Morgunblaðið - 09.03.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. MARS 2008 41
afdrifaríkar ákvarðanir eru teknar er
varða þau.“ Aths. Í upphafi segist um-
boðsmaður ekki hafa haft tíma til að
svara allsherjarnefnd; en bendir þó á í
„véfrétta-stíl“ að embættinu hafi bor-
ist ábendingar um eitthvað sem teng-
ist einni grein frumvarpsins. Að sama
skapi hefði umboðsmaður getað nálg-
ast aðrar greinar á loðinn hátt og sagt;
„heyrst hefur …“ Hverslags vinnu-
brögð eru þetta? Betra hefði verið að
halda sig við þá skýringu að embættið
hefði ekki tíma til að sinna skyldum
sínum en að kasta til höndunum í vé-
fréttastíl við gerð einhvers konar af-
sökunarbeiðni til allsherjarnefndar.
„Umboðsmaður barna telur því
réttast að sifjalaganefnd, þar sem
helstu sérfræðingar á sviði barna-
réttar sitja, komi að þessum breyt-
ingum á lögunum og fari yfir mál þessi
í heild sinni. Hér á landi skortir enn
rannsóknir á líðan og velferð þessara
barna þegar fram í sækir. Því er nauð-
synlegt að kynna sér vel rannsóknir,
réttarframkvæmd og þróun þessara
mála í helstu nágrannalöndunum. Lög
eiga að sjálfsögðu ekki að hamla rétt-
arþróun en breytingar er varða líf,
hagsmuni og velferð barna verða að
byggjast á rannsóknum, umræðu og
sátt í samfélaginu, þar sem að velferð
barnanna er aðalatriðið.“
Aths. Enn á ný afhjúpar umboðs-
maður sjálfan sig með yfirgripsmikilli
vanþekkingu. Um það leyti sem um-
boðsmaður skilaði þessu áliti sínu var
alkunna að sifjalaganefnd hafði ekki
verið starfandi til lengri tíma eða verið
lögð endanlega niður. Og enn síður að
þar hefðu verið samankomnir helstu
sérfræðingar í barnarétti. Hefði svo
verið með sérfræðingana; værum við í
forystu í þessum málaflokki, en
rækjum ekki lestina í V-Evrópu.
Sömuleiðis segir umboðsmaður til að
drepa málunum á dreif; að hér á landi
skorti rannsóknir. Líklega á hann við
rannsóknir til að komast að því að nú-
verandi barnalög og stjórnkerfi er
stórgallað. Í nágrannalöndunum liggja
fyrir viðamiklar rannsóknir sem eru til
grundvallar lagabreytingum þar og
eru einmitt þær breytingar á lögum
sem frumvarpið tekur til og embættið
hefur ekki tíma til að skoða. Slík mark-
laus umsögn er embættinu til vansa.
Höfundur er í stjórn Félags um for-
eldrajafnrétti.
að gróin hverfi borgarinnar og þá
sérstaklega gamli miðbærinn, séu
sjálfkrafa vernduð. Í þessu sam-
bandi má einnig minna á nauðsyn
þess að settar verði skýrar reglur
um varðveislu innréttinga og tré-
verks. Friðun húsa og mannvirkja
yrði þá í raun eins og hún er
hugsuð, algjör undantekning, ef
nokkurn tíma þyrfti til hennar að
grípa. Sú forsenda að gamli bær-
inn sé verndaður kemur í veg fyr-
ir framvinduklemmu og ágrein-
ingsefni af því tagi sem á undan
eru gengin og enn blasa við. Verk-
efnin hófust ekki með Laugavegi
4-6. Þar birtust afleiðingar rangra
skipulagsákvarðana sem teknar
voru af fyrri stjórnvöldum
Reykjavíkurborgar. Og tíu hús við
Laugaveg til friðunar, flutnings
eða niðurrifs eru aðeins einn dropi
í þá allsherjar aðför við gömlu
Reykjavík sem enn er yfirvofandi.
Nær væri að snúa dæminu við.
