Morgunblaðið - 27.03.2008, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 27. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
TVEIR erlendir karlmenn á fertugs-
aldri voru handteknir í Leifsstöð í
fyrradag grunaðir um kortasvik í
hraðbönkum á höfuðborgarsvæðinu
um páskana. Mennirnir voru með á
fjórðu milljón íslenskra króna í far-
angri sínum og grunar lögreglu að
jafnvel sé um hærri fjárhæðir að
tefla.
Jóhann R. Benediktsson, lög-
reglustjóri á Suðurnesjum, segir að
mennirnir, sem séu frá Rúmeníu og
Þýskalandi, hafi verið á leið í flug til
London þegar ákveðnar grunsemdir
hafi vaknað hjá árvökulum lögreglu-
manni í landamæradeild. Hann hafi
kallað til tollvörð og þeir komist að
því að grunurinn reyndist á rökum
reistur og voru mennirnir handtekn-
ir í kjölfarið.
Lögreglan telur að mennirnir hafi
afritað kreditkort erlendis og fært
yfir á önnur kort sem þeir síðan not-
uðu til að taka út peninga í hrað-
bönkum á höfuðborgarsvæðinu.
Rannsókn málsins er á frumstigi
hjá rannsóknardeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu, en mennirnir
hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarð-
hald fram yfir helgi.
Teknir
með á
fjórðu
milljón
Í REYKJAVÍK Skúla Magnússonar á átjándu öld voru engir farsímar til.
Skúli, sem stundum er nefndur faðir Reykjavíkur, stóð ábúðarfullur vörð
er maðurinn sem átti leið um Fógetagarðinn í miðborginni í gær nýtti
gönguna til þess að spjalla í símann sinn.
Faðir stendur vörð
Frakkaklæddir menn þá og nú
Morgunblaðið/Valdís Thor
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
NÝTT 150 bása fjós, búið tveimur mjaltaþjón-
um, verður tekið í notkun í Flatey á Mýrum í
Austur-Skaftafellssýslu eftir 3-4 vikur. Fyr-
irtækið Lífsval á Akureyri á búið og sagði Jón
Björnsson, framkvæmdastjóri Lífsvals, að nú
væri verið að leggja lokahönd á fjósið en erfitt
veðurfar í vetur hefði tafið framkvæmdirnar.
Reiknað er með að ársframleiðsla búsins í
Flatey verði a.m.k. 600.000 lítrar af mjólk til að
byrja með og að við það starfi allt að fimm
starfsmenn. Mjólkin verður lögð inn hjá MS á
Selfossi.
Lífsval er búið að kaupa bústofn í nýja fjósið
í Flatey. Jón sagði mikla stækkunarmöguleika
í Flatey og taldi víst að uppbyggingu yrði hald-
ið áfram þar enda næg eftirspurn eftir mjólk.
„Við erum í landbúnaði og höfum trú á hon-
um, ekki síst þegar maður sér heimsmark-
aðsverð á matvælum rjúka upp,“ sagði Jón.
„Við trúum því að það sé skynsamlegt að þjóð-
in sé sjálfri sér nóg með mat og ætlum okkur
að taka þátt í því. Þótt þetta sé erfiður rekstur
þá höfum við trú á því til framtíðar að vera í
matvælaframleiðslu.“
Fimmta bú Lífsvals og þriðja kúabúið
Lífsval rekur nú þegar tvö kúabú, í Skriðu-
felli í Jökulsárhlíð og á Ytrafelli í Eyjafirði.
Einnig er fyrirtækið með tvö sauðfjárbú, á
Barkarstöðum í Húnavatnssýslu og Miðdal í
Skagafirði, með samtals um 1.400 fjár. Á
kúabúum Lífsvals verða alls um 300 mjólkandi
kýr eftir að búið í Flatey bætist við. Hjá fyr-
irtækinu starfa nokkrir búfræðingar og sagði
Jón að þeir mótuðu rekstur búanna. Vegna
stærðarinnar í Flatey verður t.d. að beita
nokkuð öðrum aðferðum en tíðkast á litlum
kúabúum. Þrátt fyrir stærð búsins verður kún-
um tryggð næg útivist yfir sumarið.
Jón sagði Flatey bjóða upp á mikla stækk-
unarmöguleika en óvíst er hvenær ráðist verð-
ur í frekari uppbyggingu. Hann taldi að víst að
byggð yrðu fleiri ný fjós í Flatey frekar en að
byggja við nýja fjósið. Jón sagði stærðar-
hagkvæmni mikla í kúabúskap, líkt og í ann-
arri frumframleiðslu. Hann sagði að t.d. í Flat-
ey yrði hægt að rækta allt að því þúsund
hektara tún á sléttlendi og nútíma heyvinnu-
vélar og önnur tæki nýttust þar mjög vel. Því
mundi bæði fylgja mikill sparnaður og minni
mengun.
Lífsval keypti jörðina Flatey árið 2006 en
þar var áður rekin graskögglaverksmiðja.
Jörðin er um 1.300 hektarar að stærð.
Lífsval tekur á næstu vikum í notkun nýtt fjós í Flatey á Mýrum en þar er rúm fyrir 150 kýr
Hafa mikla trú á búrekstrinum
Ljósmynd/Sigurður Mar Halldórsson
Kúabú Nýja fjósið í Flatey er byrjunin. Ætl-
unin er að efla búið frekar enda jörðin stór.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úr-
skurðaði í gær manninn, sem hand-
tekinn var í Reykjanesbæ í fyrra-
kvöld og er grunaður um að aðild að
hrottalegri líkamsárás í Keilufelli í
Breiðholti sl. laugardag, í þriggja
vikna gæsluvarðhald. Hann er
fimmti maðurinn sem úrskurðaður
er í gæsluvarðhald vegna málsins en
fleiri er leitað.
