Morgunblaðið - 27.03.2008, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 27.03.2008, Qupperneq 22
neytendur 22 FIMMTUDAGUR 27. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ Bónus Gildir 27. – 30. mars verð nú verð áður mælie. verð KF lambalærisneiðar í raspi ........ 1.199 1.599 1.199 kr. kg KF íslenskt nautahakk, frosið ...... 799 1.059 799 kr. kg Bónus brauðbollur fitness, 320 g 159 198 497 kr. kg Bónus brauðbollur kúmen, 320 g 159 198 497 kr. kg Euroshopper ananasm., 3x227 g 59 98 86 kr. kg Euroshopper kjúklingabringur ..... 1.298 1.398 1.298 kr. kg Glk ýsubitar roð og beinlausir, ..... 798 0 798 kr. kg Bónus nýbak. kleinuhringir, 2 stk. 198 0 99 kr. stk. Bónus nýbökuð rúnstykki, 4 stk... 179 0 45 kr. stk. Bónus nýbakað baguette ............ 98 0 98 kr. stk. Fjarðarkaup Gildir 27. – 29. mars verð nú verð áður mælie. verð Móa ferskur kjúklingur, 1/1 ........ 548 899 548 kr. kg Nauta innanlæri, úr kjötborði ...... 2.398 2.998 2.398 kr. kg 4 hamborgarar m/brauði ........... 398 468 398 kr. pk. Nauta roastbeef, úr kjötborði ...... 1.698 2.198 1.698 kr. kg Frosnar kjúklingabringur, 2,5 kg .. 2.998 3.330 1.199 kr. kg Hagkaup Gildir 27.– 30. mars verð nú verð áður mælie. verð Ribbeye .................................... 1.998 3.269 1.998 kr. kg Prime ribs ................................. 1.998 3.021 1.998 kr. kg Entrecoté .................................. 1.998 3.269 1.998 kr. kg SS koníakslegnar grísalundir....... 2.203 2.448 2.203 kr. kg VSOP helgarsteik ....................... 1.780 1.978 1.780 kr. kg Holta kjúklingapaté.................... 1.469 2.099 1.469 kr. kg Holta kjúklingabr. provance ........ 1.679 2.799 1.679 kr. kg Ungnautapiparsteik ................... 2.099 2.998 2.099 kr. kg Íslandsn. helgarst. m/bernaises.. 2.173 2.898 2.173 kr. kg Ungnautahakk ísl, 8-12% feitt .... 909 1.399 909 kr. kg Krónan Gildir 27. – 30. mars verð nú verð áður mælie. verð Grísahnakki úrb. sneiðar............. 959 1.598 959 kr. kg Ungnauta mínútusteik................ 1.499 2.998 1.499 kr. kg Nautahakk ................................ 897 1.298 897 kr. kg Grísasnitsel í raspi ..................... 1.259 1.798 1.259 kr. kg Grillborgarar m/brauði, 4 stk. ..... 398 499 398 kr. pk. Móðir náttúra Tikkamas., 400 g .. 498 639 1.245 kr. kg Rose kjúklingabr. danskar, 900 g 1.198 1.398 1.331 kr. kg Super franskar kartöflur .............. 259 369 259 kr. kg Egils kristall, 2 ltr ....................... 99 149 50 kr. ltr Góu dúndur tvenna .................... 399 479 399 kr. pk. Nóatún Gildir 27. - 30. mars verð nú verð áður mælie. verð Nóatúns hakkbollur í súrsætri ..... 969 1.218 969 kr. kg Gourmet hunangsgrís, léttreyktur 1.494 1.867 1.494 kr. kg Ungnautahamborgari, 90 g ........ 79 139 79 kr. stk. Lambakótilettur ......................... 998 1.898 998 kr. kg Lambakóróna að hætti Grikkja .... 2.498 3.198 2.498 kr. kg Þykkvabæjar hrásalat, 400 g ...... 129 215 323 kr. kg GM Cheerios, 518 g................... 319 354 616 kr. kg Fanta appelsín, 2 ltr. .................. 