Uppbygging og mikil tækifæri
sem bíða gömlu Reykjavíkur geta
falist í því að flytja húsin ofan úr
Árbæ og „heim“ til sín aftur. Bíla-
stæði borgarinnar eru augntóttir
þessara húsa og Minjasafn
Reykjavíkur hefur ekki síður mik-
ilvægu hlutverki að gegna við þau
þar þótt í þeim búi og starfi fólk.
Við þurfum aðra stefnu og nýja
sýn.
Höfundur er atferlisfræðingur og býr
í Reykjavík
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
URRIÐAHOLT
Til sölu vel staðsett einbýlishúsalóð og tvær
parhúsalóðir í hinu vinsæla Urriðaholti. Frá-
bær staðsetning í alfaraleið en samt í
næsta nágreni við vinsæl útivistarsvæði.
7406
LINDASMÁRI - ENDARAÐHÚS Fallegt og
velstaðsett 191,8 fm tvílyft endaraðhús
með innbyggðum bílskúr. Á jarðhæðinni er
forstofa, snyrting, þvottahús, eldhús,
borðstofa, stofa og sólstofa auk inn-
byggðs bílskúrs. Á efri hæðinni er sjón-
varpshol, 4 svefnherbergi. Lóðin er fullfrá-
gengin og falleg. Að norðanverðu er hellu-
lögð upphituð innkeyrsla og gangstétt. Að
sunnanverðu er stór skjólgóð timburver-
önd með heitum potti, fallegum gróðri o.fl.
Stutt er í skóla og alla þjónustu. V. 53,9 m.
7381
GRJÓTAGATA - ALLT NÝTT -
EINB./TVÍB. Hér er um að ræða nýtt ein-
býlis/tvíbýlishús á eftirsóttum stað í Grjóta-
þorpinu. Húsið er allt endurbyggt að mikl-
um myndarskap og fagmönnum. Í kjallara
er sér, 3ja herbergja, 75,1 fm íbúð sem
skiptist í forstofu, stofu, tvö herbergi, eld-
hús, bað/þvottahús og geymslu. Á aðal-
hæðinni og í risinu er 128,8 fm, 4ra herb.
Tlboð. 7386
ÁSHOLT - TVÖ STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU
Um er að ræða íbúð á tveimur hæðum í
raðhúsi með sérinngangi úr sameiginleg-
um lokuðum garði, ásamt tveimur bílstæð-
um í lokaðri bílgeymslu. Íbúðin skiptist í
anddyri, gestasnyrtingu, stofur, eldhús,
þrjú svefnherbergi, baðherbergi og sjón-
varpshol. Svalir í suður. V. 36,9 m. 7389
HJALTABAKKI - ENDAÍBÚÐ Um er að
ræða 80,2 fm, 2ja herb íbúð á 3. hæð.
Eignin skiptist í forst., baðh., eldh., stofu
og svefnh. Sérgeymsla er í kjallara. Einnig
er í kjallara sameiginlegt þvottahús og
sameiginlegt hjóla/vagnageymsla. Góð
eign getur verið laus fljótlega V. 18,5 m.
7402
LANGALÍNA - ÚTÝNISÍBÚÐ Glæsileg
þriggja herbergja íbúð á 2. hæð ásamt
stæði í bílageymslu. Íbúðin er með hvítum
innréttingum með dökkum hurðum. Íbúð-
in er til afhendingar strax. V. 38,8 m. 7387
ENDARAÐHÚS - HAFNARFJÖRÐUR Fal-
legt endaraðhús 178,0 fm (þ.a. er innb bíl-
skúr 36,6 fm). Eignin skiptist m.a. í, fjögur
svefnh., stofu, borðst., 2 baðh., þvottah
og eldhús. Mikil lofthæð er í húsinu. Eign-
in skilast fullbúinn að utan og tilbúinn til
innréttinga að innan með öllum lögnum.