Fjórir menn voru handteknir
skömmu eftir árásina og staðfesti
Hæstiréttur gæsluvarðhaldsúr-
skurði þeirra í gær. Þar er haft eftir
íbúa í húsinu þar sem árásin var gerð
að 10 til 12 menn hafi komið á tveim-
ur bifreiðum sem þeir hafi lagt á
bílastæði síðdegis á laugardag.
Mennirnir hafi verið vopnaðir járn-
rörum, slaghömrum og sleggju. Þeir
hafi farið inn í húsið og í kjölfarið
hafi heyrst mikil læti og barsmíðar.
Sagðist vitnið hafa séð einn mann
hlaupa af vettvangi blóðugan í and-
liti.
Mikil heift
Mennirnir óku síðan á brott og
tóku vopnin með sér. Sjónarvottur-
inn gat gefið lögreglu upp skráning-
arnúmer annars bílsins og lögreglan
á Suðurnesjum og sérsveit ríkislög-
reglustjóra stöðvuðu nokkru síðar
bíl sem kom heim og saman við lýs-
ingu á öðrum bílnum sem hafði sést í
Breiðholtinu. Í honum voru fjórir
menn og við leit fannst blóðug
sleggja, blóðugt steypustyrktarjárn,
rörbútur og tveir hnífar.
Sjö menn hlutu áverka í árásinni.
Fram kemur í úrskurðunum að mikl-
ir áverkar hafi verið á höfði nokk-
urra þeirra og sumir höfðu hlotið op-
in beinbrot. Sjáanleg voru djúp för
eftir gaddakylfur á líkama þeirra.
Einn mannanna var brotinn á nokkr-
um stöðum, með djúpa skurði og
bólgur víðsvegar um líkamann og
loftbrjóst. Segir í úrskurðunum að
enginn vafi leiki á að árásarmenn-
irnir hafi gengið fram gegn árásar-
þolunum af mikilli heift með stór-
hættulegum vopnum.
Lýst eftir sjötta manninum
Lögreglan lýsti eftir sjötta mann-
inum í gær, Tomasz Krzysztof Ja-
giela, sem er 28 ára gamall. Að sögn
lögreglu er hans enn leitað. Þeir sem
hafa upplýsingar um hann eru beðn-
ir um hafa samband við lögregluna á
höfuðborgarsvæðinu í síma 444-
1000.
Fimm í gæslu-
varðhaldi
Blóðug sleggja, blóðugt steypustyrktar-
járn, rörbútur og tveir hnífar í bílnum
Morgunblaðið/Kristinn
Leit Lögreglan hefur handtekið
fimm menn vegna málsins.
GEIR Þorsteinsson, formaður KSÍ,
segir að Dagur B. Eggertsson,
borgarfulltrúi Samfylkingarinnar,
fari með rangt mál er hann segir að
honum hafi ekki fyrr en nýverið
verið kunnugt um að kostnaður við
framkvæmdir nýrrar áhorfenda-
stúku Laugardalsvallar hefði farið
fram úr upphaflegri áætlun.
Kemur þetta fram í greinargerð
sem Geir hefur sent Ólafi F. Magn-
ússyni, borgarstjóra Reykjavíkur,
um framkvæmdirnar. Geir segir að
Dagur, sem átti sæti í byggingar-
nefndinni, hafi setið báða fundi
nefndarinnar, en þar „voru teknar
afdrifaríkustu ákvarðanir verksins
sem réðu mestu um þann kostnað
sem á það féll“, segir í bréfinu. „Á
hvorugum fundinum mótmælti Dag-
ur samningnum við Ístak eða taldi
þörf á að sækja frekari heimildir til
borgarráðs,“ segir þar ennfremur.
Dagur kvaðst undrandi á ummæl-
um Geirs, og miður að málið skyldi
rata í opinbera umræðu áður en
KSÍ gæfist færi á að leiðrétta þær
augljósu missagnir sem væru í bréf-
inu um hans komu að málinu.
Ítrekaði Dagur í samtali við
blaðamann að á fundum bygging-
arnefndar hefði ekkert verið lagt
fram um hugsanlega framúr-
keyrslu, og að stærstur hluti þess
viðbótarkostnaðar sem lagðist á
verkið hefði fallið til eftir kosningar
2006 þegar eftirlitshlutverki hans í
nefndinni var lokið.
Geir tjáði blaðamanni að þær full-
yrðingar sem settar væru fram í
bréfinu væru samkvæmt bestu vit-
und KSÍ, sem vildi með greinar-
gerðinni skýra sína stöðu og svara
yfirlýsingum sem fram hefðu komið
og gáfu í skyn að upplýsingum hefði
verið leynt.“
Ekki náðist í borgarstjóra í gær-
kvöld vegna málsins.
Segir Dag hafa vitað um kostnað
Morgunblaðið/ÞÖK
Í GÆRKVÖLDI höfðu um 77.000
manns talið fram til skatts á netinu,
en framtalsfrestur rann út í gær.
Þeim fækkar stöðugt sem skila
skattframtölum sínum hérlendis á
pappír en nú telja rúmlega níu af
hverjum 10 fram rafrænt á vef
skattstofa landsins.
Opnað var fyrir vefframtöl ein-
staklinga á vefnum skattur.is 1.
mars síðastliðinn og var nokkur
aukning í árituðum upplýsingum frá
fyrri árum. Almennur frestur til að
skila framtölum rann út í gær en
hægt var að sækja um frest á net-
inu og var hann veittur lengst til 2.
apríl.
Um 77.000
netframtöl