Morgunblaðið - 26.01.2008, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Kristjana Em-ilía Vigfúsdóttir
fæddist á Þorvalds-
stöðum í Suður-
Þingeyjarsýslu 23.
desember 1919.
Hún lést á heimili
sínu í Hvammi,
heimili aldraðra á
Húsavík, 15. janúar
síðastliðinn. Hún
var dóttir hjónanna
Vigfúsar Vigfús-
sonar, f. 22.3. 1870,
d. 23.1. 1956, og
Helgu Sigríðar Þór-
arinsdóttur, f. 19.11. 1875, d. 11.5.
1957. Alsystkini Kristjönu eru
Þórarinn Örbekk, Guðbjartur Vil-
berg, Engilbert Valdimar og
Laufey Þóra. Hálfsystkini Krist-
jönu, samfeðra, voru Guðjón,
Guðbjörg Helga og Indriði Árni.
Laufey lifir systkini sín.
Kristjana giftist 20. október
1938 Þormóði Kristjánssyni sjó-
manni, f. 20.10. 1916, d. 27.9.
1988. Hann var sonur hjónanna
Kristjáns Baldvinssonar, f. 1.2.
1884, d. 24.12. 1970, og Guðleifar
Magnúsdóttur, f. 30.8. 1877, d.
18.4. 1956. Kristjana og Þor-
móður eignuðust þrjá syni, þeir
Kvæntist Jónasínu Arnbjörns-
dóttur, f. 25.1. 1945. Þau skildu.
Sonur Aðalbjörns og Margrétar
Guðlaugsdóttur, f. 6.4. 1946, er a)
Steinar Birgir, f. 22.8. 1970.
Kvæntur Carolu Frank Aðal-
björnsson, f. 17.10. 1969. Börn
þeirra eru Alana Elín, f. 11.11.
1996, og Daníel Ísak, f. 4.7. 2000.
Börn Aðalbjörns og Jónasínu Arn-
björnsdóttur eru: b) Arnbjörn
Elvar Elíasson, f. 18.4. 1968 (son-
ur Jónasínu). c) Þormóður Krist-
ján, f. 12.3. 1973. Sambýliskona
Björg Aradóttir, f. 20.1. 1976. Þau
eiga tvo syni, Daða, f. 31.3. 2003,
og Atla, f. 11.5. 2005. d) Helga
Vigdís, f. 1.5. 1974. Sambýlis-
maður Kristinn Jóhann Ásgríms-
son, f. 25.8. 1972. Börn Helgu Vig-
dísar og fyrrverandi sambýlis-
manns, Antony Vernhard
Aguilar, f. 3.9. 1974, eru Mikael
Elí, f. 27.6. 1995, og Evíta Marín,
f. 23.10. 1996. Börn Helgu Vigdís-
ar og Kristins eru Karítas Embla,
f. 2.1. 2006, Herdís Mist, f. 2.1.
2006, og Birkir Leví, f. 29.10.
2007. 3) Leifur Kristján, f. 22.8.
1960. Kvæntur Maríu Aðalsteins-
dóttur, f. 10.7. 1970. Synir þeirra
eru Aðalsteinn, f. 9.7. 1998, og
Aðalbjörn, f. 21.7. 2003.
Kristjana flutti níu ára gömul
frá Þorvaldsstöðum til Húsavíkur
og bjó þar alla tíð síðan, lengst af
í Túngötu 6.
Kristjana verður jarðsungin frá
Húsavíkurkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
eru: 1) Guðbjartur
Vilberg, f. 30.4.
1940, kvæntur Auði
Guðjónsdóttur, f. 2.5.
1943. Dóttir Guð-
bjarts og Guðrúnar
Flosadóttur, f. 10.11.
1940, er Kristjana
Emilía, f. 14.5. 1959.
Giftist Skúla Mar-
teinssynir, f. 7.2.
1952. Þau skildu.
Dætur þeirra eru
Gígja, f. 5.3. 1984,
sonur hennar er
Skúli Örn, f. 15.4.
