Morgunblaðið - 27.03.2008, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 27.03.2008, Blaðsíða 44
…nauðsynlegt að hafa konu í leiknu atriðunum til þess að minnka táfýluna af þessu pínulítið… 46 » reykjavíkreykjavík Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „HANN var með bókina og hand- ritið í skoðun,“ segir Snorri Þórisson hjá kvikmyndafyrirtækinu Pegasus, en breski kvikmyndagerðarmað- urinn Anthony Minghella sem lést í síðustu viku hafði mikinn áhuga á að gera kvikmynd eftir Sjálfstæðu fólki Halldórs Laxness. „Þetta var bara núna fyrir ára- mótin, og hefur verið í skoðun síðan. Hann var ekki búinn að taka ákvörð- un um að gera myndina, en ég taldi að hann hefði hug á því þar sem hann var ekki búinn að ýta þessu frá sér,“ segir Snorri sem hefur kvik- myndaréttinn að Sjálfstæðu fólki á leigu. En telur Snorri að Minghella hefði látið verða af verkefninu? „Ég þori ekkert að segja neitt til um það, enda er hann ekki til frá- sagnar um málið. En þetta var alla- vega í skoðun á milli okkar.“ Anthony Minghella er hvað þekkt- astur fyrir The English Patient, en fyrir þá mynd hlaut hann Ósk- arsverðlaun sem besti leikstjórinn. Hann átti einnig að baki myndir á borð við The Talented Mr. Ripley og Cold Mountain. Aðspurður segist Snorri ekki vera farinn að ræða við fleiri um verk- efnið. „Maður talar bara við einn í einu. Þetta er lítill bransi þótt hann sé stór og fólk fréttir alltaf hvað er í gangi. Þannig að maður er ekki að bjóða nema einum í einu að leikstýra svona mynd,“ segir hann, og bætir því við að jafnlíklegt sé að innlendir og erlendir aðilar muni gera kvik- mynd eftir Sjálfstæðu fólki. „En ég hef hug á að framleiða mynd sem fær alþjóðadreifingu, sem okkar myndir hafa því miður ekki enn fengið.“ Vildi gera Sjálfstætt fólk Leikstjórinn Anthony Minghella. Snorri ÞórissonHalldór Laxness Hvað gerir Björk á tónleikunum í Ísrael?  Eins og greint var frá í gær mun Björk Guðmundsdóttir halda tón- leika í Ísrael hinn 31. júlí í sumar. Tónleikar Bjarkar í Sjanghæ í byrj- un þessa mánaðar vöktu mikla at- hygli, en þar tileinkaði hún Tíbetum lagið „Declare Independence“ við litlar vinsældir kínverskra yfirvalda. Þá notaði hún sama lag á tónleikum í Tókýó í febrúar til að lýsa yfir stuðn- ingi við sjálfstæðisyfirlýsingu Kos- ovo. Nú er spurning hvort Björk haldi uppteknum hætti og segi sína skoðun á hatrammri deilu Ísraela og Palestínumanna á tónleikunum í Ísr- ael, en slíkt myndi án efa vekja mikil viðbrögð víða um heim.  Gunnar Lárus Hjálmarsson, bet- ur þekktur sem Dr. Gunni, virðist ekki par sáttur við lagavalið í mat- vöruverslun Krón- unnar ef marka má færslu á bloggsíðu kappans. „Í Krónunni í gær var verið að spila Ísland er land þitt í kerfinu. Álíka viðeigandi og Wonderful life í gasklefa. Mig langaði mest til að rífa mig úr fötunum, rífa upp kjúk- lingabringupakka á 3.000 kr. kílóið, maka bringum á bringuna á mér og hlaupa æpandi og gólandi út,“ segir meðal annars í færslunni. Yndislegt líf í gasklefa Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is NAFN Morðingjanna gefur í skyn argandi, bölmóðsríkt pönk og þann- ig tætti tríóið í gegnum fyrstu plötu sína, Í götunni minni, árið 2006. Keyrslunni hefur síst linnt á nýjasta grip sveitarinnar sem ber nafnið Áfram Ísland! Pönkrokkið er sem áður hresst, útúrrokkað, frísklegt og stuðvænt og textarnir kjarn- yrtir, gráglettnir og gagnrýnir. Aukið melódíunæmi er kannski helsta breytingin. „Hann Haukur er orðinn alltof góður á gítarinn,“ seg- ir Atli bassaleikari um félaga sinn og dæsir, enda lítið pönk í því að vera virtúós á hljóðfærið sitt. B-hliðar lag með Pixies „Þetta má alltént ekki verða of gott,“ samsinna félagarnir sem búa yfir einkar heilbrigðu viðhorfi til listarinnar, bera með sér velkomna blöndu af alvarlegheitum og væru- kærð. „Við erum að þessu fyrst og síð- ast af því að þetta er skemmtilegt,“ segir Atli. „Við erum ekki nógu góðir til að spila tónlist en kannski nógu góðir til að spila pönk. Við spilum pönk en hlustum kannski ekkert sérstaklega mikið á það og erum síst einhverjar alfræðiorða- bækur um tónlistina. Pönkið lá vel við þegar við byrjuðum í þessu. Það stóð til á tímabili að gera þessa plötu að ska-plötu en þær áætlanir duttu fljótlega upp fyrir.