Morgunblaðið - 27.03.2008, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 27.03.2008, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MARS 2008 11 FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is VERÐTRYGGÐ íbúðalán bank- anna drógust saman í febrúarmán- uði um 3,3 milljarða króna. Skýr- ingin á þessu virðist vera sú að eitthvað hafi verið um að fólk hafi greitt upp verðtryggð fasteignalán og tekið í staðinn lán í erlendum gjaldmiðli, en slík lán jukust um 4 milljarða í mánuðinum. Tölur Seðlabanka Íslands um út- lán viðskiptabankanna sýna að bankarnir hafa nánast ekki veitt nein fasteignalán í febrúar. Höfuð- stóll þessara lána nam 528 milljörð- um í lok janúar og nam 528,6 millj- örðum í lok febrúar. Verðtryggð íbúðalán bankanna námu 467,7 milljörðum og lækkuðu um 3,3 millj- arða í febrúar, en fasteignalán bank- anna í erlendri mynt námu 60,9 milljörðum og hækkuðu um 4 millj- arða. Höfuðstóll erlends láns sem fólk tók í febrúar hækkaði mikið í mars vegna gengisfalls krónunnar og greiðslubyrðin hækkaði. Það er þó ekki hægt að ganga út frá því að þessi lántaka hafi verið mistök. Hafa ber í huga að vextir af nýju verð- tryggðu húsnæðisláni eru komnir upp fyrir 7%. 12 mánaða verðbólgan var samkvæmt síðustu mælingu 6,8% og fer að öllum líkindum upp fyrir 8% þegar Hagstofan birtir töl- ur sínar á morgun. Vextir og verð- bætur af láninu eru því um 15%. Vextir af erlendu óverðtryggðu láni sem flestir taka (svissneskur franki og japanskt jen) eru hins vegar inn- an við 4%. Þá má ekki gleyma því að höfuðstóll verðtryggðs innlends láns hækkar nokkuð hratt þegar verð- bólgan er komin upp í 8%. Afar rólegt hjá fasteignasölum Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala, segir að rólegt hafi verið yfir fasteignamarkaðinum undanfarnar vikur. Aðeins 102 kaupsamningum hafi t.d. verið þing- lýst í annarri viku mars. Megin- ástæðan fyrir þessu sé lítið aðgengi að lánsfé. Bankarnir séu afar tregir til að lána og geri í mörgum tilvikum fólki erfitt fyrir að ganga frá kaup- um á húsnæði. Íbúðalánasjóður hafi að vísu ekki breytt um stefnu í lána- málum en hann sé hins vegar undir þeirri kvöð að mega ekki lána nema 18 milljónir að hámarki. Það er allt of lítið að mati Ingibjargar og bend- ir hún að á miðað við breytingar á neysluvísitölu frá júlí 2004 ætti þessi upphæð að vera 22-23 milljónir. Samdráttar fór að gæta á fast- eignamarkaði í kjölfar vaxtahækk- unar Seðlabankans í nóvemer sl. Ingibjörg segir að nýjasta vaxta- hækkun bankans liðki ekki fyrir. Hún segir ekki gott að fasteigna- markaðurinn gangi í svona bylgjum. Nú sé búið að skapa þær aðstæður að fólk eigi mjög erfitt með að selja og kaupendur haldi að sér höndum. Þegar markaðurinn fari svo af stað á ný megi allt eins búast við hann geri það með hvelli með tilheyrandi verðhækkunum á húsnæði. Verktakar í vandræðum Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins eru sum smærri verk- takafyrirtæki í verulegum vanda. Þau hafa keypt lóðir dýru verði og byggt íbúðarhúsnæði sem mjög illa gengur að selja. Það bætir ekki stöðu þeirra að bankarnir eru nán- ast lokaðir og fyrirtækin eiga því í erfiðleikum með að standa í skilum við birgja. Þetta hefur t.d. komið illa við steypustöðvar og fleiri fyrirtæki sem selja byggingarefni til verk- taka. Greiða upp verðtryggð lán og taka erlend myntlán Morgunblaðið/Jim Smart Hús Rólegt hefur verið yfir fasteignamarkaðinum að undanförnu. Þetta