Morgunblaðið - 27.03.2008, Síða 6

Morgunblaðið - 27.03.2008, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 27. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is „ÞAÐ fyrirtæki er raunar efni í pistil fyrir sig því öðrum eins lið- legheitum og frábærri þjónustu og þar var að fá hefur Víkverji sjald- an kynnst.“ Svo komst Víkverji Morg- unblaðsins að orði í gær – eftir að hafa átt viðskipti við Skíðaþjón- ustuna á Akureyri um páskana. Víst er að margir kinkuðu kolli þegar þeir lásu Víkverja með morgunkaffinu, enda Viðar Garð- arsson og hans fólk í Skíðaþjónust- unni við Fjölnisgötu annáluð fyrir að vilja þjóna viðskiptavininum vel. Ef eitthvað vantar eftir lokun er gjarnan hringt heim til eigand- ans og hann bjargar málum. „Þetta eru varahlutir í reið- hjólin sem við fengum í gær- kvöldi,“ segir Viðar þegar ofanrit- aðan ber að garði í gærmorgun og við blasa háar stæður af pappa- kössum. Vetur og sumar skarast í Skíða- þjónustunni; fólk rennir sér enn í snjónum eftir að hjólin eru dregin fram. Viðar er menntaður mjólk- urfræðingur og starfaði við það fag árum saman, en byrjaði sam- hliða að höndla með notuð skíði í bílskúrnum heima hjá sér, fyrir nærri aldarfjórðungi. „Ég keppti á skíðum í gamla daga og var þjálfari í mörg ár og sá að krakkana vantaði stundum skíði. Byrjaði þess vegna. Svo fór ég líka að gera við reiðhjól, til þess að geta lifað af þessu.“ Hann selur allan búnað til skíða- iðkunar, bæði notaðan og nýjan, höndlar auk þess með reiðhjól og gerir að auki við öll þessi far- artæki. Og viðurkennir að eig- inlega sé brjálað að gera allt árið. „Það er helst á haustin, í sept- ember og október, sem hægt er að anda.“ Stór fjölskylda Þau vinna fjögur í fyrirtækinu, Viðar, sonur hans og nafni, dótt- irin Bryndís og tengdadóttirin Jaruek. „Svo eru fleiri úr fjölskyld- unni kallaðir til þegar mest er að gera. Þetta er stór fjölskylda,“ segir Viðar. Oft hefur verið erilsamt í fyr- irtækinu en aldrei sem um liðna páska. Viðar eldri hristir höfuðið þreytulega! „Við þurfum að taka símann úr sambandi. Hér var fullt af fólki nánast alla helgina og við höfðum ekki tíma til þess að svara. Ég hefði þurft að hafa símadömu.“ Þau höfðu opið frá kl. tíu til fimm alla daga um páskahátíðina, nema á páskadag. Þá var lokað eins og stundum áður. „Þá nær maður einum degi á skíðum,“ segir Viðar eldri. „Já, eða einum degi við eitthvað annað en skíði!“ segir sá yngri. „Þetta er auðvitað bindandi. Við verðum að hafa opið þegar skíða- svæðið er opið og þar er mest að gera um helgar á öðrum frídögum. En við getum oft verið latir á mánudögum í staðinn,“ segir fað- irinn. Það er ekki síst kaup, sala og leiga á notuðum skíðum og skíða- skóm sem ber hróður þeirra Við- ars víða. Enda veit hann ekki betur en aðrir séu hættir því vafstri að kaupa notaðan búnað og selja aft- ur. „Þeir gáfust upp fyrir sunnan, þar hefur verið svo lítill snjór í mörg ár.“ En ekki kemur til greina að hætta þeirri þjónustu. „Nei, það hefur aldrei hvarflað að okkur,“ segir Viðar yngri og sá eldri botn- ar: „Það er töluverð vinna sem fylgir þessu notaða dóti en tekj- urnar eru ekki miklar, en við verð- um að bjóða upp á þetta til þess að allir krakkar geti fengið skíði.“ Nokkurs konar hugsjónastarf, segir blaðamaður. „Já, það má segja það. Það er ekkert spaug að kaupa ný skíði á tvo, þrjá eða fjóra krakka á hverju ári. Það geta ekki allir. Skíðin verða fljótt of lítil fyrir krakkana og við verðum að bjóða fólki upp á að skipta.“ Snjóbyssur skipta miklu Feðgarnir segja að viðskiptin séu jafnari nú en áður. Snjó- byssurnar í Hlíðarfjalli skipti þar miklu máli. Áður hafi fólk lítið hugað að skíðakaupum fyrr en í febrúar og þá hafi verið snörp ver- tíð hjá þeim, en nú hefjist slík við- skipti löngu fyrir áramót vegna þess að öruggt sé að snjór verði í fjallinu, eftir að leikið var á mátt- arvöldin með því að klæða brekk- urnar heimatilbúnum snjó. Og við- skiptin eru meiri en áður, m.a. vegna þess hve aðkomufólk leitar mikið til þeirra. Viðar eldri segir töluvert um að fólk af höfuðborgarsvæðinu komi í skíðaferð norður yfir helgi og leigi þá búnað eða kaupi notað handa krökkunum. „Það liggur við að hægt sé að kaupa búnað handa þremur á sama verð og nýjan fyrir einn. Það munar um minna.