Morgunblaðið - 26.01.2008, Side 4
4 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Árvakur/G.Rúnar
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
HÚSAFRIÐUNARNEFND ákvað
í gær að falla frá tillögu sinni um
friðun húsanna við Laugaveg 4 og 6 í
ljósi þess að samkomulag hafði náðst
um kaup Reykjavíkurborgar á um-
ræddum eignum með það að mark-
miði að standa vörð um 19. aldar
götumynd Laugavegar. Sökum
þessa kom ekki til þess að Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, menntamála-
ráðherra, þyrfti að taka afstöðu til
friðunar húsanna.
„Ég er mjög ánægð með þessar
lyktir og tel þær vera í samræmi við
það sem maður var að vonast til allan
tímann,“ sagði Þorgerður Katrín á
fundi með blaðamönnum í ráðuneyt-
inu síðdegis í gær þegar kaupsam-
komulagið lá fyrir sem og afturköll-
un húsafriðunarnefndar.
Menn eiga að læra af málinu
„Hins vegar verð ég að segja að
menn eiga að læra af svona málum.
Ég segi þetta vegna þess að stjórn-
sýslan í þessu máli hefur ekki verið
nægjanlega góð, ekki verið nægjan-
lega gegnsæ og skýr og ferlið allt
ekki nægjanlega fyrirsjáanlegt.
Þannig að allir þeir sem komið hafa
að málinu gætu séð hvernig myndin
ætti að vera,“ sagði ráðherra og vís-
aði þar bæði til eigenda, verktaka og
friðunarsinna. „Ég beini því eindreg-
ið til skipulagsyfirvalda í hverju
sveitarfélagi að vinna betur að húsa-
friðunarmálum. Sem betur fer er
vakning núna varðandi menningar-
arfinn okkar. Menn verða að taka sig
saman í andlitinu og reyna að móta
heildarmyndina varðandi uppbygg-
ingu menningararfsins,“ sagði Þor-
gerður Katrín og vísaði þar til þess
að væntanlegur væri inn á hennar
borð nokkur fjöldi tillagna um friðun
fleiri húsa við Laugaveg. „Mér finnst
það algjörlega óásættanlegt ef ég á
að standa frammi fyrir því að vera í
einhverjum bútasaumi varðandi
uppbyggingu og verndun menning-
ararfsins.“
Bestu lyktirnar að mati
menntamálaráðherra
Gagnrýndi stjórnsýsluna Ráðherra beindi því til skipulagsyfirvalda að vinna betur að húsafriðunarmálum.
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
„VIÐ fáum engin stór fyrirtæki hing-
að á Laugaveginn á meðan uppbygg-
ingin er svona,“ segir Borghildur
Símonardóttir, kaupmaður í Vinnu-
fatabúðinni á Laugavegi 76. Kaup-
menn og rekstraraðilar í nágrenni
Laugavegar 74 eru orðnir lang-
þreyttir á því sem þeir segja aðgerð-
ar- og framtaksleysi borgaryfirvalda
í málefnum Laugavegarins í heild. Á
Laugavegi 74 hefur verið opinn hús-
grunnur frá því að húsið þar var fjar-
lægt fyrir tveimur og hálfu ári.
Grunnurinn er sagður hættulegur og
djúpur skurður.
Í gær afhentu Borghildur og
Gunnar Guðjónsson, kaupmaður í
Gleraugnamiðstöðinni á Laugavegi
24, bréf sem beint var til Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur mennta-
málaráðherra og Hönnu Birnu Krist-
jánsdóttur, formanns skipulags- og
byggingarsviðs, um málefni göt-
unnar. Bréfinu fylgdu undirskriftir
um 140 aðila sem hagsmuna eiga að
gæta á Laugaveginum. „Og nú er
komin áskorun frá okkur,“ segir
Borghildur. Hún er harðorð um þau
vinnubrögð að flytja húsið nr. 74 í
burtu og skilja eftir „grafhýsi“, eins
og hún orðar það. „Við hliðina á stóru
og virðulegu húsi beint á móti aðal-
banka landsmanna, Landsbank-
anum,“ segir hún.
Borghildur er ekki sátt við sína
næstu nágranna. „Á aðra hönd erum
við með rónabæli og á hina er Móna-
kó,“ segir hún. Hluti vandamálsins er
reykingar gesta Mónakó, en Borg-
hildur gerði samkomulag við eiganda
þess staðar um að hann hleypti fólki
út baka til til að reykja þar í sundinu.
Það segir hún vera til að koma í veg
fyrir að stórir hópar fólks standi úti á
Laugavegi reykjandi.
Markaðsvirðið hrynur
Borghildur segir að sér þyki það
skrítið af borginni að leyfa flutning á
húsi og láta svo lóðina vera „… svona
eins og hún er. Er þetta boðlegt?“
spyr hún og bætir við að markaðs-
virði annarra eigna hrynji við þessar
aðstæður.
„Mér skildist á konunni, sem tók
við bréfinu fyrir hönd Hönnu Birnu,
að við yrðum boðuð til fundar,“ segir
Borghildur spurð um framhaldið.
„Ég sé það reyndar ekkert í hendi
mér frekar en allt annað sem við höf-
um beðið um eða kvartað yfir,“ segir
hún.
Borghildur segist vilja sjá að sett
verði skilyrt sektarákvæði á þann
hátt að ef ekki er haldið við íbúðar-
eða verslunarhúsnæði fái eigendur
eina aðvörun og háa sekt. „Lauga-
vegurinn væri ekki svona tannlaus ef
þetta hefði verið gert.“
„Grafhýsi“ skilið eftir og
skurðurinn hættulega djúpur
Árvakur/Árni Sæberg
Við grunninn „Er þetta boðlegt?“ spyr Borghildur Símonardóttir kaupmaður í Vinnufatabúðinni.
