Morgunblaðið - 27.03.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MARS 2008 41
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9-
16.30, jóga kl. 9, boccia kl. 10, út-
skurður og myndlist kl. 13-16.30,
Grandabíó kl. 13.30-15.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15, opin
smíðastofa og handavinnustofa kl.
9-16.30, boccia kl. 9.30, helgistund
kl. 10.30, leikfimi kl. 11, myndlist kl.
13.30. Uppl. í síma 535-2700.
Bólstaðarhlíð 43 | Bingó kl. 13.30,
hárgreiðsla, böðun, lífsorkuleikfimi,
handavinna, myndlist, morgunkaffi/
dagblöð, fótaaðgerð, hádegisverður,
bókband, kaffi.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Brids spilað kl. 13.
Félag kennara á eftirlaunum |
EKKÓ-kórinn æfir í KHÍ kl. 17-19. Nýj-
ar raddir velkomnar, bókmennta-
klúbbur á neðstu hæð í Kennarahúsi
kl. 14-16.
Félagsheimilið Gjábakki | Ramma-
vefnaður, almenn leikfimi og málm-
og silfursmíði fyrir hádegi, bókband
og róleg leikfimi kl. 13, myndlist-
arhópur að störfum kl. 16.30 og
dönskukennsla kl. 16-18, 2 hópar.
Félagsheimilið Gullsmára 13 |
Handavinna kl. 9, ganga kl. 10 og
síðan hádegisverður, handavinna og
brids kl. 13, jóga kl. 18.15.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ
| Bókband kl. 10, gönguhópur kl. 11,
vatnsleikfimi kl. 12.40, karlaleikfimi
messan einkennist af kyrrð og ein-
faldleika.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Orgelleikur, íhugun, málsverður í
safnaðarsal eftir stundina.
Háteigskirkja - starf eldri borgara |
Vinafundur er í Setrinu kl. 14-16.
Rifjaðar upp gamlar minningar, við-
horf og skoðanir, rætt um hversdag-
inn og trúna, reynt að koma auga á
hið heilaga í því hversdagslega,
Kristín sér um kaffið.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía |
Bænastund í kaffisal kirkjunnar kl.20
og á sama tima er einnig grunn-
fræðsla um kristna trú. Þar er farið í
grunnspurningar um hvað kristnin
snýst, báðar stundir eru opnar öll-
um.
KFUM og KFUK | Fundur í AD
KFUM kl. 20. Heimsókn í Grens-
áskirkju. Umsjón hafa Sr. Ólafur Jó-
hannsson og Willy Petersen. Allir
karlmenn eru velkomnir.
Neskirkja | Foreldramorgunn kl. 10,
kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lár-
usdóttir. Foreldramorgnar eru alla
fimmtudaga kl. 10-12.
Vídalínskirkja Garðasókn | Bibl-
íulestur kl. 21, opin öllum. Verið er
að lesa Rómverjabréfið, kyrrðar- og
fyrirbænastund kl. 22, bæn er lífs-
leikni. Tekið er við bænarefnum af
prestum og djákna. Boðið upp á
kaffi í lok stundarinnar.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fóta-
aðgerðir kl. 9-10, boccia kl. 9.15-14,
aðstoð v/böðun kl. 9.15-15.30,
handavinna kl. 10-12, spænska
framh. kl. 11.45, hádegisverður, kór-
æfing kl. 13, leikfimi kl. 14.30, kaffi-
veitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
bókband, glervinnsla, morgunstund,
boccia, handavinnustofan opin, hár-
greiðslu og fótaaðgerðastofan opin
allan daginn, upplestur kl. 12.30,
frjáls spilamenska kl. 13. Uppl. í síma
411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Bænastund og
samvera kl. 10, salurinn opinn kl. 13,
leikfimi kl. 13.15, bingó kl. 14. kaffi-
veitingar.
Kirkjustarf
Dómkirkjan | Kvöldkirkjan er opin kl.
