Morgunblaðið - 09.02.2008, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
SUÐURNES
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Reykjanesbær | Skurðstofa sjúkra-
húss Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja verður starfrækt allan sólar-
hringinn eftir að
hún flytur í nýtt
húsnæði. Áform-
að er að það
verði á vormán-
uðum. Fengist
hefur fjárveiting
til þess.
Bætt var við
fjárveitingar til
Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja
við þriðju um-
ræðu fjárlaga. 46 milljónir ganga
til þess að koma á sólarhrings-
vöktum á skurðstofunni og 60 millj-
ónir til að efla starfsemina almennt
til að unnt verði að taka við verk-
efnum frá Landspítala samkvæmt
samkomulagi sem gert hefur verið.
Möguleiki á fjölgun rúma
„Sólarhringsopnun skurðstofunn-
ar hefur lengi verið baráttumál.
Það er loksins gengið í gegn,“ segir
Sigríður Snæbjörnsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja. Skurðstofan mun flytja
í nýtt húsnæði á þriðju hæð D-álmu
sjúkrahússins á þessu ári. Húsnæð-
ið er tilbúið og tækin hafa verið
pöntuð. Sigríður segir stefnt að því
að tækin komi í apríl. Gangi það
eftir muni verða hægt að opna
skurðstofuna á nýjum stað á vor-
mánuðum og þá jafnframt taka upp
fulla vakt. Sigríður tekur fram að
ef afhending tækjanna dragist geti
komið til þess að sólarhringsvakt-
irnar verði ekki hafnar fyrr en í
haust.
Möguleiki er á því að fjölga að-
gerðum á skurðstofunni því þar
verða tvær fullbúnar skurðstofur
auk minni aðgerðastofu í stað einn-
ar skurðstofu og minni aðgerða-
stofu. Sigríður tekur þó fram að
aukin afköst á skurðstofunni kalli á
fleiri legurúm, svo hægt sé að
leggja inn fleiri sjúklinga. „Við höf-
um nýtt að fullu það pláss sem við
höfum,“ segir hún.
Verið er að leita leiða til að
fjölga rúmum og málið er til athug-
unar í heilbrigðisráðuneytinu.
Núna eru 72 rúm á sjúkrahúsinu.
Að sögn Sigríðar er unnt að fjölga
þeim um átta með litlum tilkostn-
aði. Þá segir hún að hægt sé að
innrétta plássið sem losnar þegar
skurðstofurnar flytja og þannig
væri hægt að hafa 90 legurúm á
sjúkrahúsinu.
Hugmyndir um stækkun
Sigríður bætir því við að huga
þurfi að stækkunarmöguleikum í
framtíðinni. „Það hefur orðið mikil
fjölgun íbúa á svæðinu sem við
sinnum og við finnum fyrir því á
öllum deildum, ekki síst í heilsu-
gæslunni. Ef þessi þróun heldur
áfram er full ástæða til að huga
stækkun húsnæðis stofnunarinnar,“
segir Sigríður.
Hún segir að athugun á húsnæð-
ismálum framtíðarinnar séu á
frumstigi og ýmsar hugmyndir hafi
komið fram. Nefnir hún möguleika
á byggingu álmu við D-álmuna
þannig að þær myndi hálfhring um
bílastæðin. Þá sé spurning hvort
mögulegt sé að bæta einni hæð of-
an á D-álmuna.
Sú hraða íbúaþróun sem verið
hefur um öll Suðurnesin og með-
fylgjandi eftirspurn eftir þjónustu
heilbrigðisþjónustunnar gerir það
erfitt að ná endum saman í rekstr-
inum að sögn Sigríðar. Rekstrar-
halla síðasta árs var mætt með
fjárveitinu á fjáraukalögum í lok
ársins.
Sólarhringsvakt verður
tekin upp á skurðstofunni
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Sjúkrahús Hugað er að mögu-
leikum til stækkunar sjúkrahússins.Sigríður
Snæbjörnsdóttir
Grindavík | „Börnin eru upptekin af
þessu og fræðslan skilar sér líka inn
á heimilin,“ segir Hulda Jóhanns-
dóttir, leikskólastjóri á Króki í
Grindavík. Leikskólinn fékk afhenta
alþjóðlega umhverfisviðurkenningu,
grænfánann, á afmælisdegi sínum
fyrr í vikunni.
