni marg-
lofuðu The Band’s Visit þrátt fyrir
sigurför um kvikmyndahátíðir, þar
sem hlutur ensks texta þótti of mik-
ill. En ísraelsk kvikmyndagerð
virðist vera við góða heilsu þar sem
Beaufort, myndin sem kom í stað-
inn, er í hópi þeirra sem komast í
þessi undanúslit. Henni er leikstýrt
af Joseph Cedar og fjallar um hóp
ísraelskra hermanna.
Frá Kasakstan kemur Mongol
eftir Sergei Bodrov sem fjallar um
æskuár frægasta Mongólans af
þeim öllum, hershöfðingjans blóð-
þyrsta Genghis Khan, en reiknað er
með tveimur myndum til viðbótar.
Loks er að geta brasilísku mynd-
arinnar Árið sem pabbi fór í frí
(Ano em Que Meus Pais Saíram de
Férias) eftir Cao Hamburger, en
hún fjallar um sumar í lífi brasilísks
drengs, sumarið 1970 sem í huga
margra Brasilíumanna er vafalítið
besta sumar allra tíma því þá urðu
þeir heimsmeistarar í fótbolta með
lið sem iðulega er kallað það besta í
sögunni.
Óvæntar
myndir í
erlendum
Óskari
Falsarinn Fjallar um peningaþvott nasista í stríðslok. Mongol Fjallar um sjálfan Genghis Khan.