Morgunblaðið - 09.03.2008, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 68. TBL. 96. ÁRG. SUNNUDAGUR 9. MARS 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
BRYNJÓLFUR Bjarnason, for-
stjóri Skipta, segir fyrirtækið enn
hafa áhuga á því að kaupa slóvenska
símafélagið Telekom Slovenije en
sem kunnugt er var fyrsta tilboði
hafnað á dögunum. „Ný ríkisstjórn
tekur við í Slóv-
eníu í haust og við
skulum sjá hvað
setur,“ segir
hann.
Úr því sem
komið er á Brynj-
ólfur ekki von á
því að ríkisstjórn
Slóveníu selji fyr-
irtækið á þessu
kjörtímabili en
kosningar fara
fram í landinu í haust. „Það er fjög-
urra flokka ríkisstjórn við völd í
Slóveníu og tveir af þeim flokkum
höfðu látið í ljós efasemdir um söl-
una. Við vissum því alltaf að það væri
pólitísk óvissa í málinu og brugðið
gæti til beggja vona.“
Vissulega vonbrigði
Brynjólfur segir það vissulega
vonbrigði að kaupin hafi ekki gengið
upp nú „vegna þess að við erum
þeirrar skoðunar að þetta hafi verið
góður fjárfestingarkostur. Ástæðan
er meðal annars sú að Telekom
Slovenije er mjög áþekkt okkar eigin
fyrirtæki. Tæknilega er það komið
álíka langt og við, auk þess sem
markaðshlutdeildin heimafyrir er
svipuð og hjá okkur. Þá hefur fyr-
irtækið verið að þreifa fyrir sér er-
lendis og verið að fjárfesta í Suðaust-
ur-Evrópu, þannig að við sáum fyrir
okkur mjög farsælt hjónaband, ef
svo má að orði komast. Við myndum
vinna á okkar markaði og sækja á
Norður-Evrópu og þeir vinna á sín-
um heimamarkaði og sækja á Suð-
austur-Evrópu.“ | 22
Ekki
misst
áhuga
Fylgjast áfram með
slóvenska símanum
Brynjólfur
Bjarnason
Íraksstríðið kostar þrjár milljónir
milljóna dollara ef marka má út-
reikninga fræðimannanna Josephs
E. Stiglitz og Lindu J. Blimes.
3.000.000.000.000
dollara Íraksstríð
Verður Nígeríumaðurinn Yakubu
Aiyegbeni fyrsti leikmaður Ever-
tons til að rjúfa 20 ára markamúr-
inn á eftir Gary Lineker 1985-1986?
Miðherji leggur
sitt af mörkum
Fjölmiðlunargnóttin er slík að
stjörnur fæðast úr engu. Áhugi al-
mennings á leið sumra til glötunar
jaðrar við meinfýsni.
Fórnarlömb
frægðarvæðingar
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
„ÉG Á ekki eign og ekki pen-
inga,“ segir Edda Jóhannsdóttir
blaðamaður sem missti leigu-
húsnæði á dögunum og sér engan
annan kost en að flytja út fyrir
landsteinana þar til hún finnur
aðra íbúð með hóflegri leigu.
„Það er verið að bjóða tveggja
herbergja íbúðir á 90 og upp í 120
þúsund á mánuði. Það er ekki
möguleiki að ég ráði við það,
þrátt fyrir smávegis húsa-
leigubætur. Ég er búin að sækja
um íbúð í Kópavogsbæ, þar sem
ég bjó, en þar er mjög löng bið.
Og frekar en að hírast í herbergi
ætla ég að búa úti hjá dóttur
minni, líka af því að ég get unnið
aðeins ef ég er með tölvuna með
mér.“
Edda keypti íbúð með fyrrver-
andi eigimanni sínum árið 1983,
en þau réðu ekki við afborg-
anirnar og var íbúðin seld á nauð-
ungarsölu tíu árum síðar. „Við
skiptum með okkur skuldunum og
ég er enn að basla í því.“
Hún skrifaði um reynslu sína á
vefinn hondin.is, en samtökin
Höndin hafa að markmiði að
hjálpa fólki til sjálfshjálpar. „Það
er mikið um konur á mínum aldri,
um fimmtugt, sem hafa lent í
skilnuðum, ekki farið vel út úr
þeim og eru í þeirri stöðu að
skulda fullt af peningum, þrátt
fyrir að hafa alla tíð unnið úti.“
Þetta er meira
vandamál en
fólk gerir sér
grein fyrir, að
sögn Eddu. „Ég
er óvirkur alki
og þetta eru
konurnar sem
byrjuðu að
drekka þegar
þær misstu móð-
inn eftir fertugt,
en höfðu lítið drukkið fram að því.
AA-samtökin eru gríðarlega öflug
samtök og margar konur á fund-
um sem eru í sömu aðstöðu og
ég.“
Hún segist vonast til þess að fá
leigt hjá Kópavogsbæ. „Ég er búin
að sækja um íbúð og þar er leigan
viðráðanleg. Ég vona að ég fái
tveggja til þriggja herbergja íbúð,
þannig að geti búið mér heimili.
Ég á fjögur uppkomin börn og sjö
barnabörn og vil geta tekið á móti
þessu fólki og átt eitthvert
„heim“. Það versta sem maður
lendir í er að eiga ekkert „heim“.“
Í greininni skrifar Edda, að
kvíðahnúturinn sé orðinn eins og
líffæri. „Ég hef mikla þörf fyrir
öruggt athvarf og líður illa ef ég
hef það ekki. Ég ætla nú að taka
það rólega, ekki örvænta neitt, en
þetta er engin draumastaða. Kvíð-
inn kemur út af þessu, en annars
er þetta frekar skemmtileg grein
um þunglyndi!“
Margar fjölskyldur í óvissu vegna ástandsins á fasteignamarkaðnum
Það versta
er að eiga
ekkert „heim“
Tveggja herbergja íbúðir til leigu á 90 og
upp í 120 þúsund – Engin draumastaða
Edda
Jóhannsdóttir
Erfiðara að eignast þak | 10
VIKUSPEGILL
MIKIL hækkun á húsnæðisverði hefur gjörbreytt fasteignamarkaðnum á
undanförnum árum. Fólk hefur þurft að spenna bogann hátt til að eignast
þak yfir höfuðið og er því viðkvæmara fyrir samdráttarskeiði. Þá hefur
það leitt til hækkunar á leiguverði, sem þýðir að fólk er líklegra til að fest-
ast á leigumarkaðnum, því það nær ekki að safna upp í fyrstu afborgun.
Morgunblaðið/Golli
Boginn spenntur hátt
Mr. Skallagrímsson >> 60
Öll leikhúsin á einum stað
Leikhúsin í landinu
SUNNUDAGUR
FLÓÐ OG
FÓRNFÝSI
NÁTTÚRUHAMFAR-
IR Í MÓSAMBÍK
DAGLEGT LÍF >> 32
EPLIÐ OG
EIKIN
VERÐANDI STJÖRN-
UR Í KOMMÚNUNNI
FÓLKIÐ >> 58