Hagsmunaaðilar
á Laugavegi
orðnir langþreyttir
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„VIÐ teljum að þetta sé farsæl nið-
urstaða fyrir borgina,“ segir Hanna
Birna Kristjánsdóttir, formaður
skipulagsráðs, en Reykjavíkurborg
og Kaupangur ehf. náðu í gær sam-
komulagi um kaup borgarinnar á
fasteignunum Laugavegi 4 og 6 sem
og Skólavörðustíg 1A af Kaupangi. Í
samtali við Morgunblaðið segir
Hanna Birna kaupverðið ekki verða
gefið upp fyrr en að loknum fundi
borgarráðs nk. fimmtudag þar sem
fjallað verður um samninginn, en það
helgast af því að hann er gerður með
fyrirvara um samþykki borgarráðs.
„Við teljum að þessi samningur nái
þeim markmiðum sem við stefndum
að. Hann er í fullu samræmi við til-
löguna sem samþykkt var í borgar-
ráði sl. fimmtudag og tekur mið af
þeim vilja okkar að varðveita þessa
götumynd sem og færa skipulags-
valdið aftur í hendur á borginni og
eyða þeirri óvissu sem var í málinu.“
Að sögn Hönnu Birnu verður strax
farið í skipulagsferli á umræddum
reit við Laugaveginn í náinni sam-
vinnu við húsafriðunarnefnd, Minja-
vernd og borgarminjavörð, enda
þurfi að breyta deiliskipulagi svæð-
isins í samræmi við breytta framtíð-
arsýn þess. Segist hún vonast til þess
að uppbygging á reitnum geti hafist
næsta sumar. Aðspurð hvort borgin
hyggist eiga húsin til frambúðar
svarar Hanna Birna því neitandi og
tekur fram að eins og staðan sé í dag
sé stefnt að því að selja húsin og
tryggja þannig að þau geti nýst undir
verslun og þjónustu. „Við teljum að
þegar búið verði að gera húsin upp
og selja þau, þá þurfi borgin ekki að
bera af þessu meiri kostnað umfram
það sem vænta
mátti miðað við
aðstæður. Við
vorum öll meðvit-
uð um að borgin
myndi bera af
þessu einhvern
kostnað hvernig
svo sem þetta mál
hefði farið. Það
ræðst af því að
skipulagsferlið og
tafir á verkinu hafa verið með þeim
hætti að borgin hefði alltaf borið af
því einhvern fjárhagslegan kostnað.“
Á að vera á ábyrgð borgarinnar
„Mér líst vel á þetta, enda er ekki
ástæða til annars en að fagna því sem
gott er ef þessi gömlu hús fá að
standa. Það er jákvætt ef ástandinu á
þessari lóð getur farið að linna, þann-
ig að þetta svæði geti farið að njóta
sín,“ segir Snorri Freyr Hilmarsson,
formaður Torfusamtakanna, um
kaup borgarinnar á húsunum.
„Vonandi verður þessi breytta af-
staða borgarinnar í garð gamalla
húsa fordæmi fyrir því með hvaða
hætti unnið verður annars staðar við
Laugaveginn,“ segir Snorri og vísar
þar til boðaðrar endurskoðunar á að-
alskipulagi Reykjavíkurborgar. „Það
er mjög skrýtið að Laugavegurinn
skuli hafa verið skipulagður þannig
að lungann af öllum húsum byggðum
fyrir 1918 ætti að rífa, þrátt fyrir lög
frá Alþingi sem gefa húsum frá þess-
um tíma ákveðinn sess. Það er mjög
óeðlilegt að það sé menntamálaráðu-
neytisins og húsafriðunarnefndar að
tryggja það að verulegar skemmdir
séu ekki unnar á götum, götumynd-
um og þessum menningarverðmæt-
um. Þetta á að vera á ábyrgð borg-
arinnar.“
Borgin kaupir
eignirnar
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
Borgaryfirvöld ætla sér ekki að eiga
húsin á Laugavegi 4 og 6 til frambúðar
TVÖ og hálft ár er liðið síðan húsið
á Laugavegi 74 var fjarlægt af
grunni sínum sem hefur verið opinn
síðan. Samkvæmt upplýsingum
Þórðar Búasonar, yfirverkfræðings
hjá embætti byggingarfulltrúa
Reykjavíkurborgar, eru tafir til
komnar vegna fjárhagsvandræða
byggingaraðilans. Borgin hefur
beitt úrræðum eins og dagsektum
til að hvetja til að hafist verði
handa á reitnum en ekki er útlit
fyrir að svo verði í bráð þrátt fyrir
sektirnar.
Hefur ekki uppfyllt
þau skilyrði sem sett eru
„Byggingaraðilinn sem hefur lóð-
ina fær greinilega ekki fé til að
byggja,“ segir Þórður. „Hann hefur
lent í ýmsum hremmingum, en
hann hefur ekki uppfyllt skilyrði
sem honum hafa verið sett.“
Samþykktar voru teikningar fyrir
fjöleignarhús með íbúðum og að-
stöðu fyrir viðskipti.
„Í svipuðum dúr og það sem var
fyrir,“ segir Þórður, „svo ásýnd
Laugavegarins myndi ekki breyt-
ast.“
Hluti útskýringar á töfunum var
að lóðin reyndist minni en bygging-
araðili hafði keypt og þess vegna
þurfti að teikna upp á nýtt.
Lóðin er einkalóð og handhafi
byggingarleyfis er Laugavegur 74
ehf.
Grunnurinn
opinn í tvö
og hálft ár
Lóðin minni og því
þurfti að teikna á ný