20-22. Bænastundir kl. 20.30 og
21.30. Prestur á staðnum. Hægt er
að kveikja á bænarkerti og eiga
kyrrláta stund. Opið hús í safn-
aðarheimilinu Lækjargötu 14a kl. 14-
16, kaffi og spjall.
Grafarvogskirkja | Foreldramorgnar
kl. 10-12, samverustund og fyr-
irlestrar, kaffi, djús og brauð. TTT
fyrir 10-12 ára kl. 15-16 í Víkurskóla.
Grensáskirkja | Hversdagsmessa
með Þorvaldi Halldórssyni kl. 18-19.
Bænin, orð Guðs og altarisganga eru
uppistaða messunnar, hversdags-
kl. 13, boccía kl. 14, handavinnuhorn
og námskeið í bútasaumi kl. 13,
smiðja gler og leir kl. 13.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9-
16.30, postulínsmálun kl. 9 16,
boccia kl. 10-11, leikfimi kl. 11-12, há-
degismatur kl. 12, félagsvist kl. 14-
16.30, kaffi kl. 15-15.30.
Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir hjá
Jóhönnu kl. 9-16, boccia kl. 10, fé-
lagsvist kl. 13.30, kaffiveitingar. Böð-
un fyrir hádegi, hádegisverður, hár-
snyrting.
Hæðargarður 31 | Vorferðin á vit
skálda til Akureyrar er 14.-16. maí.
Dagskrá í Leikhúsinu Möðruvöllum
15. maí kl. 20. Gist á KEA. Hjördís
Geirs og hljómsveit spilar á morgun
kl. 13.30 í tilefni 5 ára afmælis
Draumadísa og prinsa. Sími 568-
3132.
Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi í
Grafarvogssundlaug á morgun kl.
9.30 og listasmiðjan á Korpúlfs-
stöðum er opin kl. 13-16.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu-
stund og spjall kl. 9.45, boccia,
karlaklúbbur kl. 10.30, handverks og
bókastofa opin, postulínsmálun nám-
skeið, kl. 13, boccia kvennaklúbbur
kl. 13.30, kaffiveitingar kl. 14.30.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höf-
uðborgarsvæðinu | Skák kl. 19 í fé-
lagsheimili Sjálfsbjargar á höf-
uðborgarsvæðinu, Hátúni 12.
80ára afmæli. Í dag 27.mars verður Alda Guð-
mundsdóttir frá Ytri-Skál í
Köldukinn áttræð. Alda held-
ur upp á afmælið sunnudaginn
30. mars, með veislu í sal
Hvamms á Húsavík frá kl. 13.
Allir vinir, kunningjar og
vandamenn eru velkomnir.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 27. mars, 87. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Hvern þann sem kannast við mig fyrir mönnum, mun og ég við kannast fyrir föður mínum á himnum. (Mt. 10, 32.)
Samtökin ’78 hafa, í samstarfi viðHáskóla Íslands, staðið fyrirröð fyrirlestra á vorönn í til-efni af 30 ára afmæli samtak-
anna.
Á morgun, föstudag, ætlar dr. Oliver
Phillips kennari við lagadeild West-
minsterháskóla að flytja erindi um
mannréttindi og lagaumhverfi samkyn-
hneigðra í Zimbabwe og Suður-Afríku:
Sexual rights – from marginal to main-
stream and to what end? What can we
learn from Zimbabwe and South Af-
rica?
