Morgunblaðið - 07.02.2008, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ÆTLA AÐ FÁ ÞRJÁ
MIÐA Í SÆDÝRASAFNIÐ
MÉR ÞYKIR
ÞAÐ LEITT...
EN ÞIÐ VERÐIÐ AÐ
SKILJA ÞETTA EFTIR ÚTI
LÁTTU SKUTULINN
NIÐUR, GRETTIR
ÞÚ
EYÐILEGGUR
ALLT
BÖRN ÚT
UM ALLT
SKRIFA BRÉF
TIL GRASKERS-
INS MIKLA!
MÉR FINNST ÉG
HAFA HEYRT ALLT
ÞAÐ ER VEGNA ÞESS AÐ Á
ÖSKUDAGINN RÍS HANN UPP
ÚR AKRINUM OG FLÝGUR UM
HEIMINN TIL AÐ GEFA
BÖRNUM GJAFIR
ÞANNIG AÐ EF ÞÚ ERT ÞÆG
STELPA ÞÁ KEMUR HANN TIL
ÞÍN OG GEFUR ÞÉR GJÖF
PABBI,
MAMMA FÓR
MEÐ MIG Á
BÓKASAFNIÐ
OG
FANNSTU
BÓK TIL AÐ
LESA?
JÁ! ÉG VISSI
EKKI AÐ
BÆKUR GÆTU
VERIÐ SVONA
SKEMMTILEGAR
OG ÞÚ
GETUR
LÍKA LÆRT
MARGT
GETUM VIÐ
EKKI LÁTIÐ
HANN HANGA
Á EINHVERJU
GÖTUHORNI
FREKAR?
ÞAÐ ERU
LÍKA
FRÁBÆRAR
MYNDIR Í
BÓKINNI!
JÁ! Í BÓKINNI MINNI
STENDUR AÐ ÞAÐ SÉ TIL
VESPA SEM VERPIR EGGJUNUM
SÍNUM Á KÓNGULÆR. SÍÐAN
ÞEGAR EGGIN KLEKJAST ÚT ÞÁ
BYRJA LIRFURNAR AÐ ÉTA
SIG INN Í KÓNGULÓNA. ÞÆR
BORÐA MIKILVÆGUSTU
LÍFFÆRIN SÍÐAST, ÞANNIG
AÐ HÚN ER ÉTIN LIFANDI!
BÓKIN
ER ÆÐI!
SJÁÐU!
ÞAÐ SITUR
FUGL Á VAL-
SLÖNGVUNNI
OKKAR!
SUMIR
FUGLAR
ERU SVO
LATIR
ÞIÐ HAFIÐ HEPPNINA
MEÐ YKKUR. ÞAÐ ER
EINMITT ÞRIGGJA
MANNA HÓPUR Á
LEIÐINNI ÚT
ÞÁ ER ÞAÐ KOMIÐ Á
HREINT. KENNARARNIR
ERU FARNIR Í VERKFALL
ÉG TRÚI
ÞVÍ EKKI!
HVERNIG GETA ÞAU GERT
ÞETTA? VITA ÞAU EKKI HVERSU
MIKIÐ ÞAU RASKA LÍFI FÓLKSINS
Í KRINGUM SIG?
ÞAU
GERA
ÞAÐ...
TIL ÞESS ER
LEIKURINN GERÐUR
HVENÆR
KEMUR
RÚTAN?
HANN
ER
ROTAÐUR!
NÚNA
GET ÉG
SLOPPIÐ!
Æ, NEI! ÉG GLEYMDI AÐ
MYNDAVÉLIN VÆRI HÉR!
AAAAA!
dagbók|velvakandi
Kúamjólk og krabbamein
Nokkur umræða hefur farið fram í
Morgunblaðinu að undanförnu um
mögulegt orsakasamhengi milli
neyzlu kúamjólkur og krabbameins,
einkum í blöðruhálskirtli. Oddur
Benediktsson prófessor hefur bent á
að þetta mein sé mjög sjaldgæft í
Austurlöndum (t.d. Kína) þar sem
neyzla kúamjólkur er mjög lítil, and-
stætt því sem gerist á Vesturlöndum
en þar eru þessi mein mjög algeng
eins og alkunna er. Forstjóri Mjólk-
ursamsölunnar hefur andmælt
þessu og heldur því fram að ekkert
orsakasamband sé hér á milli. Benda
má á að framleiðendur tóbaksvara
notuðu lengi vel sömu röksemda-
færslu um krabbamein og reykingar
og skákuðu þá í því skjólinu að við-
eigandi rannsóknir vantaði. Það
sama á við hér.
Hvort sem það stafar af umræddri
umræðu eða ekki hefur undanfarið
verið gegndarlaus og að mínu mati
mjög ósmekkleg auglýsingaherferð
frá Mjólkursamsölunni í Sjónvarp-
inu um heilsufarslegt ágæti kúa-
mjólkur – ágæti sem hefur alls ekki
verið vísindalega sannað. Ef litið er
á mataræði Austurlandabúa annars
vegar og Vesturlandabúa hins vegar
er enginn vafi á því að meginmis-
munurinn er notkun kúamjólkur og
rauðs kjöts.