2003, Brynja, f. 5.3. 1984, og Guð-
rún Ýr, f. 7.4. 1987. Sambýlis-
maður Kristjönu er Guðmundur
Símonarson, f. 19.11. 1955. Börn
Guðbjarts og Auðar eru: a) Katr-
ín, f. 17.12. 1963, gift Skúla Skúla-
syni, f. 21.12. 1964, dætur þeirra
eru Auður Björt, f. 27.2. 1991, og
Ásta Steina, f. 10.3. 1993. b) Þor-
móður, f. 21.3. 1969. Kvæntist
Kristínu Gunnarsdóttur, f. 21.5.
1970. Þau skildu. Börn þeirra eru
Hera Björk, f. 4.8. 1995, Anna
Þóra, f. 23.6. 1997, Aron og Breki,
f. 6.11. 2001, d. 6.11. 2001, og
Tara Líf, f. 11.8. 2003. 2) Að-
albjörn, f. 11.3. 1949, d. 6.3. 2002.
Kristjana Vigfúsdóttir, eða gamla
amma eins og strákarnir mínir köll-
uðu hana alltaf, er fallin frá. Mig
langar að minnast hennar með
nokkrum orðum. Ég kynntist Krist-
jönu skömmu eftir að ég kynntist
Leifi syni hennar. Kristjana tók mér
opnum örmum. Hún lét mig alltaf
finna að ég var velkomin í fjölskyld-
una.
Kristjana var mjög lagin í hönd-
unum og féll aldrei verk úr hendi.
Hún prjónaði og heklaði óteljandi
dúka. Dúkarnir hennar eru bæði fal-
legir og vel gerðir. Hún prjónað líka
mikið af leistum og vettlingum sem
að við notum daglega. Handverkið
ber vott um natni og góðan smekk.
Hún gerði líka falleg milliverk sem
sett voru í rúmföt sem aðeins eru
notuð á jólum. Allt eru þetta dýr-
gripir sem okkur finnst gaman að
eiga.
Flestar minningar mínar um
tengdamóður mína eru tengdar jól-
um. Þá kom Kristjana oftast til okk-
ar á Þorláksmessu, en þá átti hún af-
mæli. Við héldu upp á daginn og
síðan var hún hjá okkur á aðfanga-
dag og oft nokkra daga til viðbótar.
Fyrstu jólin okkar saman, kom hún
með okkur á æskuheimili mitt í
Bárðardal og síðar á heimili okkar
Leifs á Akureyri. Þetta voru alltaf
ánægjulegir dagar.
Hún var mjög hrifin af strákunum
og lét það ekki á sig fá þó að mikið
gengi á. Hún var þeim góð amma.
Hún spilaði við þá, horfið á sjónvarp-
ið með þeim og oft sá ég hana horfa á
þá með gleði og stolti. Það gladdi mig
og ég fann hvað henni þótt vænt um
þá. Hún sparaði ekki hlýju orðin og
það þótti okkur vænt um. Strákun-
um þótti líka mjög vænt um hana.
Þeir voru alltaf tilbúnir að fara til
Húsavíkur að hitta gömlu ömmu og
einu sinni gisti annar þeirra hjá
henni á Hvammi, heimili aldraðra á
Húsavík.
Við töluðum oft saman í síma. Hún
fylgdist vel með öllu og ræddi for-
dómalaust um flesta hluti. Ég sagði
henni af aflabrögðum, hvar Leifur
væri að veiða og hvenær von væri á
honum í land. Hún fylgdist líka vel
með strákunum, hvernig þeim vegn-
aði og hvort allri væru frískir.
Ég kveð tengdamóður mín með
virðingu og þökk. Einnig vil ég nota
tækifærið og þakka starfsfólki á
Hvammi, heimili aldraðra á Húsavík,
fyrir ómetanlega umönnun.
María Aðalsteinsdóttir.