Af þessu tilefni var haldin mikil
hátíð í skólanum. Sigrún Helgadóttir
fulltrúi Landverndar afhenti Huldu
grænfánann og Ólafur Örn Ólafsson
bæjarstjóri dró hann að húni með
aðstoð barna af leikskólanum.
Leikskólinn Krókur hefur í nokk-
ur ár starfað undir merkjum heilsu-
leikskólans. Hulda segir að um-
hverfismálin tengist mjög heilsu
fólks og vellíðan og því hafi það verið
rökrétt að taka þetta skref. Jafn-
framt hafi það starf sem unnið hefur
verið á leikskólanum auðveldað und-
irbúninginn.
Hulda er ánægð með vinnuna sem
felst meðal annars í fræðslu um um-
hverfismál til starfsfólks og nem-
enda. Nefnir að áður en undirbún-
ingurinn hófst hafi verið átta
sorptunnur við skólann. Nú séu þar
þrjár tunnur, auk ellefu endur-
vinnslutunna og þriggja moltutanka.
„Það er ótrúlegt hvað hægt er að
gera, bara með flokkun á rusli. Svo
nýtum við mikið af umbúðum og
öðru við leik og sköpun hér á leik-
skólanum,“ segir Hulda.
Fræðslan skilar sér
líka inn á heimilin
Ljósmynd/Þorsteinn G. Gunnarsson
Hátíð Börnin í leikskólanum Króki aðstoðuðu við að draga grænfánann að
húni. Mikil hátíð var í leikskólanum af þessu tilefni.
NÚ STENDUR yfir í forsal og kaffi-
stofu Amtsbókasafnsins sýning um
leiklist á Akureyri frá upphafi til
dagsins í dag. Sýningin er sett upp í
tilefni af aldarafmæli Samkomuhúss-
ins á Akureyri og níutíu ára afmæli
Leikfélags Akureyrar í fyrra.
Á sýningunni er gefið yfirlit í máli
og myndum yfir leikstarfsemi á Ak-
ureyri frá því þar var fyrst leikið árið
1860. Frumkvöðull þeirra sýninga var
danskur kaupmaður, B.A. Steincke,
sem einnig kenndi Akureyringum
dans og kurteisa háttu. Í fyrstu var
leikið á dönsku, en Íslendingar létu
ekki bjóða sér slíkt til lengdar og
næstu áratugi var mikil gróska í leik-
starfsemi og leikritagerð jafnt á Ak-
ureyri sem í nærsveitum. Með til-
komu Samkomuhússins batnaði öll
aðstaða til leiksýninga til mikilla
muna og smám saman komst aukin
festa á leikstarfið, einkum eftir stofn-
un Leikfélags Akureyrar árið 1917,
en það hefur starfað óslitið síðan.
Það er Leikminjasafn Íslands sem
stendur fyrir sýningunni. Textahöf-
undar eru Sveinn Einarsson, Jón Við-
ar Jónsson og Ólafur Engilbertsson,
en hönnun sýningarinnar er í höndum
Ólafs Engilbertssonar, Björns G.
Björnssonar og Jóns Þórissonar. Sér-
stakur ráðgjafi vegna sýningarinnar
er Haraldur Sigurðsson.
Leiklist
í 100 ár
Sýning í Amtsbóka-
safninu á Akureyri
GUÐJÓN Davíð Karlsson leikur tvífarana Jóhannes Ringsted forstjóra og
Klemma, dyravörð og fjölvirkja, í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á
farsanum Fló á skinni sem frumsýndur var í gærkvöldi við góðar undir-
tektir. Harpa Birgisdóttir hefur hér hendur í hári leikarans.
Árvakur/Skapti Hallgrímsson
Hló á skinni
TÓNVERK eftir
Önnu Þorvalds-
dóttur við Alman-
aksljóð séra Bolla
Gústavssonar,
fyrrverandi
vígslubiskups,
verður frumflutt í
Laugarborg í
dag. Meðal flytj-
enda er sópran-
söngkonan Gerð-
ur, dóttir séra Bolla. Tónleikarnir
eru hluti Myrkra músíkdaga og hefj-
ast kl. 15. Í Almanaksljóðum stiklar
séra Bolli á helstu messudögum árs-
ins að fornu, með stuttum ljóðræn-
um lýsingum á náttúru, veðri og bú-
störfum – oft með trúarlegri vísun.