„Von er á mikilli ólgu í Zimbabwe í
lok marsmánuðar þegar gengið verður
til atkvæða, og Robert Mugabe ann-
aðhvort kjörinn sem forseti enn eina
ferðina eða loksins velt úr sessi af kjós-
endum,“ segir Oliver. „Ef umræðan í
landinu er skoðuð ber þó nokkuð á orð-
ræðu sem beinist gegn fyrrum nýlendu-
veldum og áhrifum þeirra, sér í lagi frá
herbúðum Mugabes. Vakti það athygli
samkynhneigðra á Vesturlöndum þegar
Mugabe lét hafa eftir sér fyrir um ára-
tug að „samkynhneigðir væru verri en
svín og hundar“, auk þess að hann hélt
því fram að samkynhneigð fyrirfyndist
ekki í Afríku, og væri sjúkdómur hvíta
mannsins, sem borist hefði til álfunnar
með spilltum nýlenduherrum.“
Ganga fram fyrir skjöldu
Oliver segir yfirlýsingum Mugabes
m.a. hafa verið ætlað að storka vest-
rænum hugmyndum um mannréttindi,
en innan Zimbabwe hafi þessi yfirlýsing
haft ógnvænlegar afleiðingar, og ein-
staklingar sem ekki voru gagnkyn-
hneigðir gátu orðið fyrir barðinu á of-
beldi, og hommahatri: „Um leið gerðist
það að nýr kraftur hljóp í hreyfingu
homma og lesbía í landinu,“ útskýrir
Oliver. „Samtök samkynhneigðra í Zim-
babwe höfðu áður fyrst og fremst verið
félagslegur vettvangur, en komust nú
ekki hjá því að láta til sín taka í póli-
tískri og lagalegri umræðu.“
Fyrirlesturinn á föstudag fer fram í
stofu 101 í Odda og hefst kl. 12.15. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Heimasíða Samtakanna ’78 er á slóð-
inni www.samtokin78.is
Jafnrétti | Fyrirlestur á föstudag í Odda um samkynhneigð í Afríku
Ósiður nýlenduherra?
Oliver Charles
Phillips fæddist í
Colchester á Eng-
landi 1964. Hann
lauk BA-gráðu frá
lagadeild Háskól-
ans í Höfðaborg
1985, diplóma í
frönsku frá Há-
skólanum í Nice
1986, BA í afbrotafræði í Höfðaborg
1988, M.Phil í afbrotafræði 1989 frá
Cambridgeháskóla og doktorsgráðu
frá sama skóla 1999. Oliver hefur
starfað við rannsóknir og kennslu frá
1990 í Zimbabwe, Lundúnum og Nýju
Jórvík. Hann starfar nú við lagadeild
Westminsterháskóla í Lundúnum.
Maki Olivers er Dan Cochran og eiga
þeir eina dóttur.
Fyrirlestrar og fundir
Árnagarður | Terry Gunnell fjallar um tengsl
norrænna gyðja við mýri og vötn, af hverju
mýrarfórnir í Skandinavíu virðast hafa horf-
ið um 500 eftir Krist og af hverju svo fá ör-
nefni eru eftir sem styðja slík tengsl. Hefst
kl. 17.15. Fyrirlesturinn verður á ensku.
Landakot | Fræðslunefnd Rannsóknastofu
kynnir fræðslufyrirlestur kl. 12.15, í kennslu-
salnum á 7. hæð á Landakoti. Ólafur Sam-
úelsson, öldrunarlæknir, fjallar um lyf og
aldraða. Sent út með fjarfundabúnaði.
Nýsköpunarmiðstöð Íslands | Impra á Ný-
sköpunarmiðstöð Íslands stendur fyrir
kynningarfundi um gildi samþættingar í ný-
sköpun (converging technology) kl. 11-12.30.
Fyrirlesarar verða Leif Jakobsen og Peter
Bjorn Larsen frá Danish Technological Insti-
tute. Skráning á osk@nmi.is
Sögufélag, Fischersundi 3 | Rannsókn-
arkvöld á vegum Félags ísl. fræða, er kl. 20.
Ragnhildur Richter, Sigríður Stefánsdóttir
og Steingrímur Þórðarson kynna tvær
kennslubækur. Þau gera m.a. grein fyrir því
hvernig ritin endurspegla hugmyndir um
heildstæða móðurmálskennslu í framhalds-
skólum.
