Morgunblaðið - 26.01.2008, Síða 46
46 LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR OG KIRKJUSTARF
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og pré-
dikar. Organisti Krisztina K. Szklenár.
Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng. Hulda
Snorradóttir söngnemi við Söngskólann í
Reykjavík syngur. Sunnudagaskólinn í
safnaðarheimili kirkjunnar. Kaffi, ávaxta-
safi og meðlæti á eftir.
ÁSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11. Um-
sjón: Elías og Hildur Björg. Messa kl. 14.
Sr. Svanhildur Blöndal heimilisprestur á
Hrafnistu þjónar fyrir altari og prédikar.
Kór Áskirkju syngur, organisti Magnús
Ragnarsson. Kaffisopi í boði sóknar-
nefndar eftir messu. Guðsþjónusta á
hjúkrunarheimilinu Skjóli kl. 13.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli kl.
11 í sal Álftanesskóla. Kvöldvaka í sal
Álftanesskóla kl. 20. Sr. Sigurjón Árni Eyj-
ólfsson talar og leikur á hljóðfæri ásamt
Bjarti Loga Guðnasyni organista. Ungling-
ar aðstoða, sr. Friðrik J. Hjartar leiðir
stundina. Kaffi og kaffihúsastemning.
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi |
Guðsþjónusta kl. 11 f.h. Gunnar Krist-
jánsson sóknarprestur.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskylduguðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Bryndís Malla
Elídóttir. Öll fimm ára börn sérstaklega
velkomin. Yngri barnakór syngur undir
stjórn Gunnhildar Höllu Baldursdóttur.
Kaffi, djús og kex eftir messu. Tóm-
asarmessa kl. 20.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11.
Samvera fyrir alla fjölskylduna með söng
og fræðslu. Ungmennahljómsveit spilar
undir stjórn Renötu Ivan. Guðsþjónusta kl.
14. Prestur sr. Petrína Mjöll Jóhannes-
dóttir. Kór Bústaðakirkju syngur undir
stjórn Renötu Ivan. Molasopi eftir messu.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur
sr. Gunnar Sigurjónsson. Organisti Bjarni
Þ. Jónatansson. Kór Digraneskirkju B-
hópur. Einsöngur: Ingunn Gyða Hrafnkels-
dóttir nemandi Söngskólans í Reykjavík.
Sunnudagaskóli á sama tíma í kapellu.
Léttar veitingar að messu lokinni. www
digraneskirkja.is
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11, sr. Hjálmar
Jónsson prédikar, Dómkórinn syngur, org-
anisti er Kjartan Sigurjónsson. Barnastarf
á kirkjuloftinu.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Guðsþjónusta á
Biblíudaginn kl. 11. Sr. Guðmundur K.
Ágústsson. Kór Fella- og Hólakirkju leiðir
almennan safnaðarsöng. Fjóla Bragadótt-
ir syngur einsöng. Organisti er Ástríður
Haraldsd. Sunnudagaskóli í umsjá Þór-
eyjar Jónsd. Kirkjuvörður Jóhanna Bj. Boð-
ið upp á súpu í safnaðarheimili kirkjunnar.
FRÍKIRKJAN KEFAS | Sunnudagaskóli kl.
11. Kennsla, söngur, leikir o.fl. Almenn
samkoma kl. 14 þar sem Helga R. Ár-
mannsdóttir prédikar. Á samkomunni
verður lofgjörð, barnastarf og brauðs-
brotning. Að samkomu lokinni verður kaffi
og samfélag.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta og
barnastarf kl. 14. Á þessum biblíudegi
annast fermingarbörn ritningarlestra, for-
eldrar og fjölskyldur hvött til þátttöku.
Hjörtur Magni Jóhannsson predikar og
þjónar fyrir altari. Í predikun verður fjallað
um hina nýju biblíuþýðingu og mikilvægi
trúarrita, svo sem Kóransins innan íslam
og Talmúdsins innan gyðingdóms. Nanda
María og Móeiður fara með börnin upp í
safnaðarheimili.
FÆREYSKA sjómannaheimilið | Sam-
koma kl. 17 í Brautarholti 29, Skúli Svav-
arsson trúboði predikar. Kaffi og spjall efir
samkomu.
GAULVERJABÆJARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11.
GLERÁRKIRKJA | Kirkjuheimsókn barna-
starfs, mæting kl. 10. Barnastarf og
messa kl. 11. Ósk sér um barnastarfið.
