Morgunblaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 20
- kemur þér við Hvað ætlar þú að lesa í dag? Karlar skráðir fyrir fleiri og stærri bílum Röskva ogVaka segjast ekki í pólitík Útrásin til Indlands er hafin Ert þú tvítryggður að óþörfu? SigríðurVíðis skilur ekki Laugardagslögin Bannað að klæðast eins og Pólverjar neytendur 20 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is V ið erum flest fyrir margt löngu orðin vön því að geta keypt bæði bækur og tónlist á net- inu. Nýjustu tónarnir eru sjaldnast nema músarsmell í burtu og flestar bækur, inn- lendar sem erlendar, getum við eignast í gegnum veraldarvefinn. Jafnvel fatnað, skó og raftæki er auðvelt að nálgast með aðstoð netsins. En hvað með mat- væli? Er raunhæft að streituhlaðna heimsóknin í mat- vöruverslunina á föstudegi eftir vinnu geti brátt heyrt sögunni til? Að helgarinnkaupin verði einfaldlega gerð með aðstoð tölvunnar – innkaupakarfan fyllt með örfáum músasmellum og maturinn sendur heim næsta dag. Víða í Evrópu eru matarinnkaup á netinu raunhæfur möguleiki og virðast flestar breskar verslanakeðjur til dæmis bjóða neytendum upp á þennan kost. Hér heima er vissulega hægt að kaupa matvæli í einhverju magni á vefum á borð við nattura.is, en helgarinnkaupin verða þó tæplega afgreidd þar í einu lagi. Kostnaðarsamt að koma upp netverslun „Það er skrýtið að þú skulir nefna þetta,“ segir Kjart- an Már Kjartansson forstöðumaður verslunarsviðs hjá Samkaupum hf. þegar hann er spurður um möguleikann á vefverslun. „Ég hitti um daginn unga konu á frama- braut sem var að skammast yfir að þetta væri hvergi hægt. Hún sagðist ekki nenna að fara út í búð, hún væri önnum kafin í vinnu og vildi bara geta keypt inn á netinu og fengið svo einhvern heim með vörurnar.“ Kjartan Már segir Samkaup þó ekki vera með net- verslun á döfinni. „Við erum meðvitaðir um þennan möguleika en höldum bara að tíminn sé ekki kominn.“ Gísli Sigurbergsson verðlagsstjóri Fjarðarkaupa tók í sama streng. „Það er enginn grunnur fyrir netverslun hjá okkur og þetta er nokkuð sem við höfum mjög lítið velt fyrir okkur.“ Sömu sögu er að heyra hjá Bjarna Friðrik Jóhanns- syni rekstrarstjóra Nóatúns, en hjá Nóatúni hefur um árabil verið rekin heimsendingarþjónusta sem er mikið notuð af eldra fólki. „Við höfum verið að skoða þessi mál, en ekki tekið neinar ákvarðanir hvað þetta varðar. Það er rétt að Bretar standa mjög framarlega á þessu sviði, en matvara hér á landi hefur hins vegar lítið hreyfst í átt að netverslun,“ segir Bjarni Friðrik. „Það kann hins veg- ar vel að vera að ákveðnir hópar hefðu áhuga á slíkri þjónustu en það er líka ljóst að það er kostnaðarsamt að koma henni á fót og hvað okkur varðar þá höfum við ekki tekið neinar ákvarðanir í þessum efnum.“ Stefnum á að verða stærstir Hjá Hagkaup er þegar hægt að kaupa ýmsa sérvöru á netinu og segir Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Hagkaupa raunar ekkert því til fyrirstöðu að fólk geri líka matarinnkaupin á netinu. „Það er kannski ekki bein netverslun, þannig að maður velji vörur í körfu og prenti svo út pöntunina. Það má þó engu að síður senda póstverslun Hagkaupa lista með matvörunni sem maður vill kaupa, þeir sjá um að tína hana til og pósturinn keyr- ir hana heim til manns.