99 209 50 kr. ltr. Samy moist sjampó, 340 ml....... 399 498 399 kr. stk. Lambi pocket tissue, 6 stk.......... 99 199 99 kr. pk. helgartilboðin Nautakjöt, kjúklingur og brauðmeti Hvort er eftirfarandi móðg-un eða staðreynd:„Námskeið ætlað óvön-um ökumönnum/ konum …“ Þessi orð eru klippt út úr námskeiðslýsingu á netinu í Jeppa- og ferðalagaskóla Arctic Trucks og er námskeiðið sett fram sem mót- vægi við námskeið fyrir vana jeppa- menn. Það er ekkert nýmæli að konur séu settar í sérflokka þegar geta og hæfileikar eru annars vegar – í óæðri flokkinn – en nýmæli er þó að óvanir séu settir með; eymingjans óvani karlmaðurinn þarf að híma með konum á jeppanámskeiði! Skyldi hann fara huldu höfði á leið í tímana? Alkunna er að kona og karl „keppi“ ekki hvort við annað og það er oft stutt með þeim rökum að „annars myndu engar konur taka þátt“. Reiknað er með að konur séu í öðrum gæðaflokki en karlar, m.a.s. í skák! Sem betur fer eru víða til óvanir flokkar með báðum kynjum innanborðs og konur sem „vinna“ í „efsta“ flokknum – en til að sanna sig þar dugar oft ekkert nema sigur, enn sem komið er. Geta „óvanir/konur“ átt jeppa? Flokkurinn óvanir/konur, eins og Arctic Trucks setur það fram, knýr fram spurningar: Geta konur átt jeppa? Mega konur eiga jeppa? Vita konur eitthvað um bíla yfirhöfuð? Ekki svo mikið miðað við hlerað samtal tveggja kvenna: Kona A spurði konu B hvort jepplingurinn hennar væri með toppgrind. Nei, kona B hélt nú ekki – en hann væri með topplúgu … Önnur saga kallar á bílafræðslu: Kona ein á jeppa (ekki jeppling) og þykir sumum skrítið. Hún þarf á jeppanum halda vegna aðstæðna og uppeldis en hún á jeppann ein. [Karlmaður þyrfti aldrei að útskýra þessa hluti.] En hún á sérlegan ráð- gjafa sem sinnir „innvolsi“ bílsins og í bjargfastri trú á að hann passi upp á bílinn verður hún því miður kæru- laus. Þannig urðu drunur í bílnum fulldaufar í eyrum kæruleysinnar og hélt konan að drunurnar kæmu úr vetrardekkjum líkt og í eldri jeppum sem hún þekkti til, reyndar breytt- um. Hinn „vani“ þurfti rétt að keyra stuttan spöl til að heyra að eitthvað væri að: „Heldurðu að það eigi að drynja svona í svona fínum bíl? Þetta er drifið, hjöruliðskross eða einhver skrattinn“ – sem kom á dag- inn. Bíllinn löngu demparalaus, dekkið sprungið … Ökumenn sem vilja koma í veg fyrir að það sjóði á bíln- um og jafnvel hafa nokkur fræðiorð á hraðbergi á jeppanámskeiði ættu að kynna sér málið betur. Karlar geta falið sig á bak við skilgrein- inguna „konur“ ef þeir þora ekki út úr skápnum sem fákunnandi bíla- manneskja og geta kannski komist í vana flokkinn, það er a.m.k. líf- fræðilega mögulegt. Spurningin er: Hvernig getur „kona“ þekkt drunur fortíðarinnar frá drunum hjöruliðs- kross og greint hættuna … orðið vanari? thuridur@mbl.is Kunna „konur“ ekkert á bíla? Meira loft Stundum þarf að hleypa lofti úr dekkjum til að komast það sem konur þurfa að komast. Halldóra Ingvarsdóttir og Þórkatla M. Norðquist í nýlegri kvennaferð ferðaklúbbsins 4x4. »… nýmæli er þó aðóvanir séu settir með; eymingjans óvani karlmaðurinn þarf að híma með konum á jeppanámskeiði! Ótrúlega margir ökumenn stöðva aldrei för sína að „óþörfu“, ekki fyrr en bíllinn stöðvast bara sjálfur. Þuríður Magnúsína Björnsdóttir teflir fram bíla- fræðslu gegn bílahræðslu því þú þarft að vita eitt- hvað um bílinn þinn ef þú vilt eiga hann áfram. Ljósmynd/Kristín Sigurðardóttir Bifreiðaskoðun á að fara framárlega, allir bifreiðaeig-endur vita það. En hvað annað þarf að gera á ári hverju til að viðhalda bílnum? Það þarf að smyrja bílinn reglulega, skipta þarf um olíu á vél á 4.000–8.000 km fresti, það fer eftir vélarteg- undum, sumir framleiðendur segja allt upp í 15.000 km. Eins þarf að skipta um smurolíusíu á vélinni o.fl. Maður þarf sem sagt að vita hve margir km eiga að líða á