Á tónleikunum slást fjögur önnur
skáld í för með Bolla, öll samferða-
menn hans og vinir og dvöldust sam-
tíða á Akureyri: Davíð Stefánsson,
Heiðrekur Guðmundsson, Hjörtur
Pálsson og Kristján frá Djúpalæk.
Tónverkin við ljóð þeirra eru öll
samin af núlifandi tónskáldum: Önnu
Þorvaldsdóttur, Ingibjörgu Þor-
bergs, Atla Heimi Sveinssyni, Jóni
Hlöðveri Áskelssyni, Tryggva M.
Baldvinssyni og Hreiðari Inga Þor-
steinssyni.
Á afmælisdegi séra Bolla, 17. nóv-
ember sl., kom út bókin Lífið sækir
fram, með völdum predikunum hans
og ljóðum. Í fyrsta lagi eru þar pre-
dikanir frá þeim tíma sem séra Bolli
þjónaði í Laufási við Eyjafjörð, ann-
ar kafli frá árum hans sem vígslu-
biskup á Hólum í Hjaltadal og í þeim
þriðja eru predikanir tengdar pásk-
um og hvítasunnu. Inn á milli eru svo
valin ljóð úr bókinni Borðnautar, en
Almanaksljóð eru einmitt í henni.
Hjörtur Pálsson góðvinur sr. Bolla
skrifaði grein um listamanninn og
rithöfundinn Bolla í bókina, en þess
má geta að lög Ingibjargar Þorbergs
á tónleikunum í dag eru við ljóð
Hjartar.
Frumflytja verk
við ljóð séra Bolla
Í HNOTSKURN
»Séra Bolli Gústavsson varðsjötugur 17. nóvember 2005.
Bókin Lífið sækir fram er síðbúin
afmælisgjöf, segir Bolli Pétur,
sonur hans, sem ritstýrði bókinni.
Séra Bolli
Gústavsson
RES Orkuskólinn á Akureyri verður settur í
fyrsta sinn í dag og kennsla hefst á mánudaginn.
Nemendur eru 31, frá 10 löndum og búa á stúd-
entagarði í Skjaldarvík. Þar var áður dvalarheim-
ili aldraðra en húsnæðið hefur verið tekið í gegn.
Forstöðumaður RES er dr. Björn Gunnarsson.
RES er alþjóðleg einkarekin mennta- og vís-
indastofnun sem rekin er í samstarfi Háskólans á
Akureyri og Háskóla Íslands. Nemendur, sem að-
allega eru verkfræðingar, koma flestir frá Mið- og
Austur-Evrópu, og frá Bandaríkjunum. Lang-
flestir eru frá Póllandi, alls 16 manns.
Skólinn tók formlega til starfa með opnunar-
hátíð síðastliðið vor en nú er löng bið á enda þegar
kennsla hefst. Skólinn, sem á ensku nefnist The
School for Renewable Energy Science, er afrakst-
ur nokkurra ára undirbúningsferlis og verður al-
þjóðleg einkarekin mennta- og vísindastofnun á
sviði endurnýjanlegra orkugjafa og verður megin-
verkefni skólans að bjóða eins árs alþjóðlegt
meistaranám í vistvænni orkunýtingu. Áætlað er
að nemendur verði 50-80 þegar skólinn er kominn
í fulla starfsemi. Háskólinn á Akureyri mun skv.
þjónustusamningi annast og veita formlega
M.Sc.-gráðu. Komið hefur fram að gert er ráð fyr-
ir 150 milljóna króna framlagi frá Þróunarsjóði
EFTA vegna umsóknar fimm tækniháskóla í Pól-
landi um menntun pólskra verkfræðinga við RES
á næstu tveimur árum.
Þess má geta að í dag stendur til að mennta-
málaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir,
taki fyrstu skóflustunguna að fjórða áfanga Há-
skólans á Akureyri við Sólborg. Í byggingunni
verða hátíðarsalur og fyrirlestrasalur auk smærri
kennslurýma og háskólatorgs. Verkinu á að vera
lokið um mitt næsta ár.
RES Orkuskóli settur í dag
Nemendur búa í Skjaldarvík þar sem innréttaður hefur verið stúdentagarður