Kúamjólk er sérhönnuð afurð
náttúrunnar handa kálfum en ekki
mönnum. Hér á landi eru fáanlegar
ágætisvörur sem nota má „í stað“
kúamjólkur, þ.e. sojamjólk með og
án kalks. Bragð þessara vara gefur
kúamjólk ekkert eftir nema síður sé.
Reynir Eyjólfsson
lyfjafræðingur.
Er fólki ekkert heilagt?
Nú er sól að rísa og er það vel, því að
auðvitað hefur myrkrið áhrif á flesta
þótt sumir vilji ekki við það kannast.
Þegar litið er í kringum sig er manni
í raun brugðið, ekki síst vegna þess
að ungliðahreyfing vinstri manna
leyfði sér að standa öskrandi og æp-
andi, baðandi út öllum öngum, reyn-
andi að púa niður þennan yndislega
mann sem Ólafur F. Magnússon er,
bara af því að hann hefur farið í
gegnum tímabundið myrkur sem er
afleiðing af erfiðum hjónaskilnaði.
Hvað er óeðlilegt við það þegar stór
hluti þjóðarinnar þarf á hvers kyns
geðlæknishjálp að halda einhvern
tímann ævinnar? Við höfðum Dag og
hans fólk í 3 mánuði og þar sem
hann er sérstakur vinur Ólafs hef ég
ekki trú á því að hann beri ábyrgð á
þessum skrílslátum og hafna því al-
farið. Ef fólk vill ota sínum tota og
breiða úr sér eins og þessi ungmenni
gerðu ættu þau að hafa vit á því að
gera það einhvers staðar annars
staðar en á pöllum ráðhússins. Því
eitthvað verður að vera heilagt í
þessu annars ágæta samfélagi?
Svo út í aðra sálma og óskylda.
Frá árnu 2005 til dagsins í dag hefur
magn svifryks í borginni minnkað.
Þetta er af hinu góða því rólega er-
um við að þrýsta burt nagladekkj-
unum sem valda mestu um þetta
hættulega ryk sem eyðilagt getur
öndunarfæri fólks. Það er gott að
eitthvað er að lagast í þessu þjóð-
félagi þó að pólitíkin undanfarið hafi
verið til háborinnar skammar.
Jóna Rúna Kvaran.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
ÞETTA fagra glitský sveif yfir Breiðholtinu í kuldakastinu fyrir skömmu.
Glitský myndast hátt í heiðhvolfinu. Þau geta verið undurfögur og minnir
litadýrðin á litina sem sjá má í perlumóðurskeljum.
Árvakur/Árni Sæberg.
Litadýrð í háloftunum
ÞORGERÐUR Katrín Gunn-
arsdóttir menntamálaráð-
herra, Peter-Harry Car-
stensen, forsætisráðherra
þýska sambandslandsins Slés-
víkur-Holstein, og Caroline
Schwarz, menningar-
málaráðherra Slésvíkur-
Holstein, héldu síðstliðinn
mánudag blaðamannafund í
Kiel í tilefni af því að hafinn er
undirbúningur að raðtilnefn-
ingu menningarminja frá tím-
um víkinga á heimsminjaskrá
UNESCO.
Verkefnið er samstarfs-
verkefni margra þjóða en auk
Íslands og Slésvíkur-Holstein
taka Danmörk og Svíþjóð þátt
í verkefninu auk þess sem
stjórnvöld í Kanada og Noregi
hafa fylgst með framvindu mála og
verða hugsanlega aðilar að ferlinu.
Vinna að tilnefningu er langt og
strangt ferli, sem krefst mikils og
náins samstarfs milli þátttökuland-
anna. Öll löndin eiga jafnmikið í
verkefninu þó svo reglur UNESCO
kveði á um að eitt ríki þurfi að bera
ábyrgð á verkefninu og afhenda til-
nefningarskjölin fyrir hönd allra
hinna.
Mun Ísland sinna því hlutverki að
vera ábyrgðaraðili verkefnisins en
frumkvæði að raðtilnefningunni átti
Slésvík-Holstein, sem í nokkur ár
hefur unnið að undirbúningi þess að
tilnefna Heiðabæ og Danavirki á
heimsminjaskrána.
Heimsminjanefnd Íslands hefur
fengið það hlutverk að stýra verk-
efninu og vinnur hún nú að und-
irbúningi málþings og fundar á Ís-
landi í apríl þar sem kallaðir verða
til fulltrúar þeirra landa, sem taka
þátt í verkefninu.
Stefnt er að því að tilnefning
vegna víkingaminja verði afhent
UNESCO fyrir 1. febrúar 2010.
Heiðabær og Danavirki Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og
Peter-Harry Carstensen forsætisráðherra
þýska sambandslandsins Slésvík-Holstein.
Undirbúningur að tilnefningu
á heimsminjaskrá UNESCO
FRÉTTIR