milli þess sem maður fer með bílinn á smurstöð eða smyr sjálfur, með- aljóninn smyr sennilegast þrisvar sinnum á ári. Ráðlegt er að fylgjast með olíu- kvarðanum á vélinni, sérstaklega ef bíllinn er farinn að eldast, þá er ekki nóg að treysta á smurtíma. Sjálfsagt er að fylgjast með hita- mælinum í mælaborðinu (kannski þarf að komast að því hvar hann er) og koma í veg fyrir að það vanti vatn á vatnskassann. Athuga þarf rúðuþurrkur reglu- lega og rúðupissið (vatn er ekki nóg í frosti) sem og passa upp á að réttur vindur sé í dekkjum. Slök viftureim er algengt vandamál sem má ekki hunsa til eilífðarnóns en snuðandi hljóðið heyrist vel t.d. í kulda og í upphafi ferðar. Listinn er ekki tæmandi, vel að merkja, og ef satt skal segja verð- ur nú almenn skynsemi að koma til, eða eins og maðurinn sagði: Toppgrind … topplúga, málið er bara að hafa toppstykkið í lagi! Hvað er hvað í jeppatali? Breyttur bíll er upphækkaður. Sumir sérhæfa sig í að breyta jeppabifreiðum – en í hvað …? Þegar bíl er breytt er búið að breyta aksturseiginleikum hans, setja hann á stærri dekk og breiðari, hækka hann upp á hás- ingu með klossum eða hækka hann á grind en þá eru settir hærri klossar ofan á púðana á milli grindar og húss („boddís“). Hann þarf að fara í sérskoðun og miði í hurð er til marks um breytta akst- urseiginleika. Allt er þetta gert í því skyni að bíllinn komist meira og lengra en áður. Sagt er að ekki megi hækka bíl meira en svo að konur komist upp í hann í rauðum skóm og rauðu aðsniðnu pilsi. Bíll á grind er bíll með sjálf- stæða grind milli hjóla og húss. Flestir jeppar eru á grind, þeir sem eru ekki á grind teljast samt jeppar (þó segja sumir þá ekki al- vörujeppa). Jeppi á grind þykir sterkari og betur búinn undir breytingar. Ein „kenningin“ um skilgreiningu jeppa er að það sem skilur að jeppa og jeppling er hátt og lágt drif, í jeppa er millikassi þannig að hægt er skipta í hátt og lágt drif. Jeppar á upprunalegri dekkja- stærð eru kallaðir slyddujeppar í óvirðingarskyni, þeir eru á „org- inal“ dekkjum, á skurðarskífunum eins og sumir kalla það, þvengmjó- um dekkjum. Slyddujeppi er ekki endilega jepplingur heldur alls óbreyttur jeppi. Og hvað eiga öll þessi drif að þýða? Fjórhjóladrif, framhjóla- og afturdrif, sídrif … Bíll með sídrifi er alltaf í báðum drifunum (fram- og afturhjóladrifi) og aðrir fara í bæði drif eftir aðstæðum. Eldri einsdrifsbílar (s.s. ekki fjór- hjóladrifnir) voru nánast allir með drifið að aftan sem reynist verra í hálku en framdrif, því nefndir „spólurokkar“. Driflæsingar í hjólum virka þannig að drifum er læst svo hjólin taki jafnt á, spóli ekki bara á öðru hjólinu. Tvinnbíll gengur fyrir bæði raf- magni og bensíni. Bensínvélin fer bara í gang þegar þú þarft meira afl, t.d. við að auka hraðann eða fara upp brekkur. Maður keyrir því meira eða minna á rafmagninu á tvinnbíl. Að lokum (fyrir sljóa karla og konur): Setjið rétta eldsneytisteg- und á bílinn (bensín, hráolíu eða litaða olíu) og hafið alltaf nóg af eldsneyti á tankinum. Það er mikið atriði að hafa tankinn ekki hálf- tóman í frosti því ef það er lítið á honum getur hrímað inni í honum og myndast raki sem fer í elds- neytið. Því er um að gera að hafa bílinn aldrei tóman í köldu veðri. Upplýsingar fyrir hrædda og/ eða áhugalausa bíleigendur Töffaralegur 35" breyttur Toyota Tacoma er til í vetrartíð. Ljósmynd/Guðjón B.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.