Morgunblaðið - 26.01.2008, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 19
ERLENT
Kaíró. AFP. | Hávaðamengunin í
Kaíró hefur aukist verulega og er
komin á hættulegt stig, hefur valdið
fólki heyrnarskemmdum og streitu,
jafnvel leitt til dauða.
Hávaðinn í miðborg Kaíró mælist
um 90 desíbel að meðaltali og fer
aldrei niður fyrir 70 desíbel, sam-
kvæmt könnun Rannsóknamið-
stöðvar Egyptalands. Það að búa í
miðborginni er eins og að vera allan
daginn í verksmiðju.
„Það sem er eftirtektarvert við
Kaíró er að hávaðinn á mörgum göt-
um á ólíkum tímum dagsins er langt
yfir þeim mörkum sem umhverf-
isverndarstofnun Egyptalands hefur
sett,“ sagði Mustafa Ali Shafiye, sér-
fræðingur við rannsóknarmiðstöð-
ina. „Í miðborginni getur hávaðinn
verið um 90 desíbel klukkan hálfátta
á morgnana en umhverfisverndar-
stofnunin telur viðunandi að hávað-
inn sé 35-55 desíbel að meðaltali.“
Á vef umhverfisstofnunar kemur
fram að hættumörkin eru talin vera
við 80-85 dB jafngildishljóðstig.
Tímaritið New Scientist sagði í
desember að hávaðamengun gæti
valdið dauðsföllum líkt og langvinn
streita. Hávaðamengunin gæti vald-
ið „samsöfnun streituhormóna, bólg-
um og breytingum á efnaskiptum
líkamans og á endanum leitt til
vandamála á borð við blóðrásartrufl-
anir og hjartaáföll“.
Mohammed el-Shazly, eyrnasér-
fræðingur við Kaíró-háskóla, sagði
að hávaðamengunin væri óvenju-
mikil í Kaíró, miklu meiri en í öðrum
borgum arabalanda. „Það sem er
sérstakt við Kaíró er að iðnaðar-
svæðin og íbúðarsvæðin eru ekki að-
skilin. Fólk á borð við lögreglumenn
sem eru alltaf á götunum getur orðið
fyrir alvarlegum skaða.“
El-Shazly sagði að fólk, sem byggi
á svæðum þar sem hávaðinn væri
yfir hættumörkum, byrjaði að missa
heyrnina smám saman.
Nagat Amer, annar sérfræðingur
við rannsóknarmiðstöðina, sagði að
hávaðamengunin drægi úr afköstum
fólks, ylli fjarvistum frá vinnu og
slysum sem gætu valdið fötlun.
Kostnaðurinn við að draga úr hljóð-
menguninni væri miklu minni en
kostnaðurinn af afleiðingunum.
Hávaðinn getur
verið banvænn
Skarkalinn yfir hættumörkum í Kaíró
AP
Mengun Hávaði er vandamál í
Kaíró ekki síður en loftmengunin.
Sjálfstæðisflokkurinn
Háaleitisbraut 1
105 Reykjavík
sími 515 1700
www.xd.is
13.00 Aðalfundur Varðar
– Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík
Ávarp, Marta Guðjónsdóttir,
formaður Varðar – Fulltrúaráðsins.
Venjuleg aðalfundarstörf
Ræða formanns Sjálfstæðisflokksins,
Geirs H. Haarde, forsætisráðherra
Þingforseti:
Guðfinna S. Bjarnadóttir, alþingismaður
14.00 Opinn fundur – allir velkomnir
Framtíðarsýn í borgarmálum
Framsöguræður flytja:
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður borgarstjórnar-
flokks sjálfstæðismanna
Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi
Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi og
Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi.
Að loknum framsögum sitja auk þeirra í pallborði
borgarfulltrúarnir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Þorbjörg
Helga Vigfúsdóttir og Jórunn Frímannsdóttir.
20.00 Þorrablót sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík
í Súlnasal Hótels Sögu. Húsið opnað kl. 19.00
Heiðursgestur: Halldór Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Blótsstjóri: Erla Ósk Ásgeirsdóttir, formaður Heimdallar.
Öryggi og velferð
Framtíðarsýn í borgarmálum
Kjördæmisþing reykvískra sjálfstæðismanna
í dag laugardaginn 26. janúar 2008
í Sunnusal Hótels Sögu
Á kaffihúsinu sem Te & kaffi starfrækir í Saltfélaginu er ilmandi kaffi á boðstólum alla daga. Opið frá kl. 10-18 virka daga og 11-16 um helgar.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
18
3
1
ÚTSALA