Nýr djákni, Aðalheiður Jóhannsdóttir, boð-
in velkomin til starfa og mun hún þjóna
ásamt sr. Gunnlaugi Garðarssyni. Org-
anisti er Hjörtur Steinbergsson. Félagar úr
Kór Glerárkirkju leiða söng.
GRAFARHOLTSSÓKN | Sunnudagaskóli
kl. 11 í Ingunnarskóla. Þorgeir og Anna El-
ísa sjá um stundina. Messa kl. 11 í Þórð-
arsveig 3. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfs-
son, organisti Hrönn Helgadóttir, kirkjukór
Grafarholtssóknar syngur.
GRAFARVOGSKIRKJA | Messa í Graf-
arvogskirkju kl. 11. Fundur með foreldrum
og fermingarbörnum úr Borga-, Engja-,
Korpu- og Víkurskóla. Sr. Vigfús Þór Árna-
son og sr. Bjarni Þór Bjarnason. Organisti
Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Kór Graf-
arvogskirkju syngur. Fiðla Hjörleifur Vals-
son. Kontrabassi Birgir Bragason. Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Séra Lena Rós
Matthíasdóttir. Umsjón Hjörtur og Rúna.
Undirleikari Stefán Birkisson.
Borgarholtsskóli | Sunnudagaskóli kl. 11.
Umsjón Gunnar og Díana. Undirleikari
Guðlaugur Viktorsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10.
Bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11.
Messa kl. 11. Altarisganga. Biblíudag-
urinn. Samskot til Hins ísl. Biblíufélags.
Messuhópur þjónar. Kirkjukórinn leiðir
söng. Einsöngur Ásdís B. Gestsdóttir. Org-
anisti Árni Arinbjarnarson. Prestur sr. Petr-
ína Mjöll Jóhannesdóttir.
GRUNDARFJARÐARKIRKJA | Barna- og
fjölskyldumessa kl. 11. Sr. Elínborg
Sturludóttir þjónar fyrir altari. Kirkjukór
Setbergsprestakalls leiðir safnaðarsöng.
Organisti Tómas Guðni Eggertsson. Sólar-
kaffi í safnaðarheimili að messu lokinni.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili |
Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Sveinbjörn
Bjarnason. Organisti Kjartan Ólafsson
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Tónlistarhátíð á Biblíudegi. Prestur
Þórhallur Heimisson. Ræðuefni: Biblían.
Kantor Guðmundur Sigurðsson.
HALLGRÍMSKIRKJA | Biblíudagurinn.
Fræðslumorgunn kl. 10. Messa og barna-
starf kl. 11. Biskup Íslands prédikar og
þjónar ásamt prestum kirkjunnar og hópi
messuþjóna. Tvær stúlkur úr Söngskól-
anum í Reykjavík syngja. Mótettukór syng-
ur. Organisti Hörður Áskelsson. Ensk
messa kl. 14 í umsjá sr. Bjarna Þórs
Bjarnasonar. Forsöngvari Guðrún Finn-
bjarnardóttir. Organisti Hörður Áskelsson.
Messukaffi.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnaguðs-
þjónusta kl. 11 á Biblíudaginn. Prestur
Guðbjörg Jóhannesdóttir, organisti Dou-
glas Brotchie, kór kirkjunnar leiðir söng-
inn. Einsöngur Heiðrún Gissunn. Erla Guð-
rún og Páll Ágúst leiða barnastundina.
Léttur hádegisverður í safnaðarheimili að
messu lokinni.
HJALLAKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Íris
Kristjánsdóttir þjónar. Félagar úr kór kirkj-
unnar syngja og leiða safnaðarsöng. Ólöf
Ólafsdóttir, nemandi úr Söngskólanum í
Reykjavík, syngur einsöng. Organisti Jón
Ólafur Sigurðsson. Sunnudagaskóli kl.
13. Sjá einnig www.hjallakirkja.is.
HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Sam-
koma kl. 17 í umsjón Níelsar Jakobs Erl-
ingssonar. Allir velkomnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma kl. 20. Gestir Majórshjónin Turid og
Knut Gamst.
HRÍSEYJARKIRKJA | Messa kl. 14.