“ Sveitin á rætur sínar í hipp-hopp- sveitinni Dáðadrengjum sem sigr- aði í Músíktilraunum árið 2003. Atli var þar rappari, Haukur bassaleik- ari (leysti þar Sindra Eldon af) og Helgi, trymbill Morðingjanna, barði einnig bumbur með Dáðadrengjum. Plötusnúður þeirrar sveitar, Eirík- ur, eða DJ Gummo, tók þá Áfram Ísland! upp en um hljóðblöndun sá Axel „Flex“ Árnason. Haukur segir að nýja platan sé soldið „sellát“. „Það eru „lin“ lög þarna, vænleg til vinsælda en svo eru reyndar lög þarna sem eru mun harðari og þyngri en gömlu lögin. Þetta er svona yin og yang og við erum líkt og Kurt Cobain að ströggla við þessa nýtilkomnu smellasmíði. Við vitum ekki alveg hvað við eigum að gera við þetta en röðuðum útvarpshitturunum að sjálfsögðu fremst á plötuna.“ Þeir félagar hlæja við og Atli lýs- ir því sem svo að honum hafi fundist lagið „Ekki í dag“, sem lafir nú efst á myspace-svæði sveitarinnar, vera eins og b-hliðar lag með Pixies áður en hann tók það í sátt. Stungið á kýlum Þeir félagar viðurkenna að plat- an hafi óvart orðið að konseptplötu. „Eins og nafnið gefur til kynna eru þetta vangaveltur um ástand Ís- lands í dag,“ heldur Haukur áfram. „Þegar maður hlustar langar mann til að mála sig í framan eins og handboltabrjálæðingur og setja upp víkingahjálm.“ Í skondnum textum stinga þeir á ýmsum kýlum; hin alíslensku og heimsfrægu fyllerí eru tekin fyrir, doði og dáðaleysi x-kynslóðarinnar er sett undir mæliker og Airwaves hátíðin fær þjóðsöng, lag sem var lýst sem lélegasta lagi sem samið hefur verið – í þessu blaði. Strák- arnir láta sér fátt um finnast og taka allri umfjöllun fagnandi. „Mér fannst þetta besta lag árs- ins 2007 þegar ég var nýbúinn að semja það,“ segir Haukur og hlær. „Það er Evróvisjónhækkun og allt. Vonandi verður Airwaveslagið not- að á sem flestum þannig hátíðum í framtíðinni – þetta er eins og að semja jólalag, örugg spilun á ári hverju.“ Áfram Ísland! er komin í búðir en boðið er upp á ýmsar aðrar inn- kaupaleiðir, og þar hentar verðið vel í yfirvofandi kreppunni. Hægt er að hlaða plötunni niður fyrir litlar 990 krónur og fyrir 1799 krónur er hægt að verða sér út um plötuna rafrænt og fá gripinn efn- islega í pósti nokkrum dögum síðar. Meira morðingja-pönk Hljómsveitin Morðingjarnir sendir frá sér nýja plötu sem nefnist Áfram Ísland! Pönkarar Félagarnir Atli, Helgi og Haukur mynda Morðingjana. -myspace.com/mordingjarnir -kimirecords.net ■ Lau. 29. mars kl. 14.00 Maxímús Músíkús - Tónsprotatónleikar Músin Maxímús Músíkus villist inn á æfingu og tónleika hljómsveitar- innar. Tónleikar í tilefni af útkomu samnefndrar barnabókar Hallfríðar Ólafsdóttur flautuleikara með myndum eftir Þórarin Má Baldursson víóluleikara. Valur Freyr Einarsson leikari segir söguna af Maxímúsi, trúðurinn Barbara lítur við og Maxímús sjálfur kemur í heimsókn. Á efnisskránni eru m.a. Bolero eftir Ravel og fyrsti kaflinn úr fimmtu sinfóníu Beethovens. Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson ■ Fim. 3. apríl kl. 19.30 Einstakur gestur Robert Levin er einhver merkasti tónlistarhugsuður okkar tíma. Hann leikur píanókonsert nr. 3 eftir Beethoven og spinnur sína eigin kadensur. ■ Fös. 4. apríl kl. 21.00 Heyrðu mig nú! Öðruvísi upplifun af sinfóníutónleikum. Stuttir tónleikar þar sem lista- mennirnir kynna verkin og partí í anddyri Háskólabíós á eftir. Róbert Levin leikur píanókonsert eftir Beethoven og spinnur út frá lögum sem tónleikagestir leggja til. Heppnir tónleikagestir vinna iPod í boði FL Group. Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.