“ Þegar Hagkaup gerði tilraun til að reka netverslun með mat um árið barst þriðjungur pantananna ýmist á faxi eða í gegnum síma og að sögn Gunnars Inga voru það ekki eingöngu eldri viðskiptavinir sem höfðu þann háttinn á. „Bein netverslun með matvöru hefur bara ekk- ert verið nýtt hér,“ segir hann og bætir við að mikil bíla- eign okkar Íslendinga eigi eflaust sinn þátt í hve viljug við erum að skreppa út í búð. „Við erum samt sem áður að blása til sóknar í net- versluninni hjá okkur og erum að tengja hana mun meira daglegum skilaboðum frá Hagkaup, til dæmis við Hag- kaupsblöðin.“ Þessi þróun er þó að hans sögn enn skammt á veg komin, en um 2.000 vöruflokkar er nú í netverslunni. „Við sjáum okkur klárlega á netversl- unarmarkaði og stefnum á að verða stærsta netverslun á Íslandi á árinu. Nú þegar bjóðum til dæmis upp á bæði ítölsku línuna og heilsulínuna okkar á netinu, enda erum við mjög stoltir af þeim. Það er síðan spurning hvort mjólk og aðrar matvörur eigi eftir að koma þar inn. Í dag er þó lítið vit í að bjóða upp á mjólkina á netinu því á henni er engin álagning. Það er því löng leið eftir en mat- urinn á eftir að bætast við, það gerist bara hægt og síg- andi.“ Netverslun með matvöru ekki í augsýn Morgunblaðið/ÞÖK Netverslun Enn er nokkuð í að hægt verði að stinga mjólk og osti í innkaupakörfu á internetinu. NÚ er ekki lengur nóg að fara til sálfræðings einn og sér eða sækja sér ráðgjöf með makanum, heldur fara heilu kynslóðirnar saman í meðferð. Sambandið við móðursystur, ömmu eða systkini getur enda valdið vandamálum í mörgum fjöl- skyldum. Því bjóða fleiri og fleiri fjölskylduráðgjafar og sáttamenn í Danmörku ráðgjöf, sem fleiri kyn- slóðir úr sömu fjölskyldu geta nýtt sér saman, að því er fram kemur á vefsíðu Berlingske Tidende. „Þetta eru ósköp venjulegar fjöl- skyldur sem koma til að lagfæra tengslin sín á milli,“ útskýrir sál- fræðingurinn Allan Holmgren sem oft hefur þrjár kynslóðir saman í fjölskyldumeðferð. Anne Leonora Blaakilde sem rannsakað hefur fjölskyldutengsl þvert á kynslóðir útskýrir áhuga fólks á fjölskyldumeðferð með auknum væntingum til fjölskyldu- lífsins. „Fjölskyldan er orðin að verkefni sem þarf að heppnast,“ segir hún. „Í raun er það ótrúlega erfitt því engar fjölskyldur eru fullkomnar. Þess vegna sækja æ fleiri sér aðstoð við að láta fjöl- skyldulífið ganga upp.“ Verði almennara í framtíðinni Hingað til hefur fjölskyldu- meðferð verið útbreiddust í fé- lagslega geiranum sem úrræði vegna barna og unglinga í „þung- um“ fjölskyldum. Báðir ofan- greindir sérfræðingar telja að æ fleiri „venjulegar“ fjölskyldur muni sækja sér meðferð til að leysa ágreining. „Ég held að það verði algengt í framtíðinni að fólk fari með fjöl- skylduna í „eftirlit“ á hálfsársfresti eða árlega, rétt eins og maður fer í skoðun til læknis,“ segir Holm- gren. Blaakilde tekur undir þetta: „Í dag er viðurkennt að fara með maka sínum í meðferð til að byggja upp og bæta sambandið. Ég er viss um að við eigum eftir að sjá það sama þvert á kynslóðir, þannig að mæður og ömmur sæki sér ráð- gjöf saman.“ Kynslóðir í ráðgjöf saman TPN Kynslóðir Það er ekki alltaf vandalaust að vera hluti af fjölskyldu og því gæti verið ráð að taka mömmu, pabba og ömmu með í ráðgjöf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.