ÍSLENSKA KIRKJAN í Lundúnum | Íslensk
messa í Sænsku kirkjunni á 6 Harcourt
St. í Lundúnum, W1H 4AG kl. 15. Sunnu-
dagaskóli verður á sama tíma í safn-
aðarsalnum. Messukaffi á eftir.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN | Barnastarf
kl. 11. Samkoma kl. 20 með lofgjörð, vitn-
isburði og fyrirbænum. Friðrik Schram pre-
dikar. Þáttur kirkjunnar „Um trúna og til-
Orð dagsins:
Ferns konar sáðjörð.
(Lúk. 8)
Þýðingar Biblíunnar
á íslensku í
Hallgrímskirkju
FRÆÐSLUMORGNAR hefjast að
nýju í Hallgrímskirkju á morgun,
sunnudag, kl. 10. Þá flytur dr. Ein-
ar Sigurbjörnsson, prófessor við
guðfræðideild HÍ, fyrirlestur sinn:
Þýðingar Biblíunnar á íslensku í til-
efni Biblíudagsins. Dr. Einar átti
sæti í þýðingarnefnd Nýja testa-
mentisins frá árinu 2003, en ný
biblíuþýðing leit sem kunnugt er
dagsins ljós sl. haust. Fjallar erindi
hans um tungutak og málfar í ís-
lenskum biblíuþýðingum fyrr og
nú. Alls verða sex fræðslumorgnar
á þessu misseri, ávallt í suðursal
Hallgrímskirkju á sunnudags-
morgnum kl. 10 fram að messu kl.
11. Heitt á könnunni.
Messa á ensku
í Hallgrímskirkju –
Service in English
ENSK messa á morgun kl. 14.
Prestur sr. Bjarni Þór Bjarnason.
Messukaffi. Enskar messur eru
haldnar síðasta sunnudag hvers
mánaðar í kirkjunni sjöunda árið í
röð.
Service in English
at Hallgrímskirkja
SERVICE in english at Hallgríms-
kirkja, January 27th at 2 pm. Holy
communion. The third sunday after
the Epiphany. Preacher and cele-
brant: The Revd. Bjarni Þór
Bjarnason. Organist: Hörður Ás-
kelsson. Leading singer: Guðrún
Finnbjarnardóttir. Refreshments
after the service.
Fundur með foreldrum
og fermingarbörnum
í Grafarvogskirkju
FUNDUR með foreldrum og ferm-
ingarbörnum í Borga-, Engja-,
Korpu- og Víkurskóla verður á
morgun, sunnudag, kl. 11.
Prestar: séra Vigfús Þór Árna-
son og séra Bjarni Þór Bjarnason.
Kór Grafarvogskirkju syngur.
Organisti: Aðalheiður Þorsteins-
dóttir. Fiðla: Hjörleifur Valsson.
Kontrabassi: Birgir Bragason.
Í messunni er fermingarbörnum
boðið að ganga til altaris í fylgd
með foreldrum sínum. Að lokinni
messu er fundur, þar sem fjallað er
um fermingardaginn og atriði er
lúta að fermingunni.
Sunnudagaskóli á sama tíma kl.
11 í Grafarvogskirkju og í Borgar-
holtsskóla.
Kirkjustarf eldri
borgara í Fella- og
Hólakirkju
KIRKJUSTARF eldri borgara í
Fella- og Hólakirkju er alla þriðju-
daga kl. 13-16. Í hverri samveru-
stund er boðið upp á skipulagða
dagskrá. Það geta verið léttir fyr-
irlestrar, fræðsla, tónlist og fleira.
Næsta þriðjudag, 22. janúar, mun
Guðný Einarsdóttir, organisti
kirkjunnar, fræða viðstadda um
orgel kirkjunnar. Alltaf er gefið
tækifæri til að spjalla saman, sumir
taka í handavinnu og aðrir grípa í
spil. Lesin er framhaldssaga og
boðið upp á kaffi og meðlæti sem
Jóhanna Björnsdóttir og Kristín
Ingólfsdóttir sjá um. Endað er með
helgistund í kirkjunni þar sem fólk
fær tækifæri til að koma fram með
fyrirbænarefni. Umsjón með þessu
starfi hefur Ragnhildur Ásgeirs-
dóttir djákni.
Tónlistarhátíð
í Hafnarfjarðarkirkju
á Biblíudegi
Á MORGUN er Biblíudagur þjóð-
kirkjunnar. Af því tilefni verður
boðið til tónlistarveislu við guðs-
þjónustu í Hafnarfjarðarkirkju kl.