Eignin stendur í námunda við náttúruna. Í
gönfugæri er grunn og leikskólar, leik-
svæði fyrir börn, tómstundir, ný sundmið-
stöð ofl. V. 39,0 m. 7401
BÁRUGATA - MIÐBÆR Góð 79,9 fm íbúð
í kjallara sem skiptist í þrjú herbergi, stofu,
eldhús og bað. V. 22,0 m. 7403
EINHOLT - AUKAHERBERGI Í KJALLARA
Falleg og vel skipulögð, 2ja herbergja,
64,0 fm íbúð á 1. hæð í fjórbýli. Eignin
skiptist í forstofu, eldhús, stofu, baðher-
bergi og svefnherbergi. Í kjallara er íbúðar-
herbergi og sérgeymsla. V. 17,5 m. 7397
Árni Stefánsson viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 30 ár
LYNGHÁLS – ATVINNUHÚSNÆÐI
Vorum að fá í sölu 2.532 fm atvinnuhúsnæði á 7.624 fm lóð sem nær milli Lyngháls og Krókháls. Húsnæðið er að
mestu á einni hæð með aðkomu að ofanverðu en að neðanverðu er lagerrými með góðri aðkomu. Á efri hæð eru í
öðrum enda hússins skrifstofur og starfsmannaaðstaða en lagerrými í hinum endanum með 4,40 metra lofthæð og
stórum innkeyrsluhurðum. Á neðri hæð er iðnaðarrými ásamt skrifstofu- og starfsmannaaðstöðu. Gert er ráð fyrir
að byggja megi allt að 2.800 fm til viðbótar á lóðinni. Verð 650 millj.
Allar nánari uppl. veitir Gísli Rafn í síma 893-8323 eða á skrifstofu GIMLI.
grandavegur 11, 3. hæð
Opið hús í dag milli kl. 14 og 15
BORGARTÚN 29
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
REYNIR BJÖRNSSON
ELÍAS HARALDSSON
L Ö G G. FA S T E I G N A S A L A R
Laus, falleg og björt, 3ja herbergja, 89 fm íbúð á 3. hæð í fallegu og ný viðgerðu fjöl-
býlishúsi í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðin skiptist í bjarta og rúmgóða stofu með út-
gangi út á suðursvalir, eldhús, hol, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og
geymslu. Parket á flestum gólfum og baðherbergi flísalagt. Verð 27,4 millj.
Gestir velkomnir, teikningar á staðnum.
Húsavík – GOTT ORÐSPOR – TRAUST VIÐSKIPTI
Um er að ræða einstaka, 136 fm, glæsilega íbúð í hinu nýja Skuggahverfi,
ásamt stæði í bílgeymslu. Íbúðin er staðsett á 2. hæð og með svalir til vest-
urs og austurs. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar og öll gólfefni eru sérval-
in. V. 52,0 m. 6355
ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG SUNNUDAG FRÁ KL. 13.30-14.00.
VATNSSTÍGUR 15 - 101 SKUGGAHVERFI
M
bl
98
15
55
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
Síðumúla 21 - www.eignamidlun.is - eignamidlun@eignamidlun.is - Fax: 588 9095
Sími: 588 9090
Mjög glæsileg 2ja-3ja herbergja, 93,9 fm íbúð á jarðhæð með sérinng.,
hellulagðri verönd og stæði í bílageymslu. Íbúðin skiptist í 2 herbergi, sjón-
varpshol, stofu og eldhús, baðherbergi og sérþvottahús. Þvottavél, þurkari,
ísskápur og uppþvottavél fylgja. V. 26,1 m. 7046
ÍBÚÐIN VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG SUNNUDAG FRÁ 13.00-13.30.
RAUÐAVAÐ 5 - LAUS STRAX
Fallegt og vel skipulagt, 340 fm einbýlishús á tveimur hæðum með inn-
byggðum bílskúr. Húsið stendur fyrir neðan götu með suðurgarði og skipt-
ist þannig. Húsið lítur vel út og er nýlega málað að utan. Hellulögð verönd
er í garði sem er með heitum potti. Skipti möguleg á minni eign.
V. 79,0 m. 7009
HÚSIÐ VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG SUNNUDAG FRÁ 14.00-15.00.
HEIÐARÁS 8 - SELÁSHVERFI - SKIPTI