Það er erfitt að kveðja þó að ég viti
að þú ert hvíldinni fegin, elsku amma
mín. Frá því að ég man eftir mér hef-
ur það verið fastur punktur í lífi
mínu að fara að minnsta kosti einu
sinni á ári norður á Húsavík til
ömmu og afa á Túngötunni, fyrst
með mömmu, pabba og litla bróður,
síðar með mína eigin fjölskyldu. Nú
verður skrítið að koma til Húsavíkur
og engin amma þar lengur.
Frá ömmu Stjönu hef ég erft
handavinnuáhugann og af henni
lærði ég að sitja ekki auðum hönd-
um, ekki einu sinni fyrir framan
sjónvarpið. Mér er það minnisstætt
frá því að ég dvaldi yfir sumartíma
hjá þeim, þegar amma Stjana sat og
prjónaði eða heklaði fyrir framan
sjónvarpið og afi Manni las textann
fyrir hana, í miklu uppáhaldi hjá
þeim var hann Derriss (þ.e. þýsku
lögregluþættirnir um Derrick).
Ég kveð þig með sömu orðum og
þú varst vön að kveðja mig þegar ég
hringdi í þig; Ég bið að heilsa og Guð
blessi þig.
Þín
Katrín.
Elsku amma mín, með þessum
orðum vil ég þakka þér fyrir allt sem
þú gafst mér. Alla umhyggjuna og
hlýjuna, allar stundirnar í eldhúsinu
og allan fjársjóðinn í búrinu þínu,
sem þraut aldrei. Ég veit að þú vildir
ekki að það yrði haldin um þig lof-
ræða en í mínum augum varstu hetja
og ég gleymi þér aldrei og á eftir að
sakna þín mikið en ég veit að þú ert
komin til afa og ert glöð og ánægð.
Í fjarska varst þú en samt svo nálæg
þó svo söknuðurinn sé sár
með þér er sá sem var þér allt
veit ég að þú hvílir í friði og sátt.
Í fjarska varst þú en alltaf í mínu hjarta
minningar með mér ferðast um þig
í huga mér þú átt þér stað
og sá sem þér var allt.
Í fjarska ert þú nú en samt alltaf hér
þó svo ég felli tár eru þau í sátt
með trega ég þig kveð
eins og þann sem var þér allt.
Í fjarska er ég en samt svo nálægt þér
þó svo ég viti að þér líður vel
gleymast seint allar þær stundir með þér
því þú og sá sem þér var allt eruð í hjarta mér.
(Þ.Vilberg)
Elsu amma og langamma, takk
fyrir allt.
Þormóður Guðbjartsson,
Hera Björk, Anna Þóra
og Tara Líf.
Þriðjudagurinn 15. janúar sl. mun
seint líða mér úr minni. Dagurinn
var ósköp fallegur. Það var kalt en
stillt veður og Stjana mín valdi þenn-
an dag til að kveðja þetta líf. Við
Stjana höfum átt mikil og góð sam-
skipti öll þau ár sem ég hef búið á
Húsavík.
Hún hefur verið Margréti minni
sem besta amma og sjálfri mér ekki
síður, auk þess að vera góð vinkona
mín.
Við Stjönu gat ég talað um allt og
þó að áratugir skildu okkur að í aldri
ríkti mikill og góður skilningur okk-
ar í milli. Hún bar alltaf hag allra í
fjölskyldunni fyrir brjósti og spurði
frétta af öllu og öllum. Það var henni
erfitt fyrir tæpum 6 árum þegar hún
fékk af því fréttir að einn sona henn-
ar, hann Addi, hefði orðið bráð-
kvaddur. En áfram hélt hún og sinnti
því sem henni fannst vera sín vinna,
nefnilega handavinnunni. Handa-
vinnan fylgdi henni allt þar til hún í
raun varð rúmföst u.þ.b. 10 dögum
áður en hún kvaddi okkur og mörg
listaverk sem hún gerði í höndunum
prýða heimili okkar, hendur og fæt-
ur.