11. Þá mun Inga María Eyjólfs-
dóttir, nemandi í Tónlistarskólan-
um í Hafnarfirði, leika á fiðlu. Eftir
predikun syngur Sigurlín Gústafs-
dóttir, söngnemi í Söngskólanum í
Reykjavík, einsöng í tilefni af árleg-
um kirkjusöngdegi Söngskólans
sem ber upp á Biblíudaginn að
þessu sinni.
Barbörukórinn í Hafnarfirði leið-
ir almennan söng en kantor er Guð-
mundur Sigurðsson.
Prestur stundarinnar er sr. Þór-
hallur Heimisson. Ræðuefni dags-
ins er Biblían og verður fjallað sér-
staklega um tilurð og heimildar-
gildi Nýja testamentisins, og áhrif
Biblíunnar allrar í sögu og samtíð.
Hjálpræðisherinn
í Reykjavík
HEIMILASAMBAND fyrir konur á
mánudag kl. 15, haldið verður upp
á 80 ára afmæli sambandsins. Gest-
ir: Turid og Knut Gamst. Nám-
skeiðið „Góð spurning“ á þriðjudag
kl. 19. Samkoma á fimmtudag kl.
20. Opið hús kl. 16-17.30 daglega
nema mánudaga.
Hafnarfjarðarkirkja.
HENRIK Danielssen var nær
öruggur um sigur á Skákþingi
Reykjavíkur fyrir lokaumferðina
sem fór fram í gærkvöldi. Henrik
hafði hlotið 7 vinninga og þurfti að-
eins jafntefli í lokaskákinni við Davíð
Kjartansson. Hinsvegar lá fyrir að
Henrik, sem búið hefur hér nokkur
undafarin misseri og hlotið íslenskan
ríkisborgararétt, gæti ekki orðið
Skákmeistari Reykjavíkur þar sem
hann á lögheimili i Hafnarfirði og er
félagi í skákdeild Hauka. Baráttan
um titilinn stendur því á milli þeirra
sem eru næstir honum að vinning-
um. Staða efstu manna fyrir loka-
umferðina sem fram fór í gærkvöldi
var þessi:
1. Henrik Danielssen 7 v.
2.-6. Guðmundur Kjartansson,
Davíð Kjartansson,
Daði Ómarsson,
Sigurbjörn Björnsson og
Sverrir Örn Björnsson 6 v.
7.-10. Ingvar Þór Jóhannesson,
Hjörvar Steinn Grétarsson,
Hrafn Loftsson og
Kristján Örn Elíasson 5 ½ v.
Daði Ómarsson, sem hefur staðið
sig frábærlega, átti að tefla við Guð-
mund Kjartansson í lokaumferðinni.
Skákmeistari Reykjavíkur 2007, Sig-
urbjörn Björnsson, var með hvítt
gegn Sverri Erni Björnssyni. Aðrir
en þessir komu varla til greina en
þeir keppendur sem voru í 7.-10. sæti
áttu þó einhverja möguleika með
hagstæðum úrslitum.
Mótið í ár er nokkuð vel mannað
og margir ungir skákmenn hafa bætt
sig verulega, ekki síst stúlkur. Þann-
ig hækka þær stöllur Hallgerður
Helga Þorsteinsdóttir, Elsa María
Þorfinnsdóttir og Jóhanna Björg Jó-
hannsdóttir um að meðaltali 30 stig
eða meira á mótinu.
En fremstir í flokki meðal ungu
skákmannanna á Skákþingi Reykja-
víkur eru þeir Daði Ómarsson og
Hjörvar Steinn Grétarsson. Sá síð-
arnefndi tefldi eina glæsilegustu
skák mótsins þegar hann lagði Davíð
Kjartansson að velli. Samisch-af-
brigði kóngsindversku varnarinnar
hefur reynst Hjörvari vel undanfarið
og þótt byrjunarleikirnir virki ein-
kennilega á menn eru leikir eins og
16. Rh1 alþekktir í þessu afbrigði.
Davíð er ekki alveg með á nótunum
og Hjörvar nær að byggja upp góða
stöðu. Skiptamunarfórnin í 20. leik
er bráðsnjöll. Hvítur fær ógnandi
færi á svörtu reitunum eftir að
„kóngsindverski“ biskupinn hverfur
af sjónarsviðinu. Eftir 27. Rc4 er
svartur í miklum vandræðum og það
er eins og skákin tefli sig sjálf upp
frá því; 29. e5, 31. Bg5, 35. Re4 eru
allt hnitmiðaðir leikir.