“ Kaupmaðurinn hefur stundum heyrt að hann ekki sé ekki nógu harður í bisness. „Sumum finnst ég ekki taka nógu mikið fyrir þetta, bæði kollegar mínir og vinir. Og það kemur fyrir að menn vilja fá að borga meira en ég set upp!“ Aðalatriðið er að þjóna við- skiptavininum vel, segja feðgarnir. Að vera gamaldags í bestu merk- ingu þess orðs, m.a. því að svara kallinu þó að hann sé ekki með op- ið. „Það er reyndar minna um það nú en áður – líklega vegna þess að ég er nánast alltaf hérna,“ segir Viðar Garðarsson og glottir. Vilja vera „gamaldags“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Þjónusta Fær stundum að heyra að hann sé ekki nógu harður í bissness! Viðar Garðarsson í Skíðaþjónust- unni á Akureyri ásamt dótturinni Bryndísi, syninum Viðari Frey og tengdadótturinni Jaruek. Viðar í Skíðaþjónustunni segir að fyrirtækið eigi að standa undir nafni TVÖ banaslys í umferð- inni hérlendis á liðnu sumri eru rakin til ölv- unaraksturs og þess að hvorugur ökumann- anna var með bílbelti. Þetta kemur fram í ný- birtum skýrslum Rann- sóknarnefndar umferð- arslysa um umrædd banaslys. Ennfremur að ökumaður í öðru slysinu hafi ekið á um 180–200 km hraða áður en hann missti stjórn á bifreiðinni. Auk þess er bent á að þrír ölvaðir ökumenn hafi lát- ist í útafakstri árið 2007 og enginn þeirra hafi verið í öryggisbelti. Ekki í bílbelti Nýju skýrslurnar eru um tvö slys. Annað þeirra varð í Norðurárdal í Skagafirði 8. júlí, en karlmaður á þrítugsaldri fórst eft- ir útafakstur og veltu bifreiðarinnar. Öku- maðurinn var ölvaður og ekki í bílbelti. Seinna slysið varð á Laugarvatnsvegi við Þóroddsstaði 6. ágúst. Ökumaðurinn var ölvaður, notaði ekki bílbelti og ók á ofsahraða áður en hann kastaðist út úr bílnum að minnsta kosti 80 metra. Í kynningu á skýrslunum ítrekar Rann- sóknarnefnd umferðarslysa fyrri ábend- ingar sínar um alvarleg áhrif ölvunar á aksturshæfni. „Ökumenn sem setjast ölv- aðir undir stýri skapa sjálfum sér og öðr- um mikla hættu. Allt of mörg dæmi eru um slys af þessum toga þar sem akstur eft- ir áfengisdrykkju og vöku endar með út- afakstri og brýnt að allir séu á varðbergi gagnvart þessari hættu.“ Hvetur til umræðu Rannsóknarnefndin hvetur til opinskárrar umræðu um þá hættu sem því fylgir þegar ökumenn rjúka af stað í andlegu ójafn- vægi og undir áhrifum áfengis. Bent er á að í gögnum rannsóknarnefndarinnar séu nokkur dæmi til viðbótar um svipaða at- burðarás. Deilur og andlegt uppnám í bland við áfengi komi þannig við sögu sem undanfari sumra umferðarslysa og þessa hættu verði að ræða opinskátt. Banaslys vegna ölvunaraksturs Banaslys Ekkert er öruggt í umferð. BRESKA rannsóknarfyrirtækið Jane’s hefur birt niðurstöður úr rannsókn á stöð- ugleika og hagsæld 235 landa en rann- sóknin stóð yfir í ár. Ísland er í 16. sæti á listanum en Páfagarður er í efsta sætinu, Svíþjóð í 2. sæti og Lúxemborg í því þriðja. Minnstur er stöðugleikinn að mati Ja- ne’s á heimastjórnarsvæðum Palest- ínumanna á Gasasvæðinu og Vesturbakk- anum, í Sómalíu og Afganistan. Hagsæld og stöðugleiki P áskahátíðin, önnur megin- hátíð kristinna manna og tími fermingarveislanna, er um garð gengin. Í huga flestra eru páskarnir tími fjölskyldunnar og hvíldar, hvort sem er heima fyrir eða einhvers staðar á ferð innanlands eða í útlöndum. Jólin hafa á sér annan og annasamari blæ. Páskarnir voru snemma á ferðinni í ár en engu að síður notuðu margir tæki- færið til ferðalaga um landið. Það er af sem áður var, að fréttaflutningur ein- skorðaðist við færð á vegum og umferð- ina. Þessa páska bárust þó fréttir um al- varleg umferðarslys þar sem líf