Morgunblaðið - 26.01.2008, Page 51
Fánafrú Skrautlegur stuðningsmaður á fundi forseta-
frambjóðandans John McCain í Flórída
Busl Fílskálfur buslar í Bangkok á Tælandi.
Glerblástur Bráðið gler mótað í Hvíta-Rússlandi.
REUTERS-fréttastofan velur á degi hverjum úrval ljós-
mynda sem teknar eru af ljósmyndurum á hennar veg-
um. Af nógu er að taka og hér er aðeins lítið brot af þeim
myndum sem birtust á vef fréttastofunnar í gær, en sýn-
ir þó ágætlega hversu fjölbreyttar þær eru og teknar af
miklu listfengi. Myndir segja oft meira en þúsund orð og
orð fá sannarlega ekki alltaf lýst því sem fyrir augu ber.
Reuters
Dansmey Frá kjötkveðjuhátíð í Montevideo, Úrúgvæ.
Segja meira
en þúsund orð
Leikarinn Stytta fægð fyrir afhendingu leiklistarverð-
launanna SAG í Los Angeles sem fer fram á morgun.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2008 51
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Félagsmiðstöðin
er opin virka daga kl. 9-16.45.
Alþjóðahúsið | Fjöltefli við Helga
Ólafsson, skólastjóra Skákskóla
Íslands og stórmeistara. Þátttak-
endur komi með töfl. Tilkynnið
þátttöku á helga@ahus.is fyrir kl.
12, á mánudag. Skákkvöld öll
mánudagskvöld kl. 20 -22 í sam-
starfi við Skákskóla Íslands.
Bólstaðarhlíð 43 | Revía í Iðnó
5. febrúar kl. 14. Söngperlur úr ís-
lenskum revíum. Rútuferð frá
Bólstaðarhlíð kl. 13.10. Miðaverð
kr. 2.500. og rútugjald kr. 500.
Skráning í s. 535-2760.
Félagsheimilið Gjábakki |
Krummakaffi kl. 9. Hana-nú
ganga kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Dag-
ana 6.-10.feb. er menningar- og
listahátíð eldri borgara í Breið-
holti, m.a. íþróttahátíð á ösku-
daginn, kynslóðir saman í ýmsum
verkefnum, kynning á félagsstarfi
í Breiðholti og dagskrá í Ráðhúsi,
umsj. Þjónustumiðstöð Breið-
holts.
Hraunbær 105 | Í Árbæjarlaug er
boðið upp á kennslu í sund-
leikfimi á þriðjudögum og
fimmtudögum kl. 12.05. Nánari
upplýsingar í síma 411-5200. Fös-
tud. 1. feb. Þorrablót, Þorramatur
frá veisluþj. Lárusar Loftssonar.
Þjóðlagasveit tónlistarsk. á Akra-
nesi spilar. Þorvaldur Halldórs
skemmtir. Skráning á skrifstofu
eða í síma 411-2730 fyrir 28. jan.
Verð kr. 3.500,-
Hæðargarður 31 | Listasmiðjan
alltaf opin. Ganga alla daga nema
sunnud. Leikfimi 3svar í viku. Fé-
lagsvist og skapandi skrif mánud.
Bör Börsson og Bónus á þriðjud.
Þorrablót 1. feb. Revían 5. feb.
Kíktu við í kaffi og skoðaðu alla
dagskrána. U. 568-3132
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í
Snælandsskóla, Víðigrund kl.
9.30. Upplýsingar í símum 564-
1490 og 554-5330.
Kirkjustarf
Dómkirkjan | Sunnudaginn 27.
jan. kl. 14 er Kolaportsmessa á
Kaffi Port. Fyrirbænum er safnað
frá kl. 13:30 á meðan Þorvaldur
Halldórsson leikur og syngur.
Prestar, djáknar og sjálfboðaliðar
leiða stundina. Allir velkomnir.
80ára afmæli. Átt-ræð er í dag, 26.
janúar, Ragnhildur
Ása Pálsdóttir. Hún
býður vinum og vanda-
mönnum í afmælisboð í
Skógarseli 21 í Reykja-
vík frá kl. 15 til 18.
dagbók
Í dag er laugardagur 26. janúar, 26. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Þegar sál mín örmagnaðist í mér, þá minntist ég Drottins, og bæn mín kom til þín, í þitt heilaga musteri. (Jónas 2, 8.)