Skákþing Reykjavíkur 2008, 3.
umferð
Hjörvar Steinn Grétarsson –
Davíð Kjartansson
Kóngsindversk vörn
1. c4 Rf6 2. Rc3 g6 3. e4 d6 4. d4
Bg7 5 . f3 0-0 6. Rge2 c5 7. d5 e6 8.
Rg3 exd5 9. cxd5 a6 10. a4 He8 11.
Be2 Rbd7 12. 0-0 h5 13. Bg5 Db6 14.
Dd2 Rh7 15. Be3 h4 16. Rh1 f5 17.
Rf2 Re5 18. a5 Dd8 19. Ra4 fxe4 20.
fxe4 Rd7
21. b4 Bxa1 22. Hxa1 cxb4 23.
Dxb4 De7 24. He1 Rhf6 25. Bf4 Re5
26. Rb6 Hb8 27. Rc4 Rxc4 28. Bxc4
Hd8 29. e5 Rh5 30. exd6 Df8 31. Bg5
Dxd6 32. He8+ Kf7 33. He7+ Kg8
34. Dxd6 Hxd6 35. Re4 Hd7 36. d6+
Kh8 37. He8+ Kh7 38. Rf6+
– og svartur gafst upp.
Magnús Carlsen efstur – mikil
spenna fyrir lokasprettinn
Á Corus-mótinu í Wijk aan Zee er
allt útlit fyrir æsispennandi loka-
sprett. Magnús Carlsen var ótrúleg-
an heppnisigur í 10. umferð þegar
hann lagði Hollendinginn Van Wely
að velli. Við það komst hann einn á
toppinn og hefur hvítt í tveimur
skákum af þremur á lokasprettinum.
Frammistaða Norðmannsins unga
er vitaskuld frábær og vinni hann
mótið má halda því fram að líkurnar
á því að hann verði heimsmeistari
hafi aukist verulega. Baráttan um
helgina verður áreiðanlega afar hörð
og ekkert gefið eftir.
1. Magnús Carlsen (Noregi) 6½ v. (af 10)
2. Levon Aronian (Armeníu) 6 v.
3.-7. Vladimir Kramnik (Rússlandi),
Teimour Radjabov (Azerbadsjan),
Michael Adams (Englandi),
Vasilí Ivantsjúk (Úkraínu) og
Wisvanathan Anand (Indlandi) 5 ½ v.
8.-10. Shakryar Mamedyarov (Azerbad-
sjan), Veselin Topalov (Búlgaríu) og
Peter Leko (Ungverjalandi) 5 v.
11. Judit Polgar (Ungverjalandi) 4 ½ v.
12. Loek van Wely (Hollandi) 4 v.
13. Boris Gelfand (Ísrael) 3 ½ v.
14. Pavel Eljanov (Rússlandi) 3 v.
Góð frammistaða
Stefáns og Dags
Fimm skákmenn, þeir Stefán
Kristjánsson, Bragi Þorfinnsson,
Dagur Arngrímsson, Björn Þor-
finnsson og Róbert Harðarson, sitja
þessa dagana að tafli í Marianske
Lazne í Tékklandi þar sem fram fer
mikil skákhátíð. Stefán og Dagur
reyna að ná tilskildum stigafjölda til
að titlar þeirra, stórmeistaratitill
Stefáns og alþjóðlegur meistaratitill
Dags, taki gildi. Til þess þarf Stefán
að ná 2.500 Elo-stigum og Dagur
2.400 Elo-stigum. Stefán og Bragi
tefla sinn í hvorum stórmeistara-
flokknum en hinir í flokkum alþjóð-
legra meistara.
Helstu markmið er varðar stiga-
hækkun virðast ætla að nást. Stefán
er í 2.-3. sæti með 4 v. af 6 mögu-
legum í flokki stórmeistara og Dagur
er efstur í sínum flokki með 5 vinn-
inga af 6 mögulegum.
Bragi er með 50% vinningshlutfall
og þeir Björn og Róbert eru á svip-
uðum slóðum.
Kalt stríð Toilet-gate dregur dilk á eftir sér. Topalov og Kramnik tókust
ekki í hendur þegar þeir mættust í 9. umferð á Corus-mótinu.
Fimm berjast um
skákmeistaratitilinn
helol@simnet.is
Helgi Ólafsson
SKÁK
6.-25. janúar
Skákþing Reykjavíkur