töpuðust. Einnig voru sífelldar fréttir af ofbeldisverkum ýmis konar. Varla var hægt að opna fyrir útvarpið án þess að heyra slíkar fréttir. Árás með spraut- unálum þar sem yngsti árásarmaðurinn var aðeins 17 ára barn. Innrás á heimili fólks. Barsmíðar eftir dansleiki. Slags- mál með hnífum. Það voru margir skelkaðir á dög- unum þegar fréttir bárust af því að ráð- ist hefði verið á óeinkennisklædda lög- reglumenn að störfum í miðborg Reykjavíkur. Þar voru harðsvíraðir glæpamenn að verki. Við Íslendingar höfum sem betur fer verið lausir við grófa og skipulagða glæpastarfsemi. Því miður virðast vera teikn á lofti um að það sé að breytast. Umliðin páska- helgi er kannski tímanna tákn, það voru ítrekaðar árásir víða um landið og sú hrottafengnasta var í Breiðholtinu í Reykjavík. Það verður að fara varlega þegar fjallað er um vaxandi glæpi og þjóðerni brotamanna en það er samt sem áður svo, að glæpamönnum ef erlendum upp- runa hefur fjölgað á Íslandi, og nokkuð hratt á allra síðustu árum. Við höfum búið svo um, að landið sé opið fyrir er- lendum stefnum og straumum og hér á landi hafa margir sest að og búið sér gott líf og auðgað menningu okkar allra. Hættan er sú, þegar stöðugt berast fréttir af erlendum glæpamönnum hér, að fordómar aukist gagnvart heiðarlegu fólki sem býr og starfar í landinu. Þess vegna verðum við öll að fara varlega þegar um þessi mál er fjallað, en við megum alls ekki horfa fram hjá því, ef hætta er á að glæpaklíkur af einhverju tagi skjóti rótum hér. Það er með ólíkindum að hópur manna vaði inn í hús og gangi í skrokk á heimilismönnum. Auðvitað veit ég ekk- ert um hver forsaga málsins er og það er enn á rannsóknarstigi, en hvernig sem hún er, eru það óhugguleg tíðindi að heimili manna séu ekki griðastaður þeirra sem þar búa. Lögreglan hefur reynt að búa sig að megni undir þá ógn sem stafar af skipulagðri glæpastarf- semi og hrottafengnum glæpum. Þó er ljóst að hún þarf stöðugt að leita nýrra leiða og vera á varðbergi. Í opnum heimi getur verið erfiðara um vik að hafa hendur í hári brotamanna þótt samvinna sé meiri en áður var og ætti að því leyti til að skila betri upplýs- ingum þegar haft er uppi á glæpamönn- um. Þess vegna verðum við að standa vörð um lögregluna í landinu með því að halda áfram að tryggja framlag til lög- gæslumála og eflingu lögreglunnar á sem flestum sviðum. Ekki þarf að fjölyrða um uppganginn sem verið hefur hér á undanförnum ár- um. Þótt nú séu greinileg merki um samdrátt (sem einnig hefur valdið mörgum verulegum áhyggjum um páskahelgina) er Ísland enn ákjós- anlegt land fyrir marga þá sem búa við þrengri kost í heimalandi sínu. Og þá kann íslenska réttarkerfið ekki endi- lega að hljóma svo voðalegt í sam- anburði við heimalandið. Fangelsin hér heima hafa lagt metn- að sinn í það að reyna að skila til baka út í þjóðfélagið betri mönnum en fóru þangað inn. Það hefur gengið misjafn- lega, en markmiðið er skýrt og eftir því er unnið. Erlendir brotamenn sem hér koma í stutta stund, líta jafnvel sumir hverjir íslensk fangelsi allt öðrum aug- PISTILL » Við Íslendingar höfum sem betur fer verið lausir við grófa og skipu- lagða glæpastarfsemi. Því miður virðast vera teikn á lofti um að það sé að breytast. Ólöf Nordal Undirheimarnir … um en fangelsi heimalandsins. Þá er spurt: Væri ekki ágætt að þeir sem dæmdir eru í fangelsi hér á landi yrðu látnir afplána í heimalandi sínu? Á dögunum var viðtal við Björn Bjarna- son dómsmálaráðherra á Bylgjunni. Þar greindi hann frá því að embætt- ismenn í dómsmálaráðuneytinu hafi rætt við innanlandsráðuneytið í Litháen um slíkt fyrirkomulag hvað varðar rík- isborgara frá Litháen. Taldi hann lík- legt að það næði fram að ganga. Það finnst mér vera jákvætt og vonandi vís- ir að frekara samstarfi milli Íslands og annarra þjóða á þessu sviði. Hljóðpistlar Morgunblaðsins, Ólöf Nordal les pistilinn HLJÓÐVARP mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.