Ég sat mikið hjá henni síðustu
dagana og sem fyrr fór okkur margt
í milli. Stjana var ákveðin kona, þó að
hún hafi að mínu viti verið alltof góð
fyrir þennan heim. Hún vildi alltaf
allt fyrir alla gera þó að ekki fengi
hún það alltaf endurgoldið í sömu
mynt.
Að lokum vil ég óska Stjönu minni
góðrar ferðar, ég veit að Manni og
Addi taka vel á móti henni. Ég þakka
þér, Stjana mín kær, fyrir allar
stundirnar sem við áttum saman.
Við, sem þekktum þig erum ríkari
eftir þó að söknuðurinn sé til staðar
og tómarúm skapist í lífum okkar við
fráfall þitt. Það munar um liðsstyrk
þinn til allra góðra í þínum nýju
heimkynnum og það veit ég að þú ert
sátt.
Mig langar til að kveðja þig með
þessum orðum:
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Guð blessi minningu Kristjönu
Vigfúsdóttur og veiti fjölskyldu
hennar styrk í sorginni.
Soffía Anna Steinarsdóttir.
Kristjana Emilía
Vigfúsdóttir
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, systir, amma,
langamma og vinur,
SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR,
Vesturgötu 14,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja mánudaginn
21. janúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn
28. janúar kl. 13:00.
Unnur Birna Þórhallsdóttir, Eðvarð Felix Vilhjálmsson,
Jón Þór Harðarson,
Ólafur Jóhann Harðarson, Anna Marie Kjærnested,
Þorleifur K. Sigurþórsson, Anna Kristín Friðriksdóttir,
Björn K. Sigurþórsson, Ásdís Björk Þorvaldsdóttir,
Ingimundur Óskarsson,
Sigurður Björnsson,
Helgi Ólafsson,
Árni Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUNNAR GISSURARSON
prentari,
Hlíðarhúsum 3,
sem andaðist aðfararnótt föstudagsins 18. janúar,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju
mánudaginn 28. janúar kl. 13.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Félag
einstakra barna, sími 568 2661.
Guðný Helgadóttir,
Rannveig Gunnarsdóttir, Björn H. Jóhannesson,
Ásta Gunnarsdóttir, Guðmundur R. Bragason,
Kristín Gunnarsdóttir, Haraldur Þ. Gunnarsson,
barnabörn og langafabarn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐLAUGAR JÓHÖNNU SIGURJÓNSDÓTTUR
Ránargötu 2,
Akureyri,
sem lést á Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
föstudaginn 11. janúar.
Sérstakar þakkir til starfsstúlkna í Hlíð og heimaþjónustu
Akureyrarbæjar fyrir alla umönnun og aðhlynningu.
Jónas R. Franzson, Guðrún K. Guðmundsdóttir,
Ívar Baldursson, Sigríður Gunnarsdóttir,
Sigrún Á. Franzdóttir,Guðmundur Skúlason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNÞÓR GUÐMUNDSSON,
rithöfundur og fyrrverandi bóndi
frá Dæli,
verður jarðsunginn frá Hvammstangakirkju
þriðjudaginn 29. janúar kl. 14:00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Heilbrigðisstofnunina á Hvammstanga.
Helga Gunnþórsdóttir, Guðmundur Leifsson,
Sæmundur Gunnþórsson, Nanna Ólafsdóttir,
Róberta Gunnþórsdóttir, Garðar Guðmundsson,
Víglundur Gunnþórsson, Sigrún Valdimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
PÁLL ÓSKAR HAFLIÐASON,
Búð, Þykkvabæ,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi,
þriðjudaginn 15. janúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Steinunn Adolfsdóttir,
Harald Kulp, María S. Finnsdóttir,
Georg Kulp, Hafdís Jónsdóttir,
Adolf Hauksson,
Aðalheiður Hauksdóttir, Ingi T. Guðjónsson,
Hafliði Pálsson, Margrét B. Svavarsdóttir
og barnabörn.