Ættfræðifélagið | Næsti félagsfundur Ætt-
fræðifélagsins, verður haldinn kl. 20.30 í
húsi Þjóðskjalasafnsins að Laugaveg 162, 2
hæð. Starfsmenn Þjóðskjalasafnsins kynna
helstu ættfræðiheimildir safnsins og sýnd
verða gömul handrit.
Frístundir og námskeið
Mímir símenntun ehf | Ensku- og spænsk-
unámskeið hefjast í byrjun apríl hjá Mími sí-
menntun, upplýsingar og skráning í síma
580-1808 og á www.mimir.is
SVISSLENDINGURINN Rosa Rein hélt upp á
111 ára afmæli sitt á dvalarheimili fyrir aldraða
í Losano í fyrradag. Rein átti reyndar afmæli
degi fyrr, fædd 24. mars 1897. Það má því segja
að Rein muni tímana tvenna. Rein er elsta kona
Sviss og enn nógu hress til að skála.
Reuters
Elsta kona Sviss skálar fyrir árunum 111
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót og fleira les-
endum sínum að kostnaðar-
lausu. Tilkynningar þurfa að
berast með tveggja daga fyr-
irvara virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir sunnu-
dags- og mánudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Hægt er að
senda á netfangið dag-
bok@mbl.is.
FRÉTTIR
Rangt nafn
Rangt var farið með nafn Sigur-
laugar Guðjónsdóttur í frétt um þrjú
systkin á tíræðisaldri sem birtist í
Morgunblaðinu í gær. Beðist er vel-
virðingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
INGIBJÖRG
Lilja Ómars-
dóttir fé-
lagsfræðingur
heldur fyr-
irlestur heldur á
vegum Rann-
sóknastofu í
vinnuvernd á
morgun, föstu-
daginn 28. mars
101 kl. 12.15–
13.15, í Háskóla Íslands, Odda. Fyr-
irlesturinn nefnist Jafnvægi vinnu
og einkalífs – hvernig upplifa
starfsmenn samþættingu fjöl-
skyldulífs og atvinnu í tengslum við
sveigjanleika í starfi?
Sveigjanleiki hefur töluvert verið
í umræðunni undanfarin ár og í dag
gefst starfsfólki ýmissa fyrirtækja
og stofnana hérlendis kostur á
sveigjanlegum vinnutíma og fjar-
vinnu svo eitthvað sé nefnt. Greint
er frá rannsókn þar sem markmið
var að kanna sveigjanlegt vinnufyr-
irkomulag og mikilvægi þess fyrir
jafnvægi á milli vinnu og fjöl-
skyldulífs. Rannsóknin byggist á
eigindlegri aðferðafræði. Því er
ekki hægt að alhæfa út frá henni
um íslenskan vinnumarkað en hins
vegar ættu niðurstöðurnar að geta
gefið ágætar vísbendingar um
ýmsa þætti varðandi sveigjanleika í
starfi, segir í fréttatilkynninu.
Rannsóknina vann Ingibjörg
Lilja sem lokaverkefni í meist-
aranámi í atvinnulífsfélagsfræði
frá Gautaborgarháskóla.
Vinnan og
einkalífið
Ingibjörg Lilja
Ómarsdóttir
VEGNA fjölda fyrirspurna sem
Vodafone hafa borist á und-
anförnum dögum, vegna notkunar
vefsíðunnar www.thevikingbay.org
á vörumerki Vodafone vill fyr-
irtækið koma eftirfarandi á fram-
færi: Umrædd notkun á vörumerki
Vodafone er í óþökk fyrirtækisins.
Vodafone hefur ítrekað óskað eftir
því að vörumerkið verði fjarlægt af
vefsíðunni en án árangurs. Verði
ekki orðið við þeim óskum mun
Vodafone kæra stjórnendur síð-
unnar til lögreglu fyrir athæfið,
segir í fréttatilkynningu.
Í óþökk
Vodafone