Vetrarfrí eru haldin í flestumgrunnskólum í febrúar. Ísumarbúðum KFUM ogKFUK í Vindáshlíð í Kjós,
um 45 km frá Reykjavík, hafa um langt
skeið verið haldnar vinsælar sumar-
búðir fyrir stúlkur. Þar er nú í fyrsta
sinn boðið upp á fræðandi námskeið
fyrir foreldra og börn á vetrarfrítíma.
Námskeiðið ber yfirskriftina Vellíð-
an í Vindáshlíð og fjallar um uppeldi og
samskipti, en boðið er upp á tvö nám-
skeið: hið fyrra helgina 1. til 3. febrúar,
og hið síðara helgina 15. til 17. febrúar.
Fjölskyldan saman
Hólmfríður Petersen er fram-
kvæmdastjóri Vindáshlíðar: „Nám-
skeiðinu er ætlað að skapa tækifæri
fyrir fjölskylduna til að njóta skemmti-
legrar samveru í vetrarfríinu. Dag-
skránni er þannig hagað að foreldrar
þurfa ekki að taka sér frí frá vinnu, og
byggist á skemmtun, fyrirlestrum og
ýmsum uppákomum,“ segir Hólm-
fríður, sem skipuleggur námskeiðið í
samstarfi við Hrund Þórarinsdóttur
uppeldisfræðing og djákna.
Fjör og fyrirlestrar
„Mæting er í Vindáshlíð kl. 18.30 á
föstudegi. Eftir kvöldmat er kvöldvaka
og ýmiskonar skemmtun og fræðsla.
Laugardagur hefst með fyrirlestri fyrir
foreldra um uppeldishætti, og síðar um
daginn fyrirlestur um úrlausn ágrein-
ingsmála innan fjölskyldunnar,“ segir
Hólmfríður. „Á meðan foreldrarnir
hlýða á fyrirlestra er skemmtileg stund
fyrir börnin og milli fyrirlestra er heil-
mikið fjör fyrir alla fjölskylduna, fönd-
ur, útivist og íþróttir,“
Náttfatateiti og kósýkvöld
Dagskrá laugardagsins lýkur með
náttfatateiti fyrir börnin, á meðan for-
eldrarnir halda kósýkvöld. „Á sunnu-
dag er helgistund í Hallgrímskirkju í
Vindáshlíð, og að loknum hádegismat
halda fjölskyldurnar heim á leið.“
Þáttökugjald á námskeiðinu er 5.900
kr. á hvern gest, en ókeypis er fyrir
börn yngri en þriggja ára og hámarks-
verð 23.000 kr. á fjölskyldu. Innifalið er
fæði og gisting.
Nánari upplýsingar eru á slóðinni
www.kfum.is og fer skráning fram í
síma 588 8899.
Fjölskyldan | Námskeið í vetrarfríi í Vindáshlíð fyrir foreldra og börn
Samskipti og samvera
Hólmfríður Pet-
ersen fæddist í
Kópavogi 1966.
Hún lauk stúdents-
prófi frá Kvenna-
skólanum í Reykja-
vík 1986. BA-prófi
í uppeldis- og
menntunarfræði
frá Háskóla Íslands
1991 og viðbótarnámi í bókasafns-
fræði fyrir skólasöfn frá sama skóla
1996. Hún stundar nú framhaldsnám
við kennslu- og lýðheilsudeild Háskól-
ans í Reykjavík. Hólmfríður starfar nú
sem framkvæmdastjóri Vindáshlíðar.
Tónlist
Kjarvalsstaðir | Árlegir Mozart-
tónleikar verða 27. janúar kl. 20.
Flytjendur eru Krystyna Cortes, Val-
gerður Andrésdóttir. Laufey Sigurð-
ardóttir, Þórunn Ósk Marinósdóttir,
Einar Jóhannesson. Helgi Jónsson
mun spjalla um tónskáldið og tónlist-
ina sem flutt verður.
Mannfagnaður
Breiðfirðingafélagið | Félagsvist í
Breiðfirðingabúð, sunnud. 27. janúar
kl. 14. Annar dagur í þriggja daga
keppni. Sjá nánar heimasíðu Breið-
firðingafélagsins: www.bf.is
KVIKMYNDASAFN Íslands sýnir í
dag kl. 16 kvikmyndina Apocalypse
Now (1979) eftir Francis Ford Cop-
pola, í Bæjarbíói í Hafnarfirði,
Strandgötu 6. Sögusvið mynd-
arinnar er Víetnamstríðið frá sjón-
arhorni Benjamins L. Willard höf-
uðsmanns, sem sendur er inn í
frumskóginn til að ráða af dögum
ofursta í sérsveit bandaríska hers-
ins, Walter E. Kurtz, sem álitið er
að genginn sé af vitinu.
