Morgunblaðið - 27.03.2008, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 27. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FINNUR Dellsén
hefur verið ráð-
inn aðstoð-
armaður Stein-
gríms J. Sigfús-
sonar, formanns
Vinstri grænna.
Finnur er 23
ára og heim-
spekingur að
mennt.
Finnur hefur tekið þátt í póli-
tísku starfi um árabil, í ungliða-
hreyfingu Vinstri grænna, í al-
mennu flokksstarfi, og starfað
mikið með Röskvu.
Aðstoðarmaður
Steingríms
Finnur Dellsén
STUTT
NÁM við hæfi hvers og eins – fjöl-
breyttir kennsluhættir er yfirskrift
samráðsfundar foreldra og borg-
aryfirvalda um menntamál sem
haldinn verður í hádeginu fimmtu-
daginn 27. mars í salnum að Frí-
kirkjuvegi 1. Fjallað verður um ein-
staklingsmiðað nám og
teymisvinnu kennara. Júlíus Vífill
Ingvarsson formaður menntaráðs
Reykjavíkur mun flytja stutt ávarp
og Ágúst Ólason deildarstjóri ætlar
að segja frá fyrirkomulagi kennslu
í Norðlingaskóla sem vakið hefur
athygli. Samráðsfundur með for-
eldrum er vettvangur þar sem leit-
að er eftir sjónarmiðum foreldra
grunnskólabarna í borginni.
Samráðsfundur
„ÞETTA ER hroðalegt ástand. Ég
fylgist með þessu af athygli og sé
þetta oft á þjóðvegum þegar ég er
á ferðinni,“ segir Kristján Möller
samgönguráðherra um afstöðu
sína til slælegs frágangs á farmi
flutningabifreiða á vegum lands-
ins.
„Ég er þeirrar skoðunar að ef
þetta muni ekki skána munum við
semja miklu harðari og strangari
reglur þar sem allt verður dregið
til, að ábyrgð ökumanns og fyr-
irtækis verði þá tekinn til skoð-
unar, jafnvel með miklu hærri
sektum en nú tíðkast. Það er ekki
hægt að þola að fréttir af svona
frágangi birtist ítrekað í fjöl-
miðlum. Fólk er mjög hrætt við
þetta og það er ólíðandi að þetta
skuli eiga sér stað.“
Kristján sagði samgönguráðu-
neytið vera að fara yfir athuga-
semdir sem borist hefðu frá hags-
munaaðilum vegna draga að nýrri
reglugerð ráðuneytisins um þessi
mál. Þau sjónarmið hefðu borist að
leiðbeiningar nýju reglugerðar-
innar væru of flóknar og að til
greina kæmi að semja sérstaka
handbók um fráganginn fyrir bif-
reiðastjóra til að fara eftir og þá
sem málið varðar.
Sektirnar lágar
Innan Vegagerðarinnar er að
finna lík viðhorf til frágangsins.
„Það er alltof algengt að frá-
gangur sé lélegur, bæði hvað varð-
ar festingar og annan frágang, til
dæmis í lestum,“ segir Sævar Ingi
Jónsson, deildarstjóri umferðareft-
irlits Vegagerðarinnar, um slæleg-
an frágang á flutningabílum.
Inntur eftir því til hvaða úrræða
sé hægt að grípa segir Sævar að
sektir séu „afskaplega lágar í
þessu og hafi verið það lengi“.
„Þær mætti hækka og til að
gera ökumenn ábyrgari þá mætti
leggja til að þetta félli inn í
punktakerfið eins og önnur brot á
umferðarlögum. Oftast borgar
vinnuveitandinn fyrir brot sem
tengjast þessum reglum, þannig að
ábyrgð ökumannsins verður engin.
Hann er ekkert að skipta sér af
þessu. Vinnuveitandinn borgar.“
Taka lögin ekki alvarlega
Manntjón getur hlotist af léleg-
um frágangi, einkum þegar farm-
urinn er í þyngra lagi.
Spurður hvort hann telji líkur á
að Vegagerðin muni fara í herferð
til að draga úr slíkri hegðun í ár
segir Sævar Vegagerðina stöðugt
vera að vinna í þessum málum, að-
eins tólf manns í fjórum bílum á
landinu öllu sinni þessu eftirliti,
sem sé fyrst og fremst á verksviði
lögreglunnar.
Erfitt sé að draga úr slíkum
brotum á meðan hugsunarhátt-
urinn sé að „þetta sé allt í lagi“.
„Menn eru alltaf að fara svo
stutt og láta gjarnan að því liggja
að svona lög komi frá útlöndum og
eigi ekki við á Íslandi. Það ber á
miklu virðingarleysi hjá mörgum
aðilum sem snúa að þessum þátt-
um umferðar. Menn halda að það
sé allt í lagi að brjóta þau, rétt
eins og lögin skipti ekki máli.“
Morgunblaðið/Júlíus
Ábyrgðarhluti Flutningabíllinn til vinstri var á leið um Suðurlandsveg í gær en sá hægra megin var á Selfossi í síðustu viku. Manntjón getur orðið af slysum vegna lélegs frágangs.
Samgönguráðherra segir
fráganginn oft „hroðalegan“
Í HNOTSKURN
»Lélegur frágangur farmsgetur varðað sektum allt að
100.000 krónum.
»Lögreglan hvetur vegfar-endur til að hafa samband við
112 og biðja um fjarskipta-
miðstöð lögreglu verði þeir varir
við slælega frágang.