Morgunblaðið - 26.01.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 26.01.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 13 Í NÝJASTA tölublaði bandaríska fjármálatímaritsins Forbes er fjallað um Orra Vigfússon og haldið til laxveiða með honum í Laxá í Að- aldal. Í greininni er Orri kynntur sem helsti bjargvættur laxins, en hann hlaut á síðasta ári hin virtu Goldman-umhverfisverðlaun fyrir baráttu sína með Verndarsjóði villtra laxastofna. Er Orri sagður nútíma kaupsýslumaður sem not- færir sér viðskiptahæfileika til verndar náttúrulegum gæðum; einn virtasti stangveiðimaður samtímans notfærir sér eðli kapítalismans til að bjarga Atlantshafslaxinum. „Orri talaði við fiskimennina sjálfa, ekki við stjórnvöld,“ segir Arthur Bogason um árangurinn sem Orri og félagar hans hafa náð í að stöðva netaveiðar í hafinu. Dæmi eru tekin um uppbygg- inguna í Selá í Vopnafirði. Fyrir um 30 árum hafi veiðin verið um 500 laxar á sumri. Með uppkaupum neta, laxastigum og aðhlynningu ár- innar skili hún nú um 2.500 löxum á sumri. Orri telur Verndarsjóðinn hafa dregið úr laxveiðum í hafinu um 85%, eða fimm milljónir laxa. Einkavæða bandarískar ár? Í fylgigrein í Forbes er spurt að því hvort Bandaríkjamenn ættu að fylgja fordæmi Íslendinga hvað varðar eignar- og nýtingarrétt fall- vatna. Á meðan laxveiðin hafi ekki verið betri á Íslandi í 40 ár hafi laxa- stofnarnir við austurströnd Banda- ríkjanna hrunið. Á Íslandi eiga land- eigendur árnar og fara með veiðiréttinn, fjöldi stanga er tak- markaður, veiðin skilar góðum hagnaði og „á hverjum tíma hafa fimm til tíu veiðimenn leyfi til að veiða í 20 mílna langri á“. Þá noti landeigendur hagnaðinn til að styrkja eignir sínar; kaupa upp net, byggja laxastiga, ala seiði og lag- færa veiðistaði. Samherjar Orra heiðraðir Greinarhöfundur segir þetta ekki geta gerst í Bandaríkjunum, með gildandi lögum. Almenningur hefur þar rétt til að veiða í ám landsins. Ríkin geta selt veiðileyfi en verðið á þeim er lágt. „Stjórnvöld eiga ekki að standa í því að stjórna eða mark- aðssetja veiðisvæði,“ er haft eftir Orra Vigfússyni. Nýverið afhenti forseti Íslands tveimur helstu samherjum Orra Vigfússonar í verndarsjóðnum fálkaorðuna við hátíðlega athöfn. Eru það þeir Marc-Adrien Marcel- lier frá Frakklandi, sem barist hefur fyrir endurreisn laxins á meginlandi Evrópu, og Noel Carr, sem situr í stjórn stærstu samtaka stangveiði- manna á Írlandi. Hann hefur verið í fararbroddi í laxavernd í heima- landinu og starfað náið með Orra. Ítarleg umfjöllun um Orra Vigfússon og Verndarsjóð villtra laxastofna í tímaritinu Forbes Bjargar laxastofninum með tækjum kapítalismans Árvakur/Einar Falur Bjargvætturinn Orri Vigfússon við veiðar í Laxá í Kjós. Í samtali við Forb- es segir hann stjórnvöld ekki eiga að skipta sér af stjórn veiðisvæða. Dagana 26. og 27. janúar efnum við til sérstakrar Lexus Hybrid Drive – sýningar í nýjum salarkynnum okkar að Nýbýlavegi 2. Á sýningunni gefst þér tækifæri til að kynnast einstökum eiginleikum Lexus Hybrid Drive, nýrrar byltingarkenndrar tækni sem aðgreinir Lexus frá öllum öðrum lúxusbílaframleiðendum heims. Sýndir verða allir tvinnbílar í Lexus-línunni og hægt verður að reynsluaka Lexus RX 400h sem er fyrsti tvinn-lúxussportjeppi heims. Komdu í heimsókn, gæddu þér á léttum veitingum í glæsilegasta sýningarsal landsins og skoðaðu í leiðinni lúxusbíla framtíðarinnar. Opið: Laugardag kl. 12-16 ı Sunnudag kl. 13-16 LEXUS HybRID DRIVE - sýning 26. og 27. janúar ÍSLE N SK A SIA.IS LE X 40680 01/08
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.