veldur byggingaverktökum erfiðleikum sem sitja uppi með óseldar eignir. Viðskiptabankarnir lánuðu nánast ekki neitt til fasteignakaupa í febrúarmánuði Í HNOTSKURN »Svo er að sjá sem Íbúðalána-sjóður sé ráðandi í nýjum fasteignalánum um þessar mund- ir. Sjóðurinn lánaði 2,8 milljarða í ný lán í febrúar sem er þó mikill samdráttur frá janúar þegar ný útlán námu 4,5 milljörðum. »Erlend lán heimilanna íbankakerfinu námu 162 milljörðum í lok febrúar. Þetta er næstum 100% aukning á 12 mánuðum. Íbúðalán í erlendri mynt stóðu í 61 milljarði í febr- úarlok. JÓN Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Sam- taka iðnaðarins, telur að það sé illframkvæmanlegt að afnema eingöngu stimpilgjald fólks sem er að kaupa sína fyrstu íbúð. Hið eina rétta sé að afnema gjaldið að fullu. Í tengslum við gerð kjarasamninga hét ríkisstjórnin því að fella niður stimpilgjöld fólks sem er að kaupa sína fyrstu íbúð. „Ég held að þetta verði illframkvæmanlegt. Hvenær ert þú með fyrstu íbúð og hvenær ekki? Hvernig á að fara með par sem er að taka saman, annað hefur átt íbúð en hitt ekki? Ég held að þetta eigi eftir að valda ótrúleg- um flækjum. Við höfum því sagt að nú væri tækifærið að taka þetta skref til fulls og örva þennan markað með því að afnema gjaldið að fullu.“ Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, segir að verið sé að vinna frumvarp í fjármálaráðuneytinu um þessa breytingu. Hann segist eiga von á að frumvarpið verði lagt fram á þingi í næstu viku. Hann segir vissulega rétt að við útfærslu á svona breytingu komi upp ýmis álitamál, en verið sé að fara yfir þau í ráðuneytinu. Hann vildi ekki svara því hvernig tekið yrði á því dæmi sem Jón Steindór nefndi. Breyting á stimpilgjaldi illframkvæmanleg? Jón Steindór Valdimarsson Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is TÖLUVERÐUR hluti af þeim geisladiskum, tölvuleikjum og mynddiskum sem Sena gefur út og dreifir er nú ófáanlegur í verslunum Skífunnar, og mun ástæðan vera sú að forsvars- menn Skífunnar sætta sig ekki við verðhækkanir sem gerðar voru á vörum Senu fyrir nokkrum vikum. Þannig eru sumar vörur frá Senu uppseld- ar í verslunum Skífunnar, og aðrar að klárast. Sem dæmi má nefna nýútkomnar safn- öskjur Sálarinnar hans Jóns míns, Vatnaskil, sem ekki hafa fengist í Skífunni. Sena er stærsti dreifingar- aðili og útgefandi íslenskrar tónlistar, gefur út um 25% þeirrar tónlistar sem kemur út hér á landi og er með um 65% markaðshlutdeild. Þá er fyrir- tækið það stærsta í dreifingu á erlendri tónlist og tölvuleikj- um á Íslandi, og eitt það stærsta í dreifingu á mynd- diskum. Skífan er stærsta plötu- verslun á Íslandi og sem dæmi má nefna að um helmingur allra seldra platna hjá Senu fer til Skífunnar. Skífan og Sena voru eitt sinn í eigu sömu aðila, en Sena er nú í eigu 365 hf. og Skífan í eigu Árdegis ehf. Hagur beggja „Við eigum í mjög miklu og góðu samstarfi við Skífuna, þótt það sé einhver stirðleiki í augnablikinu og menn ekki sammála í einu og öllu. En það er eitthvað sem verið er að vinna í, og verður leyst á allra næstu dögum,“ segir Björn Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Senu. „Við þurftum að hækka verð á öllum okkar vörum í kjölfar gengishækk- ana, og það er eitthvað sem þeir eru að melta.