Með helstu hlutverk í myndinni
fara Martin Sheen, Marlon Brando,
Robert Duvall og Dennis Hopper.
Miðaverð er 500 kr. Miðasala verð-
ur opnuð um hálftíma fyrir sýn-
ingu.
Apocalypse Now í bíó
FRÉTTIR
DR. JAMES A. Thurber, prófessor
og forstöðumaður Center for Con-
gressional and Presidential Studies
við American University í Wash-
ington D.C., heldur fyrirlestur
þriðjudaginn 29. janúar í Hátíð-
arsal Háskóla Íslands kl. 12-13, í
fundaröð Alþjóðamálastofnunar og
sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi,
um forsetakosningarnar í Banda-
ríkjunum.
Í íslenskri þýðingu ber fyr-
irlestur dr. Thurber heitið Leiðin í
Hvíta húsið:
Innsýn í baráttuna um forseta-
embætti Bandaríkjanna. Sendi-
herra Bandaríkjanna, Carol Van
Voorst, opnar fundinn.
Vordagskrá Alþjóðamálastofn-
unar Háskóla Íslands og Rann-
sóknaseturs um smáríki er uppfærð
á vefslóðinni www.hi.is/page/
ams_dagskra, en þar er ávallt að
finna nýjustu upplýsingar um tíma-
og staðsetningu á viðburðum.
Fyrirlestur um
forsetakosning-
arnar í Banda-
ríkjunum
STJÓRN Alfreðs, félags ungra
framsóknarmanna í Reykjavík suð-
ur, segir í ályktun, að það sé gríð-
arlegt áfall fyrir Framsóknarflokk-
inn að Björn Ingi Hrafnsson,
leiðtogi flokksins í Reykjavík, hafi
ákveðið að hætta í stjórnmálum.
Í ályktun frá félaginu segir, að
mikill uppgangur hafi verið í fé-
lagsstarfinu og friður skapast und-
ir öruggri forystu Björns Inga í
borginni. Mörg góð verk liggi eftir
hann, sem hafi lagt allan sinn metn-
að í að vinna vel fyrir flokkinn sem
og borgarbúa alla.
„Það er með ólíkindum að ein-
staklingar eins og Guðjón Ólafur
Jónsson sem og ónefndur fyrrver-
andi félagsmaður og borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins geti lagst svo
lágt til að skemma vísvitandi fyrir
flokknum og flokksfólki öllu. Fólk
sem er algjörlega rúið trausti og
stuðningi innan flokksins, fólk sem
hefur ítrekað reynt að beita svikum
og óheilindum til að fá sínu fram-
gengt. Stjórn Alfreðs fordæmir
svona vinnubrögð afdráttarlaust og
afgerandi,“ segir í ályktuninni.
Mikið áfall fyrir
Framsóknar-
flokkinn
BUGL bætist enn styrkur og nú
nýverið bárust deildinni tveir ný-
ir Renault-bílar að gjöf. Það er
svokallað útiteymi barna- og ung-
lingageðdeildarinnar sem fyrst
og fremst mun njóta góðs af gjöf-
inni en bílakostur teymisins er
kominn nokkuð til ára sinna. Í
fréttatilkynningu segir meðal
annars að það hafi verið fyrir til-
stilli Lionsklúbbsins Fjörgynjar
að bílakostur útiteymisins var
endurnýjaður. Bílarnir tveir eru
af gerðunum Renault Clio og Re-
nault Trafic og getur stærri bíll-
inn tekið allt að átta farþega.
BUGL mun ekki bera neinn
kostnað af bílunum en B&L gaf
eftir söluhagnað þeirra, Sjóvá gaf
bílatryggingarnar, Glitnir fjár-
mögnun og N1 útvegar eldsneyti.
Merkjagerðin Frank og Jói
merkti bílana BUGL-inu. Við
sama tilefni var afhentur afrakst-
ur árlegra aðventutónleika í
Grafarvogskirkju upp á rúmlega
eina og hálfa milljón króna.
BUGL fær tvo
Renault-bíla að
gjöf