“ Aðspurður segist Björn vita til þess að eitthvað af vörum Senu sé ófáanlegt í verslunum Skífunnar. „Ég veit að það eru einhver göt farin að myndast, og það er meðal annars þess vegna sem menn vilja setjast niður og leysa málið í eitt skipti fyrir öll. Báðir aðilar hafa hag af því að plötusala sé blómleg, eins og hún var á síð- asta ári,“ segir framkvæmda- stjórinn og bætir því við að einnig sé um að ræða mynd- diska og tölvuleiki. „Þannig að þetta er stór og mikilvægur aðili fyrir okkur, og sömuleiðis í hina áttina.“ Ekkert stríð „Þetta er voðalega einfalt. Við rekum smásölufyrirtæki og kaupum vörur til endur- sölu. Ef okkur líkar ekki verðið sem okkur er boðið kaupum við ekki, það er svo einfalt. En svo tuskast menn eitthvað á eins og gengur, það er að segja verslunin og birgirinn,“ segir Sverrir Berg Steinarsson, eig- andi og stjórnarformaður Ár- degis sem á og rekur Skífuna. „Sena er okkar stærsti birg- ir og við eigum fín viðskipti við þá. En það eru einstakir titlar sem menn koma sér ekki sam- an um innkaupsverðið á, og þá er það eins og í hverri annarri verslun að þá er það ekki til. Við viljum geta boðið vöruna á góðu verði, en samt sem áður þurfum við að geta rekið okkar fyrirtæki þannig að sómi sé að. Þannig að þetta beinist ekki gegn Senu sérstaklega, við er- um með tugi þúsunda titla í boði í Skífunni.“ Sverrir segist telja að þær hækkanir sem forsvarsmenn Senu gerðu á vörum sínum fyrir nokkrum vikum hafi ver- ið of miklar. „Við vorum alla- vega ekki tilbúnir til að kyngja því, eins og gengið var á þeim tíma. En þetta er ekkert stríð, og það eru engin illindi. En menn hafa mismunandi skoð- anir á því hvert verðið eigi að vera. Okkar hagur er sá að hafa verðið sem lægst, þá selj- um við meira, en þeir vilja auð- vitað hafa verðið sem þeir selja okkur vöruna á sem hæst,“ út- skýrir Sverrir. Boðað hefur verið til fundar í málinu í dag og eru báðir málsaðilar bjartsýnir á að samningar náist. Stórir titlar ófáanlegir í stærstu plötubúð landsins Sena og Skífan takast á um verð á tónlist, tölvuleikjum og mynddiskum Vatnaskil Nýútkomin askja með öllum plötum Sálarinnar hans Jóns míns er ófáanleg í Skífunni. Björn Sigurðsson Sverrir Berg Steinarsson SVO virðist sem útigangsfólk hafi hreiðrað um sig í gámi sem stendur á lóð við Bergstaðastræti 16. Á lóð- inni er verið að endurbyggja hús sem þangað var flutt en fram- kvæmdir voru stöðvaðar við það um áramótin. Íbúi í nágrenninu, Kári Halldór Þórsson, hefur kært veru fólksins til lögreglu. Hann segir að lögregl- an segist ekkert geta aðhafst í mál- inu, þar sem fólkið sé þar með leyfi eiganda gámsins. Lögreglan stað- festi það í samtali við Morgunblaðið að hafa fengið þær upplýsingar að fólkið væri þarna með leyfi eiganda gámsins. Það er fyrirtækið BBH bygging- arfélag sem á húsið sem flutt var á lóðina. Starfsmaður félagsins sagð- ist í gær ekki hafa heyrt af neinum mannaferðum í gámnum. Það væri af og frá að fólki hefði verið gefið leyfi til að hafast þar við. Málið yrði því strax skoðað. Gámurinn er í eigu SR-verktaka og samkvæmt upplýsingum frá byggingastjóra, Almari Gunnars- syni, sem reyndar sagði sig frá verkinu þar sem framkvæmdir voru stöðvaðar, hafði enginn fengið leyfi til að vera í gámnum. Svo virtist þó sem einhverjar mannaferðir hefðu verið við hann eða í honum en engu verið stolið eða raskað. Skipt var um skrá í gámnum í gær og honum læst. Útigangs- fólk í gámi? Ágreiningur hvort það hafi verið með leyfi eiganda Morgunblaðið/Golli Vistarvera? Gámurinn stendur á